Morgunblaðið - 28.11.1998, Blaðsíða 35
T
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998 35
NEYTENDUR
Hversu lengi
er hægt að
tala?
Spurt og svarað um neytendamál
Hvað kostar að láta
loga á aðventuljósi?
UM helgina setja margir aðventuljós í
glugga og einhverjir setja líka upp hjá
sér útiseríur. En hvað kostar að láta
loga á þessum Ijósum allan desember-
mánuð?
AÐ SÖGN Ólafs Björnssonar not-
endaráðgjafa hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur eru perurnar sjö í aðventu-
ljósinu 3 wött hver. „Samtals nota þær
því 21 watt. Logi ljós á slíku aðventuljósi
allan desember eða í um 672 klukku-
stundh' eru það samtals 14,1 kílówatt-
stund. Þær kosta á heimilistaxta samtals
103 krónur."
Útiserían
En hvað kostar þá að láta loga á
útiseríunni í desember? Ólafur segir að
algengasta perustærð í útiseríum sé
25W og oft eru 20 perur í hverri seríu.
„Rafmagnsnotkun þannig seríu sem
logar stöðugt allan desember er 372
kWh og kostar því um 2.700 krónur.
Með einföldum klukkurofa sem slekkur
á seríunni meðan dagsbirtu nýtur og
yfir hánóttina má minnka rafmagns-
kostnaðinn til muna. - Munið að taka
alltaf úr sambandi þegar skipt er um
peru.“
SÍMINN GSM hefur hafið sölu á
nýju korti fyrir GSM-síma sem
kostar 2.000 krónur. Með hverju
símtali gengur á inneignina þar til
hún er uppurin, en hægt er að
leggja inn á kortið með því að
hringja í þjónustusíma. Eftir að inn-
eignin er búin er samt hægt að
hringja í símann í þrjá mánuði.
Inneignin dugar í rúmar 60 mín-
útur, ef aðeins er talað á daginn, en
182 mín. ef aðeins er talað á næt-
urnar og um helgar. Ef aðeins er
hringt úr símanum á kvöldin dugir
kortið í 133 mínútur.
Verðskráin úr GSM-frelsi eins og
þjónustan er kölluð er eftirfarandi:
Kl. 8-18 mán.-fós. 33 kr.
kl. 18-23 mán.-fös. 15 kr.
kl. 23-8 mán.-fös. 11 kr.
kl. 23-8 mán.-fös. 11 kr.
Þegar hringt er í GSM-frelsi gild-
ir sama verðskrá og þegar hringt er
í hefðbundinn GSM-síma og er það
breytilegt eftir því úr hvaða kerfi er
hringt.
Hafín sala
jólabjórs
JÓLABJÓR frá Tuborg, 5,6% að
styrkleika, er kominn í verslanir
ÁTVR og verður til sölu meðan
birgðir endast, en magnið er tak-
markað. Verðið á sex 33 cl flöskum
eða einni kippu er 1.090 kr., en bjór-
inn er ekki seldur í stykkjatali. Eins
og undanfarin ár verður jólabjórinn
einnig til á jólahlaðborðum veitinga-
húsa.
Jólasildin
komin
HIN árlega jólasíld frá íslenskum
matvælum er komin í verslanir.
Er hún í hentugri, margnota 600
ml glerkrukku eins og sést á með-
fylgjandi mynd. Að því er fram
kemur í fréttatilkynningu hefur
sala síldarinnar vaxið jafnt og þétt
á undanförnum árum. Fyrsta árið
seldust 8.000 krukkur, síðan
11.000, í fyrra 16.000 og gert er
ráð fyrir að í ár fari salan í 20.000
krukkur.
eror
vörusendingu
frá Linz, Milano eða Stuttgart?
Fraktflug
er fljótasta leiðin
FLUGLEIDIR
F R A K T
Málið er einfalt. Það skiptir engu hvaóan þú átt von á vörusendingu frá
Evrópu. Ef varan hentartil flutninga með flugi getur innflytjandi snúið
sér beinttil okkar hjá Flugleiðum og við sjáum um framhaldið.
Varan verður komin til íslands með fraktflugi Flugleiða
eins fljótt og auðið verður.
Beint fraktflug Flugleiða til og frá Köln í Þýskalandi 6 sinnum í viku.
Fraktflug með áætlunarvélum Flugleiða frá 11 ákvörðunarstöðum Flugleiða
í Evrópu.
Hafðu samband við sölumenn í síma 50 50 401