Morgunblaðið - 02.02.1999, Side 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999 35
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
PRÓFKJÖR SAM-
F YLKIN G ARINN AR
MIKIL þátttaka í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sl.
laugardag verður sameiningarhreyfingu vinstri manna aug-
ljóslega til framdráttar. Þótt reynslan sýni, að ekki þarf að vera
samhengi á milli þátttöku í prófkjöri og kosningaúrslita má búast
við, að þátttaka á tólfta þúsund kjósenda í prófkjörinu verki mjög
hvetjandi á fylgismenn hreyfingarinnar. Ekki sízt í ljósi þess, að
fram að þessu hafa margvísleg vandræði herjað á forystumenn
Samfylkingarinnar, fyrst drög að stefnuskrá, sem fengu óblíðar
viðtökur, og síðan langvarandi togstreita um það, hvernig standa
bæri að vali frambjóðenda á lista.
Þá má einnig gera ráð fyrir, að yfirburðastaða kvenna á franv
boðslistanum í Reykjavík verði Samfylkingunni til styrktar. I
fimm efstu sætum listans verða fjórar konur og mun það þykja
nokkrum tíðindum sæta.
Það verður hins vegar áreiðanlega til þess að draga úr ánægju
Samfylkingarmanna með þátttöku og úrslit hversu mikill munur
reyndist verða á þátttöku í hólfum Alþýðuílokks og Alþýðubanda-
lags. Veik staða Alþýðubandalagsins í Reykjavík eftir prófkjörið
kann að opna ný tækifæri fyrir vinstra framboð Steingríms J. Sig-
fússonar og félaga hans. Á hinn bóginn er eftirtektarvert, að í
fjórum efstu sætum í hólfi Alþýðuflokksins eru tveir þingmenn,
sem kjörnir voru á vegum Þjóðvaka í síðustu kosningum og tveir
fyrrverandi Alþýðubandalagsmenn. Það fer því ekki mikið fyrir
hinum gamla Alþýðuflokki, ef svo má að orði komast, á þessum
framboðslista og því álitamál hver hefur sigrað hvern.
Jóhanna Sigurðardóttir hlaut mjög afgerandi kosningu í efsta
sæti listans og hefur á ný skipað sér í fremstu röð forystumanna
jafnaðarmanna. Þessi árangur vekur athygli m.a. vegna þess, að
margir flokksbundnir Alþýðuflokksmenn telja, að hún hafí bundið
enda á valdaferil Alþýðuflokksins á sínum tíma með því að kljúfa
flokkinn og stofna til nýrra stjórnmálasamtaka.
Þátttaka í hólfi Kvennalistans var lítil en þrátt fyrir það náði
ein helzta forystukona Kvennalistans á Alþingi á þessu kjörtíma-
bili ekki endurkjöri.Þetta er verulegt pólitískt áfall fyrir Guðnýju
Guðbjörnsdóttur. Hún hefur tekið afleiðingum þess með því að til-
kynna að hún taki ekki sæti á framboðslistanum.
Með prófkjörinu í Reykjavík hefur samfylking vinstri manna
náð ákveðnum áfanga á sameiningarbrautinni. Hins vegar á þessi
nýja stjórnmálahreyfing eftir að leggja fram kosningastefnuskrá
sína. Þau drög að stefnuskrá, sem kynnt voru sl. haust komu mjög
á óvart vegna þess, að svo virtist sem Aiþýðufiokkurinn hefði
horfið frá sumum grundvallarstefnumálum sínum. Þá fyrst þegar
samfylkingarmenn hafa lagt fram kosningastefnuskrá kemur í
ljós, hvar sameiningarhreyfing vinstri manna hyggst skipa sér til
sætis í íslenzkum stjórnmálum.
EMBÆTTI
VARAFORMANNS
SJÁLFSTÆÐISFLOKKS
RÆÐA Björns Bjarnasonar, menntamálaráðherra, á fundi
kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra hefur að vonum vakið mikla athygli. I ræðu sinni lýsti
menntamálaráðherra því yfir, að hann mundi ekki gefa kost á sér
við varaformannskjör á landsfundi Sjálfstæðisflokksins i marz-
mánuði nk. Sú yfirlýsing hefur vafalaust komið mörgum á óvart,
þar sem menntamálaráðherra hefur verið einn þeirra, sem nefnd-
ur hefur verið í sambandi við kjör nýs varaformanns.
En þá hefur það ekki síður vakið eftirtekt, að ráðherrann lagði
til í ræðu sinni, að embætti varaformanns yrði lagt niður en fram-
kvæmdastjórn kjörin á landsfundi kæmi í hans stað.
Stöður formanns og varaformanns eiga sér sterkar rætur í
Sjálfstæðisflokknum. Ýmsir af áhrifamestu leiðtogum flokksins
hafa gegnt embætti varaformanns í lengri eða skemmri tíma. En
stundum hefur sá forystumaður Sjálfstæðisflokks, sem því starfi
hefur gegnt orðið annar póll í Sjálfstæðisflokknum og ákveðin
spenna skapast á milli formanns og varaformanns. Þótt slík
spenna hafi valdið vandamálum hefur hún líka orðið til þess að
breikka þá mynd, sem birzt hefur af Sjálfstæðisflokknum gagn-
vart almennum kjósendum.
Vafalaust mun mörgum sjálfstæðismönnum þykja tillaga
menntamálaráðherra um að leggja niður embætti varaformanns
býsna róttæk. Og jafnframt að flokksmenn þurfi lengri tíma en
nokkrar vikur fram að landsfundi Sjálfstæðisflokksins til þess að
ræða þær og íhuga.
Hins vegar er það rétt hjá ráðherranum, að breytt kjördæma-
skipan, sem er í aðsigi, og nýir tímar kalla á breytt skipulag Sjálf-
stæðisflokksins með einhverjum hætti. Það er svo annað mál,
hvort sú skipulagsbreyting sem mest þörf er á sé sú að leggja nið-
ur embætti annars helzta forystumanns Sjálfstæðisflokksins. Og
ólíklegt að sú verði raunin á næsta landsfundi Sjálfstæðisflokksins
enda þegar komnir fram frambjóðendur í það embætti.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Krafa um
breytta
stjórnar-
stefnu
„ÚRSLIT þessa prófkjörs sýna að
það er að verða til stórt bandalag
jafnaðarmanna og félagshyggjufólks.
Eg held að þetta sé bylgja sem ekki
verði stöðvuð. Eg túlka úrslitin með
þeim hætti að þarna hafi komið fram
krafa fólksins um breytingar á
stjómarstefnunni,
en ég tel að auð-
gildið og peninga-
hyggjan hafi ráðið
ferðinni á þessu
kjörtímabili og
fólk vilji að hér sé
blásið til nýrrar
sóknar með fé-
lagsleg viðhorf,
jöfnuð og réttlæti
að leiðarljósi. Ég tel að Samfylkingin
muni skila því að velferðarmálin fái
nýtt vægi á íslandi," sagði Jóhanna
Sigurðardóttir, sem varð í fyrsta sæti
í prófkjörinu.
Jóhanna sagði að prófkjörið myndi
ekki leiða til þess að lagðar yrðu nýj-
ar áherslur í málefnaskrá Samíylk-
ingarinnar. Hún sagðist vera mjög
ánægð með málefnaskrána. Hún
svaraði vel því kalli sem hefði komið
fram í prófkjörinu.
„Það er mikilvægt núna að þeir
sem tekið hafa þátt í prófkjörinu snúi
bökum saman. Það er mikilvægt að
við hugsum okkur sem eina heild í
Samíylkingunni. Gömlu flokkarnir
eru að baki, en í staðinn er komin
fram ný Samfylking.
Niðurstaða prófkjörsins er gífur-
legur sigur fyrir konur og jafnréttis-
sjónarmið. Konur skipa 4 af 5 efstu
sætunum og 5 af efstu 8. Ég hygg að
þetta hafi aldrei gerst áður nema ef
vera skyldi hjá Þjóðvaka þar sem
þrjár konur voru í fjórum efstu sæt-
unum. Ég held að þetta sé vísbend-
ingum um það sem mun verða í þess-
ari Samfylkingu. Ég sagði alltaf að
Samfylkingin myndi leiða til þess að
konum myndi verulega fjölga á þingi.
Það er að rætast. Samfylkingin mun
stefna mjög stíft að því að komast inn
í stjórnarráðið eftir kosningar. Ég
held að við höfum alla burði til þess.
Sömuleiðis tel ég að við munum
sækja fylgi inn í alla flokka. Ég er
sannfærð um að það er meira en
helmingur þjóðarinnar sem aðhyllist
jafnaðarstefnu. Það hefur bara vant-
að trúverðugan valkost og hann er
núna kominn. Við höfum þess vegna
alla burði til að vera næststærsti
flokkur eða stærsti flokkur landsins
að loknum kosningum. Ég er alveg
viss um að ef við komumst í næstu
ríkisstjóm þá mun verða miklu jafn-
ari kynjaskipting í ríkisstjórninni."
Jóhanna sagðist ekki telja að það
hefði háð Samfylkingunni fram að
þessu að vera ekki með einn leiðtoga.
Margrét Frímannsdóttir og Sighvat-
ur Björgvinsson hefðu haft forystu
um að koma Samfylkingunni saman
og þau hefðu staðið sig frábærlega
vel. „Ég verð leiðtogi hér í Reykjavík
og þar með einn af leiðtogum Sam-
fylkingarinnar. Það er ærið verkefni
sem ég ætla að skila vel af mér. Síðan
verður framtíðin að skera úr um hver
verður framtíðarleiðtogi Samfylking-
arinnar.“
Jóhanna sagðist ekki hafa haft
tíma til að leiða hugann að því hver
ætti að skipa áttunda sæti listans í
stað Guðnýjar Guðbjömsdóttur. Það
yrði rætt á næstu dögum.
Margrét
Frímannsdóttir
Glæsileg
byrjun
MARGRÉT Frímannsdóttir, formað-
ur Alþýðubandalagsins, sagðist telja
það rangt mat að Alþýðubandalagið
hefði komið illa út úr prófkjöri Sam-
fylkingar í Reykjavík. Flokkurinn
hefði stefnt að því að fá svipað fylgi
og hann fékk í prófkjöri R-listans í
Reykjavík í fyrra og það hefði tekist.
„Alþýðubanda-
lagið stefndi að
því að ná sömu
prófkjörsþátttöku
og hjá Reykjavík-
urlistanum, sem
var um 2.500 at-
kvæði. Úrslitin í
því prófkjöri vora
talin stórsigur Al-
þýðubandalagsins
og við náðum því og gott betur. Það
er einnig röng túlkun að tala um A-
hólfið sem Alþýðuflokkinn. Innan A-
hólfsins voru tveir einstaklingai- sem
ekki eru í Alþýðuflokknum, Jóhanna
Sigurðardóttir og Mörður Amason.
Flokksleg skipting í átta fyrstu sætin
er því í raun 2-2-2-2. Við erum mjög
sátt við þetta þó að við hefðum gjarn-
an viljað sjá okkar þriðja mann, Vil-
hjálm Vilhjálmsson, ofar á listanum.
Ég tel að það sé mikilvægt fyrir Sam-
fylkinguna að ungt fólk komist til
áhrifa og í „öragg þingsæti".
Ég er afar hamingjusöm með
þessa þátttöku og þetta start sem
Samfylkingin fær. Þetta er glæsileg
byrjun á kosningabaráttu og góð vís-
bending um það sem koma skal.“
Margrét sagðist gera ráð fyrir að
Kvennalistinn gerði kröfu um að
halda sínum tveimur sætum í sam-
ræmi við samninga sem flokkarnir
hefðu gert. Aðspurð hvort Alþýðu-
bandlagið gerði kröfu uin áttunda
sætið, nú þegar fyi'ir lægi að Guðný
Guðbjörnsdóttir tæki ekki það sæti,
sagði Margrét að það væri of snemmt
að segja neitt til um það. „Við ræðum
þetta okkar í milli og komumst ör-
ugglega að samkomulagi."
Margrét sagði ánægjulegt að kon-
ur kæmu sterkar út úr þessu próf-
kjöri. Það væri einnig útlit fyrir að á
framboðslistum Samfylkingarinnar í
öðrum kjördæmum yrðu mjög öflug-
ar konur.
„Ég held að þetta prófkjör sýni að
fólk er farið að líta á okkur sem einn
hóp og er ekki mikið að aðskilja okk-
ur á milli flokka. Það má benda á að
sumir þeirra einstaklinga sem eru nú
í framboði fyrir Alþýðuflokk og Þjóð-
vaka hafa verið í Álþýðubandalaginu
eða starfað mjög náið með Alþýðu-
bandalaginu. Skilin þarna á milli eru
því ekki skýr. Aðalatriðið er að ná
fram sterkum listum í hverju kjör-
dæmi og að við höfum náð saman um
mjög öfluga málefnaskrá.11
Sighvatur
Björgvinsson
Þátttakan
sætir
tíðindum
„EINHVERJAR stærstu fréttir sem
orðið hafa í íslenskum stjórnmálum
finnst mér vera þessi mikla þátttaka í
prófkjöri Samfylkingarinnar. Hún er
miklu meiri en þátttakan í prófkjöri
Reykjavíkurlistans sem skilaði hon-
um sigri í borgarstjórnarkosningun-
um,“ sagði Sig-
hvatur Björgvins-
son, formaður Al-
þýðuflokksins.
Sighvatur sagði
að það hefði alltaf
legið fyrir að al-
þýðuflokksmenn
hefðu viljað hafa
prófkjörið opið, en
niðurstaðan hefði
orðið önnur. Um þetta hefði verið
samið og prófkjörið hefði farið fram í
samræmi við leikreglur sem flokk-
arnir hefðu komið sér saman um.
Ástæðan fyrir góðri þátttöku í A-
hólfinu hefði verið sú að þar hefði
verið mikið af landsþekktu fólki og
þar hefðu aðalátökin verið.
„Þetta var ekki uppgjör á milli
flokka því að í A-hólfinu voru ekki
bara flokksbundnir alþýðuflokks-
menn. Jóhanna er ekki í Alþýðu-
flokknum, en hún hefur örugglega
dregið mikið að því hólfi.“
Sighvatur sagði að Jóhanna væri
eftir þetta prófkjör meðal helstu for-
Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík
Tæplega 11.500 manns greiddu atkvæði í
prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Alþýðuflokkur fékk 7.637 atkvæði, Alþýðu-
bandalag 2.907 og Kvennalisti 753 atkvæði.
7 —
I níu efstu sætunum eru Jóhanna Sigurðar-
dóttir, Össur Skarphéðinsson, Bryndís
------------------------—---------------7----
Hlöðversdóttir, Guðrún Ogmundsdóttir, Asta
7
Ragnheiður Jóhannesdóttir, Mörður Arnason,
-7-------------------------------------------
Arni Þór Sigurðsson, Guðný Guðbjörnsdóttir
og Jakob Frímann Magnússon,
ystumanna Samfylkingarinnar og
hún kæmi til með að hafa mikinn
þunga í þessu framboði.
Sighvatur sagði að samkomulag
hefði verið gert milli flokkanna
þriggja um að Kvennalistinn fengi
tvö af átta efstu sætunum. Hann
sagðist ekki eiga von á að því yrði
breytt þó að Guðný Guðbjörnsdóttir
hefði tekið ákvörðun um að hafna átt-
unda sætinu.
„Eftir svona gott start í þessu próf-
kjöri held ég að sé óhætt að fullyrða
að sigurlíkur Samfylkingarinnar í
kosningunum séu góðar. Þetta fer
langt fram úr því sem ég gerði mér
vonir um og ég held að enginn stjórn-
málaskýrandi hafi látið sér detta í
hug að það yrði svona mikil þátttaka.
Þátttakan varð í raun meiri því að
það voru margir sem snera frá vegna
biðraða. Ég varð vitni að því sjálfur.
Þegar ég fór að kjósa þurfti ég að
bíða í 20 mínútur og á meðan sá ég að
margir sneru frá.“
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Hélt að fyrir-
komulagið
myndi draga
úr þátttöku
„ÞESSI mikla þátttaka fór fram úr
mínunj björtustu vonum. Ég verð að
segja alveg eins og er að ég átti von á
að sú ákvörðun að hólfa prófkjörið
niður myndi gera það að verkum að
áhugi á þátttöku yrði ekki eins mikill.
Þetta kom mér því á óvart og ég tel
að þetta sé góður
upptaktur fyrir
komandi átök,“
sagði Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri um
niðurstöður próf-
kjörsins.
Ingibjörg Sól-
rún sagði ánægju-
legt hvað konur
kæmu vel út úr prófkjörinu. Fram að
þessu hefðu konur oft farið illa út úr
prófkjörum, en hún sagðist sjá ýmis
teikn á lofti um að þetta væri að
breytast. Góð þátttaka í prófkjörinu
hjálpaði konum í því, m.a. vegna þess
að kjósendur væru ekki eins íhalds-
samir og flokkarnir.
„Ég held að þetta mikla vægi sem
Alþýðufiokkurinn fékk í prófkjörinu
segi ekkert til um stuðning við Al-
þýðuflokkinn sem slíkan heldur sé
það fyrst og fremst vegna þess að
fólk sem hingað til hefur verið utan
flokka bauð sig fram í A-hólfinu. Til
að geta kosið þetta fólk þurftu kjós-
endur að merkja við Alþýðuflokkinn.
Ég held að almennt sé fólk hætt að
horfa á Samfylkinguna með þessum
hætti.“
Ingibjörg Sólrún minnti á að ýmsir
hefðu talið að Alþýðuflokkurinn hefði
komið illa út úr prófkjöri Reykjavík-
urlistans í fyrra. Fyrir þá væri þetta
huggun harmi gegn.
Ingibjörg Sólrún sagði að nú þegar
ljóst væri að af framboði Samfylking-
arinnar yrði í öllum kjördæmum
landsins hlytu flokkarnir, sem að
henni standa, að hverfa af sviðinu og
renna saman í einn flokk.
Svavar Gestsson
S
I prófkjörinu
mættust ólík-
ar hefðir
SVAVAR Gestsson, formaður þing-
flokks Alþýðubandalagsins, telur að í
prófkjöri Samfylkingarinnar hafi
mæst ólíkar hefðir Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags við röðun á fram-
boðslista. Útkoman hafi verið í sam-
ræmi við það. Besti kosturinn hafi
verið að láta kjömefnd raða á listann.
„Þarna voru menn að reyna að láta
tvenns konar hefðir búa saman í einu
prófkjöri. Annars vegai' er hefð Al-
þýðuflokksins, sem er sú að vera með
mikinn fjölda fólks sem tekur þátt í
prófkjöri, en fá síðan jafnvel færri at-
kvæði í kosningum. Þannig hefur
þetta verið hjá Aiþýðuflokknum aftur
og aftur. Dæmi eru um prófkjör þar
sem tvisvar sinn-
um fleiri tóku þátt
en kusu flokkinn
síðan í kosningum.
Hins vegar er að-
ferð Alþýðu-
bandalagsins, sem
hefur yfirleitt
tryggt okkur fleiri
atkvæði en Al-
þýðuflokkurinn
hefur fengið þó að færri hafi komið
að því að ákveða listann.
Það var alveg ljóst að þessi sambúð
tveggja mismunandi aðferða yrði af-
skaplega erfið. Ég sá það fyrir, en
það var fallist á að reyna að fara
svona út í þetta og niðurstaðan liggur
fyrir. Ég held að þetta hafi svona
sloppið fyrir horn.“
Svavar sagðist að sjálfsögðu ekki
geta fullyrt um hvort margir af þeim
sem kusu í prófkjörinu muni kjósa
aðra flokka í vor, en hann gæti ekki
neitað því að sá grunur læddist að sér
að það skiluðu sér ekki allir í vor sem
kusu í prófkjörinu.
Svavar var spurður hvort það hefði
ekki verið skynsamlegra fyrir Ai-
þýðubandalagið að hafa prófkjörið
opið. Hann svaraði því til að skyn-
samlegast hefði verið að láta kjör-
nefnd raða á listann. Það hefði kostað
minni peninga og Samfylkingin hefði
ekki orðið fyrir þessari neikvæðu um-
fjöllum sem hún hefði orðið fyrir á
síðustu mánuðum.
Svavar vildi engu svara þegar hann
var spurður hvort Aiþýðubandalagið
myndi gera kröfu um að breytingar
yrðu gerðar á röðun efstu manna.
Hann vísaði á forystumenn flokk-
anna.
Svavar sagðist telja að Samfylking-
in væri sterkari eftir þetta prófkjör,
kannski fyrst og fremst vegna þess
að þessi rimma væri búin og menn
gætu snúið sér að öðrum verkefnum.
Össur
Skarphéðinsson
Var grautfúll
en tók gleði
mína aftur
„ÉG SÓTTIST eftir fyrsta sætinu,
náði því ekki og var auðvitað graut-
fúll yfir því til að byrja með en tók
gleði mína aftur þegar í ljós kom að
ég hélt öðra sætinu, sem, meira að
segja, var annað sætið á listanum en
ekki bara í hólfinu," sagði Össur
Skarphéðinsson,
sem hafnaði í 2.
sæti í A-hólfi og
hreppti 2. sæti
Samfylkingarinn-
ar.
„Ég tel að þetta
sé sigur Jóhönnu
Sigurðardóttur og
hann er afger-
andi,“ sagði Oss-
ur. „Ég sé þær skýringar á þessu að
þarna eru hópar í þjóðfélaginu, sem
bersýnilega eru að skjóta viðvörunar-
skotum fyrir framan á skútu ríkis-
stjórnarinnar. Þeir eru óánægðir með
sinn hlut og sjá góðærið lenda í
annarri höfn. Þeir tóku þátt í próf-
kjörinu til að styðja þann stjórnmála-
mann, sem hefur verið langmest
áberandi í baráttunni gegn því versta
L.
sem er að fínna í fari kerfisins: spill-
ingu og græðgi. Þetta var niðurstað-
an og ég uni glaður við hana.
Ég held að þessi listi sé mjög sig-
urstranglegur og ég held að þessi
gríðarlega þátttaka bendi til þess að
Samfylkingin eigi miklu meiri lönd að
vinna en menn hugðu áður,“ sagði
Össur. „Ég tel lfka að við, sem börð-
ust gegn handröðun og fyrir próf-
kjöri, höfum haft lög að mæla. Niður-
staðan sýnir það að hér er um að
ræða viðbragð, sem er upphafið að
mjög öflugri kosningabaráttu. Það
hefði verið mjög erfitt fyrir Samfylk-
inguna, eins og málum var komið fyr-
ir jólin, að sigla í kosningabaráttu án
þess að leita með einhverjum hætti
eftir umboði fólksins fyrir þá fram-
bjóðendur sem hún setur í forystu
sína.“
Fram hefur komið í máli Össurar
fyrir prófkjörið að niðurstaða þess
skipti máli varðandi þá spurningu
hver vejdist til forystu í Samfylking-
unni. „Ég tel að það sé ekki spurning
eftir þessi úrslit að Jóhanna hlýtur að
verða sú sem leiðir Samfylkinguna í
gegnum þessar kosningar. Þessi úr-
slit skákuðu flokkakerfinu til hliðar
og af því leiðir að það er mjög erfitt,
eftir að fólkið hefur talað með þess-
um afgerandi hætti, að ætla að fara
að stilla upp sem leiðtoga kosninga-
baráttunnar einhverjum í krafti þess
að viðkomandi er forystumaður í
stjórnmálaflokki, sem ekki skiptir
lengur meginmáli." Hann sagðist
telja að þessa nótt hefðu flokksmúr-
arnir á vinstri vængnum endanlega
hrunið.
Um úthlutun 8. sætisins, sem Guð-
ný Guðbjömsdóttir hefur afsalað sér,
sagðist Össur telja reglurnar skýrar;
sætið tilheyri Kvennalistanum. Hann
kvaðst ekki telja að önnur ráðstöfun
kæmi til greina nema að frumkvæði
Kvennalistans.
Bryndís
Hlöðversdóttir
Sigur
Samfylking-
arinnar
„ÚRSLITIN eru sigur Samfylking-
arinnar vegna þess að þátttakan er
miklu meiri en bjartsýnustu menn
þorðu að vona og líka vegna þess að
úrslitin eru óvænt og það sýnir að
mínu mati að það er í gangi hreyfing
og spenna fyrir
Samfylkingunni.
Konur koma mjög
vel út í efstu sæt-
unum og það er af
hinu góða. Ég
hefði vissulega
viljað sjá meiri
þátttöku í hólfi
Alþýðubandalags-
ins en það er ekk-
ert við því að gera, úrslitin eru
þessi.“
,Alþýðubandalagið má vel við una,
ef borið er saman við fylgið sem við
höfðum í prófkjöri Reykjavíkurlist-
ans þá erum við með fleiri atkvæði í
þessu prófkjöri en þá,“ sagði Bryn-
dís. „Þá fékk Alþýðubandalagið um
2.500 atkvæði og var túlkað sem stór-
sigur, núna fengum við um 2.700 at-
kvæði. Hins vegar er það fyrst og
fremst þessi sprengikraftur í kring-
um Jóhönnu og hennar fólk sem
breytir svona hlutfóllum milli
hólfanna."
„Útkoman hefur ekkert með Al-
þýðuflokkinn að gera og formaður AI-
þýðuflokksins hefur staðfest það
sjálfur,“ sagði Bryndís. „Sigurvegari
prófkjörsins er ekki einu sinni í Al-
þýðuflokknum. Henni var boðið sér-
stakt sæti í upphafi vegna þess að
það var ekki sjálfgéfið að hún ætti
heima í þessu hólfi. En hún valdi sér
Alþýðuflokkshólfið en er ekki í AI-
þýðuflokknum. Mörður Árnason, sem
er sigurvegari númer 2, er heldur
ekki í Alþýðuflokknum og Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir, er alveg ný-
gengin í Alþýðuflokkinn. Ég held að
allir sjái, sem eitthvað þekkja til í
stjórnmálum, að það eru ekki flokks-
vélar A-flokkanna, sem eru þarna að
verki, heldur eitthvað allt annað,“
sagði Bryndís.
„Þetta er í hlutfalli við það sem
hefur verið að gerast í skoðanakönn-
unum þar sem flokkarnir hafa farið
minnkandi en Samfylkingin hefur
haft þokkalegt fylgi. Þannig að ég
held að það sé ekki hægt að túlka
þetta öðruvísi en sem sigur þessarar
nýju hreyfingar. Við erum að fá
þarna þátttöku, sem mér skilst að sé
meiri en hefur nokkurn tímann verið
í prófkjöri sjálfstæðismanna," sagði
Bi-yndís. „Það, verð ég að segja, gef-
ur sterklega til kynna að það sé frjór
jarðvegur fyrir þessari hreyfíngu.“
Um það hvort leiðtogamál Sam-
fylkingarinnar hefðu skýrst í próf-
kjörinu, sagði hún að Jóhanna Sig-
urðardóttir væri ótvíræður leiðtogi
Samfylkingarinnar í Reykjavík, sem
gæfi henni sterka stöðu inn í leiðtoga-
hlutverkið á landsvísu en það væri
engin regla að leiðtogi þyrfti að koma
úr Reykjavík.
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
Sigurstrang-
legur listi
„ÉG ER mjög ánægð með úrslitin,
það munaði mjög litlu að ég næði 2.
sætinu," sagði Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir, sem hafnaði í 3. sæti í
A-hólfí og í 5. sæti Samfylkingarinn-
ar. 441 atkvæði munaði á henni og
Össuri Skarphéðinssyni í 2. sæti.
„Mér finnst út-
koman úr próf-
kjörinu vera sig-
urstranglegur listi
og mér finnst til-
hlökkunarefni að
fara út í kosninga-
baráttu með svona
góðan lista,“ sagði
Asta Ragnheiður.
„Skilaboðin era
líka skýr til okkar og stjórnvalda um
að það eigi að leggja meiri áherslu á
velferð og jöfnuð. Við, sem höfum
verið að vinna í þeim málafiokkum,
fáum mjög góða kosningu, og þetta
eru líka skilaboð til stjómmálamanna
um að sinna þeim málum og passa að
enginn verði útundan. Ég fann það
líka í kosningabaráttunni að fólk, sem
hefur orðið útundan, kom og sagði:
„Þetta má ekki ganga svona leng-
ur.“„
Um mismunandi fylgi flokkanna
þriggja, sem að prófkjörinu stóðu
sagði hún að rneiri spenna hefði verið
í kringum A-hólfið en hólf Alþýðu-
bandalags og Kvennalista. „Það gerði
að verkum að fleiri fóra og kusu A-
hólfið. Ég held að flokkarnir séu liðin
tíð. Þarna er orðið til nýtt afl og í
prófkjörinu voru flokkarnir að skila
sínu inn í nýtt afl. Mér finnst ekki
hægt að meta þetta með því að tala
um útkomu flokkanna."
Hún sagði að fólkið í efstu sætun-
um ætti sameiginlegt að hafa barist
lengi fyrir sameiningu jafnaðar-
manna og félagshyggjufólks. „Við
höfum unnið að því ötullega mörg og
það er það sem við erum að uppskera
núna; þessi draumur okkar er að ræt-
ast.“ Hún sagði einnig glæsilegt að
fjórar konur væru í fimm efstu sæt-
um. „Ég veit ekki til þess að þetta sé
svona nokkurs staðar annars staðar í
nágrannalöndunum. Þetta er rosa-
lega fínn árangur kvenna,“ sagði
Ásta Ragnheiður og sagðist telja að
tíunda sætið gæti orðið baráttusæti
Samfylkingarinnar.
Guðrún
Ögmundsdóttir
Skemmtileg
samsetning
á listanum
„KVENNALISTINN hefði mátt
koma betur út en það er ekkert við
því að gera,“ sagði Guðrún Ög-
mundsdóttir, sem hlaut 1. sæti í hólfi
Kvennalistans og 4. sætið á lista
Samfylkingarinnar. Hún kvaðst
ánægð með niðurstöðuna. „Þetta er
dásamlegt fyrir
Samfylkinguna og
mjög góð niður-
staða fyrir alla,
það er mjög
skemmtileg sam-
setning á þessum
lista,“ sagði hún
og kvaðst telja að
listinn einkennd-
ist af breidd og
félagslegri áherslu. „Það er ekki
hægt annað en vera ánægður með
það.“
Þá sagðist hún ekki geta verið ann-
að en ánægð með að fjórar konur
væru í fimm efstu sætum listans.
„Það er gi’einilegt að Kvennalistinn
er búinn að skila sínu mjög vel.“
Guðrún var spurð hvað hún héldi
að hefði ráðið því að hún hafði Guð-
nýju Guðbjörnsdóttur, þingkonu
Kvennalistans, undir í prófkjörinu.
„Ég hugsa að það sé vegna þess
hvernig kosið var í hólfi Kvennalist-
ans. Það var engin blokkamyndun og
konur voru ekki samtaka um hvernig
þær kysu. Þannig að mjög mörg at-
kvæði í 1. sæti fóru fyrir lítið.“
Guðrún sagði að kvennalistakonur
teldu augljóst að Hulda Ólafsdóttir
tæki sæti Guðnýjar Guðbjörnsdóttur
eftir að hún hefur afsalað sér 8. sæti
listans.
Guðný
Guðbjörnsdóttir
Vantaði 20
atkvæði
„ÞETTA var náttúrlega stórkostleg
þátttaka og ég er ánægð með hana og
í raun og vera ánægð með þann lista
sem kom út,“ sagði Guðný Guð-
björnsdóttir, sem hlaut 2. sæti á lista
Kvennalistans og 8. sæti á lista Sam-
fylkingarinnar en hefur ákveðið að
taka ekki sæti á
listanum. „Ég er
ánægð með að Jó-
hanna Sigurðar-
dóttir leiði listann
og óska henni til
hamingju."
„Sjálf bauð ég
mig fram í fyrsta
sæti Kvennalist-
ans; það var alveg
ljóst innan samtakanna og í mínum
auglýsingum að ég væri að bjóða mig
fram í það sæti. Það takmark náðist
ekki; það vantaði 20 atkvæði, og þar
með hafna ég í 8. sætinu.“
Guðný sagðist að öðru leyti sér-
staklega ánægð með hlut kvenna í
prófkjörinu. „Konur hafa staðið sig
vel og það er mjög gott en um leið
mjög athyglisvert að Kvennalistinn
er eini flokkurinn, sem hafnar sínum
þingmanni."
Spurð um skýringar á því sagði
Guðný: „Það er ljóst að það var bara
eitt öruggt sæti í boði hjá Kvennalist-
anum, hér var varla hægt að fara í
prófkjör í alvöru nema bjóða sig fram
í fyrsta sæti þannig að það voru
margir um hituna og eðlileg og heið-
arleg samkeppni að margir byðu sig
fram í það sæti. Að öðru leyti vil ég
ekki tjá mig um mínar skýringar á
því hvemig fór,“ sagði hún. „Ég var
hins vegar ákaft hvött til að fara í
framboð en ég hafði hugsað mig um
vegna þess að ég var með annað starf
uppi í Háskóla og hugsaði um hvort
ég vildi vera lengur í burtu frá því.
Eg sló svo til og ég verð að segja að
það voru mér mikil vonbrigði að fá
ekki fyrsta sætið.“
Guðný kvaðst telja að það segði sig
sjálft að sæti sitt ætti að ganga til
Huldu Ólafsdóttur, sem varð þriðja
kvennalistakvenna í prófkjörinu. „Ég
hélt að það væri engin spurning en
mér er ekki alveg ljóst hvort það er
félagsfundur Kvennalistans eða kosn-
ingastjórn prófkjörsins sem ákveður
það.“
Guðný kvaðst mundu starfa áfram
að kvennabaráttu, hvort sem það yrði
á akademískum vettvangi eða annars
staðar en hún er dósent við félagsvís-
indadeild Háskóla íslands.
Árni Þór Sigurðsson
Sáttur við
mína útkomu
„ÉG ER sáttur við mína útkomu,"
sagði Ami Þór Sigurðsson sem
hreppti 2. sætið í hólfí Alþýðubanda-
lagsins og 7. sæti á lista Samfylking-
arinnar.
„Ég er mjög sáttur við að fara inn í
2. sæti Alþýðubandalagsins, hafandi
ekki verið á Al-
þingi áður. Mér
finnst það mjög
gott.“
„Ég hefði
gjarnan viljað sjá
meira jafnræði
milli hólfanna en
þetta er bara
svona,“ sagði Ami
Þór. „Það kennir
líka ýmissa gi-asa í A-hólfinu; þar er
ekki bara Alþýðuflokksfólk heldur
líka óflokksbundið fólk. Ég held að
þetta sé ágæt blanda og það sé prýði-
legur listi sem kemur út úr þessu.“
Árni Þór kvaðst telja að 7. sætið
ætti tvímælalaust að skila þingsæti.
„Þessir flokkar eru með níu þing-
menn í dag samtals og því skyldu
þeir ekki halda því?“ sagði hann.
Jakob Frímann
Magnússon
Göngum til
kosninga
með auknu
sjálfstrausti
„ÉG ER geysilega ánægður með
þátttökuna í prófkjörinu. í henni fel-
ast mjög skýr skilaboð til þeirra sem
nú sitja við völd og einnig til okkar
sem erum að búa til þetta nýja afl í
íslenskum stjórnmálum um að þessa
sameinaða afls er
þörf. Við göngum
til kosninganna í
vor með auknu
sjálfstrausti,"
sagði Jakob Frím-
ann Magnússon,
sem lenti í níunda
sæti í prófkjörinu.
„Ég er mjög
ánægður með það
atkvæðamagn sem ég fékk í þessu
fyrsta prófkjöri sein ég tek þátt í.
Það vissu það margir að ég hafði alls
ekki hugsað mér að taka þátt í þess-
um slag fyrr en árið 2003, en á eíleftu
stundu ákvað ég að vera með.“
Jakob sagðist ekki hafa haft mik-
inn tíma til að undirbúa sitt fram-
boð. Kosningabarátta sín hefði auk
þess hafist viku síðar en annarra
frambjóðenda vegna þess að hann
hefði þurft að fara af landi brott í
janúar.
„Ég var í þeirri stöðu að sækja inn
í þetta þrönga hólf þar sem fyrir voru
fjórir sitjandi þingmenn, einn vara-
þingmaður og einn fyrrverandi þing-
maður. Það var nokkuð bratt og nið-
urstaðan er sú að ég lendi í fimmta
sæti A-hólfsins. Þetta var spuming
um að lenda inni í þessum níu manna
hópi eða utan hans. Það að lenda í
einhvers konar baráttusæti verð ég
að skoða sem ákveðna traustsyfirlýs-
ingu og get ekki verið annað en
ánægður með hana.
Almennt tel ég að þetta sé mjög
sterkur listi sem höfði til ólíkra hópa.
í því felst styrkur framboðsins,"
sagði Jakob.