Morgunblaðið - 11.02.1999, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 11.02.1999, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eimskip um varnarliðsflutninga Vísa á bug að verið sé að hygla félaginu EFTIRFARANDI athugasemd hefur borist frá Eimskipafélagi ís- lands hf. vegna viðtals við Guð- mund Kjærnested, sem birtist í Morgunblaðinu á sunnudag: „Eins og fram hefur komið í fréttum tók Eimskip þátt í útboði á vegum Bandaríkjahers um flutn- inga milli Islands og Bandaríkj- anna. I viðtali við Guðmund Kjæme- sted, forsvarsmann Transatlantic Lines-fyrirtækjanna, undir yfir- skriftinni „Kapteinn Kjærnested" í sunnudagsblaði Morgunblaðsins þann 7. febrúar sl. er látið að því liggja, að verið sé með einhverjum hætti að hygla Eimskipafélaginu vai-ðandi þetta mál. Eimskip vísar öllum slíkum ásökunum á bug. Nokkrir aðilar buðu í þessa flutninga og skv. útboðsskilmálum þarf að uppfylla ákveðin skilyrði til þess að útboð sé fullgilt, og taka þarf tillit til laga og milliríkjasamn- inga milli Islands og Bandaríkj- anna. Jafnframt þarf að sýna fram á að bjóðendur geti tekið að sér verkefnið með tilliti til skipakosts og fleiri þátta. Tilboð Eimskipafélagsins upp- fyllti þessi ákvæði, en það tilboð, sem tekið var, uppfyllti ekki þau skilyrði sem sett voru í útboðslýs- ingu. Eimskip hafði löngu fyrir þetta útboð fengið lögfræðilegt álit um það að hvorki íslenskt eða bandarískt fyrirtæki gæti náð und- ir sig öllum flutningunum með þeim hætti sem þarna var gerð til- raun til. Milliríkjasamningurinn er mjög skýr í þessum efnum og aðal- tilgangur hans er að tryggja þátt- töku tveggja óháðra aðila frá sitt hvoru landinu í þessum flutning- um. Niðurstaða þeirra sem unnu að þessu máli hjá flutningadeild bandaríska hersins kom því Eim- skip verulega á óvart og kann að stafa að einhverju leyti af því að nýtt fólk er komið þar til starfa sem þekkir ekki forsögu málsins og þann milliiTkjasamning sem gerður var á sínum tíma. Eimskip mótmælti þessari niðurstöðu. TO að fá úr því skorið hvort úthlutun þessi stæðist lög og reglur, ákvað Eimskip að kanna fyrir dómstólum í Bandaríkjunum hvort skilningur félagsins á útboðslýsingunni væri réttur. Nú hefur gengið dómur í málinu þar sem fram kemur að út- hlutun flutninganna til Transatl- antic Lines Iceland ehf. og Transatlantic Lines LLC. var ólög- leg og að skilningur Eimskips á út- boðsgögnum er réttur. Dómstóll- inn staðfestir túlkun sama dóm- stóls frá 1988 um að þessa flutn- inga skuli bjóða út í einni sam- keppni milli bandarískra og ís- lenskra skipafélaga. Stjórnvöld í Bandaríkjunum þurfa því sam- kvæmt þessum dómi að bjóða þessa flutninga út aftur, og þannig endurskoða fyrri ákvörðun um ráð- stöfun þessara flutninga. Þessar upplýsingar og niður- stöður dómsins hafa áður réttilega komið fram, en vegna viðtals við Guðmund Kjæmested í Morgun- blaðinu, taldi Eimskipafélagið nauðsynlegt að draga hér fram á ný þessar staðreyndir málsins." Morgunblaðið/Árni Sæberg NEMENDUR Kennaraháskóla Islands fá saltfisk í boði Patreksskóla. Saltfiskur notaður til að lokka kennara GUÐBRANDUR S. Ágústsson, skólastjóri Patreksskóla, notaði í gær saltfisk til að reyna að lokka nemendur Kennaraháskóla ís- lands vestur á Firði. Gangar Kennaraháskólans ilm- uðu af saltfisklykt í hádeginu í gær, því Guðbrandur bauð nem- endum skólans í mat, svona rétt til að reyna að koma þeim á bragðið. „Það hefur verið erfítt að ná í faglærða kennara en við ætlum okkur að reyna að ná í þetta fjóra til fimm nýja, þá erum við í góðum málum,“ sagði Guð- brandur. „Við vonum að svona átak eins og við erum í hérna og svona framsetning skili okkur metnaðarfullu, góðu starfsfólki." Auk þess að bjóða nemendum í mat fengu allir nemendur á þriðja ári, um 120 manns, senda sérmerkta öskju, sem í var salt- fiskur frá Patreksfirði, upp- skriftir og síðast en ekki síst upplýsingar um Patreksskóla og eyðublað til að sækja um starf þar árið 1999 til 2000. Guðbrandur, sem hefur verið skólastjóri á Patreksfirði í fjögur ár, hefur á hveiju ári síðan hann hóf störf, reynt að tæla til sín verðandi kennara. „Fyrsta árið komum við með grjót úr Látra- bjargi, annað árið harðfísk, í fyrra bol sérmerktan Patreks- skóla og það lá beinast við að taka saltfiskinn í ár,“ sagði Guð- brandur. Hann sagði að þetta hefði skilað góðum árangri í gegnum árin, t.d. hefðu sjö nýir kennarar komið vestur þegar gijótið var sent. Þetta margborg- ar sig sagði Guðbrandur en að- spurður um kostnað sagði hann þetta aðeins kosta smáhug- myndaflug og vinnu. „Þetta er ljúffengt, alveg rosa- lega gott,“ sagði Inga Hrönn Grétarsdóttir, nemandi á þriðja ári í Kennaraháskólanum, um saltfiskinn. Ingu fannst framtak þeirra Patreksfirðinga mjög gott en í fyrstu hélt hún að askjan sem hún fékk hefði verið eitt- livert grín. Inga sagðist ekki ætla að fara að kenna í haust en sagð- ist hins vegar hafa trú á því að margir nemendur myndu íhuga vel þann kost að fara til Patreks- fjarðar að kenna, enda örugg- lega gaman að vera í kringum jafn hugmyndaríkan mann og Guðbrand. Elísu Dögg Helgadóttur, sem er í öðrum bekk, leist sömuleiðis rnjög vel á saltfiskinn. Hún sagð- ist samt halda að hún færi ekki vestur en sagðist þó hafa heyrt um nokkra sem hefðu áhuga og væru að skoða möguleikann á að kenna vestur á Fjörðum. í vetur eru 132 nemendur í Patreksskóla og 15 kennarar en þeim ljölgar á næsta ári því þá bætist við skólann framhalds- deild, þ.e., fyrsta ár í framhalds- skóla. Athugasemd frá Van Qmmeren- skipafélaginu vegna viðtals við Guðmund Kjærnested Segir skip hans óhæf til siglinga MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Van Ommeren-skipafélaginu, vegna við- tals við Guðmund Kjæmested, sem birtist í blaðinu sl. sunnudag: „Kæru herrar: Eg er stjórnarmaður hjá Van Ommeren Shipping (USA) LLC, og vinn við fyrirtækið sem sérfræðing- ur í sjóflutningum og lögfræðilegur ráðunautur. Meðeigandi minn, Niekel van Reesema, var sá sem hratt í framkvæmd árið 1985 sigl- ingum til íslands undir bandarísk- um fána á vegum Rainbow Na- vigation, Inc. Eg var þá fram- kvæmdastjóri hjá American Ship Management, og annaðist fyi-stu ár- in tæknilega stjórnun íyrir fyrsta skipið, RAINBOW HOPE. Við höf- um því verið þátttakendur í sigling- um til íslands undir bandarískum fána frá byrjun, frá þeim tíma sem Guðmundur Kjærnested var ennþá á unglingsaldri, og við urðum því óneitanlega vel varir við hve íslensk stjómvöld voru staðráðin í því að ís- lensk skipafélög fengju að taka þátt í þessum flutningum. Sú staðreynd er rétt að Guðmund- ur hóf störf hjá okkur árið 1992, þar sem hann var deildarstjóri siglinga- leiðar undir stjóm og handleiðslu Mr. Van Reesema. Við vörðum sann- arlega stómm upphæðum í menntun hans, og leyfðum honum jafnframt að nota vinnutímann til náms. Einnig er það rétt að gengið hafði verið frá ráðningu hans til Parísar við olíu- flutningasvið Royal Van Ommeren um leið og hann útskrifaðist. Með hliðsjón af framansögðu, getið þið vel ímyndað ykkur að það kom okk- ur á óvart þegar hann gekk út, einmitt á þeim tíma þegar herinn var að taka við tilboðum vegna verkefna sem hann hafði undirbúið fyrir Van Ommeren, og Guðmundur var nú að bjóða í á eigin vegum. Eins vakti það undran okkar að hann skyldi játa þessu, jafnvel stæra sig af því, í við- tali við blaðið ykkar 7. febrúar, án þess að blikna. Þetta er allt liðið, og enginn hér hefur grátið hann. Varðandi mikil- vægari mál hefur Guðmundi láðst að geta óþægilegra staðreynda. í viðtal- inu segir hann að hann hafi ekki fengið fyi'sta samninginn við herinn sem hann bauð í strax eftir að hann hætti hjá Van Ommeren, samning- inn um siglingar til Ascension eyju. Þriðji aðili hafi fengið samninginn, og að hann sé því feginn, vegna þess að hann hafi ekki verið tilbúinn. Raunveraleikinn er annar. Til þess að eiga möguleika á að bjóða í sigl- ingar undir bandarískum fána fyrir hvaða samning sem er um herflutn- inga, hefði fyrirtækið, TransAtlantic Lines (TLL), orðið að undirrita svo- kallað Voluntary Intermodal Sealift Agreement (VISA). Til þess að ger- ast aðili að VISA, hélt Guðmundur því fram við bandarísku siglinga- málastofnunina (U.S. Maritime Ad- ministration) að TLL væri með skip á þurrleigu, og réði því yfir dráttar- bát og pramma undir bandarískum fána. Þessi þurrleiga þótti gransam- leg, svo ekki sé meira sagt. Þegai- siglingamálstofnunin fór fram á frekari skýringar frá Guðmundi, dró hann sig í hlé frá VISA, með þeiiri aumu afsökun að hann hefði „mis- skilið kröfumar“. Án aðildar að VISA hafði TLL ekki lengur rétt á að bjóða í Ascension-verkefnið. Guðmundur sendi siglingamála- stofnuninni bréf f.h. TLL, þar sem fyrirtækið segir sig úr VISA- prógramminu í júní 1998. Banda- ríska siglingamálastofnunin, til- kynnti þá varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna ski-iflega: „Með þessu bréfi til hinna ýmsu skrifstofa vamarmálaráðuneytis (DoD) til- kynnum við að TransAtlantic Lines, LLC (TLL) hefur sagt sig úr VISA- áætluninni og má því ekki bjóða í verkefni þar sem krafist er aðildar að VISA varðandi verkefni á vegum varnarmálaráðuneytis." Aðild Guð- mundar að VISA, vegna útboðs í herflutningana til Islands, var loks- ins fengin með því að afsala meiri- hlutaeign í fyrirtækinu til aðila sem hafði þegar aðild að VISA og segir Guðmundur í viðtalinu að þetta fyr- irtæki sé American Automar. Skoðun mín er sú, að TLI sýni ís- lenska hluta milliríkjasamningsins ennþá meiri vanvirðu en TLL þeim bandaríska (TLI á að heita íslenskt fyrirtæki). Samkvæmt því sem Guð- mundur segir eiga bandarískir aðil- ar 50% í TLI. Bandarískur alríkis- dómstóll hefur úrskurðað að, á grandvelli gagna á þeim tíma sem tilboð vora gerð, hafi 74% af TLI verið í eigu bandarískra aðila. Eign- arhald íyrirtækjanna var því ekki einungis í Bandaríkjunum, heldur og einnig framkvæmdastjórn. Við nánari skoðun á TLI var reynt að fela hversu óíslenskt það var og gefa því íslenskara yfirbragð, en ís- lensk stjómvöld létu ekki blekkjast. Þegar Rainbow Navigation hóf viðskipti árið 1985 með skip undir bandarískum fána, fékk félagið alla herflutningana. íslensk skipafélög fengu það sem Rainbow gat ekki annast. Eftir að milliríkjasamning- urinn var gerður, hafði bandaríska félagið aðeins 35%. Áram saman íhuguðum við að stofna íslenskt dótturfélag, og bjóða í báða hluta verkefnisins. Við reyndum meira að segja einu sinnu að gera það, en hættum við það, þar sem það hefði augljóslega brotið í bága við samn- inginn, og hvorki íslensk stjórnvöld né íslenska þjóðin sjálf hefði fallist á það. Þessu höfum við fulla vissu fyr- ir, með tilliti til þeirrar hörðu bar- áttu sem utanríkisráðuneytið ís- lenska háði til að ná af Rainbow Na- vigation réttinum til að flytja 100% af bandaríski'i herfrakt til Islands. Þetta sögðum við Guðmundi í hvert skipti sem hann nefndi málið við okkur hjá Van Ommeren. Það sem nú á undan er gengið í baráttu íslenskra stjómvalda er tví- mælalaust aðeins aukaatriði. Alríkis- dómstóllinn bandaríski dæmdi gegn TLL/TLI á lagalegum forsendum (samkeppni var ekki haldin eins og samningurinn gerir ráð íyrir) og á staðreyndum (TLI var ekki fjá- rhagslega sjálfstætt og TLL réð ekki yfir skipi undir bandarískum fána eins og útboðsgögn gera ráð fyrir). Guðmundur ofmetur sjálfan sig með því að halda því fram að ut- anríksiráðuneytið íslenska hafi bragðið fyrir hann fæti. íslensk stjómvöld era ekki aðilar að málinu, en það þarf ekki að þýða að þetta hafi ekki farið fyrir brjóstið á þeim (skiljanlega). Guðmundur segist bjóða svipaða þjónustu og Eimskip. Hvílík fjarstæða! Að mínu mati era skip hans óhæf til siglinga á Norður- Atlantshafi að vetrarlagi. í sinni fyrstu ferð var skip TLI 21 dag á leiðinni frá íslandi til Norfolk, og skip TLL náði að vera mettíma, 24 daga, frá Norfolk til íslands. Allir þeir sem ganga niður á hafnarbakk- ann þar sem SLY FOX er núna að afferma, munu undrast staðhæfingai' hans. Menn munu spyrja sig hvað þetta skip er yfir höíúð að gera yfír Atlantshafið að vetrarlagi. Sjálfur Kjæmested skiphema yrði orðlaus. Virðingarfyllst, John P. Love.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.