Morgunblaðið - 02.02.1999, Síða 14

Morgunblaðið - 02.02.1999, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra og Ernesto Zedillo, forseti Mexíkó, könnuðu heiðursvörð í garði Þjóðarhallarinnar í Mexíkóborg og heilsuðu hundruðum skólabarna sem fögnuðu þeim veifandi þjóðfánum landanna. Morgunblaðið/Golli Glæsilegar móttökur í Mexíkóborg Mexíkóborg. Morgunblaðið. DAVIÐ og Ernesto Zcdillo, forseti Mexíkó, áttu hálftíma viðræður í gær þar sem meðal annars bar á góma samstarf í sjávarútvegsmálum og möguleika á fríverslunarsamningi milli EFTA og Mexíkó. TEKIÐ var á móti Davíð Oddssyni forsætisráðherra og eiginkonu hans, Astríði Thorarensen, með mikilli við- höfn í Mexíkóborg en opinber heim- sókn þeirra til landsins hófst í gær- morgun. A laugardag heimsótti for- sætisráðherra íslensk fyrirtæki í borginni Mazatlan og átti viðræður við ráðamenn í borginni. A mánudagsmorgun tóku forseti Mexíkó, Ernesto Zedillo, og eigin- kona hans, Nilda Patricio Velasco, á móti ráðherrahjónunum og föruneyti þeirra í Þjóðarhöllinni, sem er í elsta hluta borgarinnar. Lúðrasveit lék þjóðsöngva beggja landanna í hallargarðinum og ráða- mennirnir tveir fluttu stutt ávörp. Sagði Zedillo m.a. að báðar þjóðirnar ættu það sameiginlegt að vera hreyknar af uppruna sínum og hon- um væri það mikill heiður að taka á móti gestunum frá Islandi, ári eftir að hafa hitt Ólaf Ragnar Grímsson forseta í Mexíkó. A íslandi væri menntunarstig hátt og lífskjör afar góð, þjóðin væri vinnusöm og vax- andi alþjóðavæðing færði þjóðirnar sífellt nær hvor annarri. Þær ættu þegar samvinnu um hafrannsóknir og jarðhitarannsóknir, athyglisvert væri hvernig Islendingar nýttu auð- lindir sínar og hann væri sannfærður um að hægt væri að styrkja böndin enn frekar. Davíð sagðist í svari sínu vera stoltur af því að vera fyrsti íslenski forsætisráðherrann sem heimsækti Mexíkó. Hann minntist á hraðan vöxt í útflutningi frá Mexíkó. „Við fyrstu sýn skyldi maður ætla að fleira væri ólíkt með þjóðunum en sameiginlegt og vissulega er það svo hvað varðar mannfjölda, stærð og landfræðilega. En við erum, báðar þjóðirnar, staðráðnar í að verða þátt- takendur í alþjóðavæðingu í stað þess að fela okkur bak við lokaðar dyr.“ Hann sagði Mexíkóa jafnt sem íslendinga þurfa að berjast fyrir því að fá að nýta náttúruauðlindir sínar. Samstarf væri nú hafíð í atvinnumál- um, það væri enn lítið að vöxtum en löng ferð hæfíst á einu skrefi. Spurði um líðan Keikós Er forsetarnir settust niður til einkaviðræðna sagðist Zedillo forseti ætla að byrja á því að koma gestin- um í vanda. „Eg verð að spyrja, hvernig Keiko hafí það,“ sagði for- setinn glettnislega. Keikó dvaldi sem kunnugt er í Mexíkó áður en hann var fluttur til Bandaríkjanna. A blaðamannafundi og í samtali við Morgunblaðið sagði forsætisráð- heira að viðræðurnar hefðu farið- ákaflega vel fram, forsetinn væri af- ar vel að sér í efnahagsmálum og hefði sýnt áhuga á framhaldi sam- starfsins sem hafið væri milli ís- lenskra og mexíkóskra fyrirtækja í Guaymas og Mazatlan. Einnig ræddu þeir möguleikann á viðræðum milli Fríverslunarsamtaka Evrópu, EFTA, og Mexíkó um fríverslun sem yrði á svipuðum nótum og samning- arnir við Kanada. „Landfræðileg lega Mexíkó er eitt af því sem gerir það eftirsóknarvert fyrir Islendinga að eiga samstarf við mexíkósk fyrirtæki með aukin um- svif í allri Ameríku í huga,“ sagði Davíð. Islendingar styddu þá hug- mynd að Mexíkó og EFTA gerðu með sér friverslunarsamning og myndu beita sér í því máli, slíkur samningur gæti orðið til hagsbóta fyrir báða aðila. Tugir hermanna voru á verði í og við höllina og þjóðfánar landanna tveggja settu mikinn svip á umhverf- ið. Fjöldi fréttamanna var á staðnum og sjónvarpsstöðvar tóku myndir. Fram kom á blaðamannafundinum að fréttamennimir höfðu kynnt sér vel sameiginlega hagsmuni landanna sem ræddir hafa verið í heimsókninni. Forsætisráðherra kannaði heið- ursvörð og síðan heilsuðu leiðtogam- ir tveir nokkur hundrað grunnskóla- börnum í litskrúðugum skólabúning- um og urðu þá mikil fagnaðarlæti, fánum Mexíkó og íslands var ákaft veifað og bömin hrópuðu kveðjur; hópar þeirra vora einnig uppi á svöl- um hússins. Síðan hófust annars veg- ar einkaviðræður hans og forsetans en einnig fundur embættismanna ráðherrans og forsetans. Forsetafrú- in bauð á meðan Ástríði Thorarensen að skoða málverkin í höllinni sögu- frægu. Green utanríkisráðherra og sendiherra Mexíkó á Islandi vora viðstödd viðræður Zedillos og Davíðs en þær stóðu í um 30 mínútur. A blaðamannafundi að viðræðun- um loknum lagði forsætisráðherra blómsveig að minnismerki er nefnist Altari ættjarðarinnar og er til minn- MEÐAN á viðræðum Davíðs og forseta Mexíkó stóð skoðuðu Ástríður Thorarensen og Nilda Patricio Velasco forsetafrú mál- verkasafti í Þjóðarhöllinni, sem er ein af sögufrægustu og merk- ustu byggingum Mexíkóborgar. ingar um Mexíkóa sem féilu í stríði við Bandaríkjamenn um miðbik 19. aldar. Heiðursvörður var viðstaddur og þjóðsöngvar vora leiknir á ný. Ráðherrahjónin héldu síðan tO gestabústaðarins klukkan liðlega 12. Samstarf íslenskra og mexíkóskra fyrirtækja rætt Umhverfís- og sjávarútvegsráð- herra Mexíkó, Julia Carabias, og Da- víð ræddust við um klukkan átta að íslenskum tíma. Að sögn Davíðs ræddu þau fyrst og fremst samstarf íslenskra og mexíkóskra fyrirtækja í sjávarútvegsmálun og með hvaða hætti væri hægt að stuðla að aukn- ingu þess. „Við ræddum einnig um að komið yrði á aukinni samvinnu milli stjórnvalda í sambandi við físk- veiðistjómunarkerfi og rannsóknir á fískistofnum," sagði Davíð í samtali við Morgunblaðið. Um kvöldið var opinbert viðhafn- arboð hjá forsetahjónunum í Þjóðar- höllinni á dagskránni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.