Morgunblaðið - 07.04.1999, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 69
og hófu sinn búskap. Ég bjó þá ung-
lingur í foreldrahúsum vestur í
Stykkishólmi. Þorleifur og Stella
komu þangað vestur í stutta heim-
sókn.
Mér er enn minnistætt þegar
þessi hávaxni og rauðbirkni maður
birtist á tröppunum heima á sólrík-
um og fallegum degi. Mér var sagt
að' Þorleifur væri jarðfræðingur og
átti í fyrstu nokkuð erfítt með að
átta mig á hvað fælist í því hugtaki.
Það átti þó eftir að breytast með ár-
unum, því að Þorleifur hafði allt sitt
líf einstakt lag á því að vekja áhuga
fólks fyrir náttúruvísindum og nátt-
úruvernd en ekki síst jarðfræðinni,
þar sem fáir voru betur heima.
Ég minnist margra góðra stunda
heima hjá Stellu og Þorleifi á Lang-
holtsveginum, þar sem Þorleifur
sýndi okkur litskyggnur frá eld-
stöðvum, gróðurfari eða öðrum
furðuverkum náttúrunnar. Þetta
voru góðar stundir sem efldu mig og
marga fleiri til áhuga um þessi mál-
efni. Þá var oft glatt á hjalla þegar
fjölskyldan kom saman og ekki þá
síst þegar umræður um landsmálin
og stjórnmálabaráttunna bar á
góma. Þar var Þorleifur á heimavelli
og átti auðvelt með að kynda elda í
sálum viðkvæmra íhaldsmanna. Þor-
leifur var alla tíð trúr hugðarefnum
sínum, hvort heldur var rætt um
náttúruvernd eða stjórnmál, hann lét
sér reyndar fátt mannlegt óviðkom-
andi. Hann var sósíalisti fram í fíng-
urgómana og bar ætíð velferð þeirra
sem minna mega sín í þjóðfélaginu
fyrir brjósti. Hann gat og verið harð-
ur í horn að taka og gagnrýninn á
stjórnvöld mislíkaði honum gjörðir
þeirra. Lá hann þá sjaldnast á skoð-
unum sínum og mátti enda oft gjalda
hreinskilni sinnar. Þorleifur var af
fátæku fólki kominn og hafði frá
unga aldri þurft að leggja hart að sér
til að komast af í hörðum heimi.
Þannig byggðu þeir feðgar sjálfir
húsið við Langholtsveg af einstökum
dugnaði þrátt fyrir mikil vanefni.
Þar bjó Þorleifur allt til hinstu
stundar.
Þorleifur Einai’sson var tvímæla-
laust í hópi fremstu vísindamanna
þessarar þjóðar og verk hans og
bækur höfðu mótandi áhrif á öll við-
horf til jarðvísinda í Háskóla ís-
lands, þar sem hann um áratuga
skeið starfaði sem prófessor. Munu
kennslubækur hans um jarðfræði
enn vera í fullu gildi og víða vera
undirstaða kennslu í greininni.
Það er hinsvegar með Þorleif eins
og svo marga brautryðjendur að um
hann vora skiptar skoðanir en þar
sem verk hans bar hæst, þar vildu
margir Lilju kveðið hafa. Mér er
reyndar til efs að nokkur maður með
frjóa hugsun, framsýni og metnað
muni nokkurntíma verða óumdeOd-
ur. Þannig var einnig um Þorleif
Einarsson.
Þau Þorleifur og Stella eignuðust
4 myndarleg börn, sem öll hafa fetað
í fótspor foreldra sinna og lagt að
baki mikið og metnaðarfullt nám.
Asta er þeiiTa elst og er jarðfræð-
ingur. Kristín er næst og stundar
nám í listum og landslagsarkitektúr.
Einai- er fugla-landafræðingur og
Björk er nemandi í sögu við Háskóla
Islands. Öll hafa þau fengið með
móðurmjólkinni óslökkvandi áhuga á
öllu því er viðkemur náttúru lands-
ins. Þeim áhuga var þeim úthlutað af
báðum foreldrum enda móðir þeirra
ekki síður en faðir, þekkt víða um
land fyrir áhuga sinn á ræktunartil-
raunum og náttúi-uvernd.
Þó að leiðir Stellu og Þorleifs ættu
eftir að skilja, hélst ævinlega full vin-
átta bæði þeirra í milli og fjölskyld-
unnar. Eftir 32 ára hjónaband stend-
ur eðlilega mikið eftir af minningum
og hlýjum tilfinningum. Stellu systur
minni votta ég því innilega samúð
mína.
Þorleifur var drengur góður sem
af vinum og vandamönnum mun
verða sárt saknað.
Frændsystkinum mínum þeim
Ástu, Kristínu, Einari og Björk
sendum ég og fjölskylda mín okkar
dýpstu samúðarkveðjur. Þeirra er
sorgin mest. Sambýliskonu hans
undanfai-in ár, Gudrúnu Bauer, votta
ég einnig dýpstu samúð mína, sem
og öðrum ættingjum og vinum.
Sverrir Ólafsson,
forstöðum. Listamið-
stöðvarinnar í Straumi.
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARGRÉT INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR
kaupkona,
Óðinsgötu 1,
Reykjavík,
sem lést á Vífilsstaðaspítala miðvikudaginn
31. mars sl., verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 8. apríl kl. 15.00.
Reynir Þorgrímsson, Rósa Gísladóttir,
Víðir P. Þorgrímsson, Jóhanna I. Haraldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARGRÉT JÓHANNESDÓTTIR,
Hrafnistu Hafnarfirði,
áður til heimilis á Hörpugötu 7,
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju
í Hafnarfirði föstudaginn 9. apríl kl. 13.30.
Sigurrós Jónsdóttir, Páll V. Jónsson,
Gunnlaugur Jónsson, Anna Soffía Óskarsdóttir,
Jóhannes Jónsson, Ingigerður Sigurðardóttir,
Magnús Jónsson, Sigrún Knútsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
SJAFNAR AÐALSTEINSDÓTTUR,
Búðargerði 8,
Reykjavík.
María Hrönn Halldórsdóttir, Árni Árnason,
Aðalsteinn Arnar Halldórsson, Helga Björnsdóttir,
Anna Halldóra Halldórsdóttir, Magnús Ó. Kristjánsson,
Þór Halldórsson, Helga V. Sigjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
KJARTANS Ó. KJARTANSSONAR
múrarameistara,
Stangarholti 3,
Reykjavík.
Kjartan Þór Kjartansson, Ásta Björk Friðbertsdóttir,
Jón Grétar Kjartansson, Guðmundur Kristinsson,
Kjartan Ægir Kjartansson,
Sandra Kjartansdóttir, Halldór Karl Þórisson,
Rósborg Halldórsdóttir.
+
Við þökkum innilega öllum þeim sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og
útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
BRAGA AGNARSSONAR,
Hæðargarði 33,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks lyflækninga-
deildar 6A Sjúkrahúss Reykjavíkur
Erling Aðalsteinsson, Ragnheiður Jónsdóttir,
Viggó Bragason, Hulda Lilliendahl,
Brynjar Örn Bragason, Jóhanna Kjartansdóttir,
Heiðar Þór Bragason,
Hilmar Bragason,
íris H. Bragadóttir, Gunnar Bernburg,
Agnes Bragadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum af alhug öllum þeim fjölmörgu sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför elskulegs sonar míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
HELGA GUÐMUNDAR INGÓLFSSONAR
sjómanns
frá Suðurvöllum,
Akranesi.
Soffía Guðmundsdóttir,
Guðmundur Helgi Helgason, Vordís Baldursdóttir,
Sigurður Helgi Helgason, Rakel Haraldsdóttir,
Harpa Helgadóttir, Bogi Kristinsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir mikinn hlýhug og vin-
semd vegna andláts og jarðarfarar
STEFÁNS SIGFÚSSONAR,
Vogum, I
Mývatnssveit.
Jóna Jakobína Jónsdóttir,
Jón Stefánsson, Ólöf Kolbrún Harðardóttir,
Steingerður Védís Stefánsdóttir, Halldór Torfason,
Jakob Stefánsson, Edda Stefánsdóttir,
Ólafur Þröstur Stefánsson, Gyða Björgvinsdóttir,
Sólveig Valgerður Stefánsdóttir, Jón Pétur Líndal.
+
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
GISSURAR JÓNSSONAR
frá Valadal.
Valdís Gissurardóttir,
Jón Gissurarson,
Friðrik Gissurarson,
Kristján Gissurarson,
Stefán Gissurarson,
tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
KRISTÍNAR SIGURBJARGAR
JÓHANNSDÓTTUR
frá Steinnesi á Hauganesi.
Guð þlessi ykkur öll.
Sveinbjörn Jóhannsson,
Þorgerður Sveinbjörnsdóttir, Hjörleifur Jóhannsson,
Hanna Sveinbjörnsdóttir, Halldór Þórðarson,
Birgir Sveinbjörnsson, Rósbjörg Jónasdóttir,
Gunnþór Sveinbjörnsson, Ásgerður Harðardóttir,
Jónína Sveinbjörnsdóttir, Óskar Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega ölium þeim sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför
GUÐRÚNAR FRIÐFINNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Elli- og hjúkr-
unarheimilinu Grund.
Guðrún Guðlaugsdóttir,
Guðbjörg Magnúsdóttir,
Magnús Vilhjálmsson,
Árni Larsson.