Morgunblaðið - 29.11.1998, Side 16
16 SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
Lögð-
um
! í þessa
leikitil
að sigra
JIJLÍUS Jónasson, fyrirliði
íslenska liðsins, sagði að
menn gerðu sér vel grein
fyrir því að framundan væri
bæði erfitt og ekki síður
mikilvægt verkefni. „Við
lögðum í þessa leiki til að
sigra í þeim báðum. Við unn-
um í þeim fyrri en menn
verða að gera sér grein fyrir
að núna er bara hálfleikur,
sá síðari verður leikinn hér í
Ungverjalandi á sunnudag-
inn og við megum ekki hugsa
sem svo að það sé nóg að
tapa með einu eða tveimur
mörkum. Við verðum, skul-
um og ætlum okkur að
vinna,“ sagði Júlíus og bætti
við að auðvitað vissu menn
að það yrði erfitt.
Ungverjar kvörtuðu tals-
vert undan stífum og grófum
varnarleik Islendinga, hvað
hefur fyrirliðinn um að að
segja. Hvatti hann sína
menn of harkalega til dáða?
„Nei, nei. Við lékum hefð-
bunda vöm og vissulega spil-
uðum við fast og ákveðið en
það gerðu Ungverjarnir líka.
Þeir voru engir englar í þeim
efnum. Við fóram í leikinn
1 heima ákveðnir í að leika
fast og sjá til hvað við kæm-
umst langt. Dómararnir sem
vora frá Tékklandi leyfa
yfyrleitt dálítið mikið og
gerðu það líka heima. En
Ungverjarnir léku líka fast,
þannig að þetta er óþarfa
væl í þeim, held ég.“
Fyrirliðinn sagðist hafa
orðið hissa á því hversu ró-
lega Ungverjar byrjuðu í
Höllinni. „Þeir byrja öragg-
lega á fullu hérna og við
verðum tilbúnir frá fyrstu
sekúndu og leyfum þeim
ekki að ná neinum tökum á
leiknum. Svisslendingar
lentu vel undir í upphafi
hérna og töpuðu stórt, _ það
gerist ekki hjá okkur. Ég á
von á að þeir leiki 3-2-1 vöm
framarlega og við verðum
tilbúnir í slík átök og ég held
að ef við náum vörninni jafn-
sterkri og heima og auðvitað
markvörslunni líka þá höfum
við þetta. Þá fáum við hraða-
upphlaup, sem eru auðveld-
ustu mörkin, en við verðum
að laga sóknina aðeins, sh'pa
hana til því hún var dálítið
köflótt heima,“ sagði Júlíus.
Morgunblaðið/Golli
ÞORBJÖRN Jensson, þjálfari íslenska landsliðsins, getur fagnað sínum fimmtugasta sigri sem þjálfari landsliðsins í Ungverjalandi.
Allir víta hversu mikil
vægur leikurinn er
ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik kom til borgarinnar
Nyiregyháza í norðausturhluta Ungverjalands klukkan 3.30 að-
faranótt laugardagsins, en liðið lagði af stað frá skrifstofu HSÍ í
Laugardal klukkan 12.15 á föstudaginn. Ferðalagið tók því rétt
rúmar fjórtán klukkustundir en klukkan í Ungverjaiandi er
klukkustund á undan þeirri heima á íslandi.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar frá
Nyiregyháza
Rútuferðin frá Búdapest til
Nyiregyháza gekk vel. Lagt var
af stað frá flugvellinum kl. 23 að
staðartíma í svarta-
þoku og bjuggust
menn við langri og
erfiðri keyrslu. Ann-
að kom á daginn því
fljótlega var sett myndbandsspóla í
myndbandstækið og horft var á
tvær myndir á leiðinni þannig að
menn tóku ekki eftir því hversu
langt ferðalagið var. Það vora samt
þreyttir ferðalangar sem innrituðu
sig á hótel Korona í miðbæ
Nyiregyháza undir morgun og sofið
var vært fram til klukkan 11 á laug-
ardagsmorgun, en Þorbjöm Jens-
son ákvað að sleppa morgunmatn-
um og lét menn því fara beint í há-
degismat. Leikmenn sögðust hafa
sofið vel, enda á mjög frambærilegu
hóteli þar sem hátt er vil lofts og
vítt til veggja.
Fundur var strax eftir hádegis-
verð og síðan æfing kl. 15 en það er
eina æfingin sem liðið fer á fyrir
leikinn. Þess má til gamans geta að
Ungverjar komu til borgarinnar
upp úr hádegi á fóstudaginn og fóru
á tvær æfingar þann daginn, tvær á
laugardaginn og þeir ætla að hittast
á léttri æfingu morguninn fyrir leik.
Hópurinn virðist í mjög góðu
jafnværi, rólegt yfirbragð var á
honum er hann mætti til hádegis-
verðar í gær og virtust allir mjög
einbeittir enda mikilvægt verkefni
framundan. „Það vita allir hversu
mikilvægur leikurinn er og þegar
slíkt er þá er hópurinn rólegri og
einbeittari. Það ætla allir að gera
sitt besta og ef menn gera það þá er
ekki hægt að ætlast til meira af
nokkrum manni. Eins og þú sérð þá
er ekkert stress á mönnum, strák-
arnir era rólegir, yfirvegaðir og ein-
beittir," sagði Þorbjörn Jensson
landsliðsþjálfari eftir hádegismat-
inn í gær.
Leika öðruvísi heima en úti
Spurður hvort hann ætti ekki von
á að Ungverjar kæmu ákveðnir til
leiks og myndu byrja af fullum
krafti, ekki eins rólega og þeir
gerðu í Laugardalshöll, sagði Þor-
björn: „Það er einkenni á leik Ung-
verja að þeir leika allt öðravísi á
heimavelli en útivelli. Heima era
þeir miklu ákveðnari og við erum
tilbúnir í slíkt og munum byrja af
fullum krafti. Þó verð ég að segja
eins og er að þegar Ungverjar hafa
leikið í stórmótum, eins og á HM í
Japan og Evrópukeppninni þá byija
þeir rólega en auka síðan hraðann
og eru komnir á fullt í síðari hálf-
leik.“
Þorbjörn sagðist ekki gera ráð
fyrir miklum breytingum í leik ís-
lenska liðsins. ,Auðvitað þurfum við
að laga sóknina aðeins hjá okkur og
við munum gera ákveðnar áherslu-
breytingar í vörninni því heima
skoruðu Ungverjar með skotum af
gólfinu og við verðum að stoppa
það. Annars var vörnin okkar
sterkasti þáttur heima þannig að við
gerum ekki stórvægilegar breyting-
ar á henni. Þegar allt kemur til alls
vinnast leikir íyrst og fremst á vörn
og markvörslu, sem var góð heirna,"
sagði Þorbjörn.
Neita að trúa öðru en við vinnum
Valdimar Grímsson lék sinn
fyrsta landsleik 1985 gegn Ung-
verjum og hann man að sjálfsögðu
eftir þeim leik. „Þetta var í Valence í
Frakklandi í janúar, leiknum sem
Stjáni (Kristján Arason) gerði
fimmtán mörk. Við unnum 28:24 og
ég man að ég lék meira og minna í
öllu mótinu. Þetta var á tíma
Bogdans og eftir þetta mót komu
nokkrir tugir leikja þar sem maður
sat meira og minna á bekknum,"
sagði Valdimar í gær.
Hann sagði leikinn á sunnudaginn
mjög mikilvægan. „Hópurinn er
mjög vel stemmdur og það er svo
skrítið að fyrir svona mikilvæga
leiki þá er miklu rólegra yfir hópn-
um en fyrir leiki sem ef til vill skipta
minna máli, þá er meiri galsi í mann-
skapnum. Núna era menn einbeittir
og ákveðnir í að sigra enda vita
menn hvaða þýðingu leikurinn hef-
ur. Þó svo menn hafi ekki velt þeim
möguleika fyrir sér hvaða þýðingu
það hefði fyrir íslenska landsliðið ef
við komumst ekki til Egyptalands
þá vita allir að HM í Egyptalandi er
lykilinn að öllu - lykillinn að því að
teljast meðal þeirra bestu.
Hugsanlega væri hægt að komast
á Ólympíuleikana í gegnum Evr-
ópukeppnina en það er miklu
langsóttara og erfiðara dæmi,“
sagði Valdimar og ítrekaði að hann
hefði svo sem ekki hugsað þá hugs-
un til enda að tapa. „Við komum að
þessu verkefni, það er að segja
leikjunum tveimur við Ungverja, til
að sigra í þeim báðum og það ætlum
við okkur að gera. Ég neita að trúa
öðru en við vinnum. Eg hef sagt það
frá upphafi að við færum til Egyta-
lands og þangað ætlum við, annað
kemur ekki til greina," sagði Valdi-
mar.
Hann sagði menn ekki koma til
leiks með það fyrir augum að ná
jafntelfi. „Nei, svoleiðis fórum við
ekki í leikinn. Við ætlum okkur að
vinna, jafntefli nægir en það er ekk-
ert verið að hugsa um það. Við höld-
um áfram á þeirri braut sem lögð
var í Laugardalshöllinni. Vörnin
verður sterk og markvarslan einnig
og síðan þurfum við aðeins að fín-
pússa sóknina og vanda okkur meira
þar. Menn voru of bráðir í sókninni,
sérstaklega þegar við voram komnir
dálítið yfir. Það gerist ekki aftur.
Við gerum okkur allir grein fyrir því
að ef við ætlum að vera í hópi þeirra
bestu verðum við að vinna, eða ná
altént einu stigi.
Það eina jákvæða sem ég sé við að
við skyldum missa niður góða for-
ystu í Höllinni er að menn gera sér
ennbetur grein fyrir því að það verð-
ur erfitt að leggja Ungverja að velli
hérna. Ef við hefðum unnið stórt
væri hættara við að menn væru
heldur værukærari og hugsuðu sem
svo að það væri nóg að halda bara í
horfinu, það myndi duga til að kom-
ast áfram. Slíkt er ekki gott og ég
held að með slíku hugarfari mynd-
um við skjóta okkur í fótinn og þurfa
að sitja eftir heima með sárt enni.
Það er því að vissu leyti fínt að þurfa
að sækja tvö stig hingað. Við vitum
að Ungverjar era í betri stöðu, þeir
era á heimavelli og til að ljúka við
þetta verkefni verðum við að halda
áfram á þeirri braut sem mörkuð
var í Höllinni," sagði Valdimar.