Morgunblaðið - 28.11.1998, Page 12
12 LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn stofnaður af forsvarsmönnum Samtaka um þjóðareign í dag
Stefnt að fram-
boði í öllum
kj ördæmum
s
I dag verður stofnaður stjórnmálaflokkur
hér á landi, í annað skipti á fáum dögum.
Pétur Gunnarsson sat blaðamannafund
með stofnendum Frjálslynda lýðræðis-
flokksins í gær. Þeir íhuga að leggja lög-
bann við notkun Sverris Hermannssonar á
stefnuskránni, sem unnin var áður en upp
úr samstarfí þeirra og Sverris slitnaði.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
FRÁ fundi aðstandenda Frjálslynda lýðræðisflokksins. Bárður Halldórsson, Lúðvík Kaaber og
Guðmundur Ólafsson.
STJÓRNMÁLAFLOKKUR,
sem stefnir að framboði í öllum
kjördæmum við næstu Alþing-
iskosningar, verður stofnaður á
fundi í félagsheimili Seltjarnarness í
dag. Vinnuheiti flokksins er Frjáls-
lyndi lýðræðisflokkurinn en á fund-
inum verða greidd atkvæði um nafn
hans, jafnframt því sem forystu-
menn verða kosnir.
Bárður Halldórsson, formaður
Samtaka um þjóðareign, sem
kynntu flokksstofnunina og lögðu
fram stefnuyfírlýsingu á blaða-
mannafundi í gær, segir að það sé
fundarmanna í dag að ákveða hverj-
ir verði í forystu flokksins enda sé
þetta hreyfing sem leggur áherslu á
lýðræðisleg vinnubrögð.
Á fundinum rakti Bárður, ásamt
stjórnarmönnum í Samtökum um
þjóðaiæign, þar á meðal Valdimari
Jóhannessyni, blaðamanni, Guð-
mundi Ólafssyni, hagfræðingi, og
Lúðvík E. Kaaber, héraðsdómslög-
manni, hvernig samstarfsslit Sam-
taka um þjóðareign og Sverris Her-
mannssonar hefði borið að frá sínum
sjónarhóli.
Bárður sagði, að eftir að hafa um
skeið unnið með Sverri að samningu
stefnuskrár og laga fyrir væntanleg-
an sameiginlegan stjórnmálaflokk,
hefði hann komið að máli við Sverri
hinn 16. nóvember og tjáð honum að
ekki teldu allir félagsmenn Samtaka
um þjóðareign Sverri heppilegan
foringja flokksins. Sverrir hefði
sagst hrifinn af óhlutbundnum kosn-
ingum og lagt til að kosið yrði um
foringja á stofnfundinum.
Daginn eftir hefði hann hins veg-
ar snúið við blaðinu og slitið sam-
starfi einhliða við Samtök um þjóð-
areign. Bárður og Valdimar sögðust
telja að í raun hefði aldrei vakað fyr-
ir Sverri annað en að nota krafta
samtakanna til þess að fleyta sér inn
á Alþingi til þess að hann gæti þar
hefnt harma sinna og átt í illdeilum
við Finn Ingólfsson og Jóhönnu Sig-
urðardóttur.
Bárður sagði það vonbrigði að
Sveirir hefði ekki treyst sér til að
lúta leikreglum lýðræðisins og láta
kjósa um forystumenn flokksins.
Ekki hefði komið fram málefnaá-
greiningur milli þeirra. Bárður
sagðist telja að það að stofna stjórn-
málaflokk með fjölskyldu sinni og
tveimur vinum, eins og Sverrir hefði
gert, bendi ekki til að menn telji sig
njóta mikils fylgis.
Nýtti andlega krafta til að
semja stefnuskrá
Bárður Halldórsson sagði að
Sverrir Hermannsson hefði nýtt sér
þá andlegu krafta, sem Samtökin
um þjóðareign byggju yfir, til þess
að útbúa stefnuskrá fyrir flokk, sem
ekki ætti að hafa annað að markmiði
en að lyfta persónu Sverris Her-
mannssonar til áhrifa.
Hann sagði að Samtök um þjóðar-
eign íhuguðu að leggja lögbann við
því að Sverrir Hermannsson og
Frjálslyndi flokkurinn, sem hann
hefði stofnað með kennitölubraski
eins og eitthvert hlutafélag, reyndi
að nota þá stefnuskrá sér til fram-
dráttar.
Valdimar sagði að fylgismenn
Sverris hefðu reynt að nota þeim fé-
lögum það til hnjóðs að hafa séð á
skrifstofu samtakanna drög að hug-
myndum um það hvernig hægt væri,
að bandaríski'i fyrirmynd,_að endur-
reisa líf þeirra þúsunda íslendinga
sem neyddust til að lifa í neðanjarð-
arhagkei-fínu eða hrekjast úr landi
vegna gjaldþrota. Slíkar tillögur
væri erfítt að vinna en aðstandendur
Frjálslynda lýðræðisflokksins vilji
alltént reyna að vinna að bættum
hag þessa stóra hóps. „En það er
kannski eðlilegt að þeir sem hafa
alist upp við hermangsgróða eða
hafa „milljónapensjón“ geti ekki
hugsað sér það,“ sagði Valdimar.
I yfirlýsingu Sverris frá í gær er
gefið í skyn að stjórnarmenn Sam-
taka um þjóðareign gangi erinda,
eða a.m.k. stuðli að framgangi hags-
muna kvótaeigenda. Guðmundur
Olafsson sagði að þetta væri rógur
sem krefja ætti Sverri um rökstuðn-
ing fyrir. Valdimar sagði að Sverrir
hefði sjálfur verið kvótaeigandi og
ráðherra í þeirri ríkisstjórn, sem
kom kvótakerfinu á.
Guðmundur sagði einnig að þeir
menn væru til innan Samtaka um
þjóðareign, sem alla tíð hefðu verið
andvígir samvinnu samtakanna við
SveiTÍ Hermannsson. Lúðvík
Kaaber sagðist fagna því að upp úr
samstarfi við hann hefði slitnað.
Bárður Halldórsson kvaðst hafa
borið ábyi-gð á því að fá Sverri til
samstarfs við Samtök um þjóðareign
með því að hringja í hann eftir að
hann hraktist úr Landsbankanum
og lýsa því yfir að hann vildi ganga
til liðs við þá sem berðust gegn
kvótakerfinu. Þá baráttu hefðu Sam-
tökin stundað lengi og Bárður hefði
boðið Sverri velkominn til liðs við
þau. Þannig hefðu samtöl þeirra og
samvinna hafist.
Bárður sagði að sjálfsagt mætti
saka sig um að hafa verið bláeygur
að telja að Sverrir hefði áhuga á
málefnabaráttu.
Frumburðarréttur þjóðarinnar
og hærra kaup til þingmanna
I stefnuyfirlýsingu Frjálslynda
lýðræðisflokksins, sem lögð var fram
í gær, kemur fram að flokkurinn vilji
móta og standa vörð um réttlátt,
frjálst og opið þjóðfélag þar sem leit-
ast er við að finna jafnvægi milli
frelsis, jafnréttis og samstöðu -
þjóðfélags þai' sem enginn verður
hnepptur í fjötra fátæktar, fáfi'æði
eða ósjálfstæðis. Meginmarkmið
flokksins sé að þjóðin nái aftur frum-
burðarrétti sínum til hagnýtingar
lands og sjávar. Hafnað sé hvers
kyns sérdrægni og einkaleyfum til
aðgangs að sameiginlegum auðlind-
um. í almennri stefnuyfirlýsingu eru
áherslum flokksins gerð nánari skil.
Þar kemur m.a. fram að flokkurinn
vilji stuðla að aukinni virðingu Al-
Stefnuyfírlýsing Frjálslynda lýðræðisflokksins
þingis, meðal annai's með því að búa
Alþingismönnum betri aðstæðui' til L
að sinna skyldum sínum og tryggja |
að þeir vinni þann eið sem þeir hafa §1
unnið að stjómarskránni.
Lúðvík Kaaber staðfesti að með
þessu væri átt við kauphækkun til
þingmanna og Guðmundur Ólafsson
sagði að þetta gæti þýtt það og
einnig hitt að aðstaða þingmanna
yrði bætt og aukinn aðgangur þeirra
að sérfræðiaðstoð. Lúðvík sagði að
nú ættu þingmenn erfitt með að
gegna skyldum sínum; þeir væru L
háðir hagsmunasamtökum, fiskveiði- \
stjórnunarkerfíð væri til marks um ?
niðurlægingu löggjafans.
Enginn fundarmanna lýsti yfir
framboði til alþingis og Bárður sagði
að það væri verkefni flokksmanna að
velja frambjóðendur.
Fundarboðendurnir kváðust gera
sér ljóst að samstarfsslit þeirra og
Sverris Hermannssonar væru til
þess fallin að spilla fyrir baráttu
þeirra. Um 300 manns hefðu sýnt
áhuga á þátttöku í stofnfundi áður en I
samstai-fið brást. Þeh' kváðust vona
að almenningur sýndi áhuga á að
snúið yrði frá fiskveiðistjómunar-
kerfinu áður en það yrði of seint og á
þeim hugsjónum sem flokkurinn er
stofnaður til að vinna að. Þeir sögð-
ust vilja skora á fólk að fjölmenna á
stofnfund Frjálsslynda lýðræðis-
flokksins, sem hefst klukkan 10.30 í
félagsheimili Seltjarnamess í dag.
Húsið verður opnað klukkustund áð-
ur en fundur hefst.
Þjóðin nái aftur frum-
burðarrétti sínum
FRJÁLSLYNDI lýðræðisflokk-
urinn gaf í gær frá sér stefnu-
yfu’lýsingu, sem fer hér á eftir:
„Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn er
stjórnmálahreyfing Islendinga sem
vilja móta og standa vörð um rétt-
látt, fi'jálst og opið þjóðfélag þar sem
leitast er við að finna jafnvægi milli
frelsis, jafnréttis og samstöðu -
þjóðfélags þar sem enginn verður
hnepptur í fjötra fátæktar, fáfræði
eða ósjálfstæðis.
Einkunnarorð flokksins eru:
Frelsi - jafnrétti - samstaða.
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn að-
hyllist frjálst markaðskerfi, leggur
áherslu á réttindi og skyldur hvers
einstaklings til að gæta eigin velferð-
ar og hagsmuna, hafnar hvers kyns
forréttindum og einokun einstakra
manna, flokka eða samtaka, en hefur
borgaralegt og stjórnmálalegt jafn-
rétti og frelsi að leiðarljósi.
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn
telur að styrkur hvers samfélags sé
fólginn í vilja og atgervi frjálsra
karla og kvenna, sem hafa traust á
samfélagi sínu og vita sig búa við
frelsi háð lögum. Eitt helsta verkefni
þeirra sem falið er að fara með
stjórnmálalegt vald er að endur-
reisa, vemda og efla þetta traust.
Það verður aðeins gert með því að
tryggja að slíkt traust sé verðskuld-
að og réttmætt.
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn
berst fyrir lýðræðislegu og frjálsu
samfélagi og hafnar forræði ein-
stakra hópa og stétta yfir ráðuneyt-
um landsins. Flokkurinn leggur
áherslu á að ríkisvaldið er til þjón-
ustu við alla Islendinga, og beri að
haga vinnubrögðum sínum sam-
kvæmt því. Hlutverk ríkisvaldsins er
að leggja almennan lagagi'unn fyrir
athöfnum manna, en ekki að
ráðskast með þá á sviðum þar sem
þeir em færari um að ráða sér sjálf-
ir.
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn vill
færa stjórnarskrá lýðveldisins í nú-
tímalegt horf að fyrirmynd þeirra
ríkja þar sem lýðræðislegt stjórnar-
far hefur náð mestum þroska. í því
skyni verði kosið sérstakt stjórn-
lagaþing með landið allt sem eitt
kjördæmi. Flokkurinn leggur sér-
staka áherslu á eftirfarandi:
Þrískipting ríkisvaldsins verði
gerð ákveðnari og greinilegri þannig
að löggjafar-, framkvæmda- og
dómsvald verði óháð og aðskilin
hvert frá öðru.
Frelsi einstaklinga til orðs og at:
hafna sé tryggt í stjómarskrá. I
þessu tilliti vegur þyngst réttur hins
almenna borgara gagnvart stjórn-
völdum.
Sjálfstæði, frelsi og réttur allra
einstaklinga til að stofna félög eða
vera utan þein-a skal jafnframt
tryggður í stjórnarskrá.
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn tel-
ur brýnt að komið verði á beinni og
gagnkvæmari tengslum milli stjóm-
valda og kjósenda með svokölluðum
„lýðræðistih'aunum" - beinu lýðræði
á sveitarstjómarstiginu, rafrænum
þjóðai-atkvæðagi-eiðslum, stefnu-
markandi málstofum og/eða rökræð-
um frjálsra borgara um einstök þjóð-
mál á vettvangi fjölmiðla o.s.frv. Slíkt
kæmi ekki í staðinn fyrir hið form-
lega kosningakerfi, heldur sem við-
bót við það.
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn
setur mannúð í öndvegi og mun
standa vörð um velferðarþjóðfélag
með öryggis- og tryggingakerfi sem
dregur ekki dug og framtak úr fólki,
en kemur dyggilega til móts við þarf-
ir þess. Flokkurinn mun ekki líða að
þeir sem bíða lægri hlut í baráttu við
fátækt, sjúkdóma eða aðra ógæfu
verði látnir einir um ófarnað sinn, og
mun tryggja þeim alla aðstoð sem
unnt er að veita.
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn
heitir því að standa vörð um heil-
brigðisþjónustu landsins og lýsir því
yfir að þeir sem skilað hafa fullu
dagsverki í þágu samfélagsins eigi að
njóta tiyggra ævidaga í ellinni og
eiga kost á starfi við sitt hæfi svo
lengi sem þeir kjósa og eru færir um.
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn vill
tryggja jafnrétti til menntunai', óháð
efnahag eða búsetu. Skólaskylda miði
að því að búa uppvaxandi kynslóðir
undir þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi.
Á efri skólastigum verði lögð meginá-
hersla á að efla sjálfstæði í vinnu-
brögðum og á gagnrýna og skapandi
hugsun án þess að dregið sé úr vægi
undirstöðugreina. Menntun er fyrir
fólk á öllum aldri og þjóðfélag sem er
stöðugum breytingum undirorpið
krefst símenntunai'.
Frjálslyndi lýðræðislokkurinn mun jj
berjast gegn hvers kyns spillingu í ís- jg
lensku þjóðlífi og stjórnmálum og §
stuðla að aukinni virðingu Alþingis,
meðal annars með því að búa Álþing-
ismönnum betri aðstæður til að sinna
skyldum sínum og tryggja að þeir
virði þann eið sem þeir hafa unnið að
stjórnarskránni.
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn
mun á sviði utanríkismála gæta ís-
lenskra hagsmuna í hvívetna og ,
skipa íslandi áft'am í sveit lýðræðis- 1
ríkja. Flokkurinn vill að íslendingar jj
stuðli eftir mætti að frelsi og virðingu j!
fyrir mannréttindum meðal allra
þjóða og leggi sitt af mörkum til að
aðstoða íbúa landa og heimshluta,
þar sem neyð ríkir, til sjálfshjálpar.
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn
hefur að meginmarkmiði að þjóðin
nái aftur frumburðarrétti sínum til
hagnýtingar lands og sjávar og hafn-
ar hvers kyns sérdrægni og einka-
leyfum til aðgangs að sameiginlegum j
auðlindum. Fiskveiði- og hálendislö^g- I
um verði breytt þannig að öllum Is- J
lendingum sé tryggður jafn réttur til
nytja lands og lagar.“