Morgunblaðið - 17.04.1999, Blaðsíða 30
ERLENT
arcff- rgvriroíTOT'/
MORGUNBLAÐIÐ
.... ú‘,i<T/ 'r nri:)í,fi;;/pTi/ i
80 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999
Hugmyndasamkeppni um nýtt
alþjóðlegt nafn íslandsflugs
Hefurðu hugmynd að nafni íslandsflugs erlendis? Skrifaðu það
niður, sendu okkur í bréfi eða farðu inn á heimasíðuna okkar,
www.islandsflug.is. Mundu að þú getur sent fleiri en eitt nafn.
Nafnið þarf að vera á ensku (eða vera alþjóðlegt) og auðvelt
í framburði. Þátttökumiðar í ieiknum fást á afgreiðslustöðvum
íslandsflugs og Olís um land allt og líka í Kringlunni. Þar er
einnig hægt að skila þeim.
T^i^iTvinningar í boör.
1. n-taíttwps
Boeing^ þotu "íslandsnugs 6 ve9um
Sanlvinnufcrða/Landsýnar.
2 Dagsferð til Grœnlands.
3-10.
Síðasti skiladagur
hugmynda er 1. maí.
íslandsflugs
innanlánds.
ŒLANDSFLUG
g&rír fte&vm faert að ffjúga
ÍSLANOSFLUG, RE YK J AV f KU RFLUGVELLI • www.lslandsflug.ls
UPPLÝSINGAR 0 G BÓKANIR: SfMI 570 B090 • FAX 570 8091
Veður og færð á Netinu d^mbl.is
ALC7?\f= eyrwi^iö /vrn—
Miniii lfkur á stjórnarkreppu á Indlandi
Stjórnin styrk-
ir stöðu sína
Nýju Delhí. Reuters.
STJÓRNARFLOKKARNIR á Ind-
landi styrktu stöðu sína í gær þegar
fyrrverandi samstarfsflokkur þeirra
lofaði að styðja þá í atkvæðagreiðslu,
sem fram fer á þinginu í dag og gæti
orðið minnihlutastjóminni að falli.
Talað var að stjórnina vantaði aðeins
eitt atkvæði til að halda velli.
Gengi indverskra verðbréfa
hækkaði verulega í gær þar sem
auknar líkur voru taldar á að stjórn-
arandstöðunni myndi ekki takast að
fella stjóm Atals Beharis Vajpa-
yees, sem hefur verið við völd í
þrettán mánuði.
Flokkurinn Lok Dal, sem er með
fjóra þingmenn, snerist á sveif með
stjóminni á síðustu stundu. „Sú
ákvörðun okkar að styðja stjórnina
er án skilyrða,“ sagði Om Prakash
Chautala, leiðtogi fiokksins. „Við
ætlum að gefa stjóminni annað
tækifæri í von um að hún verði við
kröfum bænda.“
Lok Dal hætti stuðningi sínum
við stjómina í febrúar tU að mót-
mæla þeirri ákvörðun hennar að
hækka verð á áburði.
Stjórninni spáð sigri
Forystumenn Bharatiya Janata,
flokks forsætisráðherrans, fögnuðu
ákvörðun Lok Dal. „Við fömm með
sigur af hólmi í atkvæðagreiðsl-
unni,“ sagði talsmaður flokksins.
„Við höfum fengið þann stuðning
sem við væntum. Við eram ánægðir.
Við höfum alltaf verið vinsamlegir
bændum.“
Stærsti stjórnarandstöðuflokkur-
inn, Kongress, spáði því hins vegar
að stjóminni tækist ekki að tryggja
sér meirihluta atkvæðanna. „Eg tel
enn að stjómin haldi ekki velh,“
sagði SushU Kumar Shinde, fram-
kvæmdastjóri flokksins.
Forseti Indlands óskaði eftir at-
kvæðagreiðslu um að þingið lýsti yf-
ir trausti á stjórninni eftir að einn
stjómarflokkanna, ALADMK, gekk
til hðs við stjórnarandstöðuna á
miðvikudag.
Leiðtogar ESB á fundi með Romano Prodi
Þungavigtarmenn
skipist í fram-
k væmdastj órnina
Brussel. Reuters.
LEIÐTOGAR
Evrópusam-
bandsríkjanna
fimmtán lýstu því
yfír á miðviku-
dagskvöld, að
þeir vUdu sjá
nýja fram-
kvæmdastjóm
sambandsins skipaða í ágúst nk., og
þeir vonuðust tíl að hinir nýju með-
limir hennar, sem taka munu við af
framkvæmdastjóm Jacques Santers
sem sagði af sér vegna spillingar-
mála, verði þungavigtarmenn sem
séu færir um að gera þessa lykilstofn-
un ESB sterkari, skUvirkari og nær
borgurunum en nokkra sinni fyrr.
Leiðtogamir, sem sátu vinnu-
kvöldverð með Romano Prodi, fyrr-
verandi forsætisráðherra ítahu sem
útnefndur hefur verið arftaki
Santers, vora hins vegar ekki tilbún-
ir tU að nefna nein nöfn að svo
komnu máli.
Gerhard Schröder, kanzlari
Þýzkalands, sem var gestgjafi
kvöldverðarfundarins, sagði leiðtog-
ana vilja að í framkvæmdastjórnina
veljist í hæsta máta ráðvandir
menn, með mikla þekkingu og
reynslu af stjórn- og efnahagsmál-
um. „Það er mikUvægara en flokks-
skírteini eða hvaðeina annað,“
tjáði hann blaða-
mönnum.
Santer skiptir
um stól
Framkvæmda-
stjóm Santers
situr enn í emb-
ætti tíl bráða-
birgða unz ný hefúr verið skipuð. En
þrátt fyrir að Ijóst þyki að „gamla“
framkvæmdastjómin sitji fram á síð-
sumar segist Santer ekki sjá neitt að
því að hann verði kjörinn á Evrópu-
þingið í júní. Hann er í framboði fyrir
kristUega demókrata í heimalandi
sínu Lúxemborg.
Nýjar siðareglur framkvæmda-
stjómarinnar meina meðlimum
hennar að gegna fleiri opinberam
embættum samtímis eða að stunda
virka stjómmálaþátttöku (í heima-
löndum sínum eða annars staðar) tU
hliðar við skyldur sínar við hina yfir-
þjóðlegu fi-amkvæmdastjóm.
Hvorug þessara reglna á að sögn
talsmanns hans við í tUfelli Santers,
þar sem hann muni ekki gegna báð-
um embættum samtímis. Hann muni
ekki þurfa að fara fyrir fullt og allt
úr embætti forseta framkvæmda-
stjómarinnar fyrr en hann sezt inn á
Evrópuþingið, en ólíklegt er að það
verði fyrr en seint í júlímánuði.
Philippe Seguin
Upplausn meðal
hægrimanna
í Frakklandi
Formaður
RPR segir
af sér
París. Reulers.
PHILIPPE Seguin, formaður
RPR, flokks ný-gaulhsta í Frakk-
landi, sagði af sér embætti í gær.
Hann mun því ekki leiða framboðs-
hsta Ný-gaulhsta í kosningum til
Evrópuþingsins í júní nk. Seguin
vai’ í fararbroddi hreyfingarinnar
gegn Maastricht-samningnum fyr-
ir þjóðaratkvæðagreiðsluna um
samninginn í Frakklandi árið 1992.
Að sögn fréttaskýrenda naut
PhUippe Seguin sín aldrei í for-
ystuhlutverki fyrir franska hægri-
menn í kosningabaráttunni fyrir
Evrópuþingskosningamar. Honum
hafði mistekist að sameina hægri-
menn í stjórnarandstöðu að lokn-
um miklum ósigri þeirra í þing-
kosningunum í Frakklandi árið
1997. Tilraunir tU samfylkingar á
hægrivængnum rannu út í sandinn
nýverið þegar Lýðræðisbandalagið
og flokksbróðir Seguins, Charles
Pasqua, ákváðu að bjóða fram
gegn ný-gaulhstum í Evrópuþings-
kosningunum. Ekki bætti úr skák
að samskipti Seguins og Jacques
Chirac, forseta Frakklands, voru
stirð vegna ásakana Seguins í garð
forsetans um lítinn stuðning við
samfylkingu á hægrivængnum.
--------------------
Pilla fyrir
karla
London. Morgunblaðið
BREZKIR vísindamenn hafa til-
kynnt að þeir hafi komizt skrefi
nær því að framleiða getnaðar-
varnarpillu fyrir karlmenn. Reynd-
ar er ekki bara um pillu að ræða
heldur og plástur.
Það eru vísindamenn í
Manchester, sem hafa gert tilraun-
ir á körlum með notkun kvenhorm-
ónsins prógesterón í pillu og karl-
hormónsins testósterón í plástri á
handlegg. 23 karlar tóku þátt í til-
rauninni og var þeim skipt í þrjá
hópa, sem fengu mismikið magn
prógesteróns. Um 60% karlanna,
sem fengu mest magn og næstmest
sýndu engin merki um sæðisfram-
leiðslu eftir þrjá mánuði.
Uppfylli bíllinn ekki kröfur þínar og væntingar,
hefurðu möguleika ó að skipta honum yfir í annan