Morgunblaðið - 07.04.1999, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 15
FRÉTTIR
Bolli Héðinsson, formaður tryggingaráðs, telur þörf á endurskoðun almannatrygginga
Samið verði um
verð á þjónustu
Bolli Héðinsson, formaður tryggingaráðs,
telur nauðsynlegt að fram fari heildarend-
urskoðun á almannatryggingakerfínu sem
feli m.a. í sér fækkun bótaflokka. I samtali
við Omar Friðriksson mælir hann með
auknu sjálfstæði Tryggingastofnunar og að
fjármögnun sjúkrahúsa verði breytt.
Morgunblaðið/Ásdís
BOLLI Héðinsson, hagfræðingur og formaður tryggingaráðs.
BOLLI Héðinsson, hagfræðingur og
formaður tryggingaráðs, telur nauð-
synlegt að fram fari heildarendur-
skoðun á almannatryggingakerfinu.
Hann segir að við lagfæringar á
kerfinu á undanförnum áratugum
hafi flestar breytingar komið til sem
ráðstafanir til að bæta úr aðkallandi
þörf í stað þess að til sé heildrænt
skipulag almannatrygginga með inn-
byggðan sveigjanleika, þannig að
hægt sé að bregðast við breyttum
aðstæðum án þess að hrófla við
grundvallarþáttum hins eiginlega al-
mannatryggingakerfis.
Pjöldi bótaflokka gerir kerfíð
flókið og ógegnsætt
„Meginskipting bótanna nú er í tvo
flokka, eiginlegar lífeyristryggingar
almannatiygginga og hins vegar bæt-
ur samkvæmt lögum um félagslega
aðstoð. Samtals eru bótaflokkaniir 10
til 17 eftir því hvemig talið er. Þessi
bótaflokkafjöldi gerir kerfíð flókið og
ógegnsætt. Ekki er forsvaranlegt að
telja að eina lausnin á vanda velferð-
arsamfélagsins sé að veita aukið fé til
þess, án þess að skoðað sé hvemig
fénu er varið, en ég er sannfærður
um að rannsókn á tilhögun bóta og
bótaflokka myndi leiða í Ijós að fækk-
un þeirra verður lífeyrisþegum til
góðs og að bótafjárhæðimar myndu
nýtast betur. Til að hefja það starf
sem lýtur að rannsókn á hagnýtingu
bóta almannatrygginga gerðum við
samning við Félagsvísindastofnun
Háskólans um að á hennar vegum
færi fram rannsókn á viðfangsefninu.
Miklu meira þarf að koma til og á árs-
fundinum í haust nefndi ég sérstak-
lega að skoða verður í samhengi kerf-
in þrjú sem miklu ráða um afkomu
fólks, skattkerfið, lífeyriskerfi al-
mannatrygginga og lífeyrissjóðakerf-
ið. Án heildstæðrar skoðunar á þessu
þrennu lendum við í ógöngum á borð
við háa jaðarskatta, auk þess sem
engin trygging er fyrir því að tekjutil-
færslur ríkisins lendi endilega hjá
þeim sem mest þurfa þeirra með,“
segir Bolli.
Endurskoðun f hálfan annan
áratug án niðurstöðu
Hann bendir á að tilraunir sem
gerðar hafa verið til að endurskoða
almannatryggingakerfið í heild sinni
hafa ekki skilað árangri. „Endur-
skoðun almannatryggingakerfisins
hefur nú staðið í a.m.k. hálfan annan
áratug án þess að nokkur niðurstaða
sé í sjónmáli. I mínum huga er ljóst
að viðfangsefni af því tagi, sem end-
urskoðun almannatrygginga er,
þarfnast annarra vinnubragða held-
ur en tíðkast með hefðbundinni end-
urskoðun lagabálka.
Almannatiyggingar á íslandi
munu ekki ná að þróast frá því sem
nú er nema með því að beita allt öðr-
um aðferðum við nauðsynlega hug-
myndavinnu að endurskoðun kerfis-
ins. Fullreynt er að frumvinnan
verður ekki unnin af stórum hópi,
þar sem allir hagsmunaaðilar og allir
stjómmálaflokkai’ eiga sína fulltrúa,
þó svo að þeir aðilar geti komið að
málinu á síðari stigum."
Ráðherra skipi tryggingaráð
Aðspurður segir Bolli að með því að
gera Tryggingastofnun virkari þátt-
takanda en hún er í dag við mótun al-
mannatryggingakerfisins verði stofn-
unin um leið sjálfstæðari en auknu
sjálfstæði fylgi einnig aukin ábyrgð.
„Samfara því þyrfti að breyta
skipan tryggingaráðs á þann veg að
skipan ráðsins yrði alfarið á vegum
ráðherra, en ráð herra skipar nú að-
eins formann ráðsins úr hópi trygg-
ingaráðs manna sem Alþingi kýs.
Hvarvetna í samfélaginu hafa þing-
kjörin ráð og stjórnir verið á unda-
haldi enda eru þau barn síns tíma og
ekki nothæf til að stýra stofnunum
þar sem saman þarf að fara mikið
vald og ábyrgð,“ segir hann.
Tryggingastofnun
sjúkrasamlag landsmanna
BoIIi telur einnig að mikill ávinn-
ingur gæti orðið af því að breyta
fjármögnun sjúkrahúsa og bendir í
því sambandi á að í dag kaupir
Tryggingastofnun heilbrigðisþjón-
ustu fyrir almenning af nokkrum
innlendum starfsstéttum og af er-
lendum sjúkrahúsum.
„íslensk sjúkrahús eru rekin fyrir
fjárhæðir sem ákvarðaðar eru á fjár-
lögum hverju sinni. Þannig sýna
sjúkrahúsin betri afkomu eftir því
sem þau afkasta minna. Þetta er
óneitanlega þversögn í heilbrigðis-
kerfinu sem ekki verður leiðrétt fyrr
en skilið verður á milli kaupenda
heilbrigðisþjónustunnar og þein-a
sem veita hana þó svo að
hvorttveggja geti verið á hendi opin-
berra aðila. Mín sýn á skipulag og
fjármögnun heilbrigðiskerfisins er
sú að við felum Tryggingastofnun
hlutverk sjúkrasamlags allra lands-
manna þannig að Tryggingastofnun
verði viðsemjandi jafnt inn lendra
sem erlendra sjúkrastofnana um
verð á þjónustu þeirra.
Meginávinningurinn af þessu væri
sá að spítalamir væru komnir í eðli-
legt rekstrarumhverfi þannig að val
um nýbyggingar, tækjakaup, manna-
hald og aðra útgjaldaliði ráðist af því
hver þörfin er fyrir þá þjónustu.
Sjúkrahús væru þá sett í þá eðlilegu
aðstöðu að vera orðin „seljendur" til-
tekinnar þjónustu sem rfkið hefur
hug á að kaupa í gegnum sameigin-
legt sjúkrasamlag þjóðarinnar,
Tryggingastofnun," segir hann.
Bolli nefnir dæmi þessu til stað-
festingar af leysigeislatæki sem not-
að er til að eyða valbrá. Þetta tæki
var til í New York en ekki hér á
landi. Fyrir einum sjö ái-um greiddi
Tryggingastofnun kostnað vegna
meðferðar auk ferðakostnaðar sjúk-
linga og fylgdarmanna sem fóru til
New York til að komast í þetta tæki.
„Auðvitað vai- miklu heppilegra að
eiga svona tæki hér á landi en hvat-
inn fyrir Landspítalann eða Borgar-
spítalann til þess að eignast tækið
var enginn, vegna þess að við það
eitt að kaupa tækið jókst kostnaður
þeirra. Tryggingastofnun hefði get-
að keypt þessa þjónustu af Landspít-
alanum í stað þess að kaupa hana af
spítala í New York. Á endanum
keypti Landspítalinn umrætt tæki
en svona gekk þetta í nokkur ár.
Tryggingastofnun kaupir heilbrigð-
isþjónustu erlendis og hefur samið
um verð á henni við þarlenda spítala,
hvort sem um er að ræða líffæra-
flutninga eða aðrar aðgerðir. Eins
væri hægt að semja við íslensk
sjúkrahús. Ný þjónusta þarf ekki
bara að fela í sér ný útgjöld fyrir
sjúkrahúsin heldur einnig ný tæki-
færi,“ segir hann.
Bolli kveðst sakna þess hversu lítil
umræða er um grundvallarþætti al-
mannatrygginga, ekld síst meðal hag-
fræðinga, þrátt fyrir þá staðreynd að
þessi málaflokkur sé stærsti einstaki
útgjaldaliður ríkissjóðs.
„Auk hagrænna atriða almanna-
trygginga koma almannatryggingar
öllum við og þar líkt og í annarri
þjónustu sem ríkið veitii- þarf að skil-
greina hvei-t þjónustustig ríkisins
eigi að vera svo ljóst sé hvaða rétt
borgaramir eigi og hvaða skyldur
ríkinu beri að uppfylla,“ segir hann.
Borgarstjóri um framtíð
raforkuframleiðslu í Elliðaám
Beðið niður-
stöðu úttektar
á lífríkinu
„VIÐ ákváðum að láta fara fram al-
hliða úttekt á lífríki Elliðaánna sem
á að vera lokið í næsta mánuði og ég
tel rétt að bíða niðurstöðu hennar
áður en hægt verður að ákveða
nokkuð um framtíð raforkufram-
leiðslu í ánum og Ái-bæjarstíflu,"
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Einn alvarlega
slasaður eftir
bilveltu
BÍLVELTA varð við Gíghæð á
Grindavíkurvegi skömmu eftir mið-
nætti aðfaranótt laugardagsins 3.
apríl. Þrír piltar á sautjánda og átj-
ánda aldursári voru í bifreiðinni og
var ökumaður hennar íluttur með-
vitundarlaus á Sjúkrahús Reykja-
víkur. Að sögn sérfræðings á gjör-
gæsludeild er líðan hans eftir atvik-
um og er hann laus úr öndunarvél.
Tildrög slyssins voru þau að bif-
reiðin var í framúrakstri þegar önn-
ur bifreið kom á móti. Við það fipað-
ist ökumanninum og missti hann
stjórn á bifreiðinni.
borgarstjóri er hún var innt álits á
hugmyndum foiTáðamanna Vemd-
arsjóðs villtra laxastofna, að hætt
verði raforkuframleiðslu til að
vernda laxastofn ánna.
,Á-ður en þetta er ákveðið verða
menn því að hafa sæmilega sannfær-
ingu fyrir því að það sé lausn vand-
ans,“ sagði borgarstjóri ennfremur.
Hún segir úttektina ná til allra þátta
lífríkis Elliðaánna og að skoða mætti
þessar hugmyndir þegar niðurstöður
lægju fyrir. Borgarstjóri vakti at-
hygli á því að virkjunm hefði verið
við lýði frá árinu 1921 og að á því
tímabili hefði oft verið góð veiði og
mikil laxagengd en lfka lægðir.
„Það mætti nú segja mér að ýms-
ir aðrir umhverfisþættir gætu hafa
valdið meira álagi á ánum, til dæmis
fyllingar eins og Geirsnefið, jafnvel
smábátahöfn og ef til vill fleiri atriði
í Elliðaárósum. Þessi atriði gætu
hafa skipt verulegu máli.“
Borgarstjóri segir að yrði orku-
veitan lögð af yrði að koma til orka
frá Nesjavöllum í hennar stað og
slíkt myndi þýða nýja samninga við
Landsvirkjun. Yrði borgin að kaupa
orku sem gæti kostað 18 til 20 millj-
ónir króna.
Húsavík
■Sandvíkurheiði
Þverárfjall■
■Flókalundur'
Klettsháls ,
Kolgrafarfjörður-
Útnesjavegur J
Brattabrekka
'Arnarstapí
Þorlákí
höfn
VIÐBÓTARFJÁRVEITING TIL VEGAMÁLA
Auobjargarstaoabrekka
Tjörnes-]
Hamars
fjörður
Grindavík
Suðurstrandarvegur■
50 km
V egaframkvæmdir
í sex kjördæmum
SEX kjördæmi landsins, þ.e. öll
nema Reykjavík og Reykjanes, fá
aukna fjárveitingu til vegafram-
kvæmda í ár og næstu þrjú árin.
Ríkisstjórnin ákvað alls tveggja
milljarða króna fjárveitingu til að
flýta framkvæmdum á nokkrum
stöðum og hafa þingmenn kjör-
dæmanna að mestu lokið í'áðstöfun
fjárins.
Meðfylgjandi kort sýnir hvaða
framkvæmdir eru ákveðnar fyrir
þessa viðbótarfjárveitingu. í
nokkrum kjördæmum hefur ekki
verið ráðstafað öllu fénu og því ekki
allt upp talið. í flestum tilvikum er
um að ræða endurbætur á vegarköfl-
um, víða er lagt bundið slitlag á veg-
arkafla og í einstaka tilviki þarf að
byggja nýjar biýr. Meðal nýrra vegfa
sem hugað verður að er svonefndur
Suðurstrandarvegur, þ.e. uppbygg-
ing heilsái-svegar milli Þorlákshafn-
ar og Grindavíkur.