Morgunblaðið - 02.02.1999, Page 19

Morgunblaðið - 02.02.1999, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999 19 LANDIÐ Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason SAFNNEFND Amtsbókasafnsins í Stykkishólmi ásamt starfsmönnum safnsins þegar ný og öflug tölva var tekin í notkun. Amtsbókasafnið í Stykkis- hólmi eykur þjónustu sína Stykkishólmi - Tekin var í notk- un ný tölva á Amtsbókasafninu í Stykkishólmi þriðjudaginn 26. janúar sl. Styrkur til kaupanna fékkst frá menntamálaráðuneyt- inu og á þann hátt vill ráðuneytið stuðla að því að almenningsbóka- söfn verði fær um að bjóða þjón- ustu sem styðst við nútíma upp- lýsingatækni. Notendur hafa aðgang að Neti, ritvinnslu og töflureikni. Fyrstu mánuðina verður aðgangur ókeypis að tölvunni fyrir 15 ára og eldri. Yngri notendur geta fengið aðgang í fylgd með full- orðnum. Amtsbókasafnið stefnir að því að stofna ættfræði- og átt- hagadeild, eins konar Breiða- fjarðardeild. Áhugi hefur aukist mjög á ættfræði og vill safnið koma til móts við hann. Ætlunin er að safna heimildum og göng- um bæði með bókakaupum og öflun á tölvutækum gögnum á sviði ættfræði og náttúruvísinda. Amtsbókasafnið verður þá miðstöð fyrir þá sem leita að heimildum á þessu sviði og teng- ist Breiðafirði. Nýi tölvukostur- inn auðveldar mjög að koma þessum áformum í framkvæmd. Hjá Amtsbókasafninu í Stykk- ishólmi voru útlán árið 1998 11.759, eða u.þ.b. 9,5 bækur á íbúa. Utlánstölur hækka nokkuð á milli ára. Þá hefur önnur starf- semi safnsins aukist á undanförn- um árum eins og upplýs- ingaþjónusta og heimildaleit. ormn rvr 3 ára ábyrgð DAIHATSU fínn í rekstri Ánægja á ferðinni Þúsundir Islendinga þekkja hagkvæman rekstur, góða endingu og auðvelda endursölu bílanna frá Daihatsu. Applause er fágaður bíll sem gerir allan akstur auðveldan og ánægjulegan. Vélin er 100 hestöfl, með beinni innspýtingu og 16 ventlum. Sjálfstæð MacPherson fjöðrun á öllum hjólum gefur mjög góða aksturseiginleika. Applause er auk þess fimm dyra og farangursrýmið má stækka í 764 lítra með því að fella niður aftursætin. Búnaður í himnalagi Staðalbúnaður Applause stenst samaburð við stærri og dýrari bíla. Nefna má ABS hemlabúnað, tvo loftpúða, álfelgur, vökvastýri, rafdrifnar rúður og spegla, samlæsingu, hæðarstillingu aðalljósa, snúningshraðamæli, útvarp og segulband, höfuðpúða í aftursæti, og styrktarbita í hurðum. Allir bílarfrá Daihatsu eru með þriggja ára almenna ábyrgð og sex ára ryðvarnarábyrgð á yfirbyggingu. Brimborg-Þórshamar Tryggvabraut 5 • Akureyri Sími 462 2700 Bíley Búðareyri 33 • Reyðarfirði Sími 4741453 Betri bilasalan Hrísmýri 2a • Selfossi Sími 482 3100 Tvisturinn Faxastíg 36 • Vestmannaeyjum Sfmi 481 3141 Beinskiptur 1.348.000 kr. Sjálfskiptur 1.468.000 kr. BRIMBORG Faxafeni 8 • Sími 51 5 7010 HÉR & NÚ / SÍA -Ijósm Kristján Logason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.