Morgunblaðið - 13.11.1998, Blaðsíða 66
66 FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Hundalíf
JÆ7A,LOBBL HVAÐVAftsrvHCi
AÐGBRA?----
fþCi munt eJckf' )
■érúaþvi. Ég hijbp
i gegnctsrv
tsfcógion,
og þcgar 'eg kom
om sag&L annarhc/mirnuri
trxn afm'er: Séokkéu. Brí
sjj/’on hetsnin
S
‘^íhríT
ICJ
þt/imiXurhUi&úa&i’ seinrU
hcimtaqurinn áþann fyt '
0$ ’eg dattoUUir-
ofarvþJ ^
trrc.
r
-<>
Ljóska
éa verb ad ryksuga undir stoUt-
þiaum, (föoCy-
Ferdinand
v
6OOPM0RKllNe..7YOU'RE
WOOtDYOO LIKE/ NOT A
TO BUY 50ME / GIRL
COOKIE57 X 5C0UT
T|
(jUHO 5AID I U)A5 A 6IRL
5C0UT? TM NOTA 0OY
5C0UT, EITHER.OR A BROWNIE,
OR A 50CCER PLAYER(OR A
WHERE'D
YOU 6ETTHE
C00KIE5?
TMEY U)ERE LEFTOVER
FROMMY LUNCH..
Góðan daginn ... Hver sagði að ég væri skátastelpa? Hvar fékkstu Þær eru leifar frá hádegis-
viltu kaupa fáeinar smákökur? Ég er heldur ekki skátastrákur kökurnar? verðinum mínum ...
Þú ert ekki skátastelpa ... eða ljósálfur, eða knattspyrnumað-
ur, eða fimleikamaður eða neitt!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Opið bréf til Þorvalds
Jóhannssonar
Frá Þorsteini Ólafssyni:
í PALLBORÐSUMRÆÐUM á
málþingi um áhrif virkjana norðan
Vatnajökuls á náttúru og efnahag
31. október sl. sagðir þú aðspurður
um það, hvort vissa væri fyrir því að
álbræðsla á Reyðarfirði yrði til þess
að fólki fjölgaði í landsfjórðungnum,
að það yrði að láta reyna á það.
Eg skil mjög vel að Austfirðingar
eins og annað landsbyggðarfólk
leiti logandi ljósi að einhverju því
sem eflt geti byggðarlagið og snúið
við þeirri uggvænlegu þróun sem á
sér stað með flutningi fólks í þétt-
býlið umhverfis Reykjavík. Það
vekur athygli að Austfirðingar virð-
ast einblína á álbræðslu sem væn-
legustu lausnina sem að þeim snýr.
Mér sýnist að hér sé um draum að
ræða sem er ekki að rætast og er
ólíklegt að rætist.
Af einhverjum ástæðum hafa
þær málmbræðsluverksmiðjur sem
risið hafa hér á landi allar risið
steinsnar frá Reykjavík. Svo virðist
sem eigendum iðjuveranna finnist
að þau standi ekki á nægilega
tryggum grunni annars staðar. Ef
við setjum okkur í spor þeirra er
kannske ekki skrítið að svo sé.
Framboð vinnuafls er lítið annars
staðar og á suðvesturhorni landsins
eru fyrir smiðjur og fyrirtæki sem
geta veitt slíkum iðjuverum þjón-
ustu.
A fyrrnefndu málþingi varð ég
ekki var við spurningar til þín sem
mér finnst skipta mjög miklu máli.
I fyrsta lagi: Eru einhverjar við-
ræður í gangi um byggingu álvers á
Reyðarfirði?
I öðru lagi: Ef ekkert verður úr
byggingu stóriðjuvers á Austur-
landi, munu umbjóðendur þínir þá
fallast á stórvirkjanir norðan
Vatnajökuls og fórna þar með hags-
munum ferðaþjónustu á svæðinu að
hluta til.
Þessar spurningar hljóta að
brenna á íbúum Austurlands og
öllu öðru umhverfisverndarfólki.
Þess vegna bið ég um svar við þeim
á síðum þessa dagblaðs.
Eg óttast að Austfirðingar geti
orðið fórnarlömb í blekkingarvef
sem gæti leitt til tímabundinnar
þenslu og í kjölfar þess algjörs
hruns byggðarlagsins. Eftir stæði
þjóðin með varanlega eyðileggingu
á náttúru landsins, en erlendur
auðhringur væri sá eini sem gi-æddi
á öllu saman.
ÞORSTEINN ÓLAFSSON,
dýralæknir, Háengi 6, Selfossi.
Opið bréf til
kjósenda
Frá framkvæmdastjórn Kvenrétt-
indafélags Islands:
KVENRÉTTINDAFÉLAG ís-
lands hefur frá fyrstu tíð látið
stjórnmál og stjórnmálaþátttöku
kvenna til sín taka. Félagið hóf
starf sitt á baráttunni fyrir kosn-
ingarétti kvenna og átti drjúgan
þátt í að íslenskar konur fengu
kosningarétt og kjörgengi. Nú,
nær heilli öld síðar, er enn langt í
land að konur séu jafnir þátttak-
endur í stjómmálastarfi og karlai-.
Lengi vel voru stjórnmálaflokk-
ar óhræddir við að sýna kven-
mannslausa ásýnd sína en á síð-
ustu árum hefur krafan um fleiri
konur í stjórnmálum fengið slíkt
fylgi með þjóðinni að enginn
stjórnmálaflokkur fengi brautar-
gengi í kosningum ef konur væru
ekki á framboðslistunum. Þrátt
fyrir að konum hafi farið íjölgandi
á framboðslistum eru þær mun
sjaldnar en karlar í baráttusætum.
Það sannast best á því að einungis
25% alþingismanna eru konur.
Þetta er alls ekki viðunandi fyrir
íslensku þjóðina.
Þegar konur komu til leiks í
stjórnmálum höfðu karlar lengi átt
sviðið einir og þeir höfðu mótað
leikreglurnar. Við aldarlok eru
stjórnmálin enn vígi karla. Þjóð-
málaumræðan hefur þó breyst og
er ekki nokkur vafi að atkvæði
kvenna og stjórnmálaþátttaka
hafa þar markað sín spor. Lýðræð-
isleg réttlætiskrafa um jafnan hlut
karla og kvenna í stjórnmálum
þykir nú sjálfsögð en takmarkinu
hefur þó enn ekki verið náð. Vilji
þjóðarinnar í þá átt er þó afdrátt-
arlaus eins og fram kemur í könn-
un sem Skriftofa jafnréttismála
gerði nýlega í samvinnu við Gallup
á Islandi á viðhorfi fólks til þátt-
töku kvenna í stjórnmálum. Sam-
kvæmt niðurstöðunum eru 92,5%
þeirra sem afstöðu tóku hlynnt því
að auka hlut kvenna í stjórnmál-
um.
Framkvæmdastjórn Kvenrétt-
indafélags Islands skorar á alla þá
sem koma að uppstillingu fram-
boðslista fyrir komandi Alþingis-
kosningar að velja konur í efstu
sætin.
Með ósk um góðar alþingiskosn-
ingar fyrir íslenskar konur og þá
um leið fyrir íslenska þjóð.
Framkvæmdastj órn
Kvenréttindafélags íslands,
SIGRÍÐUR LILLY
BALDURSDÓTTIR,
HÓLMFRÍÐUR SVEINSDÓTTIR,
KRISTÍN EINARSDÓTTIR,
GUÐNÝ HALLGRÍMSDÓTTIR,
ÓLAFÍA B. RAFNSDÓTTIR,
RAGNHILDUR
GUÐMUNDSDÓTTIR,
ÁSLAUG DÓRA EYJÓLFSDÓTTIR,
ELÍN SIGURÐARDÓTTIR.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.