Morgunblaðið - 16.10.1998, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1998 45
HESTAR
á heimasiðu tandssambands hestamannafétaga
Lanössamband hestamannaféiaða (LH> aru heildareamtök 48
hestamannaíélaga me>um átta llúsund félagsmenn. Stjórn, kosin á
landsflingi fuötrúa hestamannafélaganna, ogtramkvæmdastjón
sinna dagiegum rekstr) og fylgja eftlr ótyktunum lendsfilnganne.
Skrifstoía LaiKtsambands hestamannafélaga er opin frá M. 8-17.
Símatími er írá kl. 10-12.
Framl«æmaast)óri LH er Haligiímur Jónaeson, og einnlg vinnur
Sigrún Ógmundsdótlir á skrifstotiinni frá kl. 9-13
'10168-0578
10S.fic5S1 1104
F A X I
,v.efuíinn um
• fale.nska.
hestirm •
■í £. a & j*. Sl ■a a m 1
Biek Fer»4rd R»lo*í Hof»>» 6*aroh 0vld» Print 6«euril, $fop \m
jbHp://vw stA.is/k/ *
Ný heimasíða LH
komin í gagnið
LANGÞRÁÐ heimasíða Lands-
sambands hestamannafélaga var
nýlega tekin í notkun. Tekur hún
við af löngu úreltri síðu Hestaí-
þróttasambands íslands, en ár er
síðan samtökin sameinuðust eins
og kunnugt er.
Nýja heimasíðan er mjög að-
gengileg og þar koma fram
helstu upplýsingar um LH og að-
ildarfélög þess. Slóðin er
www.stak.is/lh. Á forsíðunni er
sagt frá LH og þar er hægt að
velja ýmsa málaflokka svo sem
félög, nefndir, stjórn, lög og
reglur og mótaskrá. Ef smellt er
á félög koma upp nöfn félaganna
og aðsetur þeirra, nöfn, heimilis-
föng og símanúmer formannanna
auk þess sem merki félaganna
birtast til hliðar. Ef smellt er á
nefndir koma fram upplýsingar
um allar nefndir á vegum LH og
nöfn, heimilisföng og símanúmer
þeirra sem í þeim sitja. Sama á
við um stjórn LH.
Sérstaklega er þægilegt að
geta flett upp lögum og reglum
LH og er óskandi að þar verði
nýjustu upplýsingar og breyting-
ar færðar inn strax eftir hvert
landsþing.
Þar sem öllum mótum er lokið
á árinu er engin mótaskrá komin
inn, en þarna er kominn álqósan-
legur vettvangur fyrir mótaskrá
LH. Það hefur viljað brenna við
að mótaskráin komi seint út og
þegar búið er að birta hana er
alltaf hætta á að gera þurfi ein-
hverjar breytingar. Nú er hægt
að birta á heimasíðunni upplýs-
ingar um mót um leið og þau hafa
verið ákveðin og auðvelt er að
færa inn breytingar ef þörf er á.
Heimasiða LH ætti að vera
andlit íslenskra hestamanna og
vonandi verður hún fljótlega
þýdd á erlend tungumál. Það sem
enn vantar, og verður vonandi
bætt úr því við fyrsta tækifæri,
eru almennar upplýsingar um ís-
lenska hestinn og saga hans rak-
in. Slíkar upplýsingar er helst að
finna á erlendum heimasíðum ís-
landshestasamtaka. Eðlilegt væri
að hægft væri að nálgast þær á ís-
lenskum vef. Einnig þyrfti að
koma upp góðu tenglasafni.
Brýnast er þó að þessi heima-
síða falli ekki í sömu gryfju og
sumar íslenskar hestasíður sem
sjaldan eru uppfærðar og flytja
þeim sem þær heimsækja gamlar
fréttir og úreltar upplýsingar svo
vikum eða mánuðum skiptir.
Ráðherra skipar nefndir
um reiðvegi og áning-
arstaði á hálendinu
HALLDÓR Blöndal samgönguráð-
herra er þessa dagana að skipa
nefnd sem fjalla á um stöðu reið-
vega á landinu. Fyrir nokkru var
einnig skipuð nefnd á vegum ráð-
herra sem ætlað er að meta þörf
fyrir áningarstaði á hálendinu fyrir
hestamenn sem þar ferðast um.
Halldór Blöndal samgönguráðherra
sendi í gær út bréf þar sem óskað er
eftir tilnefningum frá Landssam-
bandi hestamanna, Bændasamtök-
unum, Náttúruvernd ríkisins, um-
hverfisráðuneyti og Sambandi ís-
lenskra sveitarfélaga í reiðvega-
nefnd. Auk þess skipar ráðherra
einn mann í nefndina og er Jón
Rögnvaldsson aðstoðarvegamála-
stjóri formaður hennar. Nefndinni
er ætlað að fara yfir stöðu reiðvega
á landinu.
Halldór Blöndal sagði í samtali
við Morgunblaðið að málið hefði
verið lengi í undirbúningi og hefur
Vegagerð ríkisins verið með það í
athugun.
„Eg hef lagt áherslu á að ákveðið
verði í skipulaginu hvar og hvernig
reiðvegir eigi að vera,“ sagði hann.
„Einnig er nauðsynlegt að átta sig á
því hverjir eigi að kosta reiðvegi,
lagningu þeirra og viðhald og óhjá-
kvæmilegt er að taka hliðsjón af
umhverfissjónarmiðum í þeim efn-
um. Komið hefur upp nokkur
ágreiningur milli hestamanna og
bænda og sumarbústaðaeigenda og
er nauðsynlegt að fá sættir í þau
mál. Einnig hefur komið til árekstra
þar sem gömlum þjóðvegum og
fomum reiðleiðum hefur verið lokað
með hengilás. Vegagerðin, sveitar-
félög og hestamenn verða að finna
einhverjar ásættanlegar leiðir til að
leysa þessi mál.“
Ráðherra sagði að sjá þyrfti til
þess að nýjar vegaframkvæmdir
tækju mið af þörfum hestamanna.
Umferð væri orðin svo hröð að mikil
hætta stafaði af því þegar menn ríða
á vegum eða meðfram þeim. Þá
skipti miklu máli að lýsing á vegum í
nágrenni hesthúsabyggða væri góð.
Önnur nefnd var sldpuð á dögun-
um af samgönguráðherra. Henni er
ætlað að komast að því hvar þörf er
á að setja upp áningarstaði og að-
hald á hálendinu fyrir hestamenn
sem þar ferðast um í hópum Tveir
hestamenn eiga sæti í nefndinni.
Baldvin Baldvinsson bóndi í Torfu-
nesi, sem er formaður nefndarinn—
ar, og Einar Bollason hjá íshestum.
Auk þeirra eiga fulltrúar frá Vega-
gerðinni, Landgræðslu ríkisins og
Náttúruvernd ríkisins fulltrúa í
henni.
Halldór Blöndal sagði að verksvið
nefndarinnar hafi verið skilgreint of
vítt í byijun og gætti nokkurs mis-
skilnings þar sem haldið var að hún
ætti einnig að fjalla um reiðvega-
mál. Það hefði verið leiðrétt. Hann
sagðist einnig vita til að stjórn
Landssambands hestamanna hefði
verið óánægð með að hafa ekki full-
trúa í nefndinni.
„Það er ekkert því til fyrirstöðu
að LH eigi fulltrúa í þessari nefnd,“
sagði hann, „því er velkomið að
skipa fulltrúa í hana.“
Símar 557 2000 og 557 7100
Skemmuvegi 36 Bleik gata
Kópavogi
Framhaldsnámskeið í
Áfallahjálp
22. og 23. október 1998
Enn eru nokkur sæti laus á
áfallahjálparnámskeið Landsbjargar,
landssambands björgunarsveita, sem
haldið verður á Grand hótel Reykjavík
22. og 23. október næstkomandi.
Námskeiðið er ætlað þeim sem þegar
búa yfir grunnþekkingu í aðstoð vegna
sáirænna áfalla.
Skráning og
upplýsingar
eru á skrifstofu
Landsbjargar í
síma 587-4040
LANDSBIÖBC
Dr. George S. Everlykennir
við Loyola College í Maryland og
Johns Hopkins Un'rversity og
hefur stýrt uppbyggingu
váhrifameðfeiúarog éfallahjélpar
I Bandarifjunum og skipulagt
hjélparstarfvið öll stærri áföll þar
i landi é undanfömum árum.
k
í blaðaukanum verður komið víða við og heimilinu gerð góð skil á líflegan og skemmtilegan hátt.
Farið verður m.a. í heimsókn til ungs fólks sem er nýbúið að gera upp íbúð og sýndar myndir fyrir
og eftir breytingar. Einnig verður rætt við arkitekt um tískuna í húsbúnaði, litavali og innréttingum.
</l
7,
LL
UJ
J
<
Q
úi
7.
* Eldhús
* Gólfefni
* Litir og litaval
* Lýsing og Ijós
* Húsgögn
og annar húsbúnaður
* Hirslur
•Tískan á heimilinu
*Viðtöl o.m.fl.
Skilafrestur auglýsingapantana er til
kl. 12 mánudaginn 19. október.
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og
þjónustufulitrúar á söludeild auglýsinga í síma 569 1139.
AUGLÝSINGADEILD
Sími: 569 1111 • Bréfasími: 569 1110 • Neifang; augl@mbl.is