Morgunblaðið - 28.11.1998, Qupperneq 64
64 LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ
Aðventa
Aðventa
NU FER í hönd aðventa, undirbúningstími fyrir
fæðingarhátíð Frelsarans. Hún nefnist á Iatínu
„adventus“ sem merkir „tilkoma". Um þessa helgi
fara margir að undirbúa komu jólanna, baka,
skreyta og huga að jólagjöfum. Einnig reyna
margir að njóta aðventunnar við kertaljós og ljúfa
tóna. Við erum að fagna fæðingu frelsarans um
þessi jól og minnug þess skulum við njóta
aðventunnar með frið í sálinni og leiða hjá okkur
jólastreituna.
Upphaf
aðventunnar
í Neskirkju
BARNAKÓR, ljóðalestur, ungir
tónlistarmenn og eldri og
ljósamessa er meðal þess sem boðið
er upp á í Neskirkju á fyrsta sunnu-
degi í aðventu, en að venju er mikið
um að vera á þessum upphafsdegi
jólaföstunnar.
Barnaguðsþjónusta verður kl. 11
um morguninn og þar mun koma
fram barnakór Landakotsskóla
undir stjórn Birnu Björnsdóttur og
syngja aðventulög.
Svokölluð ljósamessa verður kl.
14. Sú athöfn er að mestu í höndum
fermingarbarna sem lesa upp,
syngja og leika, og kveikja á að-
ventuljósum. Löng hefð er í Nes-
kirkju fyi'ir þessari athöfn á fyrsta
sunnudegi í aðventu.
Síðdegis eða kl. 17 verður svo að-
ventusamkoma í kirkjunni. Ræðu-
maður verður Einar Magnússon,
skólastjóri Hagaskóla, en Ragnhild-
ur Ófeigsdóttir skáldkona les úr
ljóðum sínum. Pá munu börn úr
tónlistarskólanum Do-Re-Mi leika á
hljóðfæri, kór Neskirkju flytur
nokkur lög, Inga J. Backman syng-
ur einsöng og Hanna Johannessen,
varaformaður sóknarnefndar Nes-
kirkju, flytur ávarp.
Vesturbæingar eru hvattir til að
mæta við þessar athafnir og búa
huga sinn undir aðventu og komu
jóla.
Aðventan heilsar
í Laugarnes-
kirkju
FYRSTA sunnudag í aðventu fellur
það í hlut barnanna að kveikja á að-
ventukransinum í Laugarneskirkju.
Sú hátíðarstund verður við upphaf
messunnar kl. 11 og svo ganga
börnin yflr í safnaðarheimilið þar
sem sunnudagaskólinn tekur við, á
meðan fullorðna fólkið nýtur guðs-
þjónustunnar. Að lokinni messu er
kökubasar „Mömmumorgna“.
Aðventukvöld Laugarneskirkju
verður svo haldið kl. 20. Par mun
kór og Drengjakór Laugarnes-
kirkju koma fram ásamt hljóðfæra-
leikuranum Sigurði Flosasyni á sax-
ófón og flautu og Jóni Rafnssyni
sem leikur á kontrabassa. Kórstjór-
ar eru Gunnar Gunnarsson org-
anisti og Friðrik S. Kristinsson sem
stýrir drengjakórnum. Hópur ferm-
ingarbama mun sýna helgileik og
sr. Bolli P. Gústavsson vígslubiskup
flytur okkur hugvekju. Hvetjum við
allt sóknarfólk til að koma og njóta
helgrar stundar í kirkju sinni.
Fyrir hönd hinna,
Bjarni Karlsson, sóknarprestur.
Aðventusam-
koma í Breið-
holtskirkju
HIN árlega aðventusamkoma
. Breiðholtssafnaðar verður haldin í
Breiðholtskirkju í Mjódd á morgun,
sunnudag, kl. 20.30.
Að venju verður fjölbreytt dag-
skrá sem miðuð er við alla fjölskyld-
una. Kór Breiðholtskirkju og
Stúlknakór Breiðholtskirkju flvtja
aðventu- og jólasöngva undir stjóm
organistans, Daníels Jónassonar og
Ai'nýjar Albertsdóttur, stjórnanda
barnakórsins. Hópur úr Kvennakór
Reykjavíkur syngur undir stjóm
Sigi'únar Þorgeirsdóttur. Fenning-
arbörn sjá um stutta dagskrá, lesin
verður jólasaga eftir Leó Tolstoj og
Helgi S. Guðmundsson, formaður
bankaráðs Landsbanka Islands,
flytur aðventuhugleiðingu. Sam-
komunni lýkur með helgistund við
kertaljós.
Að samkomunni lokinni verður
kaffísala í safnaðarheimilinu á veg-
um Kvenfélags Breiðholts, en félag-
^ ið hefur alla tíð stutt safnaðarstarfið
og kirkjubygginguna af miklum
dugnaði og rausnarskap. Má í því
sambandi m.a. geta þess, að félagið
hefur á þessu ári geflð eina milljón
króna til kaupa á hinu nýja orgeli
kirkjunnar. Einnig munu ferming-
arböm selja friðarkerti til ágóða
fyrir Hjálparstarf kirkjunnar.
Aðventusamkomurnar hafa löng-
um verið miklar hátíðarstundir i
safnaðarlífinu og mörgum til gleði
og uppbyggingar við upphaf undir-
búnings jóla. Vona ég að svo verði
einnig í ár. Vil ég því nota þetta
tækifæri til að hvetja sóknarbúa og
aðra þá sem áhuga hafa til að fjöl-
menna við þessa athöfn og hefja
þannig jólaundirbúninginn með
góðri stund í húsi Drottins.
Sr. Gfsli Jónasson.
Aðventusam-
koma í Víði-
staðakirkju
EINS og jafnan er 1. sunnudagur
sérstakur hátíðisdagur í Víðistaða-
sókn. Barnaguðsþjónusta verður kl.
11 og hátíðaguðsþjónusta kl. 14, en
aðventusamkoma kl. 20.30 þar sem
ræðumaður kvöldsins verður Magn-
ús Gunnarsson bæjarstjóri. Þar
verður flutt vönduð tónlistardag-
skrá þar sem kór Víðistaðasóknar
flytur Missa Brevis eftir Haydn
með aðstoð Sigurlaugar Knudsen
og Ilougjas Brotchie en stjórnandi
verður Úlrik Ólason. Einnig koma
fram einsöngvarinn Öm Arnarson
og klarinettuleikarinn Kjartan
Óskarsson. Þá mun Systrafélag
Víðistaðasóknar að venju verða með
aðventukaffi eftir guðsþjónustu og
að lokinni aðventusamkomu.
Sigurður Helgi Guðmundsson.
Aðventukvöld
Dómkirkjunnar
AÐVENTUKVÖLD Dómkirkjunn-
ar verður haldið sunnudagskvöldið
29. nóvember kl. 20.30. Bamakór
Kársness mun syngja undir stjórn
Þórunnar Björnsdóttur og Dómkór-
inn undir stjórn Mai'teins H. Frið-
rikssonar. Ræðumaður kvöldsins
verður Guðmundur G. Þórarinsson,
verkfræðingur.
Sr. Hjalti Guðmundsson dóm-
kirkjuprestur mun stjórna samkom-
unni sem er í umsjón Kirkjunefndar
kvenna Dómkirkjunnar sem býður
einnig til samvera á eftir í safnaðar-
heimilinu.
Aðventu- og jólahald tengist í
minningu margra hinna eldri
einmitt Dómkirkjunni og hafa
ræðumenn á aðventukvöldum einatt
höfðað til þess. Gamlir vinir Dóm-
kirkjunnar sem nýir era boðnir vel-
komnir.
Aðventuhátíð
í Grafarvogs-
kirkju
FYRSTA sunnudag í aðventu verð-
ur aðventuhátíð haldin í aðalsal
Grafarvogskirkju. Hátíðin hefst
með því að Skólahljómsveit Grafar-
vogs leikur undir stjórn Jóns
Hjaltasonar frá kl. 20 og fermingar-
börn bjóða aðventukonunginn vel-
kominn með stuttum helgileik.
Kór Grafarvogskirkju, Bai'nakór
og Unglingakór kirkjunnar syngja
undir stjóm Harðar Bragasonar og
Hrannar Helgadóttur.
Ræðumaður kvöidsins verður
Kári Stefánsson, forstjóri Islenskr-
ar erfðagreiningar. Söngkonan okk-
ar dáða, Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Diddú, syngur aðventu- og jólalög.
Tónlistarmennimir Eiríkur Örn
Pálsson trompetleikari, Birgir
Bragason kontrabassaleikari og
Guðlaug Ásgeirsdóttir flautuleikari,
leggja sitt af mörkum ásamt nem-
endum úr Tónlistarskóla Grafar-
vogs.
Vigfús Þór Amason,
sóknarprestur.
Upphaf aðventu
í Grensáskirkju
Sr. Halldór S. Gröndal, íyi-rverandi
sóknarprestur, pi'édikar við guðs-
þjónustu í Grensáskirkju fyrsta
sunnudag í aðventu kl. 11. A sama
tíma fer fram barnastarf í safnaðar-
heimilinu. Þar verður m.a. kveikt á
fyrsta kertinu í aðventukransinum.
Úm kvöldið verður aðventukvöld í
kirkjunni kl. 20.30.
Hópur úr barnakór Grensás-
kirkju syngur undir stjórn Mar-
grétar J. Pálmadóttur og kirkjukór-
inn undir stjórn Ama Arinbjarnar-
sonar organista. Ræðumaður er sr.
Kristján Valur Ingólfsson, rektor
Skálholtsskóla.
Komum og fögnum upphafi að-
ventunnar í húsi Drottins, búum
okkur undir að taka við konungi
konunganna, fylgja honum og
þjóna.
Aðventukvöld
í Lágafellskirkju
AÐVENTUKVÖLD verður í Lága-
fellskirkju nk. sunnudag kl. 20.30. A
dagskrá verðm' fjölbreytt efnisskrá.
Ræðumaður er Halldór Blöndal,
samgönguráðherra. Einsöngur: Sig-
rún Hjálmtýsdóttir og Eyjólfur Al-
freðsson spilar á fiðlu. Skólakór
Mosfellsbæjar og kirkjukór Lága-
fellssóknar syngur. Orgelleikari og
kórstjóri er Ómar Óskarsson.
Kirkjukaffi á eftir í safnaðarheimil-
inu. Bamastarf í safnaðarheimilinu
kl. 11.
Sóknarprestur - sóknarnefnd
Aðventukvöld
✓
í Askirkju
AÐVENTUSAMKOMA verður í
Askirkju á morgun, sunnudag, kl.
20.30.
Dr. Pétur Pétursson prófessor
flytur ræðu. Sophie Schoonjans
leikur á hörpu og Margrét Arna-
dóttir og Rósa Jóhannesdóttir
syngja einsöng. Einnig syngur
kirkjukór Áskirkju aðventu- og
jólasöngva en söngstjóri hans er
Kristján Sigtryggsson. Ennfremur
verður almennur söngur og sam-
komunni lýkur með ávat'))i sóknar-
prests og bæn.
Eftir samkomuna í kirkjunni mun
kirkjugestum boðið upp á súkkulaði
og smákökur í safnaðarheimili
kirkjunnar.
Ibúum dvalarheimila og annarra
stærstu bygginga sóknarinnar gefst
kostur á akstri til og frá kirkju í
tengslum við aðventusamkomuna.
Komu aðventunnar mun og fagn-
að í guðsþjónustum sunnudagsins í
Áskirkju, en barnaguðsþjónusta er
kl. 11 og guðsþjónusta kl. 14.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Aðventukvöld í
Fella- og Hóla-
kirkju
AÐVENTUKVÖLD verður haldið í
Fella- og Hólakirkju, sunnudags-
kvöld kl. 20. Eins og undanfarin ár
verður dagskráin fjölbreytt og til
hennar vandað. Hugvekju fiytur
Jónas Þórisson, framkvæmdastjóri
Hjálparstarfs kirkjunnar. Strengja-
sveit úr Tónskóla Sigursveins spilar
verk eftir Corelli. Barnakór kirkj-
unnar syngur og einnig munum við
sjálf syngja. Einnig munu prestarn-
ir leggja sitt af mörkum með flutn-
ingi Guðs orðs og bænar. Að lokum
munum við tendra kertaljósin.
Á eftir er kirkjugestum boðið að
þiggja léttar veitingar. Ibúar Fella-
og Hólabrekkusóknar eru hvattir til
að koma í kirkjuna sína á aðvent-
unni og búa sig þannig undir komu
jólahátíðarinnar.
Sr. Hreinn Hjartarson og sr.
Guðmundur Karl Ágústsson.
Fjölskylduguðs-
þjónusta og að-
ventukvöld í
Langholtskirkju
UNDIRBÚNINGUR jólahátíðar-
innar hefst í Langholtskirkju með
guðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna
sunnudaginn kl. 11. Þar verður
kveikt á fyrsta aðventukertinu. Gra-
dualekórinn syngur og að sjálfsögðu
verður mikill aimennur söngm', og
hugleiðing dagsins verður miðuð við
hina jmgri sem hina eldri.
Um kvöldið verður aðventukvöld
þar sem böm úr Kórskóla Lang-
holtskirkju flytja Lúsíuleik. Kór
Langholtskirkju syngur og leiðir al-
mennan söng. Ræðumaður kvölds-
ins verður Hjörtur Pálsson, skáld.
Eftir aðventustundina selur Kven-
félag Langholtssafnaðar kaffiveit-
ingar í safnaðarheimilinu til ágóða
fyrir gluggasjóð Langholtskirkju.
Aðventuhátíð
í Hjallakirkju
FYRSTA sunnudag í aðventu verð-
ur aðventuhátíð Safnaðarfélags
Hjallakirkju og hefst hún kl. 17.
Undanfarin ár hefur Safnaðarfélag-
ið staðið fyrir hátíð að þessu tagi
sem er skemmtun fyrir unga sem
aldna. Það er margt sem gleður
augu og eyru að þessu sinni. Kór
Hjallaskóla mun syngja nokkra
jólasöngva undir stjórn Guðrúnar
Magnúsdóttur og krakkar úr Tíu til
tólf ára starfi kirkjunnar sýna helgi-
leik. Herdís Egilsdóttir, kennari,
flytur svo skemmtilega jólasögu í
lok hátíðarinnar. Að henni lokinni
er öllum viðstöddum boðið í kakó og
piparkökur í safnaðarheimili kirkj-
unnar. Fólk er hvatt til að koma og
taka þátt í undirbúningi jólanna á
þennan ánægjulega hátt.
Aðventuhátíð
í Seltjarnarnes-
kirkju
FYRSTI sunnudagur í aðventu
verður haldinn hátíðlegur í Sel-
tjarnarneskirkju að venju.
Hátíðin hefst með guðsþjónustu
kl. 11. Þá munu væntanleg ferming-
arbörn klæðast fermingarkyi-tlum,
bera inn kertaljós og kveikja á
fyrsta kertinu á aðventukransinum.
Þetta er hátíðleg stund sem enginn
vill missa af sem hefur upplifað einu
sinni. Fermingarbörnin munu
einnig sjá um prédikun dagsins sem
verður með sérstöku sniði.
Um kvöldið hefst hátíðin kl.
20.30. Þá verður mikið um dýrðir og
fjölbreytt tónlistardagskrá í umsjón
organista kirkjunnar Vieru Maná-
sek. Fluttur verður 1. og 2. kafli
sónötu í F-dúr eftir G.F. Hándel,
Messa Dolorosa eftir A. Galdara,
Aría úr Jólaoratoríu J.S. Bach og