Morgunblaðið - 29.11.1998, Side 50

Morgunblaðið - 29.11.1998, Side 50
50 SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Tannverndarráð ráðleggur foreldrum að gefa börnum sínum jóladagatöl án sælgætis Sauma gardínur - blindfoldun Lengjan á 1.000 kr. Bíðið ekki eftir jólaösinni. Sími 587 4517. SERTILBOÐ Opið sunnudag kl. 13-17 kr. 3.500 Sendum í póstkröfu samdægurs SKÓUERSLUN KÓPAUOGS HAMRABORG 3 • SÍMl 55A 1754 í DAG VELVAKAJVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Bótaþegar og jólin MÉR var tjáð það að ör- yrkjar og fleiri bótaþegar fengju jólauppbót sem næmi heilum Í4.524 krón- um. Skatturinn af þessum jólaglaðningi er 8.279 krónur. Pað er illa farið með þetta fólk, það ætti að fá jólaglaðninginn skattfrjálsan svo það geti haldið jól eins og aðrir. En áfram skal reyna að fmna ný göt á sultarólina og það í öllu góðærinu. Oryrki. Bjartsýnisverðlaun Framsóknarflokksins ÉG VAR að horfa á mynd í Morgunblaðinu þar sem sem heilbrigðis- og trygg- ingaráðherra Framsókn- arflokksins er að afhenda Benedikt Davíðssyni „Bjartsýnisverðlaun“ Framsóknarflokksins til handa Landssambandi fé- laga eldri borgara. Skötu- hjúin eru ósköp ánægð á svipinn en það er tvennt sem mér finnst vanta á þessa frétt. í fyrsta lagi ályktun flokksins um mál- efni aldraðra. Eitthvað hlýtur flokkurinn sem í seinustu kosningum hafði „fólk í fyrirrúmi“ að hafa um þá að segja. Við erum fólk, ekki síður en aðrir. I öðru lagi rökstuðninginn fyrir veitingu Bjartsýnis- verðlaunanna. Er það kannski ástæða til bjart- sýni að fjöldi aldraðra þurfi að lifa við fátæktar- mörk vegna jaðarskatta, svívirðilegra skerðinga á tekjutryggingu og greiðslu skatta af tekjum sem jaðra við fátæktar- mörk? Kannski er það fyrir að halda í þá von að þeim takist að fá veruleg- ar úrbætur hjá ríkis- stjórninni. Það væri engin smá bjartsýni. Þórir Guðmundsson, eldri borgari. Tapað/fundið Fullorðinsúlpu saknað SONUR minn, Dabbi V., gleymdi úlpu fyrir u.þ.b. 6-8 mánuðum heima hjá vini eða vinkonu. Ulpan er ný, mjög vönduð, blágrá að lit með áfastri hettu með smá deri framaná. Hún er ómerkt. Ulpunnar er saknað. Ef hún liggur í óskilum heima hjá ein- hverjum þá vinsamlega látið vita í síma 561 1333, Laufey. Dýrahald Köttur fæst gefins GUSTUR, svartur og hvítur, sex mánaða fressköttur fæst gefins á gott heimili, vegna of- næmis á núverandi heim- ili. Upplýsingai' í síma 557 2064.' Lísa er týnd LISA í Undralandi týnd- ist sl. sunnudag, 22. nóv- ember. Lísa er svört á lit með hvítar loppur og trýni, en ómerkt. Síðast sást til hennar fyrir utan kafflhúsið Ara í Ögri á horni Laugavegs og Ing- ólfsstrætis. Þeir sem hafa orðið hennar varir láti vita á Óðinsgötu 21b eða í síma 552 3214. Með morgunkaffinu ÞÚ RÆÐUR hvort þú trúir því, en þær björguðu mér úr ræsinu. ÉG VEÐJA 1000 kalli að minn öskrar hærra en þinn. HÖGNI HREKKVÍSI Víkverji skrifar... EIRÍKUR Stefánsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Fáskrúðsfjarðar, sagði í viðtali við Morgunblaðið um síðustu helgi að 330 manns hefðu flutzt frá Aust- fjörðum á fyrstu níu mánuðum líð- andi árs. Hann segir það samsvara 20 þúsund manna flótta frá höfuð- borginni. Orðrétt sagði hann: „Það eru allir á aldrinum frá 16 til 30 ára fluttir úr bæjunum; þetta fólk er ekki hér lengur, það er bara farið“! Strjálbýlið hefur verið að „tapa“ tugum þúsunda fólks til suðvestur- homsins á seinni helmingi aldarinn- ar. Það eru ekki bara Hornstrandir sem sitja eftir eyðisveitir. Lunginn úr strjálbýlisbyggðum hefur horft á eftir fólksflaumi langtímum saman. í þessu ljósi þarf engan að undra þótt Austfírðingar sitji ekki þegj- andi undir því að orka fallvatna, sem breyta má í störf, verðmæti, lífskjör, þ.e. í betri búsetuskilyrði, fljóti óbeizluð til sjávar. Landið er svo sannarlega „fagurt og frítt og fannhvítir fjallanna tind- ar“. En það þarf að nýta auðlindir þess ef tryggja á búsetuna. xxx MARGUR höfuðborgarbúinn horfír sljóum augum á lands- byggðina, sem svo er kölluð, fjara út. Standist þessar byggðir ekki samkeppnina um búsetu fólks, segir margur „spekingurinn", sem situr yfír krús á miðbæjarkrá, þá þær um það. Svo einfalt er málið, séð um glasbotninn. Stöldrum nú eilítið við. Sam- keppnin um búsetu fólks er nefni- lega farin að bitna á henni Reykja- vík. Þar fór í verra. Hún hefur verið að missa bæði fólk og fyrirtæki til Kópavogs síðustu árin - og það í all- nokkrum mæli - ef Víkverji hefur tekið rétt eftir. Ef ekki hefði komið til nokkurt fólksstreymi að austan, norðan og vestan sæist slagsíða á höfuðborgarskútunni. Það er farið að syrta í R-listaölið. xxx EKKI er öll sagan sögð. Sam- keppnin um búsetu fólks, sú sem höfuðmáli skiptir, stendur nefnilega ekki á milli Kópavogs og Reykjavíkur, jafnvel ekki milli höf- uðþorgar og landsbyggðar, heldur á milli Islands og umheimsins! Nútíma fjölmiðlun sýnir okkur dag hvurn búsetuskilyrði í umheim- inum. Nútíma samgöngur gera okkur kleift að flytja landa og heimsálfa á milli með jafnauðveld- um hætti og á milli landshorna. Vei menntað og starfshæft fólk getur haslað sér völl nánast hvar sem er í veröidinni - og gerir það ef hugur stendur til. Segull góðra búsetu- skilyrða dregur. ísland gæti orðið að Hornströnd- um hins byggilega heims, ef þjóðin gleymir þeim veruleika, eða sinnir honum ekki, „að þetta land á ærinn auð, ef menn kunna að not’ann“! x x x * YLIR, annar mánuður vetrar að fornu tímatali, hófst næstliðinn mánudag, 23. nóvember. í dag, sunnudag 29. nóvember, hefst að- venta eða jólafasta. Þá er tímabært að hefja undirbúning jóla, einnar af þremur meginhátíðum kristinna manna. Hinar eru páskar og hvíta- sunna. Ekki á morgun heldur hinn heils- ar fullveldisdagurinn, 1. desember, en þann dag árið 1918 varð ísland viðurkennt frjálst og fullvalda ríki. Við deildum þó konungi með Dön- um fram að lýðveldisstofnun árið 1944. Núverandi drottning Dana ber og íslenzkt nafn: Margi-ét Þór- hildur. Þegar aðventa er hafín líður hratt á skammdegið. Þá eru eru aðeins rúmar þrjár vikur til vetrarsól- hvarfa (22. desember), þegar sólar- gangur er stytztur. Frá þeim tíma og helgum jólum liggja allar leiðir til vors og gróanda, hvernig sem á mál er litið. Með það í huga er létt að þreyja þon-ann og góuna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.