Morgunblaðið - 28.11.1998, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998 69 v
FRETTIR
Fyrirlestur um krabba-
meinsvaldandi gen í
erfðabreyttum músum
Basar og
kaffisala á 10
ára starfsaf-
mæli ABC-
hjálparstarfs
ABC-hjálparstarf heldur sinn ár-
lega jólabasar og kaffisölu í Akó-
ges veislusalnum í Sóltúni 3 á
morgun, fyrsta sunnudag í að-
ventu, frá kl. 14-18.
A boðstólum verða handgerðir
munir og kaffihlaðborð með kökum
og nýbökuðum vöfflum með rjóma
og heitu kakói. Ungir og eldri
hljóðfæraleikarar grípa í hljóðfæri.
Allur ágóði af basarnum og kaffi-
sölunni fer til að mæta brýnustu
þörfunum á Heimili litlu ljósanna á
Indlandi. Um 1.500 börn hafa leitað
skjóls á heimilinu og vantar nálægt
þriðjung þeirra bama enn stuðn-
ingsforeldra. ABC-hjálparstarf
óskar því eftir stuðningsaðilum
fyrir þessi böm og vonast til að
sem flestir sjái sér fært að líta inn í
kaffisopa á morgun, segir í frétta-
tilkynningu.
---------------
Háskólafyrir-
lestur um stjórn-
málaþátttöku
kvenna
SAGNFRÆÐINGURINN Kim
Nielsen flytur opinberan fyi-irlest-
ur mánudaginn 30. nóvember kl.
17.15 í boði Sagnfræðistofnunar
Háskóla íslands í hátíðasal Háskól-
ans á annarri hæð í Aðalbyggingu.
Fyrirlesturinn fjallar um stjórn-
málaþátttöku kvenna í Bandaríkj-
unum íyrst eftir að þær fengu
kosningarétt.
Kim Nielsen lauk doktorsprófi
frá Iowa háskóla árið 1996 og fékk
nýlega prófessorsstöðu við háskól-
ann í Wisconsin - Green Bay, en
hún mun sérhæfa sig í kennslu
kynjafræða og kvennasögu. Kim
Nielsen hefur dvalist hér á landi
þetta haustmisseri og kennt sem
Fulbright-kennari við sagn-
fræðiskor.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og
verður fluttur á ensku.
---------------
Mótmæla
hækkunum á
þungaskatti
í ÁLYKTUNUM sem samþykktar
vora í vikunni mótmæla Fjórð-
ungssamband Vestfirðinga og
Verkalýðsfélag Húsavíkur breyt-
ingum á innheimtu þungaskatts og
fyrirhuguðum hækkunum.
Fram kemur að þessar breyting-
ar íþyngi sérstaklega vöraflutning-
um á lengi-i leiðum og leiði til
hæraa vöraverðs á landsbyggðinni,
sem sé sérlega viðkvæmt á tímum
byggðaröskunar.
------♦-♦-•----
LEIÐRÉTT
Rangur ljósmyndari
MISHERMT var hver tók mynd
af hljómsveitinni 200.000 naglbít-
um í Morgunblaðinu á föstudag.
Hið rétta er að Ingi Þór Tryggva-
son tók myndina sem birtist í bæk-
lingi geisladisks hljómsveitarinn-
ar.
Oryggismyndavélar
og Securitas
í BLAÐINU í gær var sagt frá
fyrstu notkun öryggismyndavéla í
miðborg Reykjavíkur. Þar láðist að
geta að Reykjavíkurborg hefði gert
samning við Securitas ehf. um inn-
kaup og uppsetningu búnaðarins
að undangengnu tilboði. Beðist er
velvirðingar á því.
DR. LAUFEY Þóra Ámundadóttir,
sérfræðingur á rannsóknarstofu Is-
lenskrar erfðagreiningar, mun
halda ei-indi sem hún nefnir: Rann-
sóknir á krabbameinsvaldandi gen-
um í erfðabreyttum músum, á
Lynghálsi 1, í dag, laugardaginn 28.
nóvember. Erindið hefst kl. 14 og að
því loknu verður opið hús þar sem
gestum gefst kostur á að skoða
rannsóknarstofur íslenskrar erfða-
greiningar. Öllum er heimill að-
gangur meðan húsrúm leyfir.
í fréttatilkynningu segir:
„Krabbamein er flokkur sjúkdóma
sem eiga það sameiginlegt að of-
vöxtur verður á framum í líkaman-
um. Krabbameinsgen myndast þeg-
ar stökkbreytingar verða í eðlileg-
um genum og leiðir það til þess að
viðkomandi próteinafurðir verða
annaðhvort ofvirk (æxlisgen) eða
ekki starhæf (bæligen). Krabba-
meinsrannsóknir í vefjarækt eru
takmarkaðar þar sem ekki er mögu-
legt að líkja eftir ákveðnum aðstæð-
um í líkamanum, eins og til dæmis
ónæmiskerfmu, sem getur haft mik-
il áhrif á að _ hindra framvindu
krabbameins. I erindi sínu mun
Laufey útskýra hvernig erfða-
breyttar mýs eru notaðar sem líkön
af mönnum til að rannsaka krabba-
meinsvaldandi gen í umhverfi heill-
ar lífveru. Þó að mýs séu að vissu
leyti mjög ólíkar mönnum hafa þær
reynst mjög vel við að rannsaka
kt-abbamein og aðra sjúkdóma.
Laufey mun greina frá rannsóknar-
aðferðum sem notaðar eru til að
koma framandi erfðaefni í mýs.
Einnig mun hún segja frá rann-
sóknum á tveim krabbameinsvald-
andi próteinum sem oft era fram-
leidd í óeðlilega miklu magni í
brjóstakrabbameini og virðast
gegna mikilvægu hlutverki í tilurð
þess og framvindu.“
Laufey Þóra Ámundadóttir lauk
BS-prófi frá líffræðiskor Háskóla
íslands árið 1987 og fjórða árs verk-
efni frá sömu deild árið 1988. Lauf-
ey starfaði á rannsóknarstofu
Krabbameinsfélagsins í frumu- og -
sameindalíffræði árið 1988-1989 en
hélt síðan til náms við framulíf-
fræðideild Georgetown University í
Washington D.C. og lauk þaðan
doktorsprófí árið 1994. Titill dokt-
orsritgerðarinnar er „The interact-
ion of c-Myc with TGF-alpha and
Neu in mouse mammary gland
tumorigenesis". Að loknu doktors-
námi var Laufey ráðin til starfa á
rannsóknarstofu dr. Philips Leders
við erfðafræðideild Harvard-lækna-
háskólans í Boston. Helstu verkefni
hafa verið við rannsóknir á boðleið-
um í brjóstakrabbameini með því að
nota erfðabreyttar mýs.
VETRARLIF
I húsi Ingvars Helgasonar
Sævarhöfða 2, Reykjavík
laugardaginn 28. og
sunnudaginn 29. nóv. 1998
Opið frá kl. 10 - 18 laugardag
12 - 18 sunnudag.
Allt það nýjasta á
vélsleðamarkaðinum
ásamt ýmsum
aukabúnaði.
i*l
Ingvar Helgason hf
Smvarh&fíb 2 132 Heykjmik nrísth, 12260
slml S25 8000 myndsetulir 587 9577
VELSLEÐA OG
ÚTILÍFSSÝNING
AÐGANGUR ÓKEYPIS!
Sýning á vélsleðum, varahlutum, ýmsum
aukabúnaði, öryggisbúnaði, leiðsögutækjum,
fatnaði í miklu úrvali og mörgu fleiru tengdu
vélsleðamennsku og almennri útivist.
Kl. 14.00 og 16.00 báða dagana verða haldin
stutt erindi um ferðamennsku.
Meðal fyrirlesara er Ari Trausti.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunar sýnir björgun
úr þyrlu á Geirsnefi laugardaginn kl. 15.00
Glæsileg aðstaða fyrir sýnendur og gesti.
Næg bílastæði, góð aðkoma.
V Reykjavík
ÁRSHÁTIÐ
Árshátíð verður haldin í sal Ferðafélags
ísland í Mörkinni 6, 28. nóv. 1998
Húsið opnar með fordrykk kl. 19.30
Borðhald hefst kl. 20:30
Hinir einu sönnu Milljónarmæringar
leika fyrir dansi ásamt Bogomil Font
og Stefáni Hilmarssyni.
Miðaverð kr. 3.500,- Miðapantanir
í síma 893 8083
ölÍ5
POLRRIS' Ski-doo. LVMX& YAMAHA ARCTIC CAT