Morgunblaðið - 21.04.1999, Síða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 21. APRIL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Jarðvinna — byggingastarfsemi
Aðbúnaðar og öryggismál
Samtök iðnðarins boða tii fundar um
aðbúnaðar- og öryggismál við verklegar
^framkvæmdir á Hallveigarstíg 1 miðviku-
daginn 21. apríl kl. 16.00-18.30.
— Vinnueftirlit ríkisins kynnir starfsemi sína.
— Lög og reglur um aðbúnaö, öryggi og holl-
ustuhætti.
— Slys í byggingariðnaði.
— Ábyrgðir og skyldur.
— Nýjar reglur um merkingar vegna fram-
kvæmda við götur, vegi og gangstíga fyrir
almenna umferð.
— Höskuldur Tryggvason frá gatnamála-
stjóra kynnir nýútgefnar reglur.
— Framkvæmd öryggismála í fyrirtækjum.
Sagt verður frá framkvæmd öryggismála
hjá malbikunarstöðinni Hlaðbæ Colas og
íslenskum aðalverktökum.
— Pallborðsumræður og skoðanaskipti.
SAMTÖK
IÐNAÐARINS
GÆÐASTJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
Aðalfundur GSFÍ
verður haldinn á Grand Hótel Reykjavíkfimmtu-
daginn 6. maí 1999 kl. 16.15 til 17.30.
Dagskrá:
_ - 1. Kjör fundarstjóra og ritara.
2. Lýst eftir málum.
3. Skýrsla stjórnar.
4. Reikningar félagsins.
5. Ákvörðun félagsgjalda 1999.
6. Kjör stjórnar og endurskoðenda.
7. Önnur mál.
Stjórn GSFÍ.
TILKYNNINGAR
Uppboð á
óskilamunum
Að beiðni Lögreglustjórans í Reykjavík fer fram
uppboð á ýmsum óskilamunum, m.a. reiðhjól-
um, kerrum, úrum, fatnaði og fleiri munum.
Uppboðið fer fram í uppboðssal Vöku hf. á
Eldshöfða 4, Reykjavík, laugardaginn 24. apríl
1999 og hefst það kl. 13.30.
Eigendum glataðra muna er bent á að hafa
samband við skrifstofu óskilamuna hjá Lög-
reglustjóranum í Reykjavík, Borgartúni 33, kl
10-12 og 14-16 virka daga fram að uppboði.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Reykjavík.
Kjörskrár
vegna alþingiskosninga
Kjörskrár vegna kosninga til Alþingis, sem
fram eiga að fara laugardaginn 8. maí 1999,
skulu lagðar fram eigi síðar en miðvikudaginn
28. apríl 1999.
Kjörskrá skal leggja fram á skirfstofu sveitar-
stjórnar eða á öðrum hentugum stað sem
sveitarstjórn auglýsir sérstaklega.
Kjörskrá skal liggja frammi á almennum skrif-
-*stofutíma til kjördags.
Þeim, sem vilja koma að athugasemdum við
kjörskrá, er bent á að senda þær hlutaðeigandi
sveitarstjórn. Athygli er vakin á því, að sveitar-
stjórn getur allt fram á kjördag gert leiðrétting-
ar á kjörskrá ef við á.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
20. apríl 1999.
Bessastaðahreppur
Deiliskipulag Bessastaða
Tillaga að deiliskipulagi jarðarinnar Bessastaða
á Álftanesi auglýsist hér með samkvæmt skipu-
lagslögum nr. 73/1997.
Deiliskipulag Bessastaða gerir ráð fyrir, að
landnýting á Bessastöðum verði í samræmi
við hlutverk staðarins sem þjóðhöfðingjaset-
urs. Ekki verða reistar nýjar byggingar eða
mannvirki í landi Bessastaða önnur en þau,
sem tengjast embætti og búsetu forseta
íslands á staðnum; eru hluti af verndun nátt-
úrufars eða endurreisn og viðhaldi sögulegra
minja innan marka jarðarinnar. Ekki er gert
ráð fyrir að hefðbundinn landbúnaður verði
stundaður á jörðinni, en að tún verði nytjuð
og hlunnindi (æðarvarp) nýtt með sama hætti
og tíðkast hefur. í Ijósi mikilvægis Bessastaða
og umhverfis þeirra í náttúrufars- og útivist-
arkeðju Álftaness verða gönguleiðir um jörðina
með svipuðum hætti og verið hefur; í sam-
ræmi við forsendur friðlýsingar jarðarinnar;
öryggi íbúa hennar og einkanæði þeirra.
Skipulagsuppdráttur og greinargerð verða til
sýnis á skrifstofu Bessastaðahrepps frá kl.
08:00—16:00 alla virka daga frá 23. apríl til
25. maí 1999. Athugasemdum skal skilað skrif-
lega til sveitarstjóra Bessastaðahrepps í síð-
asta lagi mánudaginn 7. júní 1999 kl. 16:00.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan tilskil-
ins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Sveitarstjórinn
í Bessastaðahreppi.
LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
Tollkvótar vegna
innflutnings á blómum
Með vísan til 53 gr. laga nr. 99/1993 um fram-
leiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með
síðari breytingum og með vísan til reglugerðar
dags. 20. apríl 1999, er hér með auglýst eftir
umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi inn-
flutning:
Vara Tímabil Vörum. Verdtollur Magnt.
Tollnr. 0602.9093 Aðrar pottaplöntur 01.05.- kg % kr./kg
t.o.m. 1 m á hæð 30.09.99 2.200 30 0
0603.1009 Annars 01.05.-
(afskorin blóm) 30.09.99 3.300 30 0
Skriflegar umsóknir skulu sendar bréfleiðis
eða með símbréfi til landbúnaðarráðuneytis-
ins, Sölvhólsgötu 7,150 Reykjavík, og skulu
hafa borist fyrir kl. 15.00 þriðjudaginn 27. apríl
1999.
Landbúnaðarráðuneytið,
20. apríl 1999.
Framboðsfrestur
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur um
fulltrúa á 22. þing Landssambands íslenskra
verzlunarmanna.
Kjörnir verða 53 fulltrúar og jafn margir til vara.
Listar þurfa aó hafa borist kjörstjórn á skrifstofu
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, í Húsi
verslunarinnar fyrir kl 12:00 á hádegi, mánudaginn
26. apríl nk.
Kjörstjórn
Bessastaðahreppur
Deiliskipulag
miðsvæðisreits
Tillaga að deiliskipulagi miðsvæðisreits Bessa-
staðahrepps auglýsist hér með samkvæmt
skipulagslögum nr. 73/1997. Skipulagssvæðið
afmarkast til austurs af Norðurnesvegi, Álfta-
nesvegi og mörkum sveitarfélagsins að Garða-
bæ; til suðurs af jörðinni Skógtjörn; til vesturs
af innsta hluta götunnar Miðskógar og Höfða-
braut að Suðurnesvegi og til norðurs af Suð-
urnesvegi, Breiðumýri, skólasvæði og Eyvind-
arstaðavegi.
Deiliskipulagið nærtil skipulagningar mið-
svæðis sveitarfélagsins auk íbúðarsvæða.
Miðsvæðið er einkum ætlað fyrir verslun og
þjónustu þar sem á boðstólum geta til dæmis
verið helstu nauðsynjavörur, bankaþjónusta,
póstafgreiðsla, bensínafgreiðsla og sambæri-
leg þjónusta, félagastarfsemi og þjónusta fyrir
ferðamenn og atvinnustarfsemi sem henni
tengist.
Á skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir um 64
íbúðum í tólf fjölbýlishúsum; 41 íbúð í par-
og raðhúsum og 33 íbúðum í einbýlishúsum.
Samtals er því um að ræða 138 nýjar íbúðir.
Tíu fjölbýlishúsanna verða tveggja hæða og
tvö þriggja hæða. Raðhús, parhús og einbýlis-
hús verða ýmist á einni hæð eða einni og hálfri
hæð.
Skipulagsuppdráttur og greinargerð verða
til sýnis á skrifstofu Bessastaðahrepps frá
kl. 08:00 — 16:00 alla virka daga frá 23. apríl til
25. maí 1999.
Athugasemdum skal skilað skriflega til sveitar-
stjóra Bessastaðahrepps í síðasta lagi mánu-
daginn 7. júní 1999 kl. 16:00.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan tilskil-
ins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Sveitarstjórinn
í Bessastaðahreppi.
I.O.O.F. 9 = 1794218'/2 =
□ GLITNIR 5999042119 I
I.O.O.F. 7 = 17904217/2 - Sm.
I.O.O.F. 18 = 179421 s
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
REGLA MUSTERISRIDDARA
RM Hekla
21 - 4 - SPR
- MT
_ SAMBAND ISLENZKRA
SSífi?' KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58
Samkoma í kvöld I kristniboðs-
salnum kl. 20.30. Katla Þöll Guð-
mundsdóttir og Margrét Hró-
bjartsdóttir taka til máls.
Vertu velkomin(n).
Vakningasamkoma kl. 20.00.
Roger Larsson frá Svíþjóð talar.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
<§) ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 568-2533
Sumardagurinn fyrsti
Fimmtudagur 22. apríl
kl. 11.00
Afmælis- og skemmtiferð
á Reykjanes.
Ferð í tilefni þess að 70 ár eru lið-
in frá fyrstu Ferðafélagsferðinni.
Fræðst verður um jarðfræði
Reykjanesskagans undir leið-
sögn Hauks Jóhannessonar, for-
seta F.í. Fiskasafnið í Höfnum
skoðað. Afmælisverð: 1.000 kr.,
frítt f. börn 15 ára yngri með full-
orðnum. Brottför frá BSÍ,
austanmegin og Mörkinni 6.
Gott væri ad þeir, sem mæta
við krikjug. Hafnarfirdi og á
Njardvíkurfitjum, létu skrif-
stofuna vita á midvikudacj.
Minnum á nýtt fræðslurit F.I.:
Selvogsgata og Krýsuvíkur-
leiðir.
Sjá ferðir á textavarpi bls. 619
og á heimasíðu: www.fi.is
Tónleikar
Frímúrarakórsins
verða haldnir sunnudaginn 25.
apríl kl. 17 í Regluheimilinu við
Skúlagötu. Einsöng með kórnum
syngja Eiríkur Hreinn Helgason
og Friðbjörn G. Jónsson.
Aðgöngumiðar seldir við inn-
ganginn.
nl )l l.is
ALLTAf= £ITTH\SA£> A/ÝT7