Morgunblaðið - 29.11.1998, Qupperneq 30
30 SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
stóriðjuframkvæmdir. „Mikil um-
ræða hefur verið um uppbyggingu ,
stóriðju á Reyðarfirði. Ef af því
verður ásamt tilheyrandi virkjunum í' ‘
þurfum við ekki að hafa áhyggjur af |p-
framtíðinni. Ef ekki þá þurfum við
að einbeita okkur að minni verkefn-
um sem alltaf eru til ef maður er
nógu vakandi fyrir þeim,“ segir
hann.
Theodór segir að framþróun í
málmiðnaði sé mjög háð ákvörðun-
um um virkjanir og stóriðnað. „Ef
ekki verður framhald á framkvæmd- .rjSi
um fer málmiðnaðurinn inn í nýtt
hnignunartímabil, ekki aðeins fyrir-
tæki hér fyrir austan heldur
málmiðnaðurinn um allt land. Pað
hefur sýnt sig að stóriðjan er mikil
vítamínsprauta fyi-ir málmiðnaðinn,
ekki síst þær smiðjur sem næst eru
byggingarstað. Við sáum það gerast
við uppbygginguna í Hvalfirði.“
Haniy er eindreginn vii-kjunar-
sinni. „I mínum huga snýst málið
um framtíð byggðar á Austurlandi.
Fólki fækkar stöðugt vegna fækk-
unar og einhæfni starfa við útgerð 11
og fiskvinnslu. Þessi þróun heldur
áfram ef ekki kemur eitthvað nýtt
til. Eins og er sér maður ekkert
annað en stóriðju sem gæti skapað
þau störf sem til þarf, bæði við fyrir-
tækið sjálft og þjónustu við það og
starfsfólkið.“ Þegar umræðunni er
beint að umhverfisspjöllum íyrir-
hugaðra virkjana segir Theodór að
ekki verði bæði haldið og sleppt, það
er að segja ekki sé hægt að eiga
bæði umrædd landsvæði ósnortin og -
fá nauðsynleg störf til að viðhali
byggðinni.
„Ferðaþjónustan er bara vertíð
og stendur ekki undir fjölgun íbúa.
Hins vegar eru ýmis tækifæri í
þeirri framþróun sem er í aukinni
úrvinnslu sjávarafurða, bæði á sjó
og landi. En það er ekki nóg. Við
sem búum hér í þessum litlu þorpum
viljum hafa það eins gott og aðrir.
Höfum það svo sem enn en eftir því Ij
sem íbúunum fækkar verður erfið- Ijl
ara að halda uppi þjónustustiginu.
Ef við svo fáum ekki að spreyta okk- F*
ur á nýjum viðfangsefnum þá horfu- .
illa fyrir þessum landsfjórðungi,"
segir Theodór.
Fjárhagsleg
endurskipulagning
Fyrirtæki sem vinnur mikið fyrir
sveiflukenndar atvinnugreinar eins
og sjávarútveginn og uppbyggingu
virkjana og stóriðju hefur átt sín
erfiðleikatímabil eins og nærri má
geta. Theodór Blöndal segir að
tímabilin hafi verið þrjú, það fyrsta í
upphafí rekstrar, hið versta á síldar-
leysisárunum og þriðja um 1990 við
erfiðleika sjávarútvegsins. Upp úr
1990 var Vélsmiðjan Stál hf. orðin
afar illa sett fjárhagslega eins og
flest önnur málmiðnaðarfyrirtæki.
Félagið var lokað fjölskyldufyrir-
tæki í eigu fjölskyldna stofnend-
anna. „Fyrir þremur árum hafði
Slippstöðin hf. á Akureyri samband
við okkur og spurðist fyrir um
möguleika á að fjárfesta í fyrirtæk-
inu og taka upp samvinnu. Við
ákváðum að taka því, opna félagið
fyrir nýjum hluthöfum og freista
þess að tryggja þannig framtíðar-
rekstur þess. Við vorum ekki verr
settir en svo að við gátum það,“ seg-
ir Theodór.
Hlutafé eldri hluthafa var fært nið-
ur og samþykkt að auka hlutafé með
sölu nýrra hluta. Slippstöðin keypti jg|
15% eignarhlut. í kjölfarið var ráðist
í gagngera fjárhagslega endurskipu-
lagningu og við hana breyttu stærstu
kröfuhafarnir hluta lána sinna í
hlutafé og urðu við það stórir hlut>
hafar. Nú á Reginn hf., eignarhalds-
félag Landsbankans, 33% hlutafjár
og Byggðastofnun 15%. Síðar keypti
Fálkinn hf. í Reykjavík um 15%
hlutafjár. Eldri hluthafamir, um 10
talsins, eiga nú mikinn minnihluta
hlutafjár.
„Þessi breyting hefur gefið fyrir- M
tækinu nýtt líf. Vélsmiðjan Stál er **
aftur orðin nokkuð öruggur vinnu-
staðiu- og við erum bjartsýn um
framtíðina," segir framkvæmda-
stjórinn. Þrjátíu menn vinna hjá íyr-
irtækinu og ársveltan er um 200
milljónir kr. Félagið skilaði hagnaði
á síðasta ári en Theodór telur að
reksturinn verði í járnum á þessu.
Hann segir að til umræðu hafi kom- |g
ið að fara með fyrirtækið á almem - [
an hlutafjármarkað en engar
ákvarðanir verið teknar. í því sam- ™
bandi segir hann að félagið sé í gríð-
VÍTAMÍNSPRAUTA
msBPnammíF
Á SUNNUDEGI
► Theodór Blöndal er fæddur á Seyðisfirði 22. nóvember 1946.
Hann útskrifaðist sem tæknifræðingur frá Tækniskólanum í
Þrándheimi í Noregi árið 1969 og hefur síðan starfað lijá
Vélsmiðjunni Stáli hf., fyrst sem tæknifræðingur og síðan sem
framkvæmdastjóri frá árinu 1985. Eiginkona Theodórs er
Björg Sigurðardóttir Blöndal frá Eskifirði, verslunarstjóri
í Stálbúðinni. Þau eiga þrjú börn.
eflir Helga Bjarnason
ÉLSMIÐJAN Stál hf. á
Seyðisfirði hefur sérhæft
sig í þjónustu við fiski-
mjölsverksmiðjur og
smíði lokubúnaðar íyrir virkjanir,
auk almennra skipaviðgerða og
þjónustu við einstaklinga og fyrir-
tæki. Theodór Blöndal fram-
kvæmdastjóri bindur mikla vonir við
uppbyggingu orkufreks iðnaðar á
Austfjörðum og segir það lífs-
spursmál fyrir byggðina. I fimmtíu
ára sögu fyrirtækisins hafa skipst á
skin og skúrir. Staðan er góð um
þessar mundir, meðal annars vegna
fjárhagslegrar endurskipulagningar
fyrirtækisins í kjölfar kaupa Slipp-
stöðvarinnar hf. á 15% hlutafjár og
náinnar samvinnu fyrirtækjanna.
Smíðuðu verkfæri
Saga fyrirtækisins er rakin aftur
til ársins 1947. Þá um vorið lauk
Pétur Blöndal námi í rennismíði í
Reykjavík, fór heim til Seyðisfjarðar
og stofnaði Vélaverkstæði P.
Blöndals sf. Sú starfsemi stóð stutt
því verkstæðishúsið brann til kaldra
kola í byrjun desember það sama ár
ásamt flestum áhöldum og tækjum.
Pétur lagði þó ekki árar í bát. Fékk
til liðs við sig bróður sinn, Ástvald
Kristófersson, og saman byggðu
þeir nýtt verkstæðishús og endur-
reistu reksturinn. Sú hefð hefur
myndast að miða afmæli fyrirtækis-
ins við þann dag sem byrjað var að
grafa fyrir sökkli nýja hússins, 26.
febrúar 1948.
Á fyrstu árum fyrirtækisins voru
fáir menn við ýmis störf hjá véla-
verkstæðinu, meðal annars við við-
gerðir á breskum togurum, smíði og
uppsetningu olíukynditækja og
olíutanka fyrir olíufélögin, pípulagn-
ingavinnu, bflaviðgerðir og fleira. Á
árinu 1952 var ákveðið að hefja stál-
herslu og framleiðslu áhalda úr stáli.
Ástvaldur fór til Hollands til að
kynna sér þá starfsemi og keyptir
voru stálherslupottar. Af þessu til-
efni var stofnað hlutafélag um rekst-
urinn og nafni hans breytt í
Vélsmiðjuna Stál hf. Framleidd voru
verkfæri af ýmsu tagi, svo sem meit-
lar, kúbein, rifjárn, felgujárn og
fleira. Theodór Blöndal, sonur Pét-
urs, segir að verkfærin hafi verið
hin ágætustu áhöld en markaðurinn
hafi ekki tekið við nema takmörkuðu
magni og svo hafi innflutningur haf-
ist og grundvöllur framleiðslunnar
brostið.
Á sjötta áratugnum tók fyrirtækið
þátt í síldarævintýrinu og frá þeim
tíma hefur þjónusta við fiskimjöls-
verksmiðjur verið snar þáttur í
starfsemi Stáls. Upp úr 1970 tók
Stál að sér að smíða lokubúnað og
ristar fyrir Laxárvirkjun og hóf
smíði stálbáta. Þessir tveir þættir
hafa síðan verið mikilvægir í starf-
seminni, það er að segja vinna við
virkjanir og síðar einnig stóriðjuver
svo og smíði og þó einkum viðhald
og endurbætur fiskibáta.
Tekið þátt í endurnýjun
loðnuverksmiðjanna
Þegar farið er yfir helstu þætti
rekstrarins í dag nefnir Theodór
fyrst þjónustu við fiskimjölsverk-
smiðjur. Félagið hefur tekið þátt í
enduruppbyggingu loðnuiðnaðarins
á undanfornum árum. Unnið hefur
verið að smíði og viðhaldi véla og
tækja í flestar mjölverksmiðjur
landsins og einnig aðeins fyrir er-
lendar verksmiðjm-. Félagið nýtur
þess að hafa öflugar verksmiðjur á
heimamarkaði og hefur unnið mikið
fyrir þær, ekki síst SR-mjöl á
Seyðisfirði, ■ Hi'aðfrystihús Eski-
fjarðar og Sfldaivinnsluna í Nes-
kaupstað.
Næst nefnir Theodór vinnu við
virkjanir og stóriðjufyrirtæki. Sein-
ustu verkefnin á þessu sviði eru
smíði lokubúnaðar og uppsetning í
Hágöngur og endurnýjun búnaðar
Sogsvirkjana og Búrfells. Hafa um
80% þeirra lokumannvirkja sem
smíðuð hafa verið innanlands komið
í hlut Stáls hf. Félagið komst inn á
stóriðjumarkaðinn 1985 með því að
taka að sér smíði bræðslukera fyrir
álverið í Straumsvík. Var þetta stórt
verk og fyrsta verkefnið í
málmiðnaði sem austfirskt fyrii-tæki
fær í alþjóðlegu útboði.
Á athafnasvæði Vélsmiðjunnar
Stáls hf. er dráttarbí-aut sem hafnar-
sjóður Seyðisfjarðar lét útbúa fyrir
sex árum. Þar er unnt að taka upp
allt að 40 metra löng skip. Hefur fyr-
irtækið fengið töluvert af verkefnum
við viðhald og endurbætur fiskiskipa
en þeim hefur fækkað, meðal annars
vegna þess hvað skipum af þessari
stærð hefur fækkað mikið á seinni ár-
um. Rætt hefur verið um stækkun
slippsins en engar ákvarðarnir um
það teknar.
Vélsmiðjan Stál sinnir auk þess
almennri þjónustu, ekki síst fyrir
austfirsk fyrirtæki. Þá má ekki
gleyma rekstri Stálbúðarinnar,
byggingarvöruverslunar sem Stál
rekur í húsakynnum sinum. Þar er
lögð áhersla á vörur sem fyrirtækið
þarf vegna reksturs smiðjunnar og
þjónustu við iðnaðinn á Seyðisfirði.
Stóriðja mikilvæg
fyrir framtíðina
„Við teljum að uppbyggingu
loðnuiðnaðarins sé að mestu lokið í
bili,“ segh- Theodór þegar hann er
spurður um verkefnin framundan.
„Veiði hefur gengið vel í langan tíma
og afurðaverð verið hagstætt.
Reynslan hefur kennt manni að bú-
ast megi við einhverjum afturkippi."
Telur hann að enduruppbyggingu
loðnuiðnaðarins sé að ljúka en áfram
verði þó einhver verkefni á því sviði.
En hvað tekur þá við? Theodór
bindur vonir við virkjanir og
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
THEODÓR Blöndal, framkvæmdastjói’i Vélsmiðjunnar Stáls hf. á Seyðisfirði, við listaverk sem starfsmenn fyrirtækisins eru að gera úr stálbitum úr
verksmiðju Hafsfldar sem eyðilagðist í snjóflóði fyrir nokkrum árum. Náttúruöflin liafa mótað bitana á þann hátt sem ekki er í mannlegu valdi.
Verkið hefur verið gefið Seyðisfjarðarbæ og verður sett upp í bænum. í baksýn sést Skinney í dráttarbrautinni.
STÓRIÐJA YRÐI