Morgunblaðið - 21.04.1999, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. APRIL 1999 33
AUGLÝSING
SÁÁ FRÉTTIR
Birtar í Morgunblaðinu
3. tbl. apríl 1999
Ábm: Theódór S. Halldórsson
FRÉTTIR
AUGLÝSING
SÁÁ, Samtök áhugafólks um
áfengis- og vímuefiiavandann
Ármúla 18 • 108 Reykjavík
Sími: 581-2399 • Fax: 568-1552
Meðferðarheimilið Vík á Kjalarnesi:
Árangur af kvennameðferð
fram úr björtustu vonum
Gönguferðir eru vinsælar meðal þeirra karla og kvenna sem dvelja á meðferðar-
heimilinu Vík enda mikið af göngustígum í grenndinni, segir Sigurður Gunnsteinsson
dagskrárstjóri (á innfelldri mynd).
1
Ert þú efni í
r
Alfasölumann?
SÁÁ verður með sína árlegu fjáröfl-
un, Álfasöluna, helgina 14. til 16. maí
næstkomandi. Góður árangur þess-
arar fjáröflunar byggist eins og endra
nær á því öfluga sölufólki sem leggur
henni lið. Hér með auglýsum við
eftir duglegum einstaklingum í Álfa-
söluna. Það er alltaf pláss fyrir fleiri
slika. Málefnið er gott, andinn góður
og hagnaðurinn fer í uppbyggingu á
starfi SÁÁ í þágu unga fólksins.
Þeir sem vilja leggja Álfasölunni
lið hafi samband við Ágúst eða
Sigríði í síma 581-2399.
Leiksýning til styrktar
vímuvörnum ungmenna
Sumardaginn fyrsta kl. 20 stendur
Lionsklúbburinn Þór í Reykjavík
fyrir leiksýningu í Borgarleikhúsinu
til styrktar byggingu unglingadeildar
SÁÁ. Allur ágóði sýningarinnar
rennur til kaupa á sjúkrarúmum
fyrir deildina. Sýndur verður ærsla-
leikurinn „Stjórnleysingi ferst af
slysförum eftir ítalska nóbelsleikrita-
skáldið Dario Fo. Leikstjóri er Hilm-
ar Jónsson en meðal leikenda eru
Gísli Rúnar Jónsson, Eggert Þorleifs-
son og Halldóra Geirharðsdóttir.
Þessi sprenghlægilegi farsi er vel
kunnur og hefur farið sigurför um
heiminn.
Miðar eru seldir í miðasölu Borg-
arleikhússins s. 568-8000. Miðaverð
er kr. 2.000. Hópafsláttur: 15-29
miðar kr. 1.800 pr/miða; 30 miðar
eða fleiri kr. 1.600 pr/miða.
Göngudeildarþjónusta
AKUREYRI
GLERÁRGÖTU 20 • Sími 462-7611
Göngudeild SÁÁ á Akureyri er
opin fyrir viðtöl og ráðgjöf alla
virka daga frá kl. 9-17.
Fundir og fræðsla í maí:
Mánudagur 3. maí, kl. 20
Kynningarfundur um meðferðar-
úrræði. Fundurinn er opinn öllum
og ókeypis aðgangur.
Helgin 8.-9. maí
Batanámskeið þar sem meðal
annars er fjallað um ýmsa þætti
sem koma í veg fyrir bata fyrstu
mánuði eftir meðferð.
Mánudagur 17. maí, kl. 20
Fyrirlestur ráðgjafa um alkóhól-
isma. Fyrirlesturinn er öllum
opinn. Aðgangseyrir er kr. 500.
Mánudagur 31. maí, kl. 18.30
Læknir SÁÁ heldur fyrirlestur.
Meðferðarheimili SÁÁ Vík á Kjalar-
nesi hóf starfsemi sína í árslok
1991. Þar er SÁÁ með almenna
áfengismeðferð fyrir þá sem hafa
loldð afeitrun á Vogi en ennfremur
hafa sértæk meðferðarúrræði bæst
við starfsemina þar á undanförnum
árum. Síðustu fjögur ár hefur þar
verið sérstök 28 daga kvennameð-
ferð og frá 1997 hafa ungar konur,
19 ára og yngri, einnig verið þar í
sérstalcri meðferð. Að sögn Sigurðar
Gunnsteinssonar, dagskrárstjóra á
Vík, hafa þessi meðferðarúrræði
gefið góða raun og árangur af
kvennameðferðinni farið fram úr
björtustu vonum.
Tekið mið af þörfum kvenna
„Kvennameðferðin byrjar í raun á
Vogi þar sem konurnar taka ákvörð-
un um að reyna þetta meðferðar-
úrræði. Endurhæfingin er síðan hér á
Vík í 28 daga. Þegar henni lýkur
tekur við ársprógramm á göngudeild
SÁÁ. Þær konur sem skuldbinda sig í
þessa meðferð sækjast fyrst og fremst
eftir þeim stuðningi sem hún veitir.
Þær sækja fyrirlestra og annað ásamt
þeim sem eru í almennri meðferð en
eru saman í hópstarfi og vinna
verkefni sem taka mið af þörfum
kvenna. Með þeim vinna reyndustu
ráðgjafar SÁÁ og fer Oddný Jakobs-
dóttir þar fremst í flokki,“ segir Sig-
urður Gunnsteinsson.
Samstaða kvennanna er mikil
Á Vík eru 30 pláss sem þýðir að með-
ferðarheimilið tekur við um 420 inn-
lögnum á ári. Þar sem kvennameð-
ferðin er bundin við Vík eru konur
stór hluti innlagðra einstaklinga.
Að sögn Sigurðar hefur árangur-
inn af kvennameðferðinni farið fram
úr björtustu vonum. Verið er að
vinna árangurskönnun og þó að nið-
urstöður hennar liggi ekki endanlega
fyrir segir Sigurður að ljóst sé að ár-
angurinn lætur ekki á sér standa.
„Óhætt er að segja að konur hafa
gegnum árin notið allt of lítils stuðn-
ings við að vinna úr sinni fíkn. Þessi
meðferð veitir konum því stuðning
sem þær hafa ekki fengið áður. Við
leggjum ríka áherslu á að þær styðji
hverja aðra mjög vel í meðferðinni
enda eiga margar þeirra maka sem
drekka og sýna ekki næga tillitsemi.
Það hefur sýnt sig að þær halda hóp-
inn vel og eru í góðu sambandi eftir
útskrift hér sem er mjög mikilvægt.
Árangurinn af meðferðinni er eftir
þessu - afar góður,“ segir Sigurður.
Sérstök meðferð fyrir ungar konur
Sigurður segir að í þessa sérstöku
kvennameðferð komi konur alls
staðar að af Iandinu og jafnvel frá
útlöndum, enda hafi góður árangur
af henni spurst víða. Fyrir um tveim-
ur árum jók SÁÁ síðan enn frekar við
meðferðarúrræði kvenna þegar byrj-
að var með sérstaka meðferð fýrir
konur undir tvítugu. Sú eftirmeðferð
á sér einnig stað á Vík. Hluti af henni
er vinna sálfræðings með konunum i
viðtölum og hópstarfi.
„Reynt er að mynda góð tengsl við
einstaklingana og einnig við fjöl-
skyldur þeirra. Sérþörfum þessara
ungu kvenna, sem alltaf eru einhverj-
ar, er sinnt eins og kostur er og reynt
að koma til móts við þær.“
Gott samfélag í góðu umhverfi
Að sögn Sigurðar byrjar dagurinn á
Vík upp úr klukkan sjö þegar fólk er
ræst og snæddur morgunverður.
Dagskrá, með hópstarfi, fræðslu og
„almennri hollustu“ byrjar síðan
klukkan níu og stendur oft langt
fram á kvöld. Þar inni í eru þó mat-
arhlé, útivera og afslöppun.
„Þetta er gott samfélag sem er hér
á Vík og við reynum að skapa heim-
ilisanda sem styður fólk í meðferð-
inni. Hér er stunduð mikil útivist og
oft afar fallegt að fara í gönguferð að
kvöldinu. Fólk unir sér vel hér. Það er
hæfilega langt til Reykjavíkur og við
höfum náð að halda þeirri einangrun
sem við viljum hafa. Auðvitað kemur
fólk og heimsækir ástvini sína en
heimsóknum er stjórnað af ráðgjafa
og meðferðaraðila. Allt stuðlar þetta
að betri árangri í meðferðinni. Brott-
fallið hér er afar lítið og nánast ekk-
ert úr kvennameðferðinni."
Sífellt yngri skjólstæðingar
Á Vík vinna fjórir ráðgjafar að með-
ferðinni ásamt dagskrárstjóra. Tveir
matreiðslumenn sjá síðan um elda-
mennskuna. Auk þess koma reglu-
lega læknir og sálfræðingur.
„Ég er búinn vinna við meðferðar-
starf í tuttugu ár. Á þeim tíma hefur
margt breyst en óhugnanlegast er að
ólöglegu vímuefnin skipa æ stærri
sess hjá okkar skjólstæðingum sem
eru sífellt að yngjast. Hingað kemur
fólk á öllum aldri en á síðustu árum
höfum við séð mikla aukningu hjá
unga fólkinu. Ég vil hins vegar koma
því á framfæri að brottfallið hjá þeim
ungu er mjög lítið, þau tolla vel í
meðferð og eru dugleg að vinna í
meðferðinni. Mín reynsla er sú af
ungum fólki að þegar þau koma
hingað þá gera þau það af fullum
heilindum. Við höfum alltaf trúað
því að meðferðin þoki þeim í átt að
bata og þó að höfn sé ekki náð í
fyrstu ferð þá kemur að því að þau ná
landi,“ segir Sigurður Gunnsteins-
son, dagskrárstjóri á Vík á Kjalarnesi.
Námskeið í
leikrænni tjáningu
Foreldrum og unglingum er boðið
upp á sameiginlegt námskeið í leik-
rænni tjáningu. Tilgangur þess er að
auðvelda foreldrum og unglingum
að kynnast í gegnum leik og starf og
ryðja þannig úr vegi hindrunum
sem oft reynist erfitt að komast yfir.
Leiðbeinandi er Gunnar Sigurðs-
son leikstjóri. Námskeiðið verður
haldið laugardaginn 1. maí kl. 10-18
og laugardaginn 8. maí kl. 10-18.
Göngudeildarþjónusta
REYKJAVÍK
SÍÐUMÚLA 3-5 • Sími 581-2399
Fundir og fræðsla á vegum SÁÁ:
Kynningarfundir SÁÁ eru haldnir
í Síðumúla 3-5 alla fimmtudaga.
Kynningin hefst kl. 19 og stendur í
45 mín. Á eftir eru leyfðar fyrir-
spurnir. Á fundunum er fjallað um
starfsemi SÁÁ, áfengissýki og aðra
fíkn og meðvirkni.
Meðferðarhópur (M-hópur):
Móttöku- og kynningarfundir eru
á fimmtudögum kl. 16.15. Fundir
M-hóps eru fyrir þá sem geta nýtt
sér áfengismeðferð á göngudeild.
Meðferðin fer fram á hópfundum,
fyrirlestrum og með viðtölum.
Fyrstu 4 vikurnar er mætt 4 kvöld í
viku en síðan vikulega í 3 mánuði.
Víkingahópur: Fundir eru á
mánudögum og fimmtudögum frá
kl. 16-17. Móttaka og skráning er á
sömu dögum kl. 15.30. Eftir Vík-
ingameðferð á Staðarfelli er
göngudeildarstuðningur í eitt ár.
Fyrstu 8 vikurnar er mætt tvisvar í
viku en síðan vikulega í 44 vikur.
Kvennahópur: Móttaka og skrán-
ing er mánud. kl. 15.30 og fimmtu-
daga kl. 17. Eftir „Kvennameðferð"
á Vík er veittur göngudeildar-
stuðningur í 1 ár. Fundir eru 2svar
í viku fyrstu 12 vikurnar síðan einu
sinni í viku. Fjölskyldumeðferð er
liður í stuðningi við hópinn.
Spilafíklar: Fundir eru á þriðju-
dögum frá kl. 18-19. Móttaka og
skráning er sömu daga kl. 17.30.
Eftir viðtal við ráðgjafa geta spila-
fíklar fengið ótímabundinn stuðn-
ing. Þessum hópi og aðstandend-
um standa til boða fræðsluerindi,
viðtöl og hópstarf. Ef nauðsyn
krefur býðst spilafíklum meðferð
um helgar.
Unglingahópur: Vikulega eru
haldnir stuðningsfundir fyrir ungt
fólk, 14-22 ára, með vímuefna-
vandamál. Móttaka og skráning er
mánud. kl. 17.20. Fólk kemst inn í
hópinn að lokinni meðferð á Vogi
eða á eftirmeðferðarstöðum SÁÁ.
Stuðningshópur fyrir alkóhólista
hittist daglega kl. 11 árdegis. Inn-
ritanir eru hjá læknum á Vogi.
Einnig geta ráðgjafar á göngudeild
komið fólki í hópinn.
Stuðningshópur fyrir aðstandendur:
Fundir aðstandenda alkóhólista
eru á þriðjud. kl. 16.1 þann hóp fer
fólk eftir viðtöl við ráðgjafa eða
fjölskyldunámskeið á göngudeild.
Foreldrahópur er stuðningshópur
fyrir foreldra ungra vímuefnaneyt-
enda. Hópurinn er jafnt fyrir
foreldra sem eiga börn í meðferð
og barna sem hafa lokið meðferð.
Jafnframt er hópurinn fyrir þá for-
eldra sem leita sér upplýsinga
vegna gruns um fíkniefnaneyslu.
Fræðslunámskeið fyrir alkóhólista:
Helgarnámskeið um bata og ófull-
kominn bata verður haldið helgina
24. -25. apríl. Á því er fjallað um
ýmsa þætti sem koma í veg fyrir
bata fyrstu mánuði eftir meðferð.
Námskeiðið hentar einnig þeim
sem eru að ná sér eftir önnur áföll.
Fjölskyldunámskeið SÁÁ. Helgar-
námskeið verður 15.-16. maí. Á
því er leitast við að auka þekkingu
aðstandenda alkóhólista á vímu-
efnasjúkdómnum, einkennum,
birtingarformi og áhrif á fólk sem
er í nábýli við sjúkdóminn.
Þriðjudagsfyrirlestrar: SÁÁ stend-
ur fyrir fyrirlestrum alla þriðju-
daga kl. 17. Þeir eru öllum opnir en
aðgangseyrir er kr. 500. Á næst-
unni eru eftirtaldir fyrirlestrar:
4. maí: Bati eftir leiðum AA
11. maí: Alkóhólismi og lyfjanotkun
18. maí: Ófullkominn bati
25. maí: Hass, fíkn og fráhvörf
1. júní: Sjúkdómurinn alkóhólismi
G.A. fundir eru haldnir á fimmtu-
dögum kl. 20.30 og kl. 18 söniu
daga eru haldnir Gam-anon fundir.
Halldór í heimsókn á Vogi
Halldór Ásgrímsson, utanríldsráðherra og formaður Framsóknarflokks-
ins, kom í heimsólcn á sjúlcrahúsið Vog þann 7. apríl síðastliðinn. Þar
kynnti hann sér meðferðarstarfsemina og byggingarframlcvæmdir við
nýja meðferðardeild fyrir ungt fólk og göngudeild.
í gegnum tíðina hafa ráðamenn reglulega heimsótt starfsstaði SÁÁ til
að kynna sér starfsemi samtakanna. Sjúlcrarekstur SÁÁ er að hluta til
rekinn með framlögum frá ríkinu og er sérstaldega ánægjulegt að geta
sýnt fulltrúum fjárveitingavaldsins hvernig að málum er staðið.
Á myndinni er Halldór Ásgrímsson ásamt Þórarni Tyrfingssyni,
yfirlækni á Vogi, og Theódór S. Halldórssyni, framkvæmdastjóra SÁÁ.