Morgunblaðið - 01.10.1998, Page 31

Morgunblaðið - 01.10.1998, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998 31 LISTIR Ommustelpa kemur aftur ÁRMANN Kr. Einarsson afhendir Birni Bjarnasyni menntamála- ráðherra útgáfubækur FÁKE; Ævintýri lífs mín og Ömmustelpu. FÁKE-forlagið gefur nú út end- urbætta útgáfu verðlaunabókar- innar „Ömnmstelpu" eftir Ár- mann Kr. Einarsson. Nýjar teikn- ingar eru eftir bróðurson Ár- manns, tílfar Örn Valdimarsson. Þessi útgáfa er þannig breytt, að nú bera persónurnar sín réttu nöfn og staðarheiti og lýsingar eru raunverulegar. Armann seg- ist vilja fylgja bókinni úr hiaði með tilvitnun í formálann, sem Sigrún Klara Hannesdóttir, pró- fessor í bókasafns- og upplýs- ingafræði við Háskóla Islands, skrifar: „I fjölda ára var Ármann ókrýndur konungur ævintýra- sagna. ... Sá sem getur gefið sam- ferðafólki sínu, einkum börnum og unglingum, gleði og trú á framtíðina, gefur dýrmæta gjöf. Hann snertir gleðistrengi sálar- innar, kveikir neista sem getur lifað innra með þeim sem taka á móti, löngu eftir að bókinni er lokað og sagan sögð.“ títgefandinn, FAKE-forlagið, segir Ármann að sé þannig til- kominn, að hann hafi í rúm tvö ár unnið að ritun eins konar ævisögu, sem Vaka-Helgafell, forlag hans um árabil, hafnaði. „En ég var ekki tilbúinn til þess að leggja ritstörfin á hilluna," segir Armann. „Og eins og fyrri daginn leitaði ég til minnar góðu íjölskyldu og þá varð Bókaútgáf- an FÁKE, Fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar, til. „Ævintýri lífs míns“ kom svo út haustið 1997 og hlaut góða dóma og afbragðs viðtökur les- enda, þótt hún hefði mátt seljast betur. Næstum í hvert skipti er ég átti erindi niður í bæ, hitti ég fólk á förnum vegi, sem staldraði við, heilsaði og þakkaði mér fyrir bókina. Sumir létu þau orð falla að hún væri hlýlega skrifuð og skemmtileg. Ég hef líka fengið margar upphringingar og bréf. Innilegar þakkir og hjartahlýja samferðafólksins eru mér þúsund sinnum meira virði en peningar." Ármann segist vilja geta þess, að hann og Ólafur Ragnarsson hjá Vöku-Helgafelli hafi lengi átt og eigi enn ánægjulegt samstarf um Islensku barnabókaverðlaun- in, sem nýlega voru afhent í þrettánda sinn. Kvikmyndafélagið Pegasus hefur gert samning við Ármann um gerð sjónvarpsþátta eftir bókafiokknum um Árna í Hraun- koti, en á sjötta áratugnum komu út átta bækur í þeim flokki. Ármann segir enn ekki ljóst, hvenær framleiðsla sjón- varpsþáttanha getur hafizt, en hins vegar er Marteinn Sigur- geirsson hjá Myndmiðlun að ljúka gerð stuttinyndar um líf hans og starf. Þegar spurt er um framtíðina segir Ármann: „Enn hef ég góða heilsu og sæmilegt vinnuþrek. Nú er ég að skrifa nýstárlegt verk, þar sem örlagavaldurinn er draumur. Meira vil ég nú ekki segja um þetta verk að svo komnu máli, nema að það er ekki barnabók.“ Ljáðu þeim eyra á Súfístanum FYRSTA Heimsbókmenntakvöld á vegum Máls og menningar og For- lagsins verður á Súfistanum, bóka- kaffi, í kvöld, fimmtudag, kl. 20.30. Dagski-áin ber yfirskriftina Ljáðu þeim eyra og verður lesið úr fjór- um þýðingum sem ýmist eru komnar út eða era væntanlegar. Þetta era skáldsögurnar Lesarinn, eftir Bernhard Schlink í þýðingu Arthúrs Björgvins Bollasonar; In- femo, eftir August Strindberg í þýðingu Þórarins Eldjái-n; Hund- arnir í Þessalóníku eftir Kjeld Askildsen, í þýðingu Einars Kára- sonar og Líffærameistarinn eftir Federico Andahazi í þýðingu Kol- brúnar Sveinsdóttur. tím leið verð- ur heimsbókmenntaklúbbur Máls og menningai’ kynntur. Á Heimsbókmenntakvöldum verður lesið úr nýjum bókum, höfundar kynntir og fræðirit kynnt og rædd öll fimmtudagskvöld til jóla og á þriðjudagskvöldum frá 27. október til og með 24. nóvember. Auk þess verður m.a. boðið upp á skemmtanir fyrir börn og haldnir tónleikar. Aðgangur er ókeypis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.