Morgunblaðið - 21.04.1999, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999 49
UMRÆÐAN
Uppbygging lands-
byggðarinnar
HVERS vegna leið-
ist 24 ára gamall Vest-
firðingur í framboð til
alþingis, er það vegna
valda eða hugsjóna?
Eg er hugsjónamaður
og hef verið alla mína
tíð.
Eg vil sjá land þar
sem fólk býr út um allt
land á eigin forsend-
um og í sátt við um-
hvei-fi sitt. Ég vil líka
sjá sterka höfuðborg
sem við getum verið
stolt af. Það hefur ríkt
sátt um það á lands-
byggðinni að byggja
upp fallega höfuðborg
og er hún það í dag. Þeirri sátt
fylgdi sú sjálfsagða krafa að allir
landsmenn nytu til jafns þeirrar
þjónustu sem byggð var upp á höf-
uðborgarsvæðinu. Þessa kröfu hafa
margir og því miður ekki síst íbúar
höfuðborgarsvæðisins sagt vera
byrði á íslensku þjóðfélagi.
Því spyr ég til hvers var barist
að byggja upp fallega og sterka
höfuðborg ef helmingur lands-
manna fær þess ekki notið. Ég vil
fullt jafnrétti til náms óháð búsetu,
stétt eða fjárráðum, ég vil jafnrétti
til nota af sameiginlegum sjúkra-
stofnunum landsmanna og ég vil
virkjun mannauðs út um allt land.
Ég vil áframhaldandi flutning rík-
isstofnana út á land og nefni ég þar
sem dæmi ríkisfjölmiðlana að ein-
hverju leyti.
Ég hafna þeirri stefnu Sjálf-
stæðisflokksins að fólk eigi að búa
þar sem það er hagkvæmast pen-
ingalega séð. Ég vil að andans mál-
efni, frelsisþrá mannsins, mannlíf
og búseta í náttúru Islands skipti
meiru máli er framtíðar búseta
landans er ráðin á ríkisstjórnar-
borðinu. Ég er tilbúinn að standa
við þau orð að til þess að þetta geti
orðið er forsvaranlegt að framlög
komi úr sameiginlegum sjóðum ís-
lensku þjóðarinnar.
Umhverfismál eiga að koma okk-
ur ungu fólki við og þau gera það.
Það erum jú við sem komum til
með að erfa þetta land með öllum
þess kostum og göllum. Framsókn-
armenn eru í fararbroddi þeirra Is-
lendinga sem vilja auka þá um-
hverfisvænu orku sem notuð er á
Islandi og hafa best sýnt það í
vetnismálinu svo kölluðu. Það ætti
að setja Islendinga í fremstu röð
við nýtingu vetnis sem innlends,
mengunarlauss orkugjafa í sam-
göngum. Umhverfisstefna og at-
vinnustefna á að haldast í hendur
Björgmundur Örn
Guðmundsson
og í dag höfum við
efni á að ræða um-
hverfismál og það
eigum við að gera á
skynsamlegan hátt.
Ég tel að í umhverfis-
málum eigum við að
sýna öðrum þjóðum
fordæmi. Þar er okk-
ar stærsta auðlind
falin, þ.e. í óspilltri
náttúru og ekki síst í
umhverfisvænni at-
vinnustefnu se*m aðr-
ar þjóðir ættu að taka
upp í ríkara mæli.
Umhverfismál og
landbúnaður er órjúf-
anleg heild sem má
ekki rjúfa heldur byggja upp í sam-
einingu, komandi kynslóðum til
gagns. Landbúnaður hefur verið
og á að vera hluti af ásýnd lands-
ins, menningu þjóðarinnar og upp-
spretta fæðu til handa okkur og
okkar afkomendum. Þó hver at-
vinnugreinin á fætur annarri upp-
lifi sína tískubólu mun það aldrei
falla úr tísku að borða.
Sjávarútvegur skiptir okkur
Vestfirðinga miklu máli og því er
öll óvissa um framtíð íslensks sjáv-
arútvegs mjög slæm fyiir okkur.
Ég hef þá trú að núverandi fisk-
BUSETA
Nú er kominn tími til
að ná sátt um að
byggja upp fallega og
sterka landsbyggð.
Björgmundur Örn
Guðmundsson gerir
hér grein fyrir stefnu-
málum sínum.
veiðistjórnunarkerfi sé það besta
sem völ er á en á því eru ýmsir
annmarkar. Skattleggja skal þá
sérstaklega sem hverfa brott úr út-
gerð því sjávarútvegur er ekki
bara atvinnurekstur heldur líka
byggðamál. Tengja ætti útgerð
meira við byggðirnar í landinu svo
þær fái notið nálægðarinnar við
fiskimiðin. Við Framsóknarmenn á
Vestfjörðum erum tilbúnir að leiða
þessar breytingar með formann
sjávarútvegsnefndai'innar og von-
andi næsta sjávarútvegsráðherra í
broddi fylkingar.
Ég get ekki verið þekktur fyrir
að senda frá mér grein án þess að
Brúðhjón
Allur borðbiinaður - Glæsileg gjafavara - Bníðlijónalistar
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
nefna menntamál. Jöfnuður náms-
kostnaðar er málefni sem brennur
heitt á okkur Vestfirðingum. Mikill
sigur náðist er við Framsóknar-
menn komum í gegn baráttumálum
okkar í sambandi við Lánasjóðinn í
mikilli andstöðu sitjandi mennta-
málaráðherra Sjálfstæðisflokksins.
Þessi baráttumál voru að lækka
endurgreiðsluhlutfall námslána og
taka upp mánaðargreiðslur. Með
tvöfóldun dreifbýlisstyrks var stig-
ið rétt skref í rétta átt en betur
þarf að gera til jöfnunar náms-
kostnaðar. Þau skref sem stigin
hafa verið í fjarkennslumálum á
Vestfjörðum sýna svo ekki verður
um villst að barátta og málefna-
flutningur okkar ungra Framsókn-
armanna var og er á rökum reist.
Þarna er kominn sterkur „sam-
herji“ í baráttunni fyrir jafnrétti til
náms. Við Framsóknarmenn eram
stoltir af verkum okkar á síðasta
kjörtímabili og viljum gera enn
betur á næsta kjörtímabili en til *
þess þurfum við stuðning, þinn
stuðning.
Það hefur ríkt sátt um að byggja
upp fallega og sterka höfuðborg og
hefur það tekist. En nú er kominn
tími til að ná sátt um að byggja upp
fallega og sterka landsbyggð og
þar kalla ég sérstaklega til liðs við
okkur íbúa Reykjavíkur, sem við
Vestfirðingar höfum stutt.
Höfundur er í 3. sæti á framboðs-
lista Framsóknarflokksins á Vest-
fjörðum vegna alþingiskosninganna. V
Árangur
eoa upplausn
Suðurland
H. Haarde
fjármálaráöherra og
varaformaöur
Sjálfstæðisflokksins
fundar með Sunnlendingum
íTunguseli, Skaftártungum í dag kl. 21.00
Þingmenn og frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi
taka þáttí umræðum.
Allir velkomnir
l
u rmoifqun
á ÍB Étirirtllto-riiliirirrafctir*' i
f Afááttur |
20% íSimjw'ðM
af:MS X Y~ Vtf *
I JþMssmaKP
P v tméðiafeláttarhefii
Vctí<) rrllcoificit