Morgunblaðið - 16.10.1998, Síða 62
MORGUNBLAÐIÐ
62 FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1998
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Háskólabíó og Sambíóin, Álfabakka hafa tekið til sýninga myndina Prímary Colors með
________John Travolta, Emma Thompson, Adrian Lester, Kathy Bates og Billy Bob Thornton
í aðalhlutverkum. Leikstjóri er Mike Nichols.
Ótrúlegur heimur vísindanna
I hveiju tölublaði Lifandi vísinda getur þú lesið fjöldann allan af skemmtilegum og
spennandi greinum úr heimi vísindanna. Greinarnar eru skrifaðar af fagmönnum
og myndskreyttar með myndum teknum af bestu ljósmyndurum heimsins. Eins
fylgja oft teikningar sem skýra jafnvel flóknustu hluti á einfaldan hátt.
Þrjú tölublöð Lifandi vísinda og gullfallegt úr,
færð þú á ótrúlegu verði aðeins kr. 1.795.-
Hringið núna í síma 881 2061 - 881 2060
Innanbúðar
hjá forsetanum
BILL og Hillary, öðru nafni
Jack (Travolta) og Susan (Emma
Thompson).
flokksins til forsetaembættis og
kann að koma sér í mjúkinn hjá
venjulegu fólki. Hann safnar í
kringum sig litskrúðugu liði, mis-
jafnlega reyndu úr pólitík en öllu
áhugasömu um það að aðstoða
JOHN Travolta í hlutverki
Jack Stantons.
hann við að vinna sigur í kapp-
hlaupi um mestu metorð stjórn-
málaheimsins. I þeirri baráttu er
einskis svifist.
Þama er líka eiginkona Stant-
ons, Susan (Emma Thompson),
PRIMARY Colors er gerð
eftir frægri samnefndri bók.
Astæða þess að bókin varð
svo fræg er að hún kom í upphafí
út undir dulnefni en strax var talið
Ijóst að hún væri skrifuð af manni,
sem hefði verið innsti koppur í búri
í kosningabaráttu Clintons núver-
andi Bandaríkjaforseta. Síðar kom
í ljós að höfundurinn var blaðamað-
urinn Joe Klein.
Sagan bregður upp mynd af
Jack Stanton (John Travolta),
ungum og lítt þekktum fylkis-
stjóra í Suðurríkjunum, sem hefur
augastað á forsetaembætti Banda-
ríkjanna. Hann berst harðri bar-
áttu fyrir útnefningu Demókrata-
I FAÐMI fjölskyldunnar. Frambjóðandinn og frú
ásamt helstu aðstoðarmönnum.
inga. Það sem skiptir hana hins
vegar mestu er hvaða niðurstöður
skoðanakannanirnar gefa.
Eins og fyrr sagði er myndin
byggð á hinni þekktu metsölubók,
sem vakti gífurlega athygli strax
og hún kom út. Höfundurinn nafn-
greindi sig ekki í fyrstu en ljóst
þótti að hann væri öllum hnútum
kunnugur í herbúðum Clintons.
Blaðamaðurinn Joe Klein hefur nú
gengist við því að vera höfundur
sögunnar.
Hann hefur þó ekki fyllilega
gengist við því að vera eingöngu að
skrifa um Clinton. „Persónurnar
eru augljóslega byggðar á raun-
verulegum fyrirmyndum,“ sagði
hann á blaðamannafundi á kvik-
myndahátíðinni í Cannes sl. sumar
en þar vakti myndin mikla athygli.
„Margar þeirra eru hins vegar
samsettar úr mörgum fyrirmynd-
um í bland við það innsæi sem ég
hef fengið eftir að hafa fylgst með
sturluninni í kosningum og séð
hvaða hæfileika þarf til að komast
áfram í pólitík. Mér fannst það
koma vel fram í kosningunum árið
1992.“
Leikstjóri er Mike Nichols, hinn
gamalkunni leikstjóri stórmynda á
borð við Óskarsverðlaunamyndirn-
ar The Graduate, Who’s Afraid of
Virginia Woolf? og einnig
Silkwood, Heartburn, Wolf og síð-
ast Birdcage.
Handrit síðastnefndu myndar-
innar og einnig þessarar skrifaði
Elaine May, fyrrum gamanleik-
kona og samstarfskona Nichols,
en þau slógu í gegn saman sem
gamanleikarar á sjötta og sjöunda
áratugnum. Leiðir skildu en þau
tóku til við samstarf að nýju árið
1996 og afraksturinn varð Bir-
dcage.
„Eg rannsakaði aldrei bakgrunn
sögunnar, hvort hún ætti við rök
að styðjast,“ sagði Mike Nichols á
blaðamannafundinum í Cannes.
„Það eina sem skipti mig máli var
hvort sagan gekk upp. Eg hefði
eins getað verið að gera mynd úr
ævintýrum Dickens."
I aðalhlutverki mjmdarinnar er
stórstjarnan John Travolta. Hann
er kunningi Bill Clintons forseta
og segist ekki hafa áhyggjur af því
að Primary Colors sé móðgandi
fyrir forsetann. „Þótt hún fjalli um
einhverjar dökkar hliðar á ímynd-
aðri persónu er líka svo margt já-
kvætt í hennisagði hann í blaða-
viðtali. Honum finnst líka eins og
fleirum að lætin út af kvennamál-
um Bandaríkjaforseta séu komin
út fyrir allt velsæmi. „Eg vildi
óska að menn létu hann í friði.
Hann á að fá að gera það sem hann
er kosinn til að gera; að bera
ábyrgð á málefnum Bandaríkj-
anna. Það á ekki sífellt að vera að
velta honum upp úr hlutum sem
ekki skipta miklu máli í heildar-
myndinni," segir Travolta um hina
augljósu fyrirmynd að Jack Stant-
on.
greind, harðskeytt og harðákveðin
kona sem gefur sig alla í kosninga-
baráttuna. Hún einbeitir sér svo að
takmarkinu að hún tekur ekki eftir
því að einkalíf hennar er að leysast
upp vegna hneykslismála og blekk-
Frumsýning