Morgunblaðið - 02.02.1999, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Opin kerfí og Landssíminn standa sameiginlega að stofnun nýs hátæknifyrirtækis
Sérhæfír sig í heildar-
lausnum fyrir fyrirtæki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
BJORN Jónsson, framkvæmdastjóri Grunns-Gagnalausna ehf., sést
hér við merki hins njrja félags.
NÝTT hátækniíyrirtæki, Grunnur-
Gagnalausnir ehf., hefur verið
stofnað af Opnum kerfum hf. og
Landssíma Islands hf. Móðurfélög-
in munu eiga jafnan hlut í hinu nýja
félagi en hlutafé þess nemur 50
milljónum króna. Grunni-Gagna-
lausnum ehf. er ætlað að veita heild-
arlausnir á sviði síma-, tölvu- og
netbúnaðar ásamt viðeigandi hug-
búnaðarlausnum fyrir fyrirtæki og
stofnanir. Félagið mun jafnframt
annast endursölu búnaðar frá
Landssímanum og Opnum kerfum,
að því er segir í fréttatilkynningu.
Forsvarsmenn Grunns-Gagna-
lausna benda á að nýir möguleikar í
gagnasamskiptum séu að opnast. I
stað þess að hafa aðskildar síma- og
tölvulagnir er nú tal, tölvugögn og
jafnvel sjónvarpsmerki í auknum
mæli send eftir sama miðlinum og
er sú breyting talin munu hafa mikil
áhrif á mótun og rekstur fjarskipta-
kei'fa fyrirtækja á næstu misserum.
Markmið nýja félagsins er að geta
veitt fyrirtækjum sérsniðnar jafnt
sem heildarlausnir á öllum þessum
sviðum.
Björn Jónsson, tölvuverkfræðing-
ur, sem ráðinn hefur verið fram-
kvæmdastjóri nýja félagsins, telur
engan vafa leika á því að vaxandi
þörf sé fyrir fyrirtæki af þessum
toga hér á landi, ekki síst í ljósi
þeirra miklu breytinga sem hafa
verið að eiga sér stað á fjarskipta-
mörkuðum. Þar vísar hann bæði til
örra tækniframfara sem og þeirra
breytinga sem átt hafa sér stað á ís-
lenskum fjarskiptamarkaði með til-
komu nýn’a fjarskiptalaga á síðasta
ári. Hann segir starfsemi Lands-
símans og Opinna kerfa falla vel
saman í þessu tilliti þar sem sam-
eiginlega nái þau til allra ofan-
greindra þátta án þess að um skör-
un sé að ræða. Hann bendir jafn-
framt á að þróun þeirra lausna sem
hér um ræðir séu tímafrekar í
vinnslu og því mikilvægt að hið nýja
fyrirtæki eigi sterka bakhjarla líkt
og Opin kerfi og Landssímann.
Samstarf við fleiri aðila
I fréttatilkynningu kemur fram
að Grunnur-Gagnalausnir verður
starfrækt sem samstarfsvettvangur
Landssímans og Opinna kerfa og
mun nýta sér tækniþekkingu og
mannafla beggja fyrirtækjanna eft-
ir þörfum. Auk þess mun fyrirtækið
eiga samstarf á sviði heildarlausna
við Teymi hf., Verkfræðistofuna
Hnit og Hugvit hf.
Stjóm hins nýja fyrirtækis sam-
anstendur af tveimur aðilum frá
Landssímanum og tveimur frá Opn-
um kerfum. Þór Jes Þórisson, fram-
kvæmdastjóri markaðs- og sölu-
sviðs Landssímans, verður stjórnar-
formaður en Frosti Bergsson, fram-
kvæmdastjóri Opinna kerfa, verður
varaformaður.
Verðbréfaþing
Islands
Opin kerfi
hækka
RÚMLEGA 120 milljóna
króna viðskipti voru með
hlutabréf á Verðbréfaþingi Is-
lands í gær. Mest viðskipti
voru með hlutabréf Pharmaco
fyrir 36 milljónir króna og
hækkaði gengi þeirra um
9,9%. 17 milljóna króna við-
skipti vom með hlutabréf í Is-
landsbanka og lækkaði gengi
þeirra um 3,3%. í dag er von á
ársuppgjöri bankans en aðilar
á markaði hafa verið að spá
því að hagnaður bankans
nemi á bilinu 1.100 til 1.300
milljónum króna.
Viðskipti með hlutabréf
Fjárfestingarbanka atvinnu-
lífsins námu 13 milljónum
króna og lækkaði gengi bréf-
anna um 5,5% á fyrsta við-
skiptadegi eftir að bankinn
birti ái’suppgjör sitt á föstu-
dag.
Verð hlutabréfa Opinna
kerfa hækkaði mest í gær eða
um 10,6%. Einungis vom við-
skipti með bréf félagsins fyrir
hádegi þar sem lokað var fyrir
viðskipti með bréf í félaginu
um hádegisbilið í gær en síð-
degis kynntu Opin kerfi og
Landssíminn stofnun nýs há-
tæknifyrirtækis.
Kælismiðjan Frost og Landssmiðjan ganga frá sameiningu
Öfugt útboð Lánasýslunnar
Samanlögð velta um
700 milljónir króna
Verður að vera
í samræmi
við markaðinn
KÆLISMIÐJAN Frost hf. og
Landssmiðjan hf. hafa gengið frá
samkomulagi um sameiningu félag-
anna. Sameiginlegt félag hefur
hlotið nafnið Landssmiðjan-Frost
hf. Gert er ráð fyrir að starfsemi
Kælismiðjunnar á höfuðborgar-
svæðinu verði flutt í húsnæði
Landssmiðjunnar á næstu vikum.
Landssmiðjan sérhæfir sig í
framleiðslu á tækjum úr ryðfríu
stáli fyrir matvæla- og sjávarút-
vegsfyrirtæki og Kælismiðjan
framleiðir kælikerfi og frystibúnað.
Sameining félaganna miðast við 1.
janúar síðastliðinn. Sett hefur verið
á fót framkvæmdastjórn, sem í eru
framkvæmdastjórar og stjórnarfor-
menn beggja félaga, sem starfar á
meðan á sameiningu félaganna
stendur yfir. Stefnt er að því að
halda hluthafafundi sem fyrst þar
sem gengið verður frá formlegri
sameiningu félaganna. Fram-
kvæmdastjóri Landssmiðjunnar-
Frosts hf. verður Oskar Þórðarson,
en hann hefur verið framkvæmda-
stjóri Kælismiðjunnar í tæp tvö ár.
Sóknarfæri erlendis
Stjórnir félaganna eru sammála
um að sameining styrki markaðs-
lega og fjái'hagslega stöðu rekst-
ursins og skapi sóknarfæri jafnt á
innanlandsmarkaði sem og í út-
flutningi. Telja stjórnir félaganna
að sameinuð geti fyrirtækin hag-
rætt verulega í föstum kostnaði og
markaðsstarfi og boðið fram sam-
ræmdar heildai'lausnir til fyrir-
tækja í matvælaiðnaði og sjávarút-
vegi.
Gylfi Arnbjörnsson, stjórnarfor-
maður Kælismiðjunnar Frosts,
segir að félögin hafi sterka mark-
aðsstöðu hvort á sínu sviði sem
komi til að nýtast vel í útflutningi.
„Kælismiðjan hefur átt í nánu sam-
starfi við danska fyrirtækið Sa-
broe+Söby um markaðssetningu á
kælilausnum. Sameinað félag getur
boðið heildarlausnir í framleiðslu
tækjabúnaðar og þjónustu og getur
nýtt markaðsnet Sabroe vítt og
breitt um heiminn. Samstarfíð býð-
ur upp á útrás án þess að byggja
allt þjónustukerfi á sjálfstæðum
einingum," segir Gylfi.
Samlegðaráhrif
sameiningar
Valgeir Hallvarðsson, stjórnar-
formaður Landssmiðjunnar, segii'
að starfsemi fyrirtækjanna falli vel
hvor að annarri og að sameining
hafi samlegðaráhrif á flestum svið-
um. „Verulegt rekstrarhagræði
felist í að öll starfsemi Kælismiðj-
unnar Frosts rúmist í 2.200 fm hús-
næði Landssmiðjunnar í Garðabæ.
Gert er ráð fyrir að Landssmiðjan-
Frost geti boðið heildarlausnir fyrir
sjávarútvegs- og matvælafyriræki.
Þá er nauðsynlegt að fyrirtæki,
sem sækja á erlendan markað, búi
yfir öflugu starfsliði og hafi yfir
verulegu fjármagni að ráða.“
17 starfsmenn starfa hjá Kæl-
ismiðjunni Frosti á Akureyri. Gylfi
Arnbjörnsson segir að ekki sé gert
ráð fyrir neinum breytingum á
starfseminni fyrir norðan. I heild
starfa 75 manns hjá báðum fyrir-
tækjum. Samanlögð velta Kæl-
ismiðjunnar Frosts og Landssmiðj-
unnar nam um 700 milljónum króna
á síðasta ári.
Við sameiningu fá eigendur
Kælismiðjunnar Frosts hf. 59%
hlut í hinu sameinaða félagi en eig-
endur Landssmiðjunnar 41% og er
stefnt að því að skrá félagið á Vaxt-
arlista Verðbréfaþings íslands eins
fljótt og auðið er. Eftir sameiningu
verða stærstu eigendur Lands-
smiðjunnar- Frosts hf. eftirtaldir:
Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn
hf. 39%, Stálsmiðjan hf. 19%, Ail-
vaki hf. 12% og Sabroe+Söby A/S
11%. Annar hlutur er í dreifðri
eignaraðild.
„TILGANGUR með þessu öfuga
útboði, sem Lánasýslu ríkisins var
falið að annast, er ákveðin tilrauna-
starfsemi. En tilboðin verða þá að
vera í eðlilegu samræmi við mark-
aðinn ef það á að vera hægt að taka
þeim,“ sagði Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra um þá ákvörðun
Lánasýslunnar að taka engu tilboði
verðbréfafyrirtækja um sölu á
verðtryggðum spariskírteinum í
síðustu viku.
Fjánnálaráðherra sagði þetta er
hann var spurður um þá gagnrýni
fulltrúa nokkurra verðbréfafyrir-
tækja í Morgunblaðinu fyrir helg-
ina að Lánasýslan skyldi ekki taka
neinu tilboði þeirra en um var að
ræða skírteini í flokknum 95/1D10.
Fjármálaráðherra kvaðst ekki
vilja slá neinu föstu um frekara út-
boð en ekki væri útilokað að
grundvöllur yrði fyrir því síðar.
„Eg held að það sé að mörgu leyti
æskilegt en við verðum að sjá
hvernig málin þróast. Þegar við
erum nú að kaupa upp mikið af
bréfum og endurgreiða með því
lán verðum við að gæta hagsmuna
ríkisins, við getum ekki keypt á
hvaða verði sem er,“ sagði ráð-
herra.
I fréttabréfi Búnaðarbankans,
Verðbréfa í síðustu viku segir að af-
staða Lánasýslunnar hafi verið
skynsamleg þar sem ávöxtunar-
krafa í þessum spariskírteinaflokki
hafi verið lægri en raunkrafa mark-
aðarins. Andri Sveinsson hjá Bún-
aðarbankanum Verðbréfum segir
að boð verðbréfafyrirtækjanna hafi
ekki verið nógu góð og telur að for-
sendur Lánasýslunnar hafi verið
réttmætar. Telur hann verðbréfa-
fyrirtæki hafa keypt mikið af um-
ræddum bréfum að undanförnu í
þeim tilgangi að selja þau ríkinu á
hærra verði.
Áhrif evrunnar á
fj ármagnsviðskipti
ÁHRIF gildistöku evrunnar á
fjármagnsviðskipti sem heyra
undir reglur Alþjóða verslunar-
ráðsins (ICC) er heiti bæklings
sem gefinn hefur verið út af
landsnefnd ráðsins.
Bæklingurinn er ætlaður fyrir-
tækjum og einstaklingum sem
eiga í viðskiptum sem heyra und-
ir samræmdar reglur ICC um
fjármagns- og bankaviðskipti.
Frá stofnun ICC, árið 1919, hef-
ur ráðið unnið að því að auka veg
frjálsrar verslunar fyrir gagn-
kvæmum réttindum og skyldum
og gefa út samræmdar vinnu-
reglur eða skilmála fyrir flest
svið alþjóðaviðskipta, þar á með-
al samræmdar vinnureglur á
sviði fjármagns- og bankavið-
skipta, að því er kemur fram í til-
kynningu.
Bæklinginn er hægt að nálgast
á skrifstofu landsnefndar og hjá
ábyrgðardeildum viðskipta-
banka.
Sparisjóður Norðlendinga
Kaupir 66% í Kaup-
þingi Norðurlands
SPARISJÓÐUR Norðlendinga hef-
ur keypt allan eignarhlut Kaup-
þings hf. í Reykjavík í Kaupþingi
Norðurlands hf. og er nú stærsti
einstaki hluthafinn í félaginu með
um 70% eignarhlut en átti fyrir
kaupin tæplega 4%. Kaupverð er
ekki gefið upp.
Jón Björnsson, sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs Norðlendinga, segir
engra breytinga að vænta á rekstri
Kaupþings nyrðra í kjölfar
kaupanna sem miði fyrst og fremst
að því að auka tekjuleiðir Spari-
sjóðsins og stækka markaðssvæði
hans. „Þannig hyggjumst við áfram
einbeita okkur að bankastarfsemi á
svæðinu í rekstri sparisjóðsins
samhliða almennum verðbréfavið-
skiptum á landsvísu í gegnum starf-
semi Kaupþings Norðurlands sem
hefur verið vaxandi fyrirtæki á ís-
lenskum verðbréfamarkaði," segir
Jón.