Morgunblaðið - 21.04.1999, Qupperneq 46
46 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
SNYKTIVÖRIJR
LAUGAVEGI61
SlMl 861 8999
Guðrún Edda förðunarmeistari og Margrét Búra
snyrtifræðingur veita faglega róðgjöf um liti og förðun.
Erlendur sérfrœðingur veitir allar upplýsingar,
ífullum trúnaði dagana 20.-25 apríl.
Apotto hárstúdíó
Nánaii upplýsingar og tímapantanir ísíma 5522099.
„Eg er
cmœgöur
meðt(fið“
...og
Apotto
hárið
Nýtt skemmtilegt skyndihappdrætti (WZ)
meÖ glæsilegum vinningum!
_________UMRÆÐAN_______
Arðsemi skógræktar -
Skógarsj óðurinn
ARÐSEMI skóg-
rækar má meta á
marga vegu. Skóg-
ræktarmaðurinn met-
ur arðsemina út frá
ánægjunni við ræktun-
arstarfið og þeim um-
hverfisbótum sem
hann vinnur að. Sveit-
arfélög meta arðsemi
skógræktar út frá því
sjónarmiði, að aukin
skógrækt umhverfis
þéttbýli breytir veðr-
áttunni, myndar skjól
og hækkar lofthita.
Skógarbóndinn metur
arðsemina út frá vaxt-
arhraða trjánna sem
hann plantar. Stjórnvöld meta arð-
semina út frá þeim verðmætum
sem skapast fyrir þjóðarbúið,
fjölda staifa og skatttekjum, sem
skógrækt gefur. Öll þessi gildis-
möt eru réttmæt.
Erfitt er að leggja peningalegt
mat á arðsemi skógræktarmanns-
ins af starfi hans og ef til vill líka
ástæðulaust. Arður hans er gleði
og ánægja. Aætla má að fé það,
sem þessi stóri hópur landsmanna
leggur árlega í trjáplöntukaup
nemi um 40 milljónum króna og er
þá ekki lagt mat á verðgildi vinnu-
framlags hans við plöntun og um-
hirðu. Ekki er heldur metinn
kostnaður við kaup hans eða leigu
á landi, sem oft er hár. Örva þarf
starf þessara sjálfboðaliða með út-
vegun á ódýru landi og ókeypis
trjáplöntum. Verðugt væri að gera
þessum hópi ræktunarmanna
kleift að margfalda útplöntun sína
án þess að til mikilla fjárútláta af
þeirra hálfu kæmi.
Arðsemi þess fjár sem sveitarfé-
lögin leggja til skógræktar á úti-
vistarsvæðum sínum er að mestu
leyti huglæg. Umsvif við plöntu-
uppeldi og útplöntun
skilar þó nokkru til
baka. Ávinningur
sveitarfélaga af ná-
lægum skógarreitum
gefur íbúunum mikinn
arð í formi fegurra og
skjólbetra umhverfis
og um leið ánægju-
legra og glaðara sam-
félagi. Gætu Akureyr-
ingar hugsað sér til-
veruna án Kjama-
skógar? Það kostar þó
Akureyrarbæ 725 kr.
á hvern íbúa að reka
Kjarnaskóg. Hvað um
Heiðmerkurlaust höf-
uðborgarsvæði? Þang-
að koma um 200 þúsund manns ár-
lega. Kostnaður Reykjavíkurborg-
ar við rekstur Heiðmerkur er um
300 kr. á hvern íbúa.
Skógrækt
Ríkissjóður á að selja
eða leigja undir skóg-
rækt jarðir eða jarða-
parta, segir Olafur
Sigurðsson, sem ekki
nýtast til hefðbund-
ins búskapar.
Skógarbændur planta árlega
tæplega 2 milljónum trjáplantna
og er kostnaðurinn við það um 100
milijónir króna. Þeirra arður á að
metast í beinhörðum peningum.
Arðsemi eftir fyrstu plöntunarhr-
inu fæst ekki fyrr en eftir um 70
ár, en síðan árlega. Þangað til get-
ur nytjaskógur bænda skilað smá-
tekjum í formi sölu afurða sem
falla til við grisjun trjánna og
berja- og sveppatínslu. Hvetja
þarf fleiri bændur til að taka upp
skógarbúskap samhliða öðrum bú-
skap, styrkja með því búsetu, auka
atvinnu og um leið arðsemi á bú-
jörðum sínum. Á allra næstu árum
ætti að vera búið að skapa skógar-
bændum þau skilyrði að þeir
plöntuðu ekki færri en 10 milljón
skógarplöntum árlega.
Ríkissjóður leggur mestu fjár-
munina til skógræktar í landinu.
Hver er arður ríkisins? Ríkissjóð-
ur á ekki að bera beinan peninga-
legan arð af framlagi sínu. Þeir
peningar sem renna úr sameigin-
legum sjóðum landsmanna til
skógræktarmála eiga að nýtast til
að einstaklingar og fyrirtæki geti
stundað arðbæra skógrækt og
yndiskógrækt. Þeirra hagnaður er
hagur ríkissjóðs. Ríkissjóður á að
standa að rannsóknum og tilraun-
um, kennslu og ráðgjöf. Ríkissjóð-
ur á að selja eða leigja undir skóg-
rækt jarðir eða jarðaparta, sem
ekki nýtast til hefðbundins bú-
skapar. Ríkið á líka að skapa það
skattalega umhverfi sem hvetur
landsmenn til spamaðar með lang-
tíma fjárfestingu í skógrækt.
Mikið verk er framundan. I dag
eru árlega gróðursettar einungis
um 4 milljónir trjáplantna í land-
inu. Land það sem hýsir þetta
magn trjáplantna er um 13 ferkíló-
metrar eða um 0,013% af flatar-
máli landsins - ekki er það hátt
hlutfall. Takmarkið að tvöfalda
flatarmál skóganna upp f 2% af
flatarmáli alls landsins er langt
undan.
Allt er hægt - vilji er allt sem
þarf.
Höfundur á sæti í stjórn Skógnr-
sjóðsins.
Ólafur
Sigurðsson
Yið hvað er
Halldór hræddur?
VONANDI hafa
flestir kjósendur teldð
eftir því að Halldór Ás-
grímsson, formaður
Framsóknarflokksins,
neitaði að mæta mér í
kappræðum á opinber-
um vettvangi til að
ræða þar um þá hag-
kvæmni sem hann full-
yrðir að hafi hlotist af
núverandi kvótakerfi.
Þessi neitun kemur
engum, sem til þekkir,
á óvart. Allir sem hafa
sett sig inn í málin vita
að fullyrðingar um hag-
kvæmni kvótakerfisins
standast enga skoðun.
Þeir sem halda slíku fram eru
óheiðarlegir, jafnvel þeir sem eru
óupplýstir. Þeir sem vita betur eru
forhertir. Halldór veit betur.
Það er örugglega rétt mat hjá
Halldóri, að það þjónar ekki per-
sónulegum hagsmunum hans sem
kvótagreifa né hagsmunum Fram-
sóknarflokksins að rökræða opin-
berlega þessi mál við þá sem vita
betur. Forystumenn beggja kvóta-
flokkanna (D og B) og Steingrímur
Sigfússon hafa haft það að leiðar-
ljósi að æra og trylla alla umræðu
um þessi mál svo að fólk viti ekki
sitt rjúkandi ráð.
Halldór reyndi fyrst að láta svo
sem hann hefði ekki heyrt áskorun
mína. Þegar gengið var á hann í
fjölmiðlum nuddaðist loks út úr
honum neitun og að honum líkaði
ekki málflutningur minn. í því eins
og fleiru er hann hafinn yfir Hæsta-
rétt, sem líkaði mál-
flutningur minn svo vel
að hann féllst á kröfur
mínar um að lög um
stjóm fiskveiða stand-
ast ekki ákvæði stjóm-
arskrárinnar um jafn-
ræði og atvinnufrelsi.
Fyrstu viðbrögð for-
manns Framsóknar-
flokksins voru að rétt
væri þá að breyta
stjómarskránni. Þegar
hann uppskar almenna
hneykslan og aðhlátur
varð það að ráði hjá
þingflokkum Fram-
sóknar og Sjálfstæðis-
flokksins að hunsa
dóm Hæstaréttar, hvað varðar afla-
heimildirnar, - kvótaúthlutunina.
Þannig vann kvótagreifinn varnar-
sigur í bili fyrir sig og sægreifa-
veldið.
Kvótinn
Nýtingin skiptir ekki
máli, segir Valdimar
Jóhannesson, þegar
kvótinn er miðaður við
landaðan afla.
En hverjar era hinar óþægilegu
staðreyndir um óhagkvæmni kvóta-
kerfisins sem Halldór treystir sér
eðlilega ekki til að verja?:
Valdimar
Jóhannesson
1. Heildarskuidir útvegsins hafa
aukist úr 37 milljörðum árið 1986
króna í 150 milljarða árið 1998.
2. Fiskiskipaflotinn stækkaði um
25% árin 1980-1996.
3. Heildarvélarafl fiskiskipaflot-
ans jókst um 29% sama tímabil.
4. Olíunotkun á hverja aflaein-
ingu hefur aukist um 120% á sama
tíma og tækni og hagkvæmni hefur
almennt fleygt stórkostlega fram.
5. Afkastageta hverrar rúmlest-
ar í fiskiskipaflotanum hefur minnk-
að um nær helming
6. Landaður þorskur af Islands-
miðum hefur ekki verið jafn lítill
síðan 1920 ef frá era talin heim-
styrjaldarárin.
7. Bolfiskveiðar, sem námu 760
þúsund tonnum árið 1980, vora að-
eins 460 þús tonn árið 1996.
8. Að mati kunnra aflaskipstjóra
henda fiskiskipin árlega allt að 200
þúsund tonnum af afla fyrir borð.
9. Sjávarbyggðum um land allt
er að blæða út þrátt fyrir vaðandi
fiskgengd.
10. Nýliðun í sjávarútvegi er úti-
lokuð.
Margt meira má nefna. Vita
menn t.d. að nú eru til hagræðingar
settar karfahausaravélar um borð í
frystitogarana til þess að hausa all-
an fisk þó að þær klippi þorskinn á
miðju baki? Nýtingin skiptir ekki
máli þegar kvótinn er miðaður við
landaðan afla. Slíkt smáræði heldur
ekki vöku fyrir kvótasölugreifunum
í „Little Grindavík“ í Flórída þar
sem þeir hafa sest að áhyggjulausir
með milljarðana sína í sólskininu.
Þeir hafa eflaust heldur ekki
áhyggjur af því frekar en Halldór
að réttlætinu hefur verið misþyrmt.
Ófrelsi, óréttlæti og vanþekking er
þó helsta fóðrið sem hatur og átök
nærist á.
Höfundur er 1. frambjóðandi Fijals-
lytida flokksins á Reykjanesi.