Morgunblaðið - 28.11.1998, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
fslenska skammdegið heillar erlenda ferðamenn
MÖRG hótel á landinu verða lok-
uð um jólin en flestöll hótel í
Reykjavík verða hins vegar opin
um áramótin. Aðsókn erlendra
ferðamanna til landsins um ára-
mót hefur verið mjög góð undan-
farin tvö til þrjú ár og virðist hún
ætla að verða með mesta móti í
ár ef litið er á herbergjabókanir
hótelanna á höfuðborgarsvæð-
inu. Þessi ferðamannaaukning
um áramót skilar sér hins vegar
ekki út á landsbyggðina.
Þeir gestir sem ætla sér að
dvelja á hótelum um jólin ættu
ekki að verða í vandræðum, því
opið er á nokkrum hótelum, bæði
veitingasalir og gistirými, en eft-
irspurn ræður hversu víða er op-
ið.
Ýmis hótel hafa tekið upp sam-
vinnu um bókanir og lokanir um
jólin, en nánast öll hótel verða
opin um áramótin, enda hefur
fjölgun erlendra ferðamanna í
Mörg
hótel full-
bókuð um
áramót
svokallaðar áramótaferðir til ís-
lands aukist til muna sem og
Norðurljósaferðir Japana.
Ingibjörg Ólafsdóttir, hótel-
stjóri á Hótel íslandi, segir að op-
ið verði hjá þeim um jól og ára-
inót. Líti út fyrir að milli 80 og
90 gestir muni dvelja hjá þeim
um jólin og fullbókað sé um ára-
mótin. Hótel Saga verður lokuð
jóladagana 24.-26. des. og vísar
því sínum bókunum á Hótel Is-
land. Hins vegar er fullbókað á
Hótel Sögu um áramótin.
Opið verður á Hótel Loftleið-
um um jólin en lokað á Hótel
Esju en bæði verða opin um ára-
mótin, enda þegar orðið fullbók-
að á báðum stöðum. Að sögn
Geirlaugar Magnúsdóttur í bók-
unardeild Hótels Loftleiða er
þokkalega bókað hjá þeim um jól-
in.
Á Grand Hótel Reykjavík verð-
ur opið um jól og áramót og útlit
er fyrir að 50-60 manns dvelji þar
um jólin og fullbókað er um ára-
mótin að sögn Jóhanns Siguróla-
sonar, bókunarstjóra. Á Fosshótel
Lind, Fosshótel KEA og Hótel
Örk lítur út fyrir róleg jól og mun
það fara eftir eftirspurn hvort op-
ið verði á þessum stöðum eða ekki
sjálfa jóladagana. Hins vegar
verður opið á Hótel Reykjavík og
Hótel Cabin en lokað verður á
Hótel Holti 24.-26. des.
Morgunblaðið/Halldór
ÁTTA prestar báru kistu séra Jónasar úr kirkju. Frá vinstri: Sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson, sr. Hjalti Hugason, sr. Jón Bjarman, sr. Sigurður
Pálsson, sr. Ólafur Jóhannsson (bak við Sigurð), sr. Valgeir Ástráðs-
son, sr. Halldór Gunnarsson og sr. Kjartan Jónsson.
*
Utför séra Jónasar
Sturlu Gíslasonar
ÚTFÖR séra Jónasar S. Gíslason-
ar vígslubiskups fór fram síðdegis í
gær frá Hallgrímskirkju í Reykja-
vík. Jarðsett verður í Skálholti í
dag.
Biskup íslands, Karl Sigur-
björnsson, jarðsöng. Söng annaðist
Hljómkórinn og Inga Backman
söng einsöng. Organisti var Hörð-
ur Askelsson.
„Tyggjóbani“
kominn á kreik
HIN „tyggjó“-klístraða ásýnd
götunnar heyrir brátt sögunni
með tilkomu „tyggjóbanans" að
sögn Guðmundar Rögnvaldsson-
ar hjá fyrirtækinu Holræsa-
hreinsun ehf. en fyrirtækið hef-
ur nýlega flutt tæki þetta til
landsins frá Irlandi.
Að sögn Guðmundar er hér
um algjöra nýjung að ræða og
tæki til slíkra verka hefur ekki
verið til í landinu. Guðmundar
segir menn hafa reynt ýmis ráð
til að fjarlægja tyggjóklessur af
gangstéttum með misjöfnum ár-
angri og hafa menn í verstu til-
fellum þurft að skipta um gang-
stéttarhellur til að losna við
óhroðann. Tæknin sem tyggjó-
baninn byggist á er að vatn er
hitað í 150 gráður og gufan sem
myndast er notuð við hreinsun-
ina. Meðalafköst tyggjóbanans
eru, að sögn Guðmundar Rögn-
valdssonar, um 50 fermetrar á
klukkustund allt eftir þéttni
tyggjóklessanna. Guðmundur
segir ekki óalgengt að í nánasta
umhverfi verslunarmiðstöðva
hafi tyggigúmmítugga yfirgefið
eiganda sinn um tuttugu sinnum
á fermetra.
Auknar líkur taldar á
prófkjöri í Reykjavík
AUKNAR líkur eru á að haldið
verði prófkjör síðustu helgina í jan-
úar vegna uppstillingar á fram-
boðslista samfylkingar í Reykjavík.
Samráðsnefnd flokkanna, sem
standa að framboðinu, stefnir að
því að taka ákvörðun um þetta inn-
an 10 daga.
Mest andstaða við prófkjör hefur
verið í Alþýðubandalaginu, en
heimildarmenn Morgunblaðsins
fullyrða að hún sé að veikjast. Til
Morgunblaðið/Halldór
STARFSMENN Holræsahreinsunar ehf. munda hér „tyggjóbanann“ í Austurstæti.
Mál fyrrverandi sýslumanns á Akranesi í Héraðsdómi
Krefur ríkið um 7,9
milljónir í skaðabætur
SKAÐABÓTAMÁL Sigurðar
Gizurarsonar, fyrrverandi sýslu-
manns á Akranesi, gegn ríkinu var
tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavík-
ur á miðvikudag. Málinu var frestað
til 14. janúar til munnlegs flutnings
ríkislögmanns um frávísunarkröfu.
Sigurður krefst ógildingar þeirr-
ar ákvörðunar dómsmálaráðherra
að flytja sig úr embætti sýslumanns
á Akranesi til Hóimavíkur og krefst
jafnframt skaðabóta vegna ákvörð-
unar ráðherra.
I dómkröfu Sigurðar segir að
staðfest verði með dómi að honum
verði dæmdar 7 milljónir ki'óna í
bætur úr ríkissjóði fyrir miska, sem
dómsmálaráðherra hefur valdið
með ákvörðun sinni, áreitni og æru-
meiðingum og tilræði er henni
tengjast.
Sigurður hefur ennfremur höfðað
mál á hendur dómsmálaráðherra
fyrir áminningu sem ráðherra veitti
honum með bréfi 2. mars sl. vegna
meðhöndlunar Sigurðar á sektar-
innheimtu _ Þórðar Þórðarsonar á
Akranesi. I dómkröfu segir að stað-
fest verði með dómi, að ógild sé
áminning sú, sem dómsmálaráð-
herra veitti Sigurði og að honum
verði dæmdar 900 þúsund króna
bætur úr ríkissjóði.
marks um þetta hafa menn yfirlýs-
ingu sem Svavar Gestsson alþingis-
maður gaf á fundi í Alþýðubanda-
lagsfélagi Reykjavíkur á miðviku-
dag. Þar sagði hann að hann myndi
ekki gera prófkjör að úrslitakosti.
Hann myndi ekki láta samfylkingu
félagshyggjufólks stranda á próf-
kjöri. Hann sagðist hins vegar ekki
vera tilbúinn að samþykkja próf-
kjör á þessari stundu.
Stuðningsmenn prófkjörs funda
Ekkert liggur fyrir um hvaða
leikreglur verða settar fyrir próf-
kjörið, en samkomulag um þær
ræður úrslitum um hvort Alþýðu-
bandalagið samþykkir að velja á
framboðslistann með prófkjöri.
Stuðningsmenn prófkjörs í Al-
Nýr fram-
kva'inria stjói/i
Flugfélags
Islands
JÓN Karl Ólafsson tekm- við starfi
framkvæmdastjóra Flugfélags ís-
lands frá og með áramótum af Páli
Halldórssyni. Páll
hefur sagt upp starfi
sínu hjá félaginu.
Hann hefur verið
framkvæmdastjóri
frá stofnun fyrir
einu og hálfu ári.
Jón Karl hefur
verið starfsmaður
Flugleiða í 16 ár.
Hann er fertugur og hefur verið for-
stöðumaður fjárreiðudeildar, síðan
hagdeildar, þá leiðastjórnunar og
síðastliðin fimm ár forstöðumaður
austursvæðis Flugleiða.
í frétt frá Flugfélagi Islands segir
að félagið fljúgi frá Reykjavík til
fimm áætlunarstaða víða um land og
frá Akureyri til sex staða á norðan-
verðu landinu. Þá taki félagið þátt í
leiguflugi og flugi til Grænlands og
Færeyja. Það hafi verið stofnað til að
fást við yfírvofandi samkeppni í
áætlunarflugi innanlands og geri
Flugleiðir ráð fyi'ir að endurfjár-
magna reksturinn fyrir áramót.
þýðuflokki, Alþýðubandalagi og
Kvennalista komu saman til form-
legs fundar í fyrradag þar sem
staðan í framboðsmálum samfylk-
ingar var rædd. Fundurinn er tal-
inn til marks um vaxandi þrýsting á
að framboðsmálin verði leyst með
prófkjöri.
I vikunni buðu frammámenn í Al-
þýðubandalaginu fram þá lausn í
framboðsmálum að Össur Skarp-
héðinsson yrði í fyrsta sæti, alþýðu-
bandalagsmaður í öðru sæti,
kvennalistakona í þriðja og Jó-
hanna Sigurðardóttir í fjórða. Þessi
tillaga byggðist á því að handraðað
yrði á listann. Alþýðuflokksmenn
og aðrir stuðningsmenn prófkjörs
munu strax hafa hafnað þessari til-
lögu.
100 þús. kr.
bónus til hvers
starfsmanns
Islandsbanka
BANKARÁÐ íslandsbanka
hefur ákveðið að greiða hverj-
um starfsmanni í fullu starfi
100 þúsund króna bónus
vegna góðrar rekstrarafkomu
bankans og var bónusinn
greiddur út í gær.
Greiðslan er innt af hendi
óháð öðrum samningsbundn-
um greiðslum, eins og
greiðslu fyrir þrettánda mán-
uð og öðru slíku. Lætur nærri
að greiðslan nemi samtals um
80 milljónum króna, en rúm-
iega 850 starfsmenn eru hjá
Islandsbanka og er hluti
þeirra í hlutastarfi. Allir
starfsmenn fá sömu upphæð í
bónus og þeir sem eni í hluta-
starfi fá greiðslu í hlutfalli við
starfshlutfall sitt.
Sigurveig Jónsdóttir, upp-
lýsingafulltrúi íslandsbanka,
sagði að ákveðið hefði verið að
greiða bónusinn til starfs-
manna í þakklætisskyni fyi'ir
þátt þeiira í velgengni ís-
íandsbanka á síðustu misser-
um og árum.