Morgunblaðið - 01.10.1998, Side 46
-«*46 FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Okkar hjartkæri sonur, bróðir, barnabarn og
frændi,
ATLI SNÆR JÓNSSON,
Borgarvík 15,
Borgarnesi,
lést á Barnaspítala Hringsins 25. september.
Útför hans fer fram frá Borgarneskirkju
laugardaginn 3. október kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en
þeim sem vilja minnast hans, er bent á Barna-
spítala Hringsins, s. 560 1300.
Sædís Björk Þórðardóttir, Jón Heiðarsson,
Ólafur Þór Jónsson,
Þórður Á. Þórðarson, Ólafía Gestsdóttir,
Heiðar Jóhannsson, Fanney Hannesdóttir
og frændfólk.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
sonur og bróðir,
JÓN HANNIBALSSON,
Bergholti 8,
Mosfellsbæ,
sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðviku-
daginn 23. september, verður jarðsunginn frá
Lágafellskirkju laugardaginn 3. október kl.
13.00.
Ragnhildur Þorleifsdóttir,
Þórunn Stefanía Jónsdóttir, Benedikt Halldór Halldórsson,
Þorsteinn Jónsson,
Berglind Hanna Jónsdóttir,
Þorsteina Kristjana Jónsdóttir
og systkini.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, systir, tengda-
móðir, amma og langamma,
GUÐMUNDA MARGRÉT JÓNSDÓTTIR
frá Laufholti,
sem lést miðvikudaginn 23. september, verður
jarðsungin frá Landakirkju, Vestmannaeyjum,
laugardaginn 3. október kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
minningarkort Landakirkju.
Ármann Bjarnason,
Halldóra Ármannsdóttir, Snorri Snorrason,
María Ármannsdóttir, Grímur Magnússon,
Herbert Ármannsson, Jón Þ. ísaksson
og fjölskyldur.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
PÉTUR ODDBERGUR NIKULÁSSON,
Laugarásvegi 23,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn
23. september sl.
Útförin fer fram frá Áskirkju, á morgun, föstu-
daginn 2. október kl. 15.00.
Sigríður Guðmundsdóttir,
Ingibjörg Ásta Pétursdóttir, Þorsteinn Bergsson,
Gróa Þóra Pétursdóttir, Heimir Sigurðsson,
Pjetur Nikulás Pjetursson, Elsa Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiskulegureiginmaðurminn, faöir, tengdafaðir
og afi,
SIGGEIR VILHJÁLMSSON
stórkaupmaður,
Seljahlíð,
andaðist þriðjudaginn 29. september.
Jarðarförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn
6. október kl. 13.30.
Sigríður Hansdóttir,
Hanna María Siggeirsdóttir, Erlendur Jónsson,
Vilhjálmur Geir Siggeirsson, Kristín Guðmundsdóttir,
Jóna Siggeirsdóttir, Þórólfur Þórlindsson,
Siggeir Siggeirsson, Auður Þórhallsdóttir
og barnabörn.
SIGURÐUR JAKOB
MAGNÚSSON
+ Sigurður Jakob
Magnússon
fæddist í Ólafsvík
10. ágúst 1927.
Hann lést á heimili
sínu á Seltjarnar-
nesi 19. september
síðastliðinn og fór
útfiir hans fram frá
Seltjarnarneskirkju
28. september.
Ég átti erfítt með að
átta mig á því að Sig-
urður Jakob, vinur
minn og traustur sam-
ferðarmaður í áratugi, væri fallinn
frá. Hann var svo sterkur persónu-
leiki, lífsgleðin og krafturinn sem
var einkenni hans, hafði bein áhrif
um leið og hann birtist svo manni
leið strax vel í návist hans, þess
vegna er svo erfitt að sætta sig við
að hann sé horfinn af sjónarsviði
svo skyndilega.
Sigurður Jakob var af góðu fólki
kominn í Ólafsvík, ættfólk hans var
og er sterkir stofnar í þjóðlifinu,
hann var bráðþroska, stór og sterk-
ur og góðum gáfum gæddur.
Það kom fljótt í ljós að hugur
hans stóð til smíða, fljótlega eftir
fermingu byrjaði hann að vinna við
byggingar í Ólafsvík, 18 ára var
hann farinn að vinna hjá bygginga-
meisturum, lagði þannig grunninn
að lífsstai’fi sínu.
Okkar samstarf hófst árið 1945.
Við stofnuðum nokkrir saman tré-
smiðju og hófum starf við íbúða-
byggingar. Ég fékk Sigurð Jakob til
að byggja með mér íbúðarhús að
Engihlíð 2 í Ólafsvík, sem tókst með
miklum ágætum. Dugnaður hans og
útsjónarsemi var einstök af svo
ungum manni. A þessum árum
hófst mikil uppbygging í Ólafsvík,
var því mikil þörf fyrir dugmikla
hæfileikamenn á þessu sviði, þar
var Sigurður Jakob í fremstu röð.
í samráði við Vigfús Vigfússon,
byggingameistara í Ólafsvík stund-
aði hann nám í húsasmíði við Iðn-
skólann í Reykjavík veturna 1948-
50. Hann hlaut meistararéttindi
1958.
Að námi loknu starfaði hann við
byggingaframkvæmdir í Ólafsvík,
bæði við byggingu íbúðarhúsa og
nýrra fískvinnslustöðva.
Hugur hans stefndi að mann-
virkjagerð, sérstaklega hafnargerð.
Árið 1953 urðu þáttaskil, hann réði
sig til starfa hjá Vita- og hafnamála-
stofnun ríkisins sem fullgildur verk-
stjóri við hafnaframkvæmdir víðs-
vegar um landið, þar með var í raun
ævistarf hans mótað, þetta var aðal-
starfsvettvangur hans í 45 ár.
Árið 1962 hófst nýbygging Ólafs-
víkurhafnar. Eftir miklar rannsókn-
ir, meðal annars hjá dönsku hafna-
rannsóknarstofnuninni, varð niður-
staðan sú að stjórnvöld samþykktu
byggingu nýrrar stórhafnar í Ólafs-
vík og fjármagn tryggt. Ákveðið var
að setja út mikla brimbrjóta úr
grjóti, dýpka svæðið með dæling-
um, setja niður stálþii og 120 metra
langa harðviðarbryggju með við-
legu beggja vegna.
Hafnamálastofnun samþykkti að
fela verkið allt hæfasta yfirverk-
stjóra sínum, Sigurði
Jakob. Þessi verká-
fangi stóð yfir nær
stanslaust í 4 ár. Þegar
harðviðarbryggjan var
vígð til notkunar 1966
urðu þáttastól í hafna-
sögu Ólafsvíkur.
Stærri fiskiskip og
flutningastóp gátu nú
legið við bryggju án
áfalla í öruggu skjóli.
Þar með var mitólvæg-
asta framkvæmd í sögu
Ólafsvíkur orðin að
veruleika.
Við vígsluathöfnina
kom fram í máli hafnamálastjóra og
annarra ráðamanna, að Sigurður
Jakob, yfirverkstjóri og yfirsmiður,
hefði unnið lofsvert afrek við bygg-
ingu þessara nýju hafnarmann-
virkja. Verkið allt, sérstaklega þessi
mikla harðviðarbryggja, væri sann-
kallað meistaraverk.
Eftir verklok þessa stóra áfanga í
Ólafsvík, var Sigurður Jakob yfir-
verkstjóri Hafnamálastofnunar við
hafnaframkvæmdir víðsvegar um
land við mikinn orðstír og eftirsótt-
ur til að stjórna stórum verkum.
Ég naut þess á þessum árum að
eiga mikil samskipti við Sigurð Jak-
ob, sem oddviti og formaður hafnar-
nefndar. Þar var ánægjulegt og um
leið lærdómsríkt að fylgjast með
hvemig hann vann þessi stórverk,
hvernig hann undirbjó hvert atriði
framkvæmda í öllum atriðum áður
en framkvæmdin sjálf hófst. Þetta
gerði hann að sterkum fram-
kvæmdaaðila.
Ég minnist margra gönguferða
sem við Sigurður fórum saman til
að leita að hentugu grjótnámi, verk-
fræðingar sem komu að þessari
hafnargerð sáu strax að Sigurður
Jakob hafði fullt vald á verkinu í
smáu og stóru, traustleiki og út-
sjórnarsemi ruddu öilum erfiðieik-
umúr vegi.
Ég þakka af alhug að hafa átt vin-
áttu Sigurðar Jakobs og hafa fengið
að kynnast mannkostum hans.
Ég fylgdist með starfsferli hans
eftir að hann flutti frá Ólafsvík,
bæði við verkstjórn hans hjá ístaki
hf., m.a. við byggingu Járnblendi-
verksmiðjunnar við Grundartanga,
og síðar er hann gerðist yfirverk-
stjóri við Reykjavíkurhöfn 1983.
Þar naut hann sín vel við fjölbreytt
störf, þar til hann lét af störfum á
síðastliðnu ári við lögleg aldurs-
mörk.
Fyrrverandi hafnarstjórinn í
Reykjavík sagði mér að betri mann
hefði hann ekki getað fengið til að
stjórna þessum margvíslegu störf-
um, búinn öllum bestu kostum sem
slíkur maður þyrfti að hafa.
Sigurður Jakob átti því láni að
fagna að njóta trausts og vináttu
jafnt vinnufélaga sem og yfirmanna
í öllum sínum störfum.
Sigurður Jakob var hamingju-
maður í fjölskyldulífi. Þau Brynhild-
ur eiginkona hans áttu vel saman og
eignuðust mannvænleg börn.
Það var ávallt ánægjulegt að
mæta þeim hjónum á förnum vegi,
Sigurður Jakob var afar stoltur af
börnum sínum og heimili og brosti
sínu breiða og hlýja brosi þegar
fjölskylduna bar á góma.
Við Björg áttum því láni að fagna
að eiga traustan vin í Sigurði Jakobi
í tugi ára. Við þökkum honum sam-
fylgdina og vottum Brynhildi og
börnum þeirra og öðrum ástvinum,
okkar dýpstu samúðarkveðjur og
biðjum góðan Guð að blessa þeim
minninguna.
Minning hans lifir.
Alexander Stefánsson.
RAGNAR
GUÐMUNDSSON
+ Ragnar Guð-
mundsson fædd-
ist í Ásbúð í Hafnar-
firði 29. júní 1903.
Hann lést 3. sept-
ember síðastliðinn
og fór útfór hans
fram frá Hvíta-
sunnukirkjunni
Ffladelfíu 11. sept-
ember.
Elsku afí Ragnar.
Við viljum minnast
þín í fáum orðum. Við
kynntumst þér betur
þegar við fluttum saman til ísiands
fyrir 10 árum. Kynni okkar urðu
nánari síðsutu árin eftir að amma
Regína dó. Þú hafðir sérstakan per-
sónuleika og skemmtilega djúpa
kímnigáfu. Þú varst vel lesinn og
bjóst yfir mikilli þekkingu og við
nutum góðs af því með skemmtilega
sögðum frásögnum þínum. Þú gerð-
ist trúaður um miðjan aldur og trú-
in skipti þig miklu máli í lífinu.
Missir þinn þegar Regían dó var
mikill og þú þakkaðir Guði fyrir þá
góðu konu. Fljótlega gast þú ekki
LEGSTEINAR
í rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum
við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir
legsteina og minnisvarða úr íslenskum
og erlendum steintegundum.
Verið velkomin til okkar eða
hafið samband og fáið myndalista.
ÍS S.HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP.,SÍMI:557-6677/FAX:557-8410
búið lengur í húsinu á
Laugarnesveginum og
fluttir í htla notalega
íbúð á Dalbraut þar
sem þú gast haft þína
kærustu muni hjá þér.
Þú vitnaðir fyrir sam-
búendum þínum um
Guð. Omega stytti þér
stundimar og jók trú-
artraustið þar sem þú
gast ekki lengur farið á
samkomur.
Síðustu árin má
segja áð þú hafir bara
verið að bíða eftir að
komast heim til
Regínu. Þú varðst smám saman lún-
ari og þreyttari þó að þú hafir verið
skýr og haldið þínum persónuleika
fram á það síðasta. Missir okkar er
mikill og við söknum þin sárt. Við
hefðum viljað vera hjá þér síðustu
dagana og vikurnar. Þó gleðjumst
við yfir því að þú ert loksins búinn
að hitta Regínu eftir sjö ára aðskiln-
að og Drottin þinn sem hélt þér
uppi. Við vitum að þú hefur það
miklu betra þar sem þú ert núna og
hefur fengið fullkominn frið og ert
laus við þjáningu. Við erum Drottni
innilega þakklát fyrir að hafa getað
átt þessi síðustu ár með þér.
Þín
Ólafía og Ragnar.
^iiiiiriny
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Erfidrykkjur
Sími 562 0200
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
j\j/l
rriiiiixiiiil