Morgunblaðið - 13.11.1998, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 61
TIIiBOÐ |
Réttum kjör öryrkja
og aldraðra
VIÐ TELJUM okkur
búa í velferðarþjóðfé-
lagi. Við teljum að á ís-
landi ríki góðæri. Við
stærum okkur af því að
hér á landi séu tekjur á
einstakling með því
hæsta sem þekkist í
veröldinni.
Við erum ánægð með
sjálf okkur, eða hvað?
Þótt almennt efna-
hagsástand í þjóðfélag-
inu sé í þeim dúr sem að
framan er lýst, þá er því
miður margt hér í ólagi.
Þar á ég fyrst og
fremst við það, hvernig
hér er komið fram við
aldraða og öryrkja. Mér
þykir sú framkoma okkur til skamm-
ar. Því miður.
Öryrkjar njóti
góðærisins
Fulltrúar öryrkja gengu á fund
forsætisráðherra á dögunum og
báðu hann að rétta þeirra hlut. Full
ástæða er til nð taka undir óskir ör-
yrkja og hvetja forsæt-
isráðherra til dáða.
Öryrkjar hafa setið
eftir. „Góðærið" hefur
ekki þvælst fyrir þeim.
Á sama tíma og launa-
vísitala hefui’ hækkað
um tæpan þriðjung og
lágmarkslaun um meira
en helming, hefur ör-
orkulífeyrir aðeins
hækkað um 17,4%! Það
er von að öryrkjar ótt-
ist að efnahagur þeirra
á nýri'i öld verði líkast
því sem er í þriðja
heiminum.
Alþingismenn eiga að
sjá sóma sinn í því að
taka undir kröfur ör-
yrkja og stuðla að því að stjórnvöld
verði við kröfum þeirra um tilveru-
rétt.
Það verður að hækka frítekju-
mark og setja síðan reglur um
hækkun þess í samræmi við launa-
þróun í landinu. Það verður líka að
hætta að skerða tekjutryggingu ör-
yrkja vegna tekna maka, sem er
í tekjuháu velferðar-
þjóðfélagi á að vera
hægt, segir Jón Gunn-
arsson, að bæta
hlutskipti aldraðra
og öryrkja.
furðulegt ráðslag og auðvitað alveg
út í hött, enda breyta tekjur maka
engu um örorku hins.
Það er sanngjörn krafa öryrkja að
örorkubætur verði ekki lægri en 90
þúsund krónur á mánuði. Eg tel 90
þúsund reyndar síst of í lagt. Það
verður að verða við þessum óskum.
Aldraðir beittir órétti
Aldraðii’ fá sviðaða meðferð hjá
stjórnvöldum og öryrkjar. Þeir sæta
víðtækri skerðingu bóta vegna
reglna um tekjutengingu. Aldraðir
verða einnig fyiTr óþolandi óréttlæti
í skattheimtu vegna lífeyristekna, en
greiðslur úr lífeyrissjóði eru skatt-
Jón
Gunnarsson
lagðar eins og atvinnutekjur, en ekki
sem fjármagnstekjur, sem þær ei-u í
raun réttri að mestu leyti. Ef ein-
staklingur fær tekjur sínar af banka-
vöxtum, greiðir hann 10% fjár-
magnstekjuskatt, en séu tekjurnar
komnar frá lífeyrssjóði, er skattur
heimtur að fullu.
Nú er það svo að meginþorri tekna
lífeyrissjóðanna eru fjármagnstekj-
ur. Því væri réttlátt að skattleggja
greiðslur til aldraðra með sama hætti
og gera þeim mögulegt að njóta
ávaxtanna af erfiði sínu með sama
hætti og aðrir landsmenn gera.
Þeir aldraðir sem verða fyrir því
að heilsan bilai- þurfa á þjónustu
samfélagsins að halda. Því miður er
það svo að skortur á hjúkrunarrým-
um er viðvarandi og skapar það bæði
erfiðleika og óöryggi, bæði hinna
öldruðu og einnig ættingja þeirra.
Það þarf að bæta þjónustu við
aldraða að þessu leyti og brýna
nauðsyn ber til að fjölga hjúkrunar-
heimilum. Það mál þolir ekki bið.
Við teljum okkm’ búa í þróuðu vel-
ferðarþjóðfélagi. Það er oft haft til
marks um þróunarstig þjóðfélaga,
hvernig búið er að þeim sem minna
mega sín. Við skulum vona að slíkur
samanburður verði ekki gerður á
næstunni. Við myndum ekki fá góða
einkunn á því prófi.
Höfundur er formaður Sjávarnytja
og frambjóðandi í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi.
Með Internet Phone getur þú hringt í gegnum internetið hvert sem er í heiminum og í
hvern sem er. Sá sem er á hinum endanum þarf engan sérstakan aukabúnað, bara síma!
irófaö Netsímann hjá AT
keifunni og HafnarfSrdl
Pakkinn saman-
stendur af “intemet
Phone" hugbunaði
og símtóii sem tengt
er við töivuna. Lág-
marks tölvubúnaður
er Pentium 75Mhz,
16Mb minni, hljóó-
kort og internet- |
aðgangur.
Alvöru vél með öllu sem þú
þarft til þess að hríngja heims-
hornana á milli á netinu!
80 W hátalarar
56 bás mótald m/ faxi & simsvara
II Internet Phone - hugbúnaður
ii Internet simtól
: 2 mánaða Internetáskrift
; Windows lyklaborð
II Þriggja hnappa Logitech mús
: Windows 98 uppsett og á CD
Enterprize turn
Intel Celeron 300 Mhz örgjörvi
15" skjár með aðgerðum á skjá
32 MB SDRAM innra minni
4,3 GB harður diskur
32 hraða geisladrif
4MB Grafixstar 560 PRO AGP skjákort
„• i'i'.as'-is tS. Wióðknrt
Skeifunni 11 • Rvk • Sími:550-4444 og Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarf. • Simi 550-4020
Lítill en
öfluguz
Ericsson GH688
GSM FARSÍMI
• 175 g með rafhlöðunni
• Betrahljóðogmeiritalgæði
• Númerabirting
• Stórskjár
• SMS skilaboða-
sending og -móttaka
SÍMINN
Ármúla 27, sími 550 7800 • Kringlunni, sími 550 6690
Landssímahúsinu v/ Austurvöll, sími 800 7000
Símanum Internet, sími 800 7575
Akureyri, sími 460 6710 • Sauðárkróki, sími 455 1000
Afgreiðslustöðum íslandspósts um land allt