Morgunblaðið - 21.04.1999, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIKILL vöxtur einkenndi starf-
semi Verðbréfastofunnar hf. á síð-
asta ári og námu rekstrartekjur
fyrirtækisins 142 milljónum króna
árið 1998 á móti 49 milljónum
króna árið 1997. Rekstrargjöld
voru 79 milíjónir króna árið 1998 á
móti 43 miljjónum árið áður. Hagn-
aður fyrir skatta árið 1998 nam
62,8 milljónum króna en hagnaður
eftir skatta 43,5 milljónum. Arð-
semi eigin fjár árið 1998 var 46%,
að því er segir í fréttatilkynningu.
Jafet Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Verðbréfastofunnar, segir að
þessi árangur sýni að gott pláss sé
á markaðnum fyrir óháð verðbréfa-
fyrirtæki sem tengist ekki stórum
bönkum og sparisjóðum. „En
einnig er greinilegt að markaður-
inn hefur verið að stækka gífurlega
mikið,“ segir Jafet.
Mikill vöxtur Verðbréfastofunnar
Hagnaður
nam 43,5 millj.
Meginstarfsemi Verðbréfastof-
unnar hf. byggist á almennri verð-
bréfamiðlun á skráðum verðbréf-
um innlendum sem erlendum.
Verðbréfastofan hefur m.a. boðið
til sölu hlutdeildarbréf í Camegie-
verðbréfasjóðnum en Camegie
Nordic sjóðurinn skilaði 37%
ávöxtun á seinasta ári. Camegie-
fyrirtækið stofnaði á seinasta ári
Norðurlandasjóðinn og er sá sjóð-
ur fyrsti erlendi hlutabréfasjóður-
inn sem kaupir hlutabréf í íslensku
fyrirtæki. Fyrirtækið hefur þegar
fjárfest í SIF og áformað er að
kaupa hlutabréf í fleiri íslenskum
fyrirtækjum.
E-Trade til íslands
Verðbréfastofan hf. hefur orðið
sér úti um umboð fyrir bandaríska
fyi'irtækið E-Trade, sem gerir
fjárfestum mögulegt að kaupa og
selja hlutabréf á bandaríska hluta-
bréfamarkaðnum gegnum Netið.
Jafet segir að útibú E-Trade verði
sett upp í Svíþjóð í maí, fyrst
Norðurlanda, en íslenskt útibú
muni hefja starfsemi í lok septem-
ber. Verðbréfastofan hefur stofnað
sérstakt fyrirtæki sem heitir E-
Trade ísland þar sem hún á 75%
hlutafjár, en sænska fyrirtækið E-
Trade Nordic á 25%. „Markmiðið
er að bjóða Islendingum upp á að
eiga þessi kauphallarviðskipti á
Netinu. Viðskiptavinurinn verður
að stofna reikning hjá E-Trade Is-
land með bandaríkjadölum, svo
hægt sé að millifæra viðskiptin um
leið og þau fara fram, og við sjáum
um að leiðbeina mönnum um
hvernig þetta fer fram,“ segir Ja-
fet Ólafsson.
JSFF BRID6ES
TIM ROBBINS
Ful.lkominn faöir...
fyrirtaks nágranni...
. . . hættulegur hryójuverkamaöur?
Kiv/anisklúbbarnir Bru. Keflavíkurflugvelli og Eldey. Kópavogi í samvinnu viö EffEmm 957 og Háskólabíó kynna sérstaka
forsýningu til styrktar Barnaspítala Hringsins kl. 20:00 á sumardaginn fyrsta
Pökkum eftírtöldum aðilum veittan stuðrilng:
OffsDtþjónustan ehf.. Ræsii hf„ Okuskóli íslands., Össur hf., Landsbanki islands ht.. Jon Guömundssori pipulagningameistari Grindavík.
SÝND I HÁSKÓLABÍÓI
Islenska járn-
blendifélagið hf.
157 milljóna
tap fyrsta
ársfjórð-
unginn
Á FYRSTA fjórðungi ársins
varð 157 milljóna króna tap
á rekstri Islenska járn-
blendifélagsins hf. Vegna
raforkuskerðingar í janúar
og uppkeyrslu á ofni 2 í
febrúar eftir endurfóðrun
nam framleiðsla járnblendis
aðeins um 12.500 tonnum á
fyrsta ársfjórðungi saman-
borið við tæp 18 þúsund
tonn við eðlilegar aðstæður.
Heimsmarkaðsverð á kísil-
járni er mjög lágt um þesss-
ar mundir og ekki langt frá
sögulegu lágmarki.
Báðir ofnar nú í
fullum afköstum
Báðir ofnar íslenska járn-
blendifélagsins voru komnir
á full afköst í marsmánuði
og að sögn Bjarna Bjarna-
sonar, framkvæmdastjóra
félagsins, er því full fram-
leiðsla í verksmiðjunni núna.
Hann sagði að afkoman
fyrsta ársfjórðunginn miðað
við áðumefndar forsendur
hefði verið fyrirsjáanleg.
„Verð hefur ekki fallið
núna í tvo mánuði en hafði
fallið samfellt þar áður á
næn-i tveggja ára tímabili.
En við vitum auðvitað ekk-
ert um framtíðina, því hún
er ókomin," sagði Bjarni.
Hlutafjárútboð
hjá SÍF
Rúmar 165
milljónir
boðnar út
STJÓRN Sölusambands ís-
lenskra fiskframleiðenda
hefur samþykkt að efna til
hlutafjárútboðs, og er nafn-
virði hins
nýja hluta-
fjár
165.413.044
krónur.
, „Stjórn
SÍF ákvað
að nýta sér að fullu þá heim-
ild til hækkunar hlutafjár
sem var samþykkt á aðal-
fundi félagsins 31. mars síð-
astliðinn," sagði Brynjar
Þórsson, fjármálastóri SIF í
samtali við Morgunblaðið.
„Núverandi hluthafar hafa
forkaupsrétt að hlutafénu,
en ef hlutaféð selst ekki allt
til þeirra verður það boðið
almennum kaupendum,"
segir Brynjar.
Búnaðarbankinn
annast útboð
Hvert gengi bréfanna
verður til forkaupsréttar-
hafa eigi eftir að ákvarða, en
Brynjar segir að forkaups-
réttarhafar fái alltaf afslátt í
útboðum sem þessum. Loka-
gengi á bréfum SIF var 6,90
í gær.
Brynjar segir að vinna í
þessu máli sé að hefjast
þessa dagana, og sé ekki
komin endanleg dagsetning
á hlutafjáiiítboðið, en Bún-
aðarbanki Islands muni sjá
um framkvæmd útboðsins
fyrir SÍF.