Morgunblaðið - 07.04.1999, Side 75
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 75
BRÉF TIL BLAÐSINS
BÍLBELTI geta bjargað mannslífum sem og komið í veg fyrir alvar-
lega áverka í andliti. Við árekstur á 50 kílómetra hraða kastast 75 kg
farþegi í framsæti með 3 tonna þunga í framrúðuna.
Við erum
einstök -
notum
beltin
Frá nemendum ökuskóla Sjóvár-
Almennra:
ÞEGAR við hugsum um kosti bíl-
beltanotkunar þá leiðum við hug-
ann ósjálfrátt að því hvað þau geta
gert fyrir okkur sjálf. Það er hins
vegar svo að í raun gera þau meira
fyrir aðra. Þjáningar ættingja og
vina sem missa ástvini í bílslysum
eru oft óbærilegar og þá er kostn-
aður þjóðfélagsins ekki síður gíf-
urlegur. Að auki geta þeir sem
ekki nota bílbelti slasað aðra far-
þega, þegar sá sem situr í aftur-
sæti bifreiðar kastast af miklu afli
á framsætið við árekstur.
Ábyrgð ökumanns er líka mikil.
Þegar sest er undir stýri þá á ekki
að þurfa að minna aðra á að
spenna beltin. Við erum hins vegar
öll mannleg og því getur reynst
lífsnauðsynlegt að aka ekki af stað
fyrr en allir eni spenntir. Þar get-
um við sem framtíðarökumenn
verið öðrum til fyrirmyndar með
því að minna á þetta mikilvæga ör-
yggistæki.
011 viljum við ná langt í framtíð-
inni og eiga hamingjusamt líf fram
undan. Við vitum hins vegar að þó
svo að við treystum okkur sjálfum
til að fara eftir umferðarreglum þá
eru til aðrir sem brjóta þær. Þess-
um aðilum viljum við benda á að líf
okkar allra getur legið við þegar
slíkt er gert. Því segjum við: För-
um að umferðarreglum og spenn-
um beltin því öll erum við einstök.
Fyrir hönd ökunemenda febrú-
armánaðar,
EINAR GUÐMUNDSSON,
foi'varnafulltrúi Sjóvár-Almennra
trygginga hf.
Þekkingarótti
Frá Jóni Hafsteini Jónssyni:
OFT UNDRAÐIST ég yfir þeirri
andúð á ástundun erfðavísinda,
sem birtist svo oft í blaðskrifum
margra mætra manna á sl. ári.
Nú finnst mér gengið enn lengra
og ósæmilegar til verks, þegar
skorað er á fólk að leggja stein í
götu vísindarannsókna, sem færa
eiga mannkyninu aukinn skilning
á lífríkinu og eigin tilverulögmál-
um.
Hvað gengur þessum sjálfum-
glöðu siðmenningarpostulum til
með því að skera upp herör gegn
þekkingaröflun vísindamanna og
reyna að skapa hjá fólki ótta við að
vitneskja um erfðamengi þess
verði notuð til að valda því skaða
eða gera því hneisu? Hvaða veilur
skyldu það vera í erfðamengi ein-
staklings, sem æskilegt er að fela
fyrir heilbrigðisstofnunum, og hon-
um sjálfum? Hvaða erfðaþættir
skyldu það vera, sem okkur væri
best að skilja ekki og vita ekkert
um?
Ekki er þörf að telja upp þann
ávinning, sem erfðarannsóknir hafa
haft og geta haft. Til þess eru dæm-
in of mörg, augljós og auðskilin.
Hitt er torskildara, hver hættan er.
Hvaða ástæða er til að óttast að
aukin þekking geti valdið slíkum
skaða að rétt sé að leggja stein í
götu erfðarannsókna, og hræða fólk
til að leyna fyrir vísindamönnum
verðmætri vitneskju um sjúkra-
sögu og arfgerð sína og ættar sinn-
ar? Hinar hávæni áskoranir um
þátttöku í hópaðgerð til að hefta
þekkingaröflun era ósæmilegar og
minna helst á fordóma kirkjunnar
gagnvart nútímavísindum á upp-
hafsskeiði þeirra. Þessi herferð er
ekki samboðin fólki, sem tilheyrir
virtum háskólasamfélögum.
JÓN HAFSTEINN JÓNSSON,
fyrrv. menntaskólakennari,
Stangarholti 7, Reykjavík.
PMALvrm
ÞÓR HF
Reykjavík - Akureyri
Reykjavík: Ármúla 11 - sími 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - sími 461-1070
Aðsendar greinar á Netinu
mbl.is
_A.LLT/Lf= eiTTHLSAÐ NÝTT
Rocio os Barbara frá Venesúela að skoða lömb í Bjarnarhöfn
Vill fjölskylda þín opna heimili
sitt fyrir nýrri menninsu 03 sefa
erlendum unglingi tækifæri
á að kynnast íslenskri menningu?
Ennþá er möguleiki á ársdvöl í
Þýskalandi eða Tékklandi og
sumardvöl í Kanada.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl.
AFS á íslandi
Ingólfsstræti 3, 2. hæö
sími 552 5450
www.itn.is/afs
NY VERSLUN
Sigurstjarnan
Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin)
Stórt
h. 201 sm
b. 61.5sm
d. 35sm
Frá Pakistan:
Handunnin húsgögn,
ekta pelsar, leðurfatnaður,
ullarmottur og ýmsar gjafavörur
Opið virka daga frá kl. 12-18 og laugard. frá kl. 11-14.
MORE & MORE
I gær var opnuð More & More verslun í Glæsibæ, með
spennandi kvenfatnað í st. 36-44 fyrir konur 6 öllum aldri.
Sími 588 8050
-------------OPNUNARTILBOÐ-------------
ráð
Fjölskyldan: Hornsteinn eða hornreka
Fjölskylduráð heldur ráðstefnu fimmtudaginn 8. apríl nk. í
Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6. Ráðstefnan hefst stundvíslega
kl. 13.00 og stendur til kl. 17.00. Ráðstefnan er öllum opin og
aðgangur ókeypis.
Ráðstefnustjóri verður Dögg Pálsdóttir, hrl., og ritari verður
Áslaug Friðriksdóttir, starfsmaður Fjölskylduráðs.
Dagskrá
Kl. 13.00 Setning ráðstefnunnar, formaður Fjölskylduráðs Drífa
Sigfúsdóttir.
Ávarp félagsmálaráðherra Páls Péturssonar.
Kl. 13.15 Stuðningur við foreldra
Væntingar foreldra.
Jónína Bjartmarz, formaður Heimilis og skóla.
Stuðningur ríkisvaldsins.
Ragnheiður Árnadóttir, aðstoðarmaður
fjármálaráðherra.
Stuðningur sveitarfélaganna.
Rannveig Einarsdóttir, yfirfélagsráðgjafi Reykjanesbæjar.
Foreldrar og atvinnurekendur.
Þórólfur Árnason, forstjóri Tals.
Fyrirspurnir.
Kl. 14.15 Undirbúningur og stuðningur fyrir foreldrahlutverk
Rannsóknir - yfirlit.
Inga Dóra Sigfúsdóttir, félagsfræðingur.
Mikilvægi fjölskylduráðgjafar og forvarnarstarfs i
heilsugæslu.
Anna Karólína Stefánsdóttir, fjölskylduráðgjafi
heilsugæslunnar á Akureyri.
Fyrirspurnir.
Kaffi
Kl. 15.20 Foreldrar á vinnumarkaði
Er fjölskyldan í upplausn - eða á þröskuldi nýrra tíma?
Þorgerður Einarsdóttir, félagsfræðingur.
Launafólk og fjölskyldan.
Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar.
Fæðingarorlof og jafnrétti.
Ólafur Stephensen, formaður karlanefndar
Jafnréttisráðs.
Fyrirspurnir.
Kl. 16.10 Fulltrúar stjórnmálaflokkanna gera grein fyrir áherslum í
fjölskyldumálum
Framsóknarflokkurinn • Finnur Ingólfsson
Vinstra grænt framboð • Kolbrún Halldórsdóttir
Samfylkingin • Bryndís Hlöðversdóttir
Sjálfstæðisflokkurinn • Arnbjörg Sveinsdóttir
Fyrirspurnir.
Kl. 17.00 Ráðstefnuslit, formaður Fjölskylduráðs Drífa Sigfúsdóttir.
Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis
Dilbert á Netinu ^ítj^\ mbl.is
1 ALLTAf= e/TTH\SAT> A/YT7 j