Morgunblaðið - 02.02.1999, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Meðferðarheimili fyrir unglinga hefur tekið til starfa á Hvítárbakka í Borgarfírði
Áhersla lögð á venju-
legan heimilisbrag
Reykholti - Barnaverndarstofa opn-
aði sl. fóstudag meðferðarheimili
fyrir unglinga á Hvítárbakka í Borg-
arfirði með viðhöfn og lýsti Páll Pét-
ursson félagsmálaráðherra heimOið
formlega tekið til starfa. Hjónin
Inga Stefánsdóttir og Sigurður
Ragnarsson hafa tekið við rekstri
heimilisins og búa þar með fjöl-
skyldu og starfsmönnum ásamt sex
unglingum sem eru í meðferð. Páll
taldi sig muna það rétt að hugsjóna-
andi hefði svifíð yfír alþýðuskólan-
um á Hvítárbakka sem þarna var
starfræktur fyrstu þrjá áratugi ald-
arinnar og að vonandi fengju þessir
ki-aftar líf á ný. Hvítárbakkaskóli
starfaði frá 1905 til 1931 og bauð
upp á tveggja vetra nám. Þar var
öflugt menningarlíf og félagsstarf-
semi.
Inga og Sigurður eru sálfræðing-
ar að mennt og hafa langa reynslu af
meðferðarheimilum með langtíma-
meðferð íyrir unglinga, en þau voru
meðal stofnenda heimilisins í
Smáratúni í Fljótshlíð, sem var
fyrsta hliðstæða meðferðarheimilið
á Islandi. Auk þeirra hafa fimm aðr-
ir starfsmenn verið ráðnir og eru
þeir búsettir á staðnum. Mikil
áhersla er lögð á að halda yfii-bragði
venjulegs heimilis, sem gerir miklar
kröfur til starfshópsins.
Sú stefna var mörkuð fyrir um
þremur ái-um, við stofnun Barna-
verndarstofu, að flytja meðferðar-
heimili með langtímameðferð út á
Sérstök fyrirtæki
1. Heildverslun með innfl. á sérstökum fatnaði og er einnig með
þrjár fallegar verslanir. Mikil söluaukning er á öllum stöðum
enda um vandaðan fatnað að ræða. Gott tækifæri fyrir unglegt
fólk sem vill eignast arðvænlegt, skemmtilegt og gróið fyrirtæki
til framtíðar.
2. Framleiðslufyrirtæki sem flytur inn sitt hráefni og framleiðir úr
því og er með námskeiðahald og smásölu. Rótgróið fyrirtæki
sem hefur verið í eigu sömu aðila frá upphafi. Skemmtilegt og
fjölbreytilegt fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk.
3. Áratugagamalt heildsölufyrirtæki sem að mestu hefur verið
í eigu sömu aðila frá upphafi. Mikið af frábærum umboðum
sem eru löngu orðin landsþekkt og sérstaklega vel kynnt.
4. Ein þekktasta fataverslun borgarinnar til sölu sem einnig er
á besta stað. Eiginn innflutningur og sala, sérstaklega miðuð
við þá aldursflokka sem mest versla, ungt fólk og gamla táninga.
Svona fyrirtæki eru ekki oft á söluskrá.
Fyrirtæki
Höfum mikið úrval af öllum tegundum af fyrirtækjum, litlum sem
stórum. Komið og hafið samband og lítið á skrána hjá okkur. Það
gæti borgað sig. Framleiðslufyrirtæki, litlar heildsölur og önnur
smáfyrirtæki fyrir hvern sem er.
Kaupendur
Höfum sterka kaupendur að arðbærum fyrirtækjum, litlum sem stór-
um á margvíslegum sviðum. Hafið samband, öll okkar mál eru trún-
aðarmál. Sérstaklega vantar meðalstórar og stærri heildverslanir.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni
F.YRIRTÆKIASALAIM
SUÐURVE R I
SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
LÍFIÐI
TÍU SKREF TIL BETRI LÍKAMA
OG BETRA LÍFS
rwS? ^REENE OG
OPRAH WINFREY
Bókin er nauösynleg þeim, sem vilja stuöla aö bættri
líðan, betra útliti og heilbrigðara líferni.
Oprah lýsir í bókinni þeim erfiöleikum sem tengjast því
aö ná kjörþyngd og viðhalda henni. Bob Greene lýsir á
nákvæman hátt þeim atriðum sem þarf til aö ná settu
marki, svo sem gildi hreyfingar, efnaskiptum
líkamans og heilbrigðu líferni.
FORLAG
Ármúla 29,
sími/fax 568 7054
gsm 898 7054
landsbyggðina og er þetta sjötta
heimilið sem opnað er. I móðurstöð-
inni Stuðlum, sem starfrækt er í
Reykjavík, fer fram greining og
frummeðferð. Samhliða þessari
stefnu voru gerðar breytingar á
rekstrarformi heimilanna. Þau eru
einkavædd, eða fjölskylduvædd eins
og sagt var í léttum tóni, sem felur í
sér að gerður er þjónustusamningur
við einkaaðila um rekstur, fjölda
plássa og starfsmannafjölda. Heim-
ilin úti á landi taka unglingana í
framhaldsmeðferð frá um níu mán-
uðum til tveggja ára og eru sex ein-
staklingar á hverju heimili.
Hið gamla hús Hvítárbakkaskóla
er nú að mestu horfíð, en hið nýja
sameinaða sveitarfélag í Borgarfírði
keypti húsnæði á staðnum og var
samningur undirritaður sl. vor um
leigu á því undir starfsemina. Hús-
næðið, sem um nokkurra ára bil var
orlofshús, hefur verið standsett og
gert mjög notalegt. Athöfnin fór
fram í bjartri og hlýlegri sólstofu
sem byggð hefur verið við húsið og
blasti fjallahringurinn við gestum.
Við þetta tækifæri afhenti Þórunn
Gestsdóttir sveitarstjóri vináttuvott
Morgunblaðið/Sigríður Kristinsdóttir
AFHENDING listaverks til Barnaverndarstofu. Þórunn Gestsdóttir
sveitarstjóri afhendir Barnaverndarstofu vináttuvott frá sveitarfélag-
inu. Aðrir eru Bragi Guðbrandsson, Sigurður Ragnarsson og Inga
Stefánsdóttir sálfræðingar.
frá sveitarfélaginu til Barnavernd-
arstofu, listaverkið „Fjallahring11
eftir Elísabetu Haraldsdóttur, lista-
konu á Hvanneyri, en verkið mynd-
ar hring sem táknar lífsins gang.
Hún fagnaði nýrri starfsemi í nýju
sameinuðu sveitarfélagi og bauð
nýja íbúa velkomna í sveitina.
Fyrir hönd starfsmanna á vegum
Barnaverndarstofu þakkaði Bragi
Guðbrandsson það jákvæða viðmót
og samstarfsvilja sem þeir hafa
mætt við alla undirbúningsvinnu frá
öllum þeim sem komið hafa að þessu
máli í sveitinni og var fjarstöddum
Ríkharði Brynjólfssyni oddvita sér-
staklega þakkað. Málið hefur einnig
landsbyggðarpólitískan meðbyr eins
og fleiri bentu á, en svona starfsemi
skapar störf, bæði bein og óbein, og
eykur væntanlega á margbreytileika
í atvinnulífinu.
Aðrir sem töluðu voru Ingibjörg
Pálmadóttir heilbrigðisráðherra,
fyrir hönd þingmanna Vesturlands,
Guðlaugur Oskarsson, skólastjóri
Kleppjái-nsreykjaskóla, og Sigurður
Ragnarsson.
Landssíminn styrkir tölvu-
kennslu þingeyskra kvenna
Laxamýri - Landssími Islands hf.
afhenti Kvenfélagssambandi Suð-
ur-Þingeyjarsýslu nýlega tölvu-
búnað að gjöf sem nota á til að
efla tölvukennslu í sveitum, ekki
síst á meðal kvenna. Athöfnin fór
fram í gamla skólahúsi Hús-
mæðraskólans á Laugum.
Um er að ræða fimm notaðar
Pentium-tölvur og skjái úr eigu
Landssímans auk prentara, net-
þjóns og annars vélbúnaðar.
Kvenfélagssambandið hyggst
ganga fyrir námskeiðum í tölvu-
notkun og nýtingu Netsins þar
sem það er mat stjórnar að ný
upplýsingatækni veiti íbúum
dreifíbýlisins ný tækifæri til að
brúa fjarlægðir, afla sér þekk-
ingar og efla atvinnustarfsemi.
Landssíminn hefur litið svo á
að fyrirtækið gegni lykilhlut-
verki við að opna þjóðinni dyr að
upplýsingasamfélagi nútímans
og leggur þar með sérstaka
áherslu á menntamál. Þar skipta
möguleikar í nýtingu fjarskipta-
tækninnar í endur- og símenntun
mjög miklu og getur skipt sköp-
um fyrir þróun og samkeppnis-
stöðu íslensks atvinnulífs. Styrk-
ur Landssímans nemur samtals
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
ÓLAFUR Þ. Stephensen, for-
stöðumaður upplýsinga- og
kynningarmála Landssímans,
leiðbeinir Söru Hólm, formanni
Kvenfélagssambands S-Þing.,
við eina af tölvunum.
rúmlega einni miHjón króna og
er liður í þessari stefnu fyrirtæk-
isins.
í tilefni af gjöf þessari boðaði
Kvenfélagssambandið til veislu-
kaffis í Húsmæðraskólanum en
fulltrúar Landssímans komu
norður og settu tölvurnar upp og
sýndu gestum notkunarmögu-
leika þeirra. Af því tilefni ávarp-
aði Sara Hólm, formaður Kvenfé-
lagssambands S-Þingeyjarsýslu
gesti og þakkaði þessa rausnar-
legu gjöf sem ætti eftir að efla og
bæta menntun og menningu.
Ólafur Þ. Stephensen, for-
stöðumaður upplýsinga- og kynn-
ingarmála Landssímans, sagði
það sérstakt fagnaðarefni að
geta lagt þessu máli lið. Gaman
væri að afhenda tölvurnar í
þessu gamla skólaliúsnæði þar
sem allir veggir væru fullir af
veflistaverkum og nú gætu konur
ofið enn meir á veraldarvefnum.
Að þessu loknu tók Halldóra
Jónsdóttir, formaður Kaupfélags
Þingeyinga, til máls og afhenti
sex skrifstofustóla frá félaginu til
þess að nota við tölvurnar. Sagði
hún verkefnið sér einkar kært og
fagnaði framtakinu. f lokin af-
henti Sara Hólm gefendum
prjónaðar bniður frá handverks-
konum í þakklætisskyni fyrir
höfðinglegar gjafir.
Aukið við
húsa-
kost lög-
reglunnar
Ólafsvík - Dómsmálaráðuneytið
hefur keypt efri hæð hússins á
Ólafsbraut 34 í Ólafsvík af Snæ-
fellsbæ til nota fyrir lögreglustöð
og umboðsskrifstofu sýslumanns.
Verða gerðar breytingar og endur-
bætur á húsinu eftir að það verður
afhent hinn 15. ágúst nk.
Samkvæmt vinnutillögun verður
aðalinngangur á götuhæð með lyftu
til efri hæðar. A jarðhæð verður
einnig bflageymsla, fangaklefar og
yfirheyrslustofa. Á efri hæð verður
almenn afgreiðsla lögreglu, skrif-
stofa lögregluvarðstjóra, afgreiðsla
sýslumannsembættisins og skrif-
stofa fyrir sýslumann eða fulltrúa
Morgunblaðið/Helgi Krisyánsson
ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráðherra kom til Ólafsvíkur ásamt að-
stoðarmanni sínum og sýslumanni. Þá handsalaði hann kaupin við
Kristin Jónasson, bæjarstjóra og bæjarstjórnarmenn.
hans auk kaffistofu og annarra
þæginda. Verður gjörbylting á að-
stöðu allri hjá lögreglu og umboðs-
skrifstofu því fram til þessa hefur
neðri hæð hússins hýst alla starf-
semi á 120 fm gólffleti.