Morgunblaðið - 21.04.1999, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999 23
ERLENT
MÍTSUBtSHI
Schröder og Fischer þurfa að fást við efasemdaraddir
Stærðir:
60x50
60x80
60x100
60x160
Handklæðaofnar
VATNSVIRKINN ehf
Ármúla 21-108 Reykjavík
Pósthólf 8620 - 128 Reykjavík
Sími 533 2020 - Bréfsími 533 2022
-Íforfisíu ó ni/ri i ii/il.'
Laugavegur 174
sími
30 0
MITSUBISHI
-imiklum nwtwn
heklaCð'hekla.is
Varpar ljósi á glufur
í stjórnarsamstarfínu
Bonn. Reuters.
ÞÝSKA stjórnin sagðist í gær ætla
að fara fram á stuðning Sambands-
þingsins við áætlun um að senda her-
menn til Albaníu til að styrkja að-
gerðir Atlantshafsbandalagsins
(NATO) á landi. Tilkynntu stjóm-
völd þetta þrátt fyrir að ágreiningur
um aðgerðirnar í Kosovo virðist
meiri innan stjómarinnar en verið
hefur tO þessa.
Fulltrúar stjómarinnar lögðu
áherslu á að hlutverk hersveitanna,
sem senda ætti til Albaníu, væri ein-
ungis að aðstoða hjálparfólk frá
Kosovo. Þýskaland hefur útilokað
landhemað í Júgóslavíu þótt stjóm-
völd segist reiðubúin að taka þátt í
friðargæslustarfi í Kosovo. Mikil and-
staða er í Þýskalandi við landhemað
NATO í Júgóslavíu, og þessar andófs-
raddir em ekki hvað síst háværar
innan stjómarflokkanna sjálfra.
Joschka Fischer, utanríkisráð-
herra Þýskalands og leiðtogi Græn-
ingja, sem á árum áður var mikill
friðarsinni en hefur reynst einn ötul-
asti stuðningsmaður loftárása NATO
á Júgóslavíu síðustu vikurnar,
neyddist í gær til að lýsa sig ósam-
þykkan ályktun félaga sinna í flokki
Græningja þar sem farið var fram á
að boðað yrði einhliða vopnahlé.
Gerhard Schröder, leiðtogi jafnað-
armanna og kanslari Þýskalands,
hefur einnig mátt þola gagni’ýni frá
vinstri friðarsinnum í Jafnaðar-
mannaflokknum en ályktun Græn-
ingja í gær er augljósasta vísbend-
ingin hingað til um að óánægja sé
meðal fulltrúa stjórnarflokkanna
með stríðsreksturinn.
I ályktuninni sagði að sýnt væri að
loftárásir skiluðu ekki tilætluðum ár-
angri og að þær væru nú orðnar
„vafasamar" í kjölfar þess að herþot-
ur NATO ollu dauða fjölda flótta-
manna frá Kosovo í síðustu viku.
Fischer þm’fti á sínum tíma að hafa
sig allan við til að sannfæra flokks-
systkin sín um nauðsyn hemaðar í
Júgóslavíu, á þeim forsendum að
koma þyrfti Kosovo-Albönum til
bjargar, en í ályktun Græningja í
gær sagði að leita yrði nýrra leiða.
Fischer svaraði skilaboðunum í
ræðu, sem hann hélt í Evrópuþing-
inu í Strassborg í gær, þegar hann
sagði að afstaða sín til Júgóslavíu-
stríðsins myndi ekki breytast og að
vopnahlé kæmi ekki til greina nema
Slobodan Milosevic, forseti Jú-
góslavíu, lýsti sig fyrirfram reiðubú-
inn til að hlíta skilmálum NATO.
Olíklegt að væringarnar
valdi stjórnarslitum
En þrátt fyrir orð Fischers virtist
sem jafnvel Júrgen Trittin, næst-
valdamesti Græninginn í ríkisstjórn
Schröders, en Trittin er umhverfis-
ráðherra, væri við það að rjúfa sam-
stöðu stjórnarinnar.
Aðstoðarmenn Trittins í Bonn urðu
að draga úr ummælum Trittins, sem
staddur er í Bandaríkjunum, þess
efnis að aðgerðir NATO væm „mis-
tök“. Talsmaður Trittins sagði að það
sem ráðherrann hefði í raun og vera
ætlað að segja væri að aðgerðimar
væru fyllilega réttlætanlegar en að
það hefðu verið mistök að búast við
skjótum árangri af loftárásum á
Júgóslavíu. Þi’átt fyrir þessar vær-
ingar er talið ólíklegt að Græningjar
hætti á frekari deilur við Jafnaðar-
mannaflokkinn enda alls ekki útilokað
að Schröder gæfist þá endanlega upp
á samstarfinu og tæki þann kost að
leita nýs samstarfsflokks, eða einfald-
lega starfa sem minnihlutastjórn
Reuters
JOSCHA Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands og leiðtogi Græn-
ingja í Þýskalandi, og Gerhard Schröder, leiðtogi Jafnaðarmanna-
flokksins og kanslari Þýskalands, við vígslu þmghússins í Berlín
í fyrradag.
ORUGGUR
I SPACE STAR er tryggilega seö fyrir ollu, sem snýr
aö öryggi farþeganna. SPACE STAR uppfyllir
rúmlega allar kröfur um öryggi samkvæmt
stöðlum Evrópusambandsins og hefur staðist allar
árekstrarprófanir því samfara meö stakri prýöi.
RUMGOÐUR
Þessi fimm dyra hlaðbakur er meö góöa lofthæö
og veitir allt þaö rými, sem þörf er á fyrir 5 manns
ásamt nauðsynlegum farangri.
Mjög auðvelt er aö breyta sætaskipan þannig aö
hún hæfi aöstæöum hverju sinni.
SPARNEYTINN
SPACE STAR er hagkvæmur i rekstn. Þratt fyrir aö
86 hestafla fireyfillinn sé léttbyggður og spar á
eldsneyti, gefur hann stærri hreyflum ekkert eftir
í afli og snerpu.
ÞÆGILEGUR
SPACE STAR er meö afbrigðum auóveldur í akstri
og lipur í meðförum. Hann er alhliða bill
notagildis og þæginda. Sætabúnaður er þannig
geröur aó allri fjölskyldunni a aö liöa vel á
ferðalögum.
HAGSTÆTT VERÐ
MITSUBISHI SPACE STAR, er retti kosturinn fyrir
fjölskyldur sem vilja öruggan, rumgóöan,
sparneytinn og þægilegan bíl á hagkvæmu veröi.
skv. könnun broska
timaritsins What Öart’