Morgunblaðið - 07.04.1999, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 57
(JMRÆÐAN
A-dagar
DAGANA 8.-10.
apríl stendur Arki-
tektafélag íslands fyr-
ir fræðsluátaki undir
yfírskriftinni „Góð
hönnun borgar sig“.
Tilgangurinn með
framtakinu er að
kynna almenningi
góða byggingarlist og
einnig að veita innsæi í
menntun og starfssvið
arkitekta.
Alla dagana munu
arkitektar vera með
kynningu í Kringlunni
og sýna skyggnur af
völdum byggingum og
þar mun nýr kynning-
arbæklingur Arkitektafélagsins
liggja frammi. Föstudaginn 9. apríl
kl. 20 mun Jórunn Ragnarsdóttir
arkitekt halda fyrirlestur í Nor-
ræna húsinu en hún rekur ásamt
manni sínum, Arno Leder, teikni-
stofu í Þýskalandi. Laugardaginn
10. apríl lýkur átakinu með um-
ræðum í Naustkjallaranum. A und-
an umræðunum verða flutt stutt
framsöguerindi. Leitað verður
svara við spurningunni: Hvernig
búum við á næstu öld?
Einnig verða birtar nokkrar
greinar í dagblöðum í tengslum við
A-daga.
I margra hugum er arkitekta-
stéttin ung stétt hér á landi en þó
eru liðin rúm 70 frá stofnun fyrsta
fagfélags þeirra er eingöngu sinntu
hönnun og meira en 200 ár liðin frá
því að fyrsti Islendingurinn, Olafur
Olafsson frá Þverá í Blönduhlíð,
lauk námi í arkitektúr. Ólafur lauk
námi frá Det Kongelige Akademi
for de Skönne Kunster árið 1782.
Hann starfaði þó aldrei hér á landi
heldur fluttist hann til Noregs og
starfaði þar lengst af sem uppboðs-
haldari á Kóngsbergi. Hann virðist
lítið hafa sinnt byggingarlistinni en
þó er talið að hann hafi haft mikil
áhrif á útbreiðslu klassísks arki-
tektúrs í Noregi. Yfir 130 ár liðu
frá því að Ólafur lauk prófi þar til
Guðjón Samúelsson næstur ís-
lenskra arkitekta útskrifaðist frá
konunglegu akademíunni en til
þess skóla sóttu flestir íslenskir
arkitektar menntun sína fram yfir
síðari heimsstyrjöld.
Á íslandi hefur aldrei verið rek-
inn arkitektaskóli og þvi eru allir
ai'kitektar menntaðir erlendis.
Arkitektanám er fjögurra til sex
ára háskólanám sem lýkur með
prófgráðu. Námið tekur jafnt til
bóklegra og verklegra þátta bygg-
ingarlistarnámsins og skal það
tryggja að viðkomandi öðlist hæfni
og þekkingu á sviði byggingarlistar
sem fullnægi bæði fagurfræðileg-
um og tæknilegum kröfum. Skiln-
ing á mikilvægi þess
að laga byggingar að
þörfum manna og taka
tillit til umhverfisins.
Arkitekt skal hafa full-
nægjandi þekkingu á
efnis- og tæknilegri
útfærslu bygginga og
hafa skilmng á burðar-
þoli og verkfræðiút-
reikningum. Arkitekt
skal hafa fullnægjandi
þekkingu á skipulagi
og áætlunargerð.
Starfsheitið arkitekt
er lögverndað, sem
Guðmundur merkir að hver sá sem
Gunnarsson kallar sig arkitekt
verður að hafa til þess
heimild iðnaðarráðuneytis. Einung-
is þeir sem eru með prófgráðu frá
viðurkenndum arkitektaskóla fá
heimild til að nota starfsheitið.
Fræðsluátak
Tilgangurinn er að
kynna almenningi góða
byggingarlist, segir
Guðmundur Gunnars-
son, og að veita inn-
sæi í menntun og
starfsvið arkitekta.
Fullgildir félagar í Arkitektafélagi
íslands nota skammstöfunina FAÍ
aftan við starfsheiti sitt.
Arkitektar hafa um áratugaskeið
lagt áherslu á að koma á menntun í
arkitektúr hér á landi og árið 1994
stofnaði Arkitektafélagið íslenska
arkitektaskólann, ísark, og er
meginmarkmið með stofnun hans
að móta kennslu í byggingarlist, er
taki mið af íslenskum aðstæðum
með ríkri áherslu á samfélagslega
og umhverfislega vitund, faglegan
metnað og listræna hugsun. Að
þessum málum hefur verið unnið
síðan og nú hillir undir að innan
fárra missera verði komið á fót
fullgildri kennslu í arkitektúr á Is-
landi. Við stofnun skóla skapast
vettvangur fyrir fræðilegar rann-
sóknir í arkitektúr sem byggja á
þekkingu á íslenskum aðstæðum. í
skólanum myndi byggingarlistar-
saga okkar eignast fastan sama-
stað og opinber umi-æða um bygg-
ingarlist og skipulagsmál verða
markvissari.
Fjárfesting í húsnæði er oftast
stærsta fjárhagslega skuldbinding-
in sem fólk stofnar til á ævinni og
því er rétt að vanda vel til alls und-
irbúnings og framkvæmdar. Mikil-
vægt er að húsið sé hagkvæmt í
byggingu og rekstri en það er best
tryggt með því að leita til fag-
manna.
Arkitektar í Arkitektafélagi ís-
lands bjóða alla velkomna á A-daga
‘99.
Iíöfundur er fomiaður
Arkitektafélags Islands.
IMECALUX
Fákafeni 9 Reykjavík
Sími 568 2866
Gott hillukerfi tryggir hámarks nýtingu á
plássi hvort sem er í bilskúr eða vörugeymslu.
Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi sem
henta þínum þörfum.
Mjög gott verð!
Lyftitæki og trillur færðu einnig hjá okkur.
LaQierlaiisnii* ern ukk.ir sérgrein
MECALUX
- gæði fýrir gott verð
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN _ m
S£raumur &hf
SUNDABORG I • SlMI 568-3300
Tölvuþjálfun
Windows • Word
Internet • Excel
Það er aldrei of seint að byrja!
60 stunda námskeiö þar sem þátttakendur
kynnast grundvallarþáttum tölvuvinnslu
og fá hagnýta þjálfun.
Vönduð kennslubók innifalin í verði.
Innritun stendur yfir.
í* Fjárfestu í framtíðinni!
H Tölvuskóli íslands
BÍLDSHÖFÐI 18, SÍMI 5671466
s *
auðveldar þér vinnuna
1. Helmingi styttri strautími
2. Loftsog í strauborði
3. Fer vel með viðkvæmt efni
4. Með aukabúnaði breytir þú
tækinu í gufuhreinsitæki
0 RAFVERHF
SKEIFUNNI 3E-F ■ 128 REYKJAVÍK
SÍMI 581 2333 ■ FAX 568 0215
1 i
Dilbert á Netinu {m> mbl.is ALLTAf= EITTH\SA£> NÝn
1969-1999
30 ára reynsla
Eldvarnargler
GLERVERKSMIÐJAN
Sanivei<k
Eyjasandur 2 • 850 Hella
« 487 5888 • Fax 487 5907
SIÐUSTU DAGAR
RÝMINGARSÖLUNNAR
afsláttur af öllum vörum
**Sb»^Ö
20-70% afsláttur af öllum vörunrT^^^^.
Við lokum á Nýbýlavegi og i Ármúla frá og ^
með 12. apríl.
Opnum nýja, glæsilega verslun í Bæjarlind 6,
17. apríl.
<
►
Nýbýlavegi 30, (Dalbrekkumegin), sími 554 6300.
Ármúla 7, sími 553 6540. Netfang: www.mira.is