Morgunblaðið - 16.10.1998, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Rætt um
kaup á
50-100
rafbflum
ÍSTRAKTOR, umboðsaðili Fi-
at á íslandi, hefur gert opin-
berum aðilum tilboð um kaup
á 50-100 rafbílum af gerðinni
Fiat Seicento Elettra.
Tilboðið er gert á grunni
Zeus verkefnisins sem Evr-
ópusambandið stendur að og
miðar m.a. að framleiðslu og
útbreiðslu á vistvænum bif-
reiðum. Evrópusambandið
styrkir kaup á rafbílum í fimm
borgum í Evrópu.
Páll Gíslason, framkvæmda-
stjóri ístraktors, segir að verð
á hverjum bíl sé 1.870.000
krónur með rafgeymum og
hraðhleðslutækjum og eru
þeir tilbúnir til notkunar. An
styrkja ESB kosta þeir tæpar
tvær milljónir kr.
Páll segir að veitufyrirtækj-
um Reykjavíkurborgar og
ýmsum ríkisfyrirtækjum hafi
verið gert tilboð um kaup á
rafbílum.
FRÉTTIR
Ríkiskaup og ráðgjafí í EES-málum vara stjórnvöld við að hunsa EES-reglur
Bjóða verður smíði
varðskips út á EES
BJÖRN Friðfinnsson, ráðgjafi ríkisstjómar ís-
lands í EES-málum, telur að bjóða verði út
smíði varðskips fyrir Landhelgisgæsluna á Evr-
ópska efnahagssvæðinu. Ríkiskaup komast að
sömu niðurstöðu og vara, líkt og Björn gerir, við
því að útboð innanlands kunni að leiða til kæru
sem geti tafíð málið í 1-2 ár.
„Eg tel að athuguðu máli, að hér sé um fram-
kvæmd að ræða sem fellur undir útboðsreglur
EES-samningsins og að smíðina þurfí að bjóða
út á hinu Evrópska efnahagssvæði. Engin
skylda hvílir hins vegar á íslenskum stjómvöld-
um að taka tilboðum frá ríkjum utan EES,
a.m.k. meðan Islendingar em ekki aðilar að
reglum Alþjóða viðskiptastofnunarinnar um op-
inber innkaup, en það em þeir ekki nú,“ segir
Björn í áliti til smíðanefndar nýs varðskips.
Gæti tafið verkið
„Afleiðingar þess að bjóða smíði varðskipsins
ekki út á EES-svæðinu gætu orðið kærur til
Eftirlitsstofnunar EFTA í Brussel, sem m.a.
getur óskað stöðvunarúrskurðar til bráðabirgða
frá EFTA-dómstólnum í Lúxemborg og þar
með valdið slæmum töfum á smíðinni,“ segir
ennfremur í álitsgerðinni.
Sömu sjónarmið koma fram í áliti Ríkis-
kaupa, en þar segir að það sé álit stofnunarinn-
ar að smíðin falli ekki undir undantekningu frá
útboðsskyldu. Verði málið kært til Eftirlits-
stofnunar EFTA geti það tafið málið um 1-2
ár.
Skipið í þágu öryggis rfkisins
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra sagði
að hann hefði gert ríkisstjóminni grein fyi-ir því
að þessum sjónarmiðum hefði verið haldið fram.
„Þama er hins vegar um að ræða skip sem not-
uð era við gæslu landhelginnar og flokkast því
undir að vera í þágu öryggis íTkisins. Þess
vegna teljum við okkur leyfílegt að gera þetta
með þessum hætti.“
Þorsteinn sagðist ekld geta fullyrt um hvort
hætta sé á að komi til málaferla vegna ákvörð-
unar ríkisstjómarinnar að bjóða verkið út inn-
anlands. Hann sagðist vonast eftir að til þess
kæmi ekki.
Þorsteinn sagði ekki endanlega ákveðið
hvemig staðið yrði að samningum um smíði
varðskipsins, en kvaðst reikna með að verkefnið
yrði boðið út innanlands. Rætt hefur verið um
að íslenskar skipasmíðastöðvar hafi samstarf
um smíði skipsins, en Þorsteinn sagði að eftir
væri að kanna hvort slíkt samstarf og stærð
verksins takmörkuðu möguleika á útboði.
Smíðanefndin myndi vinna málið frekar og eins
væri til skoðunar hvort nauðsynlegt væri að
leggja fram fmmvarp á Alþingi vegna málsins.
I áliti Bjöms Friðfinnssonar er þeim rökum
hafnað að um sé að ræða varðskip sem vinni
verkefni í þágu öryggis ríkisins. Dani»hafa látið
byggja varðskip í Danmörku með þeim rökum
að þau taki þátt í að verja Danmörku. Bjöm
segir að íslensku varðskipin séu eingöngu smíð-
uð til löggæslu og björgunarstarfa. Þau séu ekki
brynvarin eða búin til sjóhemaðar.
Verðtryggð bréf sparisjóða tryggja þá fyrir hjöðnun verðbólgn
Gólf í verðtryggingu
sem aldrei er notað
Morgunblaðið/Ásdís
Eimskip flytur
túnfisk til Japans
SAMKVÆMT ákvæði verð-
tryggðra skuldabréfa sparisjóð-
anna getur höfustóll skuldarinnar
aldrei lækkað niður fyrir grunn-
vísitölu bréfsins. Að sögn Sigurðar
Hafstein, framkvæmdastjóra
Sambands íslenskra sparisjóða,
hefur þessu ákvæði aldrei verið
beitt. Talsmenn viðskiptabank-
anna segja sömuleiðis að verð-
tryggð skuldabréf sem þeir gefa
út fylgi vísitölu og lántakandi njóti
þess í lánskjömm þegar vísitalan
lækkar.
Á tímum verðbólgunnar leiddu
fáir hugann að því að sá tími gæti
komið að vísitala neysluverðs
lækkaði milli mánaða. Verðtryggð
lán hækkuðu því jafnt og þétt
samhliða hækkun vísitölunnar.
Sigurður Hafstein sagði að fyrir
10-15 áram hefði það gerst í
fyrsta skipti að neysluverðsvísi-
tala lækkaði milli mánaða og það
hefði leitt til umræðu um hvort
eðlilegt væri að lækka höfuðstól
verðtryggðra innlána. Þessi um-
ræða hefði leitt til þess að bætt
var við ákvæði verðtryggðra
skuldabréfa sparisjóðanna setn-
ingu þar sem segir: ,Áldrei skal
þó miðað við visitölu neysluverðs
sem er lægri en grunnvísitala
þessa bréfs.“
Sigurður sagði að þrátt fyrir
þetta ákvæði hefði aldrei komið til
þess að því væri beitt. Lántakend-
ur hefðu því alltaf notið þess í láns-
kjömm þegar vísitala lækkaði milli
mánaða. Sömuleiðis hefðu verð-
tryggðir innlánsreikningar hækkað
og lækkað í takt við verðlag.
Bankarnir segjast ekki hafa
tryggt sig fyrir verðhjöðnun
Ef þetta ákvæði skuldabréfa
sparisjóðanna gilti myndi lántak-
andi sem tæki verðtryggt lán þar
sem miðað er við grunnvísitölu 180
ekki njóta þess í lánskjömm ef
neysluverðsvísitala færi niður í
179. Ekki myndi hins vegar reyna
á þetta ákvæði ef lántakandi hefði
t.d. tekið lán þegar gmnnvísitalan
vai- 175 og vísitalan hækkaði í 180
og lækkaði svo aftur niður í 179.
Hann myndi njóta þess í lánskjör-
um að verðbólga hefði lækkað milli
mánaða.
Eins og áður segir hafa spari-
sjóðirnir aldrei beitt þessu ákvæði
skuldabréfanna. Sigurður sagðist
frekar eiga von á að þetta ákvæði
yrði tekið út úr ákvæðum nýrra
skuldabréfa.
I skuldabréfum Landsbanka,
Búnaðarbanka og Islandsbanka er
ekki að fínna ákvæði sem orðað er
með sama hætti og hjá sparisjóð-
unum. I skuldabréfi Landsbankans
segir að höfuðstóll skuldarinnar
breytist í hlutfalli við breytingar
„frá gmnnvísitölunni“. í verð-
tryggðu skuldabréfi Búnaðarbanka
segir að höfuðstóll skuldar breytist
í hlutfalli við vísitölu neysluverðs
„frá ofanskráðri grannvísitölu". Og
í verðtryggðu skuldabréfí íslands-
banka segir að höfuðstóll skuldar-
innar breytist í hlutfalli við breyt-
ingar á vísitölu neysluverðs „frá
gmnnvísitölu samkvæmt ofan-
skráðu“.
Talsmenn allra bankanna
þriggja fullyrða að ekki beri að
skilja ákvæði skuldabréfanna með
þeim hætti að eitthvert gólf sé í
verðtryggingunni. Höfuðstóllinn
taki mið af vísitölu neysluverðs og
geti ef þær aðstæður koma upp
lækkað niður fyrir gmnnvisitölu
viðkomandi skuldabréfs.
Sá texti sem lántakandi skrifar
undir þegar hann tekur lán felur i
sér samning milli hans og viðkom-
andi banka. Lög kveða ekki af-
dráttarlaust á um hvemig þessi
texti skuli vera. Þess má geta að
þegar ríkið hóf að selja spariskír-
teini ríkissjóðs var þar að fínna
sambærilegt ákvæði um að höfuð-
stóll gæti ekki lækkað niður íyrir
grannvísitölu. Akvæðið vemdaði
eiganda spariskírteinis iyrir því að
tapa peningum í verðhjöðnun,
þ.e.a.s. spariskírteinið gat aldrei
orðið minna virði en það var þegar
það var upphaflega keypt.
TÚNFISKI var í gær landað úr
japanska túnfiskveiðiskipinu
Tensho Mam á Miðbakka í
Reykjavík og verður fiskurinn
fluttur með Eimskipi um Ham-
borg til Japans í sérstökum gám-
um frá Maersk. Gámarnir em
sérstaklega hannaðir fyrir þenn-
an flutning og er frostið í þeim
h-60 gráður sem er nauðsynlegt
fyrir þennan farm. Verðmæti
innihaldsins í hveijum gámi er
30-40 milljónir króna. Þetta er .
að öllum líkindum í fyrsta skipti
sem túnfíski er landað hér á
landi. Fiskarnir vom hífðir tveir
í einu upp úr 55-60 gráða frosti
og siðan var þeim raðað inn í
gámana, en túnfiskarnir vega
100-200 kíló hver.
öð í dag
m LSÍDíist
A FOSTUDOGUM
ámámtíii
Snætt með
stórfjölskyldu
Stefaníu
Skapa fötin
nútímakon-
una?
MEÐ blaðinu í
dag fylgir auglýs-
ingabæklingur frá
ístraktor þar sem
kynntir eru bílar
frá Ítalíu.
Jón Arnar og Vala bæði
á topp tíu / C4
Skagamenn á toppnum
í körfunni / C2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is