Morgunblaðið - 02.02.1999, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Síðast gerðar veigamiklar skipulagsbreytingar á forustu Sjálfstæðisflokksins 1978
Margvísleg-
ar tillögur
komið fram
á 20 árum
TILLÖGUR um breytt skipulag á
forustu Sjálfstæðisflokksins eru
ekki nýjar af nálinni og síðast voru
gerðar veigamiklar breytingar árið
1978 þegar ákveðið var að stofna til
framkvæmdastjórnar flokksins.
Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins,
sagði í gær að uppbygging á stjóm
flokksins væri nú með þeim hætti að
formaður og varaformaður mið-
stjómar flokksins væru kjömir á
landsfundi í beinni og óhlutbundinni
kosningu og yrðu þar með formaður
og varaformaður flokksins.
,AJlir landsfundarfulltrúar em í
framboði og menn fá afhentan at-
kvæðaseðil og rita á hann nafn þess,
sem þeir vilja kjósa,“ sagði Kjartan.
„Það er í raun enginn í framboði, en
menn lýsa því gjaman yfir að þeir
sækist eftir embættinu eða í öðram
tilvikum að þeir sækist ekki eftir
því.“
Miðstjóm Sjálfstæðisflokksins fer
með framkvæmdavaldið og sagði
Kjartan að hana mætti kalla æðstu
stjóm hans. Formaður og varafor-
maður hennar era formaður og
varaformaður flokksins. Síðan sitja í
henni 11 menn, sem kosnir eru á
landsfundi úr hópi annarra en al-
þingismanna flokksins, fimm alþing-
ismenn flokksins, sem kjörnir era af
þingflokknum, formenn landssam-
taka flokksins, sem eru sjálfkjömir,
og formenn kjördæmisráða. Að auki
eiga formaður þingflokks, fjármála-
ráðs og fræðslu- og útbreiðslunefnd-
ar Sjálfstæðisflokksins seturétt á
miðstjómarfundum og hafa mál-
frelsi og tillögurétt.
Framkvæmdastjórn
nú að mestu sjálfkjörin
Miðstjórnin skipar sérstaka
framkvæmdastjórn. í henni eiga
sæti formaður flokksins, sem er
jafnframt formaður hennar, vara-
formaður flokksins og formaður
þingflokksins, sem era sjálfkjörnir,
og tveir, sem miðstjórn kýs úr sín-
um hópi.
„Hún er sem sagt að mestu sjálf-
kjörin," sagði Kjartan um fram-
kvæmdastjórnina. „Nú hef ég að-
eins séð það, sem Björn setti fram i
ræðu sinni fyrir norðan, en ég
myndi gera ráð fýrir því að hans til-
laga gangi út á það að kjöri fram-
kvæmdastjórnarinnar verði breytt
þannig að hún verði kosin á lands-
fundinum eins og formaður og vara-
formaður nú.“
Kjartan sagði að á undanförnum
20 áram hefðu nokkrum sinnum
komið fram hugmyndir um breyt-
ingar á íyrirkomulagi æðstu forustu
flokksins. Þær hefðu verið með
ýmsu móti.
VALHÖLL, hús Sjálfstæðisflokksins.
„Það hafa til dæmis verið settar
fram hugmyndir um að kjörinn
væri formaður og varaformaður
flokksins og síðan sérstakur for-
maður og varaformaður miðstjórn-
ar á landsfundi og sérstakur vara-
formaður og formaður þingflokks
væra kosnir af þingflokknum,"
sagði hann. „Ymis tilbrigði hafa
komið fram við þessar hugmyndir,
til dæmis að kosinn væri sérstakur
ritari í flokknum, sem til dæmis
væri formaður framkvæmdastjórn-
ar. Lagt hefur verið til að auk vara-
formanns og ritara verði kosinn
gjaldkeri og auk formanns verði
kosnir tveir til þrír varaformenn."
Hann sagði að slík hugmynd
hefði síðast komið fram 1995 þegar
Landssamband sjálfstæðiskvenna
hefði lagt til að kosnir yrðu tveir
varaformenn.
„í umræðum um þessar tillögur
og yfirferð á skipulagsreglum Sjálf-
stæðisflokksins eftir alþingiskosn-
ingarnar 1978 og 1987 var einnig
kastað fram mai'gvíslegum hug-
myndum um breytingar á skipu-
lagsmálum, meðal annars um að
framkvæmdastjórnin skyldi hljóta
umboð sitt beint frá landsfundi, en
ekki frá miðstjórn flokksins,“ sagði
Kjartan. „Gegnum tíðina hafa
menn því velt fyrir sér ýmsum að-
ferðum við að skipa þessum mál-
um.“
Varaformannsstaða
frá 1937
Hann sagði að 1978 hefði verið
ákveðið að stofna sérstaka fram-
kvæmdastjórn og á þeim tíma hefði
það verið heilmikil breyting: „Upp-
haflega var hún kjörin þannig að
miðstjórn skipaði alla, bæði for-
menn og fjóra menn að auki. Síðan
breyttist skipan hennar og það fyr-
irkomulag, sem nú er tók við.“
Hann sagði að tillögur af þessu
tagi hefðu yfirleitt verið ræddai’ í
sérstaklega skipuðum nefndum,
sem ætlað hefur verið að endur-
skoða skipulag flokksins. Þessar
nefndir hefðu síðan skilað tillögum
til miðstjórnar flokksins, sem síðan
hefði lagt tillögur fyrir landsfund-
ina hafi hún yfirleitt orðið sammála
um að leggja til breytingar.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft
varaformann frá 1937. Fyrsti vara-
formaður flokksins var Pétur
Magnússon. Síðan hafa sjö menn
gegnt embættinu, þar af tveir
tvisvar. Friðrik Sophusson, fráfar-
andi varaformaður, settist fyrst í
embættið árið 1981. Árið 1989 vék
hann fyrir Davíð Oddssyni, en varð
varaformaður á ný 1991 þegar Da-
víð varð formaður flokksins.
Geir H. Haarde
Býður sig
fram til
varafor-
manns
„ÞAÐ hefur legið í loftinu um
nokkurt skeið að ég myndi bjóða
mig fram í embætti varaformanns
og ég greindi
formanni flokks-
ins frá því áður
en hann fór til
Mexíkó fyrir 10
dögum að ég
hygðist gera
það,“ sagði Geir
H. Haarde fjár-
málaráðherra í
samtali við Morgunblaðið í gær en
hann er nú staddur í Finnlandi þar
sem hann er fulltrúi ríkisstjórnar-
innar á 10 ára afmæli Norræna
þróunarsjóðsins.
Geir H. Haarde sagði ekki hafa
verið ástæðu til að skýra frá þess-
ari ákvörðun sinni opinberlega
strax þótt hún hefði verið tekin fyr-
ir nokkra þar sem hann vildi ekki
hafa áhrif á kjör fulltrúa á lands-
fund Sjálfstæðisflokksins sem hefj-
ast á 11. mars næstkomandi. „En
eins og mál hafa þróast tel ég ekki
ástæðu tíl að bíða með að tilkynna
þessa ákvörðun um að vera í fram-
boði. Það er síðan landsfundarfull-
trúa að velja milli þeirra sem
kunna að bjóða sig fram,“ sagði
hann ennfremur.
Geir var einnig spurður álits á
þeini hugmynd Björns Bjamason-
ar að fimm manna framkvæmda-
stjórn verði kjörin í stað varafor-
manns.
Framkvæmdastjórn starfar
„Ég hef ekki heyrt um þessa
hugmynd áður og kannast ekki við
hana frá fyrri tíð en það liggur í
augum uppi að ég myndi ekki gefa
kost á mér í þetta starf ef ég teldi
það óþarft eða störf þeirra manna
sem hafa sinnt varaformannsemb-
ættinu til þessa. Ég bendi á að í
flokknum starfar í dag fimm
manna framkvæmdastjórn og
virkni hennar fer eftir því sem
flokksforystan á hverjum tíma
ákveður. Ég var sjálfur þingflokks-
formaður í sjö ár en þingflokksfor-
maður hefur allt annars konar um-
boð en varaformaður sem er kjör-
inn af landsfundi flokksins. Ég tel
það ekki framkvæmanlegt í raun
að þingflokksformaðurinn verði
staðgengill formannsins. Ég held
að það sé mun sterkara að varafor-
maður kjörinn á landsfundi sé stað-
gengill formanns eins og verið hef-
ur í áratugi. Þannig er það í flest-
um félögum og samtökum."
Geir sagði hins vegar nauðsyn-
legt að taka skipulagsmál flokksins
til skoðunar, ekki síst vegna fyrir-
hugaðrar kjördæmabreytingar.
Það hlyti að verða eitt af verkefn-
um flokksforystunnar, þar með
talið varaformanns, næstu mánuði
og misseri að taka þau til rækilegr-
ar skoðunar.
Sólveig Pétursdóttir
Of veigamik-
il breyting
SÓLVEIG Pétursdóttir, varafor-
maður þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins, lýsti í
gær yfir því að
hún hefði ákveð-
ið að gefa kost á
sér til varafor-
manns á lands-
fundinum, sem
haldinn verður
11. til 14. mars
og bætti við að
hún teldi tæpast raunhæft að ætla
að jafn viðamildl breyting og til-
laga Björns Bjamasonar mennta-
málaráðherra um að leggja niður
embætti varaformanns flokksins
og skipa þess í stað fimm manna
framkvæmdastjóm tæki gildi á
landsfundi eftir rúman mánuð.
„Nú er það svo að á landsfundi
tíðkast ekki að menn bjóði sig sér-
staklega fram til ákveðinna emb-
ætta, en ég hef ákveðið að láta þau
boð berast til landsfundarfulltrúa
að ég sækist eftir embætti varafor-
manns Sjálfstæðisflokksins," sagði
Sólveig í gær. „Fyrir þessari
ákvörðun minni liggja nokkrar
ástæður, en kannski þessar helst-
ar: ég hef á undanförnum mánuð-
um og vikum fengið fjölmargar
áskoranir og tilmæli frá samtökum,
hópum og einstaklingum innan
Sjálfstæðisflokksins, sem hafa lagt
að mér að gefa kost á mér til þessa
starfs. Mér þykir auðvitað afar
vænt um þetta og þann hug, sem
að baki býr. Þess vegna hef ég nú
ákveðið að verða við þessum til-
mælum.“
Sólveig vísaði til reynslu sinnar í
stjórnmálum þegar hún ræddi
ákvörðun sína.
„Ég hef verið alþingismaður fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík í
átta ár og var áður fyrsti varaþing-
maður hans í fjögur ár og í borgar-
stjórnarflokknum jafn lengi,“ sagði
hún. „Því tel ég mig hafa töluverða
pólitíska reynslu. Ég hef áður lýst
því yfír að ég er reiðubúin til að
takast á við ný og stærri verkefni
fyrir Sjálfstæðisflokkinn og með
þessari ákvörðun vil ég ítreka
þennan vilja minn og metnað til að
vinna fyrir flokkinn."
Nauðsynlegt að flokkurinn kalli
eftir konum í ríkisstjórn
Sólveig sagði að nauðsynlegt
væri að huga betur að framgangi
kvenna innan flokksins: „Ég tel
það fyllilega tímabært og raunar
nauðsynlegt að Sjálfstæðisflokkur-
inn kalli eftir konum til að gegna
æðstu störfum á vegum flokksins
og til þátttöku í ríkisstjórn. Ég tel
að þessi skoðun hafi mikið fylgi hjá
hinum almenna flokksmanni."
Björn Bjarnason sagði í ræðu á
fundi kjördæmisráðs Sjálfstæðis-
flokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra um helgina að hann hygðist
ekki sækjast eftir varafonnennsku
í flokknum og lagði um leið til að
embættið yrði lagt niður og í stað
þess yrði kjörin fimm manna fram-
kvæmdastjórn, meðal annars til að
tryggja einingu.
„Fram hefur komið í fjölmiðlum
„að hörð átök og blokkamyndanir
vegna varaformannskjörs þjóni
ekki hagsmunum sjálfstæðis-
manna“,“ sagði Sólveig og vitnaði
til orða Björns. „Undir þetta vil ég
heils hugar taka. Hins vegai- er
gert ráð fyrir því að landsfundur
velji flokknum varaformann og nú
háttar svo til að núverandi vara-
formaður er að láta af embætti.
Þess vegna tel ég afar eðlilegt að
landsfundarfulltrúar fái tækifæri
til að velja hvern þeir vilja. Ég hef
þegar ákveðið að vinna mínu fram-
boði brautargengi eftir því, sem
mér er fært, einungis með mál-
efnalegum hætti og af fyllsta
drengskap."
Hún kvaðst ekki hafa kynnt sér
efni hugmynda Björns til hlítar
umfram það, sem hún hefði lesið í
Morgunblaðinu og heyrt í útvarpi,
en hún teldi bæði sjálfsagt og eðli-
legt að skipulagsstarf innan
flokksins væri rætt á landsfundi,
enda væri ráð fyrir því gert.
„Hér virðist hins vegar um svo
veigamiklar breytingar á skipulagi
flokksins að ræða að óviturlegt
væri annað en að gera ráð fyrir ít-
arlegri umræðu um þau mál bæði
á landsfundi og síðan í framhaldi
af því heima í héraðum'hvarvetna
á landinu," sagði hún. „Hugmynd
um að svo viðamikil breyting á
skipulagsmálum, sem hér virðist
um að ræða, taki gildi á landsfundi
eftir liðlega mánuð er tæpast
raunhæf."
Sigríður Anna
Þórðardóttir
Athyglisverð
hugmynd
„ÞETTA er hugmynd sem þarf að
ræða og hún er athyglisvert inn-
legg í umræðuna,“ sagði Sigríður
Anna Þórðar-
dóttir, formaður
þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins,
um þá hugmynd
Björns Bjarna-
sonar mennta-
málaráðherra að
kjörin verði
fimm manna
framkvæmdastjórn sem komi í
stað varaformanns flokksins.
Sigríður Anna Þórðardóttir
sagði sjálfsagt og nauðsynlegt að
ræða þessa hugmynd á vettvangi
flokksins eins og allar athyglis-