Morgunblaðið - 07.04.1999, Side 30
30 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÁRÁS NATÓ Á JÚGÓSLAVÍU
Reuters
HITAVEITA í yngsta borgarhluta Belgrad í ljósum logum eftir loft-
árásir NATO á sunnudagsmorgun.
Hörðustu
árásimar
til þessa
Slæm veðurskilyrði voru „helsti
óvinurinn“ yfír páskahelgina
ARASIRNAR
Brussel, London. Reuters, DaiJy Telegraph.
TALSMENN Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO) sögðu í gær að betri
veðurskilyrði þrettándu nótt loft-
árása NATO-hersins á hernaðarlega
mikilvæg skotmörk í Júgóslavíu,
hefðu gert NATO kleift að fram-
kvæma hörðustu hrinu árása hingað
til. Slæmt veður hafði að mestu
komið í veg fyrir umfangsmiklar
árásir yfir páskahelgina. A frétta-
mannafundi í Brussel í gær sagði
David Wilby flugliðsforingi að flug-
skeyti frá herskipum á Adríahafi og
sprengjur orrustuþotna hefðu hæft
vegi, biýr, olíustöðvar og herstjórn-
arstöðvar. Væri markmiðið að
stöðva liðs- og hergagnaflutninga
Júgóslavíuhers til Kosovo-héraðs.
Staðfesti hann einnig að fyrir tveim-
ur dögum síðan hefði NATO-herinn
grandað fjórum júgóslavneskum
MiG-oi-rustuþotum á jörðu niðri. í
viðtali við fréttastofu Reuters í gær
sagði háttsettur embættismaður hjá
NATO að fjórar árásarhrinur hafi
verið gerðar í fyrrinótt sem marki
mestu árásarhrinu frá upphafi loft-
árásanna, 24. mars sl.
Meðal skotmarka í gær var þjóð-
vegurinn á milli Belgrad, höfuðborg-
ar Júgóslavíu og Pristina, héraðshöf-
uðstaðai- Kosovo, herstjómarstöð í
borginni Nis í austurhluta landsins
og herskálar nærri Prizren í Kosovo.
Ai-ásimar komu á sama tíma og tals-
menn Bandaríkjastjórnar hétu því
að loftárásir NATO munu verða
„linnulausar og ósveigjanlegar“ uns
Slobodan Milsovevic Júgóslavíufor-
seti stöðvaði sókn Júgóslavíuhers í
Kosovo.
Serbneskar sjónvarpsstöðvar
sögðu að almennir borgarar hefðu
látist í árásum gærdagsins í borginni
Aleksinac, í suðurhluta landsins, og
að flugskeyti hefðu hæft íbúðabyggð
í miðju borgarinnar. Ekki var unnt
að staðfesta fréttimar en heimilda-
menn á staðnum sögðu að fimm
hefðu látist og þrjátíu hefðu særst.
Júgóslavneska Ta/y'ug-fréttastofan
og ríkisreknar fréttastöðvar í Serbíu
sögðu ennfremur að ráðist hefði ver-
ið á olíuhreinsistöð í borginni Novi
Sad, auk skotmarka í fimm öðrum
serbneskum borgum.
George Robertson, vamarmála-
ráðherra Bretlands, sagði á frétta-
mannafundi í gær að alltaf væri
hætta á mannfalli í árásum sem
þessum. „Ef satt reynist, hörmum
við það að sjálfsögðu, en líkt og við
höfum alltaf sagt þá mun óhjá-
kvæmilega verða mannfall í hemað-
araðgerðum sem eru svo umfangs-
miklar og flóknar," sagði Robertson.
Veður kom í veg fyrir
umfangsmiklar árásir
Árásir hafa magnast eftir að B01
Clinton Bandaríkjaforseti varaði
stjómvöld í Belgrad við því um helg-
ina að loftárásir NATO myndu
aukast. Sagði hann Milosevic forseta
verða að gera sér grein fyrir að ekki
væri lengur nægjanlegt að hætta
óhæfuverkum gegn Kosovo-Albön-
BRÚIN yfir Dóná við borgina Novi Sad í norðurhluta Júgóslavíu
var eyðilögð í loftárásum á sunnudag. Borgarbúar eru nú án
drykkjarvatns þar sem vatnsleiðslur lágu um brúna.
APACHE ARASARÞYRLAN
Bandaríkjaher hefur flutt Apache-
árásarþyriur og 2,000 manna auka-
herlið til Albaníu með það að markmiði
að ráðast með skiivirkari hætti gegn
serbneskum hersveitum í Kosovo.
AH-64D Apache
Þyrlan er hönnuð fyrir árásir á skotmörk á landi.
Er hún búin sérstökum vopnum til að granda
skriðdrekum, flóknu ratsjárkerfi og náttflugsbúnaði.
Sérbúnaður
Apache-árásarþyrlan getur flogið i a.m.k. 30 mínútur eftir að hafa orðiö fyrir skotárás af
jörðu niðri. Tveggja manna flugstjórnarklefinn er þakinn skotheldu efni.
Hljóðdeyfir Leysistýrt vamarkerf Innrauður varnarbúnaður
Búnaðursem miðar
út skotmörk
76 eldflaugar, notaðará skotmörk á jörðu niðii
16 Hellfire leysistýrð flugskeyti
Flugskeyti sem hægt erað nota á skotmörk á lofti
Heimild: Jane's Defence Group
um. „Pað er algerlega ótækt að hafa
Kosovo-hérað svipt frelsi og án
íbúa,“ sagði Clinton og bætti við:
„Markmið okkar er að halda ótrauðir
áfram uns sigur næst.“
Óhagstætt veður- og skýjafar kom
í veg fyrir að NATO gæti haldið uppi
fullum loftárásum yfir páskahelgina.
Á sunnudag sagði Kenneth Bacon,
talsmaður varnarmálaráðuneytis
Bandaríkjanna, að „höfuðóvinur"
NATO um helgina hefði verið slæmt
veður. Erfitt hefði reynst að ná góð-
um gervihnattamyndum af óhæfu-
verkum þeim sem her Júgóslava var
sakaður um að fremja í Kosovo.
Hefði það ennfremur hamlað NATO
í að miða út þær her- og öryggislög-
reglusveitir í Kosovo sem ábyrgar
hefðu verið fyrir slíkum aðgerðum.
Sagði Bacon um helgina að einu sjá-
anlegu merki óhæfuverkanna væri
hinn gríðarlegi flóttamannastraumur
út úr héraðinu til nærliggjandi ríkja.
Hið slæma veðurfar og aukin var-
kárni serbneski-a hersveita í Kosovo
hafa gert það að verkum að flugsveit
níu breskra Harrier GR7-orrustu-
þotna sem staðsett er á Gioia del
Colle-herílugvellinum á Italíu hefur
hvorki getað staðsett né hafið árásir
á serbneskar hersveitir. Sir Ian Gar-
nett, aðmíráll í breska hemum og yf-
irstjórnandi aðgerða af hans hálfu,
upplýsti í gær að Harrier-vélar hafi
á mánudag farið í tvær leitarferðir
yfir Kosovo, án árangurs. Var það
áttunda daginn í röð sem flugsveit-
inni hafði mistekist að gera árás á
skotmörk sín.
Reuters
Garnett sagði að allt benti til að
Serbar hafi áttað sig á að betri veð-
urskilyrði gefi NATO-hernum aukin
tækifæri, og að þess vegna leggi þeir
mikið á sig tO að fela hergögn og
annað sem komið gæti upp um þá.
Talið er að það auki enn á vandann
að Júgóslavíuher hafi komið fyrir
mikilvægustu hergögnum sínum í
þorpum Albana í Kosovo sem geri
NATO erfiðara fyrir í árásum sínum,
vegna hættunnar á að fella saklausa
borgara. í viðtali við Daily Tel-
egraph sagði Travers Smith, höfuðs-
maður í breska flughemum, að telja
mætti líklegt að serbnesku hersveit-
irnar flyttu sig á milli staða í dimmu.
Þar sem Harrier-vélarnar væm
hannaðar með lágflug og árásir á
skotmörk á landi í huga, þá sé ljóst
að Serbar væru mjög varir um sig.
Árásir á olíugeymslur auka
skilvirkni aðgerða
I frétt Daily Telegraph í gær segir
að fregnir um að NATO hafi aukið
áherslu á árásir á olíugeymslur
Serba, gefi til kynna að loftárásir
NATO kunni loks að skila árangri.
Með því að eyða olíubirgðum Serba,
sem eru algerlega háðir innflutningi
á olíu, og koma í veg fyrir að aðföng
berist til hersveita Serba, geti
NATO náð tvíþættu markmiði sínu.
Annars végar geti olíuskortur í land-
inu orðið til þess að almenningsálitið
í Júgóslavíu snúist gegn Milosevic.
Hins vegar geti slíkar árásir tak-
markað möguleika Júgóslavíuhers til
liðsflutninga innan Júgóslavíu og til
Kosovo. Fyrirsjáanlegur olíuskortur
muni hugsanlega verða til að Milos-
evic leiti leiða til að semja við
NATO-ríkin um vopnahlé. Hann
muni gera sér grein fyrir því að þess
sé ekki langt að bíða uns Júgóslavíu-
her verði gert illmögulegt að flytja
þungavopn sín.
Bandaríska varnarmálaráðuneytið
tUkynnti á sunnudag að NATO muni
standa aukinn vopnakostur til boða.
Kenneth Bacon sagði að bandarískar
Apache-árásai’þyrlur yrðu fluttar tU
Albaníu frá Þýskalandi. „Þyi’lurnar
gefa okkur færi á aukinni nákvæmni
aðgerða - í öllum veðurskilyrðum,
dag sem nótt - við að uppræta þau
vopn sem júgóslavneski herinn notai’
í Kosovo," sagði Bacon.
Hermt að helstu bandarísku herforingjarnir hafí lagst gegn afskiptum af Kosovo
AGREININGUR
Samstaða sögð að
eins á yfírborði
Kosovo-vef-
ur á mbl.is
FREKARI upplýsingar um
stríðsátökin í Júgóslavíu er að
finna á Kosovo-vef Fréttavefjar
Morgunblaðsins, http://www.
mbl.is. Þai’ hefur verið safnað
saman fréttum og fréttaskýr-
ingum sem birst hafa í Morgun-
blaðinu og á Fréttavefnum um
Kosovo-deiluna undanfai-ið ár.
Þar er m.a. að fínna kort af
átakasvæðinu og ýmsar gagn-
legar netslóðir, þ.á.m. slóð inn á
heimasíðu Atlantsháfsbanda-
lagsins (NATO) þar sem birtur
er daglega orðréttur texti af
blaðamannafundum í höfuð-
stöðvum bandalagsins.
VVashington. Tlie Daily Telegraph.
TALSMENN Bandaríkjastjórnar
neituðu því í fyrradag, að hún hefði
haft að engu viðvaranir háttsettra
hershöfðingja er hún ákvað að hefja
loftárásir á Júgóslavíu. Því er þó
haldið fram í Washington Post, að á
leynilegum fundi í síðasta mánuði
hafi þeir lagt áherslu á, að Bill Clint-
on forseti myndi ekki ná markmiðum
sínum með loftárásum einum.
I Bandaríkjunum og innan NATO
ríkir augljós ágreiningur um hemað-
araðgerðirnar þótt reynt sé að láta
líta út fyrir, að samstaðan sé alger.
Er meðal annars deilt um sjálft
markmiðið, um skotmörkin og
Slobodan Milosevic, um landhernað
og um það hver skuli eiga síðasta
orðið. Bandan'skir ráðherrar eru oft
spurðir óþægilegi’a spuminga, sem
lýsa fyrst og fremst vantrú á aðgerð-
unum, og það var einmitt þess konar
vantrú, sem sneri Bandaríkjamönn-
um gegn Víetnam-stríðinu á sinum
tíma. Raunar er vaxandi stuðningur
við stríðið gegn Milosevic í Banda-
ríkjunum en margir efast hins vegar
um aðferðirnar. Sem dæmi um það
má nefna, að í nýrri könnun tímarits-
ins Newsweek eru 55% hlynnt land-
hernaði en 44% telja, að loftárásim-
ar hafi gert ástandið í Kosovo enn
verra.
Höfnuðu „dómínó-
kenningu" Albright
Að sögn Washington Post lögðust
helstu herforingjamir gegn afskipt-
um af Kosovo-deilunni og þeir voru
ekki sammála „dómínókenningu“
Madeleine Albrights utanríkisráð-
herra, sem heldur því fram, að verði
Kosovo látið afskiptalaust, muni það
leiða til miklu meiii átaka á
Balkanskaga. Þeir féllust þó á loft-
árásirnar að lokum enda hefðu þeir
að öðram kosti orðið að segja af sér.
Mikill ágreiningur er líka um
hugsanlega beitingu landhers. Al-
bright hefur talað um, að senda megi
fótgöngulið til Kosovo þegar aðstæð-
ur era „hagstæðar" en William
Cohen vai’narmálaráðherra segir
aftur á móti, að engin breyting hafi
orðið á afstöðu stjórnarinnar í því
efni. Hún er, að landher verði aðeins
sendur þangað sem gæslulið.
Nefna má líka, að Albright og
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, hafa talað um, að hugsanlega
verði að koma Milosevic frá með
valdi en enginn talsmaður hinna ríkj-
anna 17 hefur nefnt það.
1
:
I
|
I
i