Morgunblaðið - 21.04.1999, Síða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Þjóðarsátt um reiðleiðir
ALLT FRÁ stofnun Landssam-
bands hestamannafélaga fyrir rétt
tæpum 50 árum hafa umferðarmál
hestamanna verið helsta bai-áttu-
mál samtakanna. Þar er átt við
gerð reiðvega, viðhald þeirra og að
gömlum og þekktum reiðleiðum
verði ekki lokað. Að baki samtak-
anna eru 50 hestamannafélög með
um 8000 fullgilda félagsmenn, en
ætla má að nær sé að tala um að yf-
ir 20 þúsund manns stundi hesta-
mennsku að einhverju marki í
landinu.
Fyrir flesta frístundahestamenn
eru ferðalög hápunktur hesta-
mennskunnar. Hestaferð sumars-
ins er skipulögð á miðjum vetri hjá
þeim sem vanari eiu og gengið frá
gistiaðstöðu fyrir fólkið - og jafn-
vel enn frekar fyrir hestana sem
þurfa hvíld að loknu dagsverki, fóð-
ur og vatn í hverjum
náttstað.
Á undanfórnum ár-
um hefur orðið gríðar-
leg aukning á hesta-
ferðum, ekki síst um
óbyggðir og viðkvæm
landssvæði. Þar er ég
að tala um okkur
hestafólkið með eigin
hesta. Það vill brenna
við, því miður, að ferð-
ir séu ekki skipulagðar
af nægjanlegri fyrir-
hyggju eða þekkingu á
umgengni við landið
og þá er stutt í óhöpp-
in. Langflestir hesta-
menn eru þó vel með-
vitaðir um viðkvæma náttúru lands
okkar og haga ferðum sínum í sam-
ræmi við það.
Jón Albert
Sigurbjörnsson
Hér að framan hef
ég getið ferðalaga inn-
lendra hestamanna,
skipulagðra af þeim
sjálfum. Stóra spreng-
ingin í þessum ferða-
máta eru hins vegar
skipulagðar hesta-
ferðir með útlendinga,
en ætla má að 10 -
12.000 útlendingar
muni á yfirstandandi
ári fara í hestaferðir
um landið. Þarna er
einn stærsti vaxtar-
broddurinn í ferða-
mennsku til landsins
en um leið vex hættan
á spjöllum.
Við hestamenn vitum fullvel að
það eru fágæt forréttindi að fá að
ferðast um óbyggðir landsins okk-
([/
i
.1 V •
FASTEIGNA
-3J MARKAÐURiNN
%
OÐINSGOTU 4. SIMAR 551 1540,
552 1700, FAX 562 0540
Netfang: http://habil.is/fmark/
Jón Guðmundsson sölustjóri, lögg.
fasteignasali og Ólafur Stefánsson viðskiptafr.
og lögg. fasteignasali
MIÐHRAUN 15, GARÐABÆ
-n
Glæsileg iönaöar- og skrifstofubygging sem er að rísa í Garðabæ. Byggingin er einnar hæðar
iðnaðarhús með millilofti að hluta og afhendist tilbúin til innréttinga að innan, fullfrágengin að
utan. Lóð frágengin.
Hægt er að skipta húsinu í 5 einingar:
111 fm á jarðhæð með 48 fm millilofti.
111 fm á jarðhæð með 48 fm millilofti.
347 fm á jarðhæð með 27 fm millilofti.
111 fm á jarðhæð með 48 fm millilofti.
108 fm á jarðhæð með 48 fm millilofti.
Eignarhlutarnir seljast saman eða hver í sínu lagi.
Húsið er afar vel staðsett, miðsvæðis á Stór-Reykjavíkursvæðinu, nærri fjölfarinni umferðaræð.
Teikningar og allar upplýsingar veittar á skrifstofu.
Hestamennska
Það er skoðun LH,
segir Jón Albert
Sigurbjörnsson, að
besta landverndin felist
í fræðslu, vel merktum
leiðum og hvað okkur
áhrærir, góðum og vel
staðsettum áningar-
hólfum.
ar. Ef við gætum okkar ekki er
ekki sjálfgefið að leiðum og/eða
svæðum verði ekki lokað fyrir um-
ferð hesta. Slík ákvörðun væri þó
með öllu óásættanleg. Almanna-
réttur til umgengni um óspillta
náttúru og óbyggðir Islands verður
að vera tryggður. Það þýðir þó
ekki að reglur verði ekki settar þar
sem hætta er mest á landsspjöll-
um.
Hvað gera þá samtök hesta-
manna til að upplýsa og fræða fé-
laga sína um hvernig komast megi
hjá spjöllum? I fyrsta lagi þarf já-
kvæðan áróður, en einnig þarf að
koma skilaboðum til hestamanna
með markvissari hætti.
Það er ekki einkamál hesta-
manna að góðar og vel merktar
reiðleiðir séu til staðar frekar en
akvegir fyi’ir bíla eða göngustígar.
Því hefur það verið baráttumál
okkar að efla mjög reiðvegagerð í
samvinnu við Vegagerðina, sveitar-
félög og aðra hagsmunaaðila.
Fyrir nokkrum áram stóð LH í
samvinnu við Vegagerð ríkisins
fyrir kortlagningu allra reiðleiða,
fornra og nýrra, ásamt tillögum
um forgangsröðun verkefna á því
sviði. Sú vinna hefur nýst hesta-
mannafélögunum vel við fram-
kvæmdir á þeirra svæðum.
Samgönguráðherra skipaði tvær
nefndir sem fjölluðu um annars
vegar reiðvegamálin í heild og hins
vegar um áningarhólf. Báðár þess-
ar nefndir hafa skilað tillögum um
framtíðarskipulag þessara mála.
Ljóst er að samtök hestamanna
binda miklar vonir við framhald
þessarar vinnu. Þá skipaði land-
búnaðarráðherra nefnd sem gera
átti tiUögur um beitarmál á afrétt-
um ofl. Hestamenn áttu fulltrúa í
öllum þessum nefndum.
Landssamband hestamannafé-
laga er stofnaðili að nýjum samtök-
um, Samtökum útivistarfélaga
(SAMÚT). Þeim samtökum er ætl-
að að vera samnefnari fyrir hags-
muni félagasamtaka sem eiga það
sameiginlegt að ferðast um
óbyggðir landsins. LH er einnig
aðfii að Landvernd sem við viljum
styi’kja eftir mætti.
Það er okkar skoðun að víðtæk
samstaða, „þjóðarsátt" þui-fi að
nást um þessi mál. Samstaða sem
byggist á tillitsemi við landið núm-
er eitt, og svo tillitsemi milli afira
aðila sem hagsmuna eiga að gæta.
Það er skoðun LH að besta land-
verndin felist í fræðslu, vel merkt-
um leiðum og hvað okkur áhrærir,
góðum og vel staðsettum áningar-
hólfum.
Islenski hesturinn hefur fylgt
þjóðinni frá því að landið byggðist.
Áður var hann þarfasti þjónninn og
bjargvættur svo sem margar sögur
eru til um. Æ fleira fólk finnur sér
lífsfyllingu með samneyti við hest-
inn. Á það við bæði um okkur Is-
lendinga og þúsundir útlendinga
sem tekið hafa ástfóstri við hann.
Islenski hesturinn er hluti af
menningararfleifð okkar.
Hvet ég til víðtækrar samstöðu
og samvinnu um rétta umgengni
um viðkvæma náttúru landsiris
okkar. Þannig mun okkur vel farn-
ast í sátt við landið og óhefta um-
gengni um það.
Höfundur er formaður Landssam-
bands hestamannafélaga og skipar
sjöunda sæti á lista Framsóknar-
flokksins í Reykjavík.
Vor- og sumarlistinn 1999
er kominn út!
‘S8 565 3900
Jónína Bjartmarz
er lögfræðingur og formaður
foreIdrasamtakanna Heimili ogskóli
Hun er gift, á tvo syni og hefur unnið
fjölbreytt störf á vinnumarkaði.
✓
Jónína á erindi á Alþingi Islendinga.
Ný framsókn til nýrrar aldar
FRELSI FESTA FRAMSOKN
w w w. framsokn. i s
B