Morgunblaðið - 02.02.1999, Side 57

Morgunblaðið - 02.02.1999, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999 57 Silfurteinar Frá Arngrími Arngiimssyni: MAÐUR hefur komið að máli við mig og fundið að Morgunblaðs- gi’einum mínum. Hann segir mig hafa lýst bæjarstjórnum sem stöðn- uðum stofnunum sem standi undir sér en ekki miklu meira. Þá hafí ég algjörlega sneitt hjá þeirri hug- myndasköpun sem fari fram í bæj- arstjómunum. Sem dæmi um þetta sagði hann mér frá tveimur tillögum ungra bæjarfulltrúa. Til að gæta allrar sanngirni í málflutnin'gi vil ég nú koma þessum hugmyndum á framfæri, en ég tel að þær hafi ekki notið þeirrar athygli sem þær verð- skulda þá er þær komu fyrst fram. Segir sig sjálft, hugmyndirnar skipta meginmáli, fyrri tillagan mun ættuð frá ungri konu í Grundarfirði, að ég held, en þar sem hugmynda- smiðirnir eru aukaatriði, tók ég ekki alltof vel eftir þeim í frásögn mannsins. Hin tillagan er frá ung- um bæjar- eða hreppsfulltrúa á Djúpavogi, eða Höfn í Hornafírði. Hátíð íslensks matar Unga frúin í Grundarfírði setti fram þá hugmynd að í ágústmánuði yrði þar haldin Hátíð íslensks mat- ar. Þar ætti að fara fram hin fjöl- breyttasta keppni: hver kæmi með bragðbesta hákarlinn, saltfískinn, steinbítinn, rauðmagann, rækjuna, kúfiskinn. Eins af landinu: hver ætti bragðbesta hangikjötið, svínakjötið, geitakjötið, fuglakjötið. Svona upp- talningar eru án enda, en hún vildi líka að konur kæmu með sitt besta brauð, kökur, flatbrauð, lagkökur, kleinur, pönnukökur. En síðast en ekki síst yrði þó keppni í kaffilögun. Allir mættu vera með, aðeins þyrfti að koma með frambærilegt kaffi. í ferðabók eftir ferðabók lofa út- lendingarnir íslenska kaffið og ekki að ástæðulausu. Sjálfur man ég eft- ir frásögn ungs manns af gamalli konu en bæði unnu hjá Metcalfe Hamilton á Keflavíkurflugvelli. Á kvöldin eftir matinn var rólegt í eldhúsinu, þá kom gamla konan með lófafylli af baunum og lagði á eldavélarhorn. Enginn asi, smátt og smátt urðu baunirnar allar jafn- brúnar, kannski bætti hún þær með smjörklípu. Hún hefði getað fengið fulla könnu af kvöldkaffi úr kaffívélinni, en því kaffi leit hún ekki við. Þessar góðu konur, sem þannig kunnu til verka, liggja nú í gröf sinni og engar koma í þeirra stað. Því sannast er sagna að þrátt fyrir miklar framfarir í kaffimenn- ingu landans hin síðari ár, hafa engir listamenn komið fram á þessu sviði. Hátíð íslensks matar gæti bætt úr öllu þessu, reyktur rauðmagi hætti þá að vera nær óætur fyrir salti, síldin hætti að vekja klígju sakir sykurs og stein- bíturinn yrði aftur gullinn af lýsi, þvi góða lýsi sem gefur karlmönn- um krafta í köggla en konum það blik í auga sem svo mjög eykur að- dráttarafl þeirra. Ég læt hér fljóta með gamla skiptingu á kaffi eftir því hvort það er veikt eða sterkt, gott eða vont: hlandskólp, skólp, kaffi, gott kaffl, jurt, náðarjurt. Óþarft er að geta þess að engin, mér vitanlega, getur nú lagað kaffi í tveimur efstu flokkunum. Þakka skal það sem vel er gert Frá Rristjáni Heiðari Baldurssyni: NOKKRAR umræður hafa verið um þá samþykkt Alþingis að breyta tengingu bóta almanna- trygginga og tekna maka. Hefur Ingibjörg Pálmadóttir ver- ið ásökuð um svik í þessu sambandi og hún sögð ósann- indamanneskja. Þetta finnst mér bæði ósann- gjarnt og rangt. Hingað til hef- ur það verið þannig að ég hef ekki komist inn á tekjutrygginguna og því hefur tenging tekna maka við bótaréttinn verið mér mikill þyrnir í augum. Nú hefur þessu verið breytt að hluta. Frítekjumarkið hefur verið hækkað og nú er ég kominn á tekjutryggingu, sem ég var ekki áður. Mig munar verulega um þetta enda skiptir hver þúsundkall- inn máli. Af þessum sökum get ég ekki tekið undir með þeim sem ásaka heilbrigðis- og tryggingamálaráð- heira um svik og að ganga á bak orða sinna, það er ekki rétt. Ég hef fylgst með því sem hún hefur sagt og sé ekki betur en það sem gert var sé í samræmi við það sem Ingi- björg Pálmadóttir lofaði. Það ber að þakka það sem vel er gert. Ég vildi auðvitað að tenging bóta og tekna maka yrði afnumin að fullu, en ég get ekki skrifað und- ir að sá ráðherra sé svikari og gangi á bak orða sinna sem tók IJTSALAN hefst f dag kl. 8.00 Litir: Bláir, grænir ofl. Stærðir: 27-35 Tegund: ADI Verð 1.295 Mikið úrval á útsölunni T Póstsendum samdægurs oppskórinn VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552.1 21 2 Regatta Transatlantica Hin hugmyndin frá unga mannin- um á Höfn, eða var það á Djúpavogi, var að stofna til kappsiglingar milli Hendaye, á landamærum Frakk- lands og Spánar, og Djúpavogs eða Hafnar. Þetta er auðvitað ekki keppni þar sem margar skútur sigla saman, heldur sigla menn einskipa og íþróttin er sú að komast þessa ei*fiðu siglingaleið á sem stystum tíma, að hætta sér í hendurnar á höfuðskepnunni og lifa af. Þegar hingað er komið fá menn í verðlaun áritað skjal og hina eftirsóttu þrí- hyrnu með drekanum að tákni. Grunnur hennar á að vera gullinn en drekinn sjálfur moldarbrúnn, kannski með örlitlu rauðu ívafi. Fyr- ir þá sem standa sig sérstaklega vel skal smíðaður silfurhringur með ígreyptri mynd Búlandstinds, sem, eins og allir vita, sómir sér meðal tignarlegustu fjalla. Þetta, segir þessi ungi maður, er allt og sumt, fyrir utan hafnaraðstöðu og skútu- þjónustu sem Austfirðingar gætu auðvitað sett upp í hvelli, myndi duga til að lokka til landsins fjár- sterka siglara á stóram skútum, því þeirra á meðal er mikil upphefð að því að hafa siglt til Islands. En af hverju Hendaye? Eitt er nú það að staðurinn er sögufrægur af kóngamótum sem þar fóru fram, en þó miklu merkilegra hitt að Henda- ye og ísland eru tengd ákveðnu bandi, sem ég þó hirði ekki um að festa á blað, en þeir sem skilninginn hafa munu skilja. Komist nú þessar tvær hugmynd- ir á koppinn ætti þess ekki að vera langt að bíða að, ef ekki silfurstang- ir koma í kassann, þá að minnsta kosti silfurteinar. ARNGRÍMUR ARNGRÍMSSON, Baldursgötu 23, Reykjavík. íyrsta skrefið til að bæta hag okkar öryrkja. Ég er flogaveikur og nýkominn úr aðgerð frá Bandaríkjunum, en Tryggingastofnun ríkisins greiðir kostnað við ferðir, dvöl og aðgerðir flogaveikra í Bandaríkjunum. Ég nefni þetta vegna þess að ég er ekki viss um að menn geri sér al- mennt grein fyrir öllu því góða sem gert er. Þetta eru kostnaðarsamar aðgerðir mælt í peningum, en það eru til aðrir mælikvarðar en pen- ingar. Aðgerðin í Bandaríkjunum þýðir það fyrir mig að í stað þess að fá 100 flogaköst á tveimur mánuðum hef ég aðeins fengið eitt sl. þrjá mánuði. Það er full ástæða til að þakka það sem vel er gert. KRISTJÁN HEIÐAR BALDURSSON, öryi'ki, Jörundarholti 3, Akranesi. STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN KRINGLAN, Kringlunni 8-12 - Reykjavík verður lokuð í nokkra daga vegna breytinga Meðan á breytingunum stendur verður opið frá kl. 9.00-18.30 í STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN D0MUS MEDICA við Snorrabraut - Reykjavík, sími 551 8519 Útsalan er í fullum gangi Góður afsláttur við kassann Tískuverslun»Kringlunni 8-12«Sími 5533300 Fréttir á Netinu ^mbl.is Al.L.TAf= e/TTH\SAÐ NÝTl ARCADIA HANSSON | ^Uf^EVA <$>CWliX)FTOa ruiter ^ FRA VAN Glis TILBOÐSDAGAR 2.-6. FEB. 20-60% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM LEÐURIÐJAN LAUGAVEGI 15, SÍMI 561 3060 *

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.