Morgunblaðið - 01.10.1998, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 01.10.1998, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998 55Í, ______BRÉF TIL BLAÐSINS_ Svar til Umferðarráðs Frá Guðvarði Jónssyni: SIGURÐUR Helgason, upplýs- ingafulltrúi Umferðarráðs, segir í bréíí til Morgunblaðsins þann 26. september sl., að ég hafí í bréfi til Morgunblaðsins þann 17. septem- ber sl., verið með alvarlegar at- hugasemdir við málflutning starfs- manna Umferðarráðs. Það sem ég var að gagnrýna í málflutningi Umferðarráðs, var orðalag á til- kynningu til vegfarenda. Þar óskaði Umferðarráð eftir því að ökumenn héldu uppi eðlilegum um- ferðarhraða, fylgdu etir aðal- straumnum, til að forðast framúr- akstur og vikju vel út í kant fyrir þeim sem fram úr vildu fara. Einnig taldi Umferðarráð að þeir sem hægast ækju væru þeir hættu- legustu í umferðinni. Þetta stað- festir Sigurður Helgason í sínu bréfi og segir: Þeir sem aka mun hraðar en lög leyfa og þeir sem aka mun hægar en meginstraumurinn, eru hættulegustu mennirnir í um- ferðinni: Þegar fólk er hvatt til þess að fylgja eftir meginstraumnum, virk- ar það með þessum hætti. Verði fólk vart við að margir aki fram úr, fer það að auka hraðann í þeim til- gangi að finna_ hver hraði aðal- straumsins sé. Utkoman verður sú að það fer ekki að fylgja aðal- straumnum fyiT en hraðinn er orð- inn um 110 km. Þetta er staðreynd sem verður ekki breytt með því að neita staðreyndum. Þeir sem hæg- ast aka eru á 70-90 km hraða. Þetta eru sleðarnir í umferðinni. Einmitt þeir menn sem aka á lög- lega hraðanum. Það er umhugsun- arvert að ef allir ækju á 70-90 km hraða, myndu stórslys í umferðinni nánast hverfa, milljarðar sparast hjá tryggingafélögum og ríki, einnig bensín og viðhaldskostnaður hjá ökumönnum. Það er því um- hugsunarvert fyrir Umferðarráð að kalla þessa menn hættulegustu mennina í umferðinni. Aðalmunurinn á skoðun minni og Umferðarráðs er sennilega í því fólginn, að starfsmenn Umerðar- ráðs fá meginhluta sinna upplýs- inga um umferðina frá öðrum, en ég hef haft það fyrir atvinnu í ára- tugi að vera á ferðinni í umferðinni alla daga, og oft verið akandi meiri- hluta sólarhringsins, eins og mun vera tíska hér á landi að láta at- vinnubílstjóra gera. Að lokum vil ég segja þetta. Um- ferðarráð má ekki kalla gagnrýni al- varlega aðfór að Umferðarráði. Gagmýni er Umferðarráði nauðsyn- leg, því enginn verður góðm' stjórn- andi nema fá gagnrýni og þoli hana. Svo þakka ég Sigurði Helgasyni fyrii' athugasemdina og óska honum og öðium starfsmönnum Umferðar- ráðs, velfamaðar á ókomnum áium. GUÐVARÐUR JÓNSSON, Hamrabergi 5, Reykjavík Hætta í nálæg’ð Frá Alberti Jensen: UM ÞESSAR mundir eru rúss- neskir verktakar að reisa raf- magnsmöstur og leggja línu fyrir íslendinga. Starfsfólk er frá báðum löndum. Ljóst er að Rússarnir hafa fengið góða starfsmenn frá heima- landinu og íslendinga í þessari starfsgrein þekkja allir að dugnaði og öryggi. Rússar voru með lægsta tilboð í verkið þrátt fyrir verkfæra- búnað sem er 20 til 30 árum á eftir, svo þeir virtust treysta á eitthvað sem flestum var hulið. En nú hafa rússnesku verktak- amir gert ljóst á hverju þeir lum- uðu og hvernig þeir leysa svo ein- föld mál, sem kaup og kjör starfs- manna eru í þeirra augum. Kostn- aður vegna launa og aðbúnaðar miðast við Rússland og gerir því hagnað mögulegan til verktakanna, sem þjást ekki beinlínis af sann- leiksást né öðrum þvílíkum eigin- leikum. Þeir virðast hafa gert sér ljóst að stjórnvöld hér eru höll und- ir einkaframtak og þar með þá sem kunna að bjarga sér á kostnað ann- ara. Og á því sviði virðast verktak- arnir engir nýgræðingar því þeir létu fljótlega hendur standa framm úr ermum við að féfletta landa sína og pretta þá í sem flestu. íslend- ingarnir áttu að fá sömu útreið í aðbúnaði, en þá kom það óvænta, verkalýðsforystan. Rússnesku verktakarnir, sem koma frá landi í upplausn, landi þar sem gamalt fólk stendur úti í kuldanum biðj- andi um mat og verkamenn eiga margra mánaða lúsarlaun sín inni, telja sig eiga allskostar við nær bjargarlausa verkamenn sína frá heimalandinu. En þeir misreikn- uðu sig. íslensk alþýða og verka- lýðsforingar leyfa ekki að útlend- ingar séu þrælkaðir og hlunnfarnir í okkar landi. Vont er ef íslenskir undirverk- takar Rússanna sjá ekki sóma sinn í að styðja við bakið á verkalýðsfor- ingjum til að koma réttlætismálum fram fyrir hina vinnandi menn. Að reka fólk sem vill standa á sínum rétti og annaira er lítilmennska sem huglausir hafa í hávegum. Af slíkum mönnum stafar hætta fyrir verkalýðinn og reyndar alla þjóð- ina. Verkafólk verður að halda vöku sinni og vera á sífelldum vei'ði því hættan á kúgun er alltaf í ná- lægð. ALBERT JENSEN, Háaleitisbraut 129, Reykjavík. HSM pappírstætarar Leiðandi merki - Margar stærðir Þýzk gæði - Örugg framleiðsla J. ÓSTVfiLDSSON HF. Skipholti 33, 105 ftevkjavík, simi 533 3535 B arnamyndir Við brosum - þú líka BARNA ^FJÖLSKYIDI) IJfíSM YNDIR Ármúla 38 • sími 588-7644 Ciunnar Leifur Jónasson Ert þú EINN í heiminum? Við erum til staðar! VINALÍNAN @ 561 6464 800 6464 öll kvöld kl. 20-23 Afrek Þorsteins Pálssonar Frá Pórdísi Guðbjartsdóttur: EKKI fer nú mikið fyrir hóli í garð Þorsteins Pálssonar sjávarútvegs- ráðhen'a. Samt hafa nýlegar mæl- ingar á þorskseiðum staðfest betur en nokkuð annað gildi þeh'rar sjávaiútvegsstefnu sem Þorsteinn Pálsson hefur fylgt eftir af mikilli staðfestu. Hér koma að hluta til hagstæðar aðstæður í sjónum, en fiskifræðingar sem stunduðu mæl- ingarnar taka líka fram að sjávar- útvegsstefnan hjálpi mikið til. Sennilega gera fáir sér grein fyrir hversu erfitt er fyrir ráða- mann að fylgja eftir af staðfestu þeirri sjávarútvegsstefnu sem hér er fylgt. Allir vilja eiga fiskinn í sjónum og vissulega má deila um leigukvótakerfið sem er vissulega óréttlátt. En tekið skal fram að undirrituð á ekki eitt kíló af kvóta og þekkir ekki Þorstein Pálsson. En þegar horft er yfir sviðið af sanngirni þá stendur staðfesta Þorsteins Pálssonar sjávaiútvegs- ráðherra upp úr og þjóðin öll upp- sker í formi verðmætari sjávarafla og vaxandi velsældar. ÞÓRDÍS GUÐBJARTSDÓTTIR, Hverafold 96, Reykjavík. Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Nýbýlavegi 12, sími 5544433 VANTARÞIG V0G EINFALDAR 0G ÓDÝRAR KRÓK- ^ B0RÐ- -Ay GÓLF. —. FÓLKS"—' NÁKVÆMIS. BÍU. / BRAUTAB- * VIOGERÐIR 0G ÞJÓNUSTA Leiiið upplvsinga ÓLAFUR GÍSLAS0N & C0HF svNimoRG# síMiMm FAxmm KIRKJUSTARF Sýningar hafnar á ný! „Jákvætt námskeið um hjónaband og sambúðu UNDANFARNA tvo vetur hafa verið haldin námskeið í Hafnar- fjarðarkirkju um hjónaband og sambúð undir yfirskriftinni „Já- kvætt námskeið um hjónaband og sambúð". Gríðarlega góð þátttaka hefur verið á námskeiðunum þessa tvo vetur og eru þátttakendur nú orðnir rúmlega 1.000, þ.e. 500 pör. Hefur námskeiðið einnig verið hald- ið á Akureyri, á Suðurlandi og víð- ar. I sumar hefur verið hlé á nám- skeiðahaldi en frá og með 1. sept- ember hófust námskeiðin á nýjan leik. Þegar á fyrstu viku skráningar var fullbókað á öll námskeiðin fram að jólum og sýnir það vel hversu mikil þörf er fyrir slík námskeið. Markmið námskeiðanna er að veita hjónum og sambýlisfólki tækifæri til þess að skoða samband sitt í nýju ljósi, styrkja það og efla og íhuga hvernig hægt er að taka tíma frá fyrir hvort annað. Efnið er kynnt með fyrirlestrum og í samtölum. Námskeiðin eru öllum opin og henta bæði þeim er lengi hafa verið í sambúð eða hjónabandi, og hinum er nýlega hafa ruglað saman reyt- um. Námskeiðin era ókeypis en að- eins 12 pör komast á hvert nám- skeið. I undirbúningi er að halda námskeiðin á Austurlandi síðar í haust í samvinnu við presta þar og verður það þá kynnt nánar. Byrjað verður að skrá á vornámskeiðin í Hafnaifjarðarkirkju í fyrstu viku desembermánaðar en ekki er tekið við bókunum fyrr en þá. Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs- hópa kl. 14-17. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, íhugun, altaris- ganga. Léttur málsverður í safnað- arheimili eftir stundina. Háteigskirkja. Starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17. Kvöldsöngur með taizé- tónlist kl. 21. Kyrrð, íhugun, endur- næring. Allir velkomnir. Laugarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.10. Orgeltónlist frá kl. 12. Léttur málsverður að stundinni lokinni. Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn á föstudögum kl. 10-12. Digraneskirkja. Mömmumorgnar kl. 10-12. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. Bænarefnum má koma til sóknai-prests eða kirkjuvarðar, einnig má setja bænarefni í bæna- kassa í anddyri kirkjunnar. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 11- 12 ára kl. 16. Grafarvogskirkja.Kyrrðarstundir kl. 12.15. Mömmumorgnar kl. 10-12. Dagskráin í vetur verður fjölbreytt og boðið verður upp á áhugaverða fyi-irlestra og skemmtilegar sam- verustundir. Æskulýðsfélagið 10. bekkur kl. 20-22. Hjallakirkja. „Kirkjuprakkarar", starf fyrir 7-9 ára, kl. 16.30. Kópavogskirkja. Starf eldri borg- ara í dag kl. 14-16 í safnaðarheimil- inu Borgum. Kyrrðar- og bæna- stund í dag kl. 18. Fyrirbænaefnum' má koma til prests eða kirkjuvarð- ar. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 10-12 ára börn frá kl. 17-18.30 í safnaðarheimilinu, Linnetstíg 6. Æskulýðsfundur kl. 20-22. Hafnarfjarðarkirkja. Mömmumorgnar kl. 10-12 í Vonar- höfn. Vídalínskirkja. Bæna og kyrrðar- stund kl. 22. Kaffi eftir athöfn. Víðistaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12. Opið hús fyrir 10-12 ára börn kl. 17-18.30. Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl. 18.30. Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl. 17-18 TTT (10-12 ára) starf í safnað- arheimilinu. Kl. 20, krakkar munið eftir æskulýðsfundinum í kvöld í KFUM og -K húsinu. Rætt verður um dagskrá vetrarins. Keflavíkurkirkja. Alfanámskeið (byrjunarhópur) hefst í Kirkjulundi kl. 19 og lýkur í kirkjunni um kl. 21.30. Námskeiðin byggjast á sam- veru og fræðslu um kristna trú. Akraneskirkja. Fvrirbænastund kl. 18.30. Hjálpræðisherinn. Kl. 20.30 lof- gjörð og bæn. Allir hjartanlega vel-» komnir. Bein útsending frá fundi borgarstjórnar í dag kl. 17:00 IMær BaABfiiRdr Safnaðarstarf ÓSKASTJARNAN eftir Birgi Sigurðsson Næstu sýningar: 3. -11. og 17 október WÓÐLEIKHÚSIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.