Morgunblaðið - 02.02.1999, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eldsvoði í hráefnislager málningarverksmiðjunnar Hörpu
Þriðjungur húss-
ins skemmdur
ALLT tiltækt slökkvilið Reykjavík-
ur var kallað á vettvang klukkan
21.30 á sunnudagskvöld þegar kvikn-
aði í hráefnisgeyraslu málningar-
verksmiðjunnar Hörpu við Stór-
höfða. Allt að 80 slökkviliðsmenn
unnu að slökkvistarfi, sem lauk á
innan við tveim klukkustundum.
Hætta var talin á sprengingum þar
sem eldfim efni til málningai’fram-
leiðslunnar voru vafin eldtungum.
Girti lögreglan svæðið af og hélt öll-
um óviðkomandi í burtu meðan unn-
ið var að slökkvistarfi. Þrjár sendi-
bifreiðar, sem voru inni í húsinu,
sprungu og eyðilögðust og magnað-
ist eldurinn þá mjög. Talsvert magn
af eldfimu efni tókst þó að flytja úr
húsinu og forða því undan eldinum,
en annað varð eldinum að bráð.
Að sögn Jóns Viðars Matthíasson-
ar varaslökkviliðsstjóra tókst
slökkvistarf ágætlega og sagði hann
að það hefði hjálpað slökkviliðs-
mönnum hversu vel húsið hefði verið
byggt með tilliti til forvarna. Þurfti
því ekki að rjúfa þak hússins þar
sem það var útbúið sérstakri rey-
klúgu. Þá kom eldvarnarveggur í
húsinu í veg fyrir að eldurinn
breiddist út og gátu slökkviliðsmenn
því tekist á við eldinn á einangruð-
um stað vestast í húsinu, en þrjú
brunahólf era í húsinu, sem skilin
eru að með tveim eldvarnarveggj-
um. Ljóst er að sá hluti hússins, sem
brann er mjög illa farin en lítið tjón
varð annars staðar.
Góðar eldvarnir skiluðu sér
„Það vai’ lagt upp með það í upp-
hafi í slökkvistarfinu að brunahólfið
sem brann var afskrifað og það yrði
að reyna að bjarga því sem eftir
var,“ sagði Jón Viðar. Hann sagði
ljóst að þær forvarnir, sem hefði
verið lagt í við byggingu hússins,
hefðu skilað sér í ljósi þess að eldur-
inn breiddist ekki út um aðra hluta
þess. Allt sem inni í hólfinu var er
hinsvegar ónýtt og byggingin sjálf
löskuð, en hugsanlegt er að unnt sé
að klæða hana upp á nýtt og laga
hana að mati Jóns Viðars. Slökkvi-
liðsmenn voru á vettvangi í gær til
að kanna aðstæður og skemmdir
nánar og vegna ástands hússins er
ekki leyfð umferð um húsið. Rann-
sóknardeild lögreglunnar í Reykja-
vík rannsakar eldsupptök.
I fréttatilkynningu frá Hörpu í
gær, sagði að starfsemi söludeildar-
innar hafi haldið áfram ótrufluð í
gær, þrátt fyrir eldsvoðann.
Kviknaði í út
frá dráttarvél
MILLJÓNATJÓN hlaust af þegar
kviknaði í vélaskemmu við bæinn
Þverá á Síðu í Skaftárhreppi síðdeg-
is á sunnudag. Slökkviliðið á Kirkju-
bæjai-klaustri vai’ kallað á vettvang
og réð niðurlögum eldsins á skömm-
um tíma. Vélaskemman er nýlegt L
300 fermetra hús og skemmdist
mikið, að sögn lögreglunnar á I
Kirkjubæjarklaustri. Talið er full- I
víst að kviknað hafi í út frá einni
dráttarvélanna í skemmunni, en
ekkert rafmagn var í henni. Gífur-
legur hiti myndaðist inni í skemm-
unni, en eldur var lítill. Eyðilagðist,
auk nokkurra dráttarvéla, bifreið,
vélsleðar, sláttuvélar og önnur hey-
vinnutæki, sem voru í skemmunni.
Morgunblaðið/Júlíus Morgunblaðið/Jón Svavarsson
TALSVERT magn af eldfimu efni var á lagernum, en engar alvarlegar sprengingar vegna ÞRIÐJUNGUR hússins brann og er illa farinn, en eldvarnarveggur kom í veg fyrir frekari
þss. Þijár sendibifreiðar, sem voru í húsinu sprungu hinsvegar og eyðilögðust í eldinum. útbreiðslu eldsins. Sérstök reyklúga er á byggingunni og því þurfti ekki að ijúfa þak hennar.
Úrslitin í prófkjöri Samfylkingarinnar komu á óvart
Þátttakan sigur fyrir
Samfylkinguna
Niðurstöður prófkjörs
Samfylkingarinnar
í Reykjavík
Atkvæði greiddu 11.478
Auðir seðlar voru 12 og ógildir 169
Alþýðuflokkur 7.637
Alþýðubandalag 2.907
Kvennalisti 753
5,67%
1. Jóhanna Sigurðardóttir
2. Össur Skarphéðinsson
3. Bryndís Hlöðversdóttir
4. Guðrún Ögmundsdóttir
5. Ásta Ragnh. Jóhannesd.
6. Mörður Árnason
7. Árni Þór Sigurðsson
8. Guðný Guðbjörnsdóttir
9. Jakob Frim. Magnússon
Hólf alþýðuflokks ^ 1. sæti 1.-2. sæti Í.-3. sæti Í.-4. sæti Hlutf. atkv.
1. Jóhanna Sigurðardóttir tLÁ"] 4.041 5.032 5.689 6.171 82,4%
2. Össur Skarphéðinsson 2.681 3.735 5.323 6.067 81,0%
3. Ásta Ragnheiður Jóhannesd. 476 3.694 5.127 5.974 79,8%
4. Mörður Árnason 75 811 2.158 4.093 54,7%
5. Jakob Frímann Magnússon 128 968 1.747 2.726 36,4%
6. Stefán Benediktsson 47 403 1.139 2.100 28,0%
7. Magnús A. Magnússon C*lA 20 8. Borgþór Kjærnested 2 176 777 1.627 21,7%
79 323 773 10,3%
9. Hólmsteinn Brekkan 17 76 178 417 5,6%
Hólf alþýðubandalags 1. sæti 1.-2. sæti 1.-3. sæti 1.-4. sæti Hlutf. atkv.
1. Bryndís Hlöðversdóttir 1.288 1.863 2.143 2.319 82,1%
2. Árni Þór Sigurðsson 846 1.470 1.745 1.975 69,9%
3. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson ” 185 594 1.432 1.856 65,7%
4. Heimir Már Pétursson 283 650 1.067 1.529 54,1%
5. Guðrún Sigurjónsdóttir 25 386 694 1.105 39,1%
6. Elísabet Brekkan 26 145 403 795 28,1%
7. Arnór Pétursson 141 270 459 742 26,3%
8. Magnús Ingólfsson 13 164 345 675 23,9%
9. Herbert Hjelm 18 108 187 304 10,8%
Hólf kvennalista f sæti 1.-2. sæti 7.-S. sæti 1.-4. sæti Hlutf. atkv.
1. Guðrún Ögmundsdóttir / 279 487 591 634 86,1%
2. Guðný Guðbjörnsdóttir 260 375 457 518 70,4%
3. Hulda Ólafsdóttir 153 335 489 582 79,1%
4. Hólmfriður Garðarsdóttir 22 137 291 457 62,1%
5. Fríða Rós Valdimarsdóttir 8 75 183 377 51,2%
6. Ásgerður Jóhannsdóttir 14 63 197 376 51,1%
GÓÐ þátttaka í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík verður að
teljast mikill sigur fyrir þessa nýju
stjórnmálahreyfingu. Um 11.500
manns tóku þátt í prófkjörinu, en
það er um 3.000 fleiri en kusu í próf-
kjöri R-listans fyrir borgarstjórnar-
kosningamar í vor og nærri helm-
ingi fleiri en tóku þátt í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins fyrir borgar-
stj órnarkosningamar.
I prófkjöri R-listans fyrir ári tóku
þátt 8.573 kjósendur. Þátttakan var
almennt talin sigur fyrir R-listann,
ekki síst í Ijósi þess að talsvert færri
tóku þátt í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins, en í því kusu 6.575 kjós-
endur. í gegnum árin hafa yfirleitt
7-9.000 manns kosið í prófkjörum
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Hámarki náði þó þátttakan fyrir
kosningarnar 1979 þegar 12.223
kjósendur tóku þátt í prófkjörinu.
Eftir það prófkjör var tekin ákvörð-
un um að binda þátttöku kjósenda
við flokksbundna félaga. Allir gátu í
sjálfu sér tekið þátt, en þeir sem
ekki vora félagar í Sjálfstæðis-
flokknum urðu að skrá sig í flokk-
inn. Þátttakan í prófkjörum flokks-
ins hefur heldur minnkað á seinni
áram og fyrir alþingiskosningarnar
1995 kusu 7.297 í prófkjöri, sem þá
var haldið. Þátttaka upp á 11.478
manns verður því að teljast góð nið-
urstaða fyrir Samfylkinguna, en
hafa verður í huga að þátttakendur
voru ekki að gerast félagsbundnir í
Samfylkingunni heldur á það að
heita að þeir hafi verið að lýsa yfir
stuðningi við hana með þátttökunni.
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á
Reykjanesi i haust varð metþátt-
taka, en í þvf kusu 12.208 kjósendur.
Sem kunnugt er eru kjósendur
færri á Reykjanesi en í Reykjavík.
Sé þátttakan í prófkjöri Samfylking-
arinnar um helgina stór sigur er sig-
ur Sjálfstæðisflokksins í prófkjörinu
á Reykjanesi enn stærri.
Þó að kosningaþátttakan hafi
komið á óvart kom ekki síður á
Aðeins einu sinni hefur
þátttaka í prófkjöri í
Reykjavík verið meiri
en í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar um helgina.
Það var í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins
árið 1979. Þátttakan er
þó minni en í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins á
Reykjanesi í haust.
Egill Oiafsson fjallar
um úrslit prófkjörsins.
óvart hvað misvægi milli flokka er
mikið. Alþýðuflokkurinn fékk tvö af
hverjum þremur atkvæðum sem
greidd voru í prófkjörinu. Styrk-
leikahlutföllin milli A-flokkanna í
prófkjörinu eru í engu samræmi við
útkomu flokkanna í liðnum kosn-
ingum. Skýringin á þessu eru þær
leikreglur sem prófkjörið byggðist
á.
Sem kunnugt er urðu harðar
deilur milli flokkanna um próf-
kjörsreglurnar. Upphaflega vildi
meirihluti Alþýðubandalagsins að
kjörnefnd raðaði upp á listann, en
Alþýðuflokkurinn lagði áherslu á
opið prófkjör. Niðurstaðan varð sú
að sæst var á svokallað flokkapróf-
kjör, sem takmarkaði val kjósenda
við einn flokk. Tillögu um að opna
prófkjörið var vísað frá á fundi
kjördæmisráðs Aiþýðubandalags-
ins. Þessi ákvörðun Alþýðubanda-
lagsins byggðist á mikíu pólitísku
vanmati á aðstæðum og kemur í
raun harkalega í bakið á flokknum.
Akvörðunin kemur í veg fyrir að
nokkrir frambjóðendur Alþýðu-
bandalagsins nái að sýna raunveru-
legan styrk sinn.
Fullyrða má að frambjóðendur
Alþýðubandalagsins hefðu komið
mun betur út úr prófkjörinu ef það
hefði verið opið. Augljósast er að
bæði Bryndís Hlöðversdóttir og Vil-
hjálmur Vilhjálmsson hefðu komið
sterkar út úr opnu prófkjöri. Einnig
er ólíklegt að Árni Þór Sigurðsson
hefði komið verr út úr opnu próf-
kjöri.
Prófkjörið er ósigur fyrir Svavar
Gestsson og aðra þá sem vildu þetta
flokkaprófkjör. Ekki aðeins kemur
Alþýðubandalagið tiltölulega veikt
út úr prófkjörinu heldur nær Arni
Þór einungis 7. sætinu, sem getur
tæplega talist öruggt þingsæti.
A.m.k. taldi Össur Skarphéðinsson í
útvarpsviðtali daginn fyrir próf-
kjörið að 7. sætið yrði baráttusætið.
Það er hins vegar ekki rétt að
gera of mikið úr sigri Alþýðuflokks-
ins í prófkjörinu. Hafa ber í huga að
bæði Jóhanna Sigurðardóttir og
Mörður Árnason eru ekki í Alþýðu-
flokknum. Þá má einnig minna á að
bæði Össur Skarphéðinsson og Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir störf-
uðu í mörg ár í öðrum flokkum og
gegndu trúnaðarstörfum fyrir þá.
Slök útkoma
Kvennalistans
Utkoma Kvennalistans hlýtur að
valda kvennalistakonum miklum
vonbrigðum. I deilunum um próf-
kjörsreglurnar töldu ýmsir rétt að
skilja Kvennalistann eftir vegna
þess að hann hefði lítið fylgi. í
prófkjörinu tókst Kvennalistanum
ekki að hrekja þessa röksemd.
Guðrún Ögmundsdóttir, sem fékk
flest atkvæði í Kvennalistahólfinu,
er í 17. sæti þegar litið er á at-
kvæðatölur allra 24 frambjóðenda.
Hefðu engar girðingar verið í
prófkjörinu hefði Kvennalistinn
ekki átt neinn fulltrúa meðal níu
efstu manna. Alþýðuflokkurinn
hins vegar fengið 6 fulltrúa og Al-
þýðubandalagið 3.
Þegar gengið var frá endanleg-
um prófkjörsreglum var fellt út úr
textanum ákvæði um að úrslitin
yrðu „bindandi" fyrir níu efstu sæt-
in. Það er því í valdi fulltrúaráða
flokkanna þriggja að samþykkja
endanlegan lista. Erfitt er fyrir
flokkana að breyta úrslitum próf-
kjörsins, en hins vegar gefur
ákvörðun Guðnýjar Guðbjörnsdótt-
ur um að taka ekki áttunda sætið
tilefni til að finna nýjan frambjóð-
anda í hennar stað. Kvennalistinn
gerir eðlilega kröfu um að staðið
verði við samkomulag flokkanna
um að hann fái áttunda sætið. En
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru þegar farnar af stað
þreifingar um að Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, sem lenti í þriðja sæti
hjá Alþýðubandalaginu, skipi átt-
unda sætið. Það mun koma í ljós á
næstu dögum hvort látið verði
reyna á þetta.
■ Prófkjör/34