Morgunblaðið - 11.02.1999, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
EIGUM við ekki bara að nota sama trixið og við hinar gæsirnar, Helgi minn.
omu
Námstefna umsjónarfélags einhverfra
Atferlismeð-
ferð eykur
sjálfstæði
Anna-Lind Pétursdóttir
dag, fimmtudaginn
11. febrúar, hefst
námstefna á vegum
Umsjónarfélags ein-
hverfra sem ber yfir-
skriftina Atferlismeðferð
fyrir börn með einhverfu.
Anna-Lind Pétursdótt-
ir er í stjóm Umsjón-
arfélags einhverfra og
hefur haldið utan um und-
irbúning námstefnunnar.
„Einhverfa er alvarleg
þroskaröskun sem snert-
ir félagslegan og tilfinn-
ingalegan þroska bama
og yfirleitt vitsmunaleg-
an þroska þeirra líka.
Einhverfan veldur erfið-
leikum með eðlileg sam-
skipti við aðra.
Einnig sýna einhverf
böm mikil frávik í hegðun svo
sem skerta leikhæfni, mikla
íhaldssemi og ósjálfráðar, endur-
teknar hreyfingar. Atferlismeð-
ferð hefur skilað góðum árangri
í að draga úr hegðunareinkenn-
um einhverfu og við að auka
vitsmunaþroska og aðlögunar-
hæfni barna með einhverfu."
- Hvað er atferlismeðferð?
„Atferlismeðferð er leið til að
kenna baminu aðferðir við að
læra af umhverfinu og auka
sjálfstæði þess. Meðferðin er
mjög skipulögð og yfirgripsmik-
il og beinist að máli, leik, félags-
legum samskiptum og sjálfs-
hjálp, jafnframt því að draga úr
hegðunarfrávikum."
Anna-Lind segir að lögð sé
áhersla á að skipta námsefninu
upp í nógu lítil skref svo baminu
takist það sem ætlast er til af
því. „Barnið á að upplifa sem
flesta sigra og stór þáttur í með-
ferðinni er jákvæð athygli og
hrós og áhersla lögð á að veita
barninu umbun fyrir vinnu þess
og frammistöðu."
Hún segir að meðferðin taki
mið af eðlilegri þroskafram-
vindu báma og markmiðið er að
kenna bái-ninu það sem upp á
vantar svo það geti nálgast jafn-
aldra sína í færni og þroska.
-Er talið að atferlismeðferð
sé árangursríkasta meðferðar-
foi-mið fyrir einhverfa?
„Þær rannsóknir sem gerðar
hafa verið á árangri atferlismeð-
ferðar mörkuðu tímamót því
þær kollvörpuðu hugmyndum
um batahorfur einhverfra. Tæp-
lega helmingur þátttakanda í
rannsókn Lovaas tók það mikl-
um framföram að félagslegur og
vitsmunalegur þroski þeirra
varð innan eðlilegra marka.“
Anna-Lind bendir á að fyrri
dag ráðstefnunnar tali Cathy
Tissor sem er sérkennari og for-
maður foreldrasamtaka um at-
ferlismeðferð í Bret-
landi. „Hún ætlar að
tala um hvemig sam-
tökunum þar hefur
tekist á mjög skömm-
um tíma að gefa
mörgum börnum í Bretlandi
kost á atferlismeðferð. Hún mun
fjalla um sýn foreldra á atferlis-
meðferð og kynna meðferðina.
Cathy á einhverft bam og hefur
haldið utan um meðferð þess.
Hún mun miðla af þeirri reynslu
sinni.
Þá fáum við líka til okkar dr.
Svein Eikeseth. Hann er sál-
fræðingur sem stýrir alþjóðlegri
►Anna-Lind Pétursdóttir er
fædd á Akureyri árið 1971.
Hún lauk BA-prófi í sálfræði
frá Háskóla íslands árið 1996
og starfaði sem þjálfari og síð-
ar ráðgjafi í atferlismeðferð
frá vorinu 1995-1997.
Hún er nú ráðgjafi á
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur
og sinnir þar ráðgjöf varðandi
ofvirk börn. Anna-Lind situr í
stjórn Umsjónarfélags ein-
hverfra.
Eiginmaður Onnu-Lindar er
Skúli Helgason sljórnmála-
fræðingur og eiga þau soninn
Teit Helga en Skúli á auk þess
soninn Darra.
rannsókn á árangri atferlismeð-
ferðar í Noregi. Hann hefur sér-
hæft sig í meðferð bama sem
byrja á aldrinum 4-7 ára í atferl-
ismeðferð. Yfirleitt er talið
árangursríkast að atferlismeð-
ferð hefjist sem fyrst eða þegar
bömin eru 2-3 ára. Það hefur
hins vegar sýnt sig í rannsókn-
um Eikeseth að jafnvel þótt
böm byrji ekki fyrr en um 7 ára
aldur í meðferð geta þau tekið
miklum framfómm."
Anna-Lind segir að Eikeseth
muni fjalla um þessar rannsókn-
ir sínar og kynna niðurstöður
þeirra auk þess sem hann sýnir
myndbandsupptökur af þjálfun
og tekur dæmi úr kennslu barna
sem eiga auðvelt með að nema
heyrðar upplýsingar og hins
vegar barna sem eiga auðveld-
ara með að læra sjónrænt.
- Er boðið upp á atferlismeð-
ferð hér á iandi?
Anna-Lind segir að sér-
kennsla hafi verið nálgun sem
mikið hefur verið notuð hérlend-
is. Hún bendir á að ekki liggi
jafn ítarlegar rannsóknir að baki
þeirri meðferð og atferlismeð-
ferð. „Árið 1995 byrjuðu fyrstu
börnin í atferlismeðferð hér á
landi í tengslum við
rannsókn Sigríðar
Lóu Jónsdóttur sál-
fræðings. Staðan er á
hinn bóginn sú að
færri komast að en
vilja. Námstefnan er liður í að
bjóða íræðslu um meðferðina og
vonandi getur hún aukið skilning
stjómvalda á nauðsyn þess að
sem flest börn geti átt þess kost
að hefja atferlismeðferð snemma
á ævinni.“
Námstefnan stendur yfir í
Gerðubergi í dag, fimmtudaginn
11. febrúar, og á morgun, föstu-
daginn 12. febrúar.
Barnið á að
upplifa sem
flesta sigra