Morgunblaðið - 01.10.1998, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 01.10.1998, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998 61^. FÓLK í FRÉTTUM Söngurinn hrein tilfínning í SÉRÚTGÁFU tímaritsins Gramophone, Explorations 3, þar sem teknir era fyrir víðfrægir tón- listarmenn á borð við Bob Dylan, Beck og John Coltrane, er löng um- fjöllun um Björk Guðmundsdóttur. Blaðamaðurinn Robert Heller á þar viðtal við hana um tónlistina, Island og væntanleg verkefni. Hér verður bragðið upp myndum úr viðtahnu og umfjölluninni sem öll er afar jákvæð. Byrjað er á því að lýsa Björk sem óvenjulegum listamanni sem hafi byggt upp fágað tónlistarkeríi í ki'ingum íróníska persónulega heimsmynd. Tónlist Bjarkar sé óháð ytri vísunum en styðjist mun meira við innri vísanir. Þetta er tengt heimalandi Bjarkar, íslandi, og tón- hstarlegum bakgranni hennar. „Klassískm- bakgrannur, næmt auga fyrir smáatriðum og viljinn til að koma mikiivægum hugmyndum á framfæri í tónlistinni er það sem helst einkennir Björk.“ Hrikaleiki íslenskrar náttúru kemur fram í tónlistinni Heller telur að þrjú atriði hafi áhrif á sérstöðu Bjarkar í tónlistar- heiminum: Ótrúleg röddin, sérstak- ur persónuleiki og síðast en ekki síst heimalandið ísland. Hann seg- ir að í textum hennar séu persónu- legar vísanir í íslenska náttúru, fjöllin og hafið. Hljómarnir beri einnig með sér hrikaleik íslenskr- ar náttúru. Enda segir Björk um Island: „Islensk náttúra er krafl> mikil og miskunnarlaus. I henni era ástríður og \ fegurð, sem þó er mjög ólík „venjulegri“ feg- urð Alpanna eða ein- hverra hitabeltisblóma. Á íslandi geturðu fundið viðkvæm blóm á stærð við fmgurnögl í landslagi sem einkennist af hrikalegri, stór- brotinni fegurð. Veðurfarið er óút- reiknanlegt. Allar tegundir veðurs geta skollið á sama daginn og sólar- lagið er engu líkt.“ Björk segir Heller að hún sé sannfærð um að hrikaleiki íslenskrar náttúru komi fram í tónlist hennar. „Ég veit ekki hvernig. Ég veit bara að áhrifin eru til staðar. Samt veit ég að tónlistina sem ég heyri í höfðinu á mér þegar ég geng um íslenska náttúra hef ég ekki ennþá samið eða skrifað um. Kannski mun ég aldrei gera það, en ég mun samt reyna.“ Syngur klassíska verkið „Pierre Lunaire" í greininni er farið yfir sögu Bjarkar og feril hennar sem sólólistamanns. Rödd hennar er sögð einstök og að hún eigi sér enga hliðstæðu í heimi popptónlist- ar. En það sé ekki einungis röddin sem geri Björk jafn sérstaka og raun ber vitni, því vilji hennar til að takast á við ný og krefjandi verkefni sé einstakur í heimi popptónlistar. Þar sé komin ástæð- an íyrir því fjölbreytilega sam- starfi sem Björk hefur átt við aðra listamenn eins og Howie B, Nellee Hooper, Tricky og Mark Bell, auk þess sem klassískir tónlistarmenn á borð við Evelyn Glennie, Brod- sky Quartet og Joanna McGregor vilji ólmir vinna með henni. Nýjasta verkefni Bjarkar er í sam- vinnu við Kent Nagano sem er að setja upp verkið Pieirot Lunaire eftir Schoenberg. Verkið er samið fyrir kvensöngvara sem ekki hefur lært óperusöng. Stjórnleysi merkingarlaust ef þú kannt ekki reglurnar Björk segir Heller að mjög áhugavert hafi verið að vinna að verkinu. „Ég syng bara lög eftir sjálfa mig og hafði gott af að syngja verk eftir annan listamann, sér- staklega svona krefjandi verk. Það kom mér á jörðina.“ Nagano vildi þó að Björk hefði eins mikið frelsi við túlkun og hún vildi, en hún var því ekki sammála. „Fyrst varð ég að læra það nákvæmlega eins og Schoenberg skrifaði verkið. Það er lágmarks virðing við listamanninn. Stjórnleysi hefur enga merkingu ef þú kannt ekki reglurnar. Ég trúi að Schoenberg sé einn af séníum 2.0. aldarinnar, og eins og hann skrifar Pierre Lunaire er ljóst að hann vill að söngvarinn færi sinn karakter í túlkunina, sé meira knúin náttúru- legum krafti en aga. Ég vildi ekki valda honum vonbrigðum," segir Björk í viðtalinu. A tónlistarhátíð í Sviss nýverið fluttu Björk og Nagano fjórar sen- ur úr Pierre Lunaire fyrir lítinn áheyrendahóp. Verkið var tekið upp á myndband og á Heller vart orð til að lýsa hrifningu sinni, þótt hann taki fram að hugsanlega muni þeir sem halda fastast í hefðina ekki vera jafn hrifnir. Björk var einnig ánægð með flutninginn, því hún segir að þetta hafi verið stór- kostleg upplifun. „Ég gerði það sem ég hef ekki gert áður með því að beita mig þessum mikla aga í söngnum. Fyrir mér þarf aga til að skrifa og byggja upp tónlist. Söng- ur er hins vegar hrein tilfinning, náttúrulegur kraftur." Björk í virtu tónlistartímariti UPPS"P októbertilboð Áður 75 kr. Freyju-möndlur, 200 g • Freyju-bombur, 200 g Peanött súkkulaði • Toppris súkkulaði Bounty, 57 g ■ Snickers, 65 g Mars, 65 g ■ Twix, 58 g Áður 59 kr. Kleinur frá Ömmubakstri, 10 stk. Flatkökurfrá Ömmubakstri Simoniz Backtol ■ Black klútur • Simoniz hreinsipúði Simoniz Wash and Wax bréf NÝTT: Ofn- og grillhreinsir 1 litri Baðherbergis- hreinsir 1 litri 456 'kr. Alhliða eldhúshreinsir 1 lítri 405t ’kr. Uppgrip eru á eftirtöldum stöðum: O Sæbraut við Kleppsveg @ Mjódd í Breiðholtí ® Gullinbrú 1 Grafarvogi O Hamraborg í Kópavogi O Álfheimum við Suðurlandsbraut Q Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ O Háaleitisbraut við Lágmúla O Vesturgötu í Hafnarfirði O Ánanaustum O Langatanga í Mosfellsbæ HHHHsiidl Ö Tryggvabraut á Akureyri letfir þér lífíð Læknirinn er kominn! Forsýnd i kvöld kl. 9 LAUGA ÁLFABAKKA B/Ö SKI-F-A-N
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.