Morgunblaðið - 21.04.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999 13
FRETTIR
Landssamband fatlaðra
Spyr flokkana
um kjör öryrkja
MORGUNBLAÐINU hafa borist
eftirfarandi spumingar til stjórn-
málaflokkanna sem bjóða fram til
Alþingis og eru þær frá Sjálfs-
björgu, landssambandi fatlaðra:
„ Er flokkur þinn tilbúinn að
'beita sér fyrir eftirfarandi, sem
tyrsta áfanga í að leiðrétta kjör ör-
yrkja?:
Að örorkulífeyrir verði hækkað-
ur um 20.000 krónur í tveim áfóng-
um á þessu ári.
Að aðrar bætur verði hækkaðar
um 10% í tveim áföngum á þessu
ári.
Að hækkun bóta verði tengd við
hækkun launavísitölu.
Að frá 1. september nk. verði frí-
tekjumark hækkað til samræmis
við hækkun launavísitölu sl. þrjú
ár.“
Þá spyr Sjálfsbjörg: „Er flokkur
þinn tilbúinn að móta framtíðar-
stefnu um kjör öryrkja þannig að
skipuð verði nefnd til að endur-
skoða almannatryggingakerfíð í
heild sinni, sem hafi eftiriárandi að
leiðarljósi?:
Að einfalda bótaflokka þannig að
aðeins verði um einn grunnflokk að
ræða?
Að hækkanir á greiðslum verði
tengdar launavísitölu.
Að afmunin verði að fullu tekju-
tenging vegna „fjárhagslegs hag-
ræðis“ af sambúð.
Að sá hluti nýrra almannatrygg-
ingalaga sem snýr að tekjum ör-
yrkja taki gildi strax í upphafi árs-
ins 2000.
Að í nýjum almannatrygginga-
lögum verði áætlun um að á næstu
tveimur árum verði kjör öryrkja
jöfnuð, þannig að þau verði sam-
bærileg við það sem tíðkast annars
staðar á Norðurlöndum.
Ef flokkur þinn er ekki tilbúinn
að framkvæmda ofangreindar
breytingar hvað hyggst hann þá
gera í kjaramálum öryrkja? Svar
óskast í síðasta lagi viku fyrir
kosningar."
Vinstrihreyfíngin - grænt framboð
ÖGMUNDUR Jónasson og Kolbrún Halldórsdóttir, frambjóðend-
ur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs kynna sjónarmið
sín við Alþingishúsið í gær.
Auglýsingaherferð-
ir stóru flokkanna
gagnrýndar
VINSTRIHREYFINGIN
grænt framboð segir íslenska
stjórnmálamenn í auknum mæli
nota auglýsingar til að kaupa sig
frá verkum sínum.
Ögmundur Jónasson og Kol-
brún Halldórsdóttir, frambjóð-
endur hreyfingarinnar, vörpuðu
fram spumingunni: „Er svo kom-
ið að stjórnmálaflokkar kaupi sér
aðgang að Alþingi - stafar lýð-
ræðinu hætta af fjáraustri í aug-
lýsingar?" á fundi sem þau boð-
uðu til fyrir framan Alþingishús-
ið í gær.
Ögmundur, sem svaraði spurn-
ingunni játandi, kvaðst telja það
umhugsunarefni að stjórnmála-
flokkar eyddu 50 til 70 milljónum
í kosningabaráttuna, eins og
komið hefði fram, enda væru þeir
með því að freista þess að kaupa
sér ímynd í stað þess að taka þátt
í innihaldsríkum, málefnalegum
umræðum.
„Við horfum upp á stjórnmála-
menn sem trekk í trekk hafa gert
atlögur að félagslega kerfinu
draga upp glansmyndir af sjálf-
um sér og stæra sig af verkum
sem þeir hafi alls ekki unnið,“
sagði Kolbrún.
Við höfum ekki hugsað okkur
að setja fram hugmyndir um
reglur varðandi auglýsingakostn-
að heldur að höfða til siðferðisvit-
undar þjóðarinnar og hvetja
hana til þess að rýna í gegnum
auglýsingaskrumið," sagði Ög-
mundur.
Bæði tóku þau þó fram að þau
hefðu ekkert á móti auglýsingum
enda gætu þær oft orðið til þess
að kveikja málefnalega umræðu
og vekja athygli á góðum mál-
stað. Sem baráttumenn gegn
græðgi og peningaaustri gætu
þau hins vegar ekki orða bundist
yfir gegndarlausri eyðslu stóru
flokkanna.
Morgunblaðið/Kristinn
FRÉTTARITARAR á aðalfundi og annað Morgunblaðsfólk að loknum aðalfundi Okkar manna.
s
A fjórða tug
fréttaritara
á aðalfundi
Á FJÓRÐA tug fréttaritara Morg-
unblaðsins mætti á aðalfund félags-
ins Okkar manna um helgina. Fund-
urinn var haldinn í framhaldi af
þriggja daga námskeiði sem Morg-
unblaðið hélt fyrir fréttaritara.
Aðalfundur Okkar manna, félags
fréttaritara Morgunblaðsins á
landsbyggðinni, var haldinn í Morg-
unblaðshúsinu siðastliðinn laugar-
dag. Grímur Gislason, formaður fé-
lagsins, flutti skýrslu stjórnar og
fundarmenn ræddu saman um hags-
munamál fréttaritara. Morgunblað-
ið hefur um 100 frétta-
ritara og Ijósmyndara á
landsbyggðimú og eiga
þeir aðild að Okkar
mömium.
Stjórn félagsins var
endurkjörin en hana
skipa Grímur Gíslason í
Vestmannaeyjum, Jón
Gunnlaugsson á Akra-
nesi og Jón Sigurðsson
á Blönduósi.
Að loknum vei\juleg-
um aðalfundarstörfum
voru umræður um
fréttir af landsbyggð-
inni. Matthías Johannes-
sen ritstjóri fjallaði um
blaðamennsku og Gísli
Gíslason, bæjarsljóri á
Akranesi, hafði fram-
sögu um fréttaflutning
af landsbyggðinni. Að ræðuflutningi
loknum sátu þeir fyrir svörum fund-
armanna ásamt Styrmi Gunnarssyni
ritstjóra. Hallgrímur Geirsson,
framkvæmdastjóri
Morgunblaðsins, frétta-
sfjórar blaðsins og
nokkrir blaðamenn sátu
fundinn.
Að fundi loknum
voru afhent verðlaun í
Ijósmyndasamkeppni
fréttaritara.
Námskeið
fréttaritara
Aðalfundurinn á
laugardag var haldinn í
framhaldi af þriggja
daga námskeiði sem
Morgunblaðið efndi til
fyrir fréttaritara. Var
þetta annað námskeiðið
í vetur og var tíu
fréttariturum boðið að
sækja það. Fyrirhugað er að efna
til fleiri námskeiða og gefa sem
flestum fréttariturum blaðsins kost
á að sækja þau. Slík námskeið voru
fyrst haldin árið 1986, en eru nú
endurvakin.
Fyrsta dag námskeiðsins voru
fyrirlestrar. Ágúst Ingi Jónsson
fréttastjóri ræddi um hlutverk
fréttaritara og fréttaskrif og Einar
Falur Ingólfsson myndstjóri um
ljósmyndun. Auk þess var fjallað
um notkun teikninga og korta,
notkun Netsins við upplýsingaöflun
og sendingu og kynning fór fram á
gagnasafni Morgunblaðsins og
fréttavef.
Á öðrum degi námskeiðsins unnu
fréttaritaramir við fréttaöflun, ljós-
myndun og fréttaskrif á ritstjórnar-
skrifstofum Morgunblaðsins og áttu
fréttaritarar allar fréttir á blaðsíð-
um 12 og 13 í laugardagsblaði.
Auk þess var á föstudag farið yfir
vinnsluferilinn og ritstjómarskrif-
stofurnar skoðaðar. Á þriðja degi
var farið jfíir blað dagsins, staðsetn-
ingu frétta, sérblöð og síður.
HELGI Bjarnason
var umsjónarmað-
ur námskeiðsins.
RITSTJÓRAR Morgunblaðsins, Matthías Johannessen og Styrmir
Gunnarsson, sitja fyrir svörum ásamt Gísla Gíslasyni, bæjarstjóra á
Akranesi.
Fundur kennara og borgarstjórans í Reykjavík
Morgunblaðið/Ásdís
KJARAHÓPUR trúnaðarmanna kennara í Reykjavík átti fund með
borgarstjóra í gær. Fundinn sátu þau Magnús Þór Jónsson, Agla Ást-
bjömsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gfsladóttir borgarstjóri, Birgir Bjöm
Sigurjónsson, forstöðumaður kjaraþróunardeiidar, Valdór Bóasson og
Birna Halldórsdóttir. Auk þeirra sátu fundinn þær Valgerður Eiríks-
dóttir og Bergljót Njóla Jakobsdóttir úr kjarahópi trúnaðarmanna.
Vilji til
áframhald-
andi
viðræðna
Á FUNDI kennara með borgarstjór-
anum í Reykjavík í gærmorgun lýsti
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir yfir
vilja til áframhaldandi viðræðna um
kjaramál þeirra. Af viðræðum verð-
ur þó ekki í bráð þar sem stjórn
Kennarasambands Islands er stödd í
Lundúnum og ekki væntanleg heim
fyrr en undir lok vikunnar.
Borgarstjóri sagði að fundurinn
með kennurum hefði verið ágætur.
„Þeir skýrðu sín sjónarmið en það
gerðist ekkert nýtt,“ sagði hún. „Það
sem skiptir máli í þessu er að það er
áhugi og vilji bæði hjá borgaryfir-
völdum og kennurum í Reykjavík að
reyna að finna farsæla lausn. Við
hefðum viljað fara með þetta í gegn-
um hefðbundið samningaferli og þar
er það launanefndin sem er viðsemj-
andinn fyrir okkar hönd og síðan
Kennarasambandið fyrir hönd kenn-
ara í Reykjavík.“ Borgarstjóri sagði
að enn væri ekki komin niðurstaða
með tilraunasamninginn við kennara
og benti á að tíminn væri naumur.
„Staðan er óbreytt hjá okkur enn
sem komið er,“ sagði Valgerðui' Ei-
ríksdóttir sem sæti á í kjarahópi
trúnaðarmanna kennara í Reykjavík
en stjórn Kennarasambandsins er
væntanleg til landsins í vikulok.
Kennarar hafa farið fram á auka-
greiðslur fyrir yfirstandandi skólaár
en borgarstjóri visaði málinu til
launanefndar sveitarfélaganna. Við-
ræður hafa því legið niðri þai- til nú.
Að sögn Valgerðar munu trúnað-
armenn kennara hittast nk. fóstudag
og ræða framhaldið.