Morgunblaðið - 21.04.1999, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999 51
Öllum tryg’g’ð lág-
marksframfærsla
í 25. GREIN Mann-
réttindayfirlýsingar
Sameinuðu Þjóðanna
kveður á um að allir
eigi rétt á að grunn-
þarfir þeirra til mann-
sæmandi lífs séu upp-
fylltar. Nálega 27.000
einstaklingar lifa nú
undir fátæktarmörkum
á Islandi. Þeir sem hér
um ræðir eru gamalt
fólk, öryrkjar, og lág-
launafólk, þar á meðal
fjöldi bænda. Réttindi
þessa fólks eru
hundsuð.
Island er með 5.
hæstu þjóðartekjur á
mann af OECD ríkjunum en ver
samt miklu minna hlutfalli af lands-
framleiðslu sinni til velferðarmála
en t.d. hin Norðurlöndin.
Tillögur
Húinauistaflokksins
Húmanistar hafna þeirri stefnu
stjórnvalda sem þrengir að fólki þar
til því liggur við köfnun. Stefnu sem
veldui' sjúkdómum, lífsflótta og hef-
ur kostað mörg mannslíf. Við teljum
öllu öðru mikilvægara að öllu fólki
séu tryggð mannsæmandi lífsskil-
yrði og lágmarks framfærsla. Til-
lögur Húmanistaflokksins eru að
elli- og örorkulífeyrir verði kr.
90.000 á mánuði. Lágmarkslaun
verði 100.000 krónur á mánuði og
skattleysismörk einstaklinga verði
100.000 krónur.
Hvaðan á að
taka peningana?
Til þess að standa undir kostnaði
af tillögum Húmanistaflokksins um
hækkun örorkubóta og ellilífeyris
leggjum við til róttækar breytingar
á lífeyrissjóðakerfinu. Myndaður
verði sameiginlegur lífeyrissjóður
allra landsmanna sem
verði gegnumstreymis-
sjóður og úr honum
verði greitt jafnharðan
til allra lífeyris- og
bótaþega sbr. íyrr-
nefndar lágmarksupp-
hæðir.
Gert er ráð fyrir að
þau 10% af launa-
greiðslum, eða 30 millj-
arðar á ári, sem nú
renna til tuga lífeyris-
sjóða, renni í þennan
sjóð. Því til viðbótar
koma þeir 15 milljarðar
sem árlega er varið til
þessara mála í Trygg-
ingastofnun. Með þess-
um hætti myndast ríflegur grunnur
til að fjármagna tillögur okkar auk
þess sem um mikla einföldun verður
að ræða. Með þessu nýja fyrir-
komulagi tekur sá hluti þjóðarinnar
sem er virkur í atvinnu á hverjum
tíma ábyi'gð á afkomu þeirra sem
ekki geta séð sér farborða.
Annar ávinningur
Annað sem vinnst með þessari
kerfisbreytingu er að verkalýðsfor-
ystan mun smám saman losna við
að „ávaxta" fé lífeyrissjóðanna, sem
gert er nú að stórum hluta með
kaupum á erlendum verðbréfum og
hlutabréfum, einkum í stórfyrir-
tækjum. Það hlýtur að vera undar-
legt að sömu menn setja fram
launakröfur gagnvart fyrirtæki og
vinda sér svo hinum megin við borð-
ið sem stjómarmenn þar til að neita
þessum sömu kröfum í því skyni að
tryggja hagnað hluthafanna (lífeyr-
issjóðanna). Það er því mikið gust-
ukarverk að losa verkalýðsfélögin
við sjóðina sem svo lengi hafa verið
launabaráttu þeirra Þrándur í Götu.
Þá er einnig með þessu komið í
veg fyrir að fé sem ætlað er til ævi-
Stjórnmál
Húmanistar, segir
Methúsalem Þórisson,
hafna þeirri stefnu
stjórnvalda sem þreng-
ir að fólki þar til því
liggur við köfnun.
kvöldsins, sé teflt í hættu með spá-
kaupmennsku á brothættum verð-
bréfamörkuðum.
Hækkun lágmarkslauna
og skattleysismarka
Húmanistaflokkurinn leggur til
að kostnaði vegna hækkunar skatt-
leysismarka og beinum kostnaði
ríkisins vegna hækkunar á lág-
markslaunum verði mætt með auð-
lindagjaldi og skatti á fjárfestingar
utan rekstrar en það mun gefa
a.m.k. 15-20 milljarða króna á ári.
Kastaðu ekki
atkvæði þínu á glæ
í kosningunum í vor munu ef til
vill ýmsir hugsa sem svo að ekki
borgi sig að greiða Húmanista-
flokknum atkvæði sitt því hann sé
svo lítill. Við þá vil ég segja þetta:
Að kjósa flokk sem vinnur gegn
hagsmunum þínum eða svíkui' flest
kosningaloforð, er að kasta atkvæði
sínu á glæ. Hvert atkvæði greitt
Húmanistaflokknum er atkvæði
greitt því að öllum verði tryggð lág-
marksframfærsla sem gefur kost á
mannsæmandi lífi og möguleika á
eðlilegri félagslegri þátttöku.
Höfundur er 2. maður á lista
Húmanistaflokksins í Austurlnnds-
kjördæmi.
merm!
Þió, eins 09 aórir, eruó velkomnir
o www.xd-reykjones.is. Þar getió
díó m.Q. tekió pólitískt sjólfspróf.
Hver veit nema þió séuó sannir
Sjólfstæóismenn inn vió beinió.
www.xd-reykjanes.is
Eitthvað stór-
kostlegt er að
Stjórnmál
Fíkniefnaneysla, segir
Björgvin Egill
Arngrímsson, er
alvarleg ógnun.
ÞEIM verst settu í
íslensku þjóðfélagi
finnst sjálfsagt nóg
komið hvað varðar
umræðurnar um
kvótamálið hjá þeim
sem hafa tjáð sig íyrir
hönd Frjálslynda
flokksins, en lítið farið
fyrir umræðum um
samfélagsmál. Það er
einu sinni svo að fram-
kvæmd sú sem viðhöfð
er í fiskveiðistjórnun-
inni hér á landi er ein
mesta sóun á verð-
mætum sem átt hefur
sér stað um langt ára-
bil. Nú fleyta menn
rjómann ofan af í fiskveiðum. Gíf-
urlegum verðmætum er hent í haf-
ið. Það er verkefni númer eitt að
stöðva þessa þróun. Það er verið
að tala um verðmæti uppá millj-
arða króna sem hent er árlega í
hafíð af fiski og fiskafurðum.
Frjálslyndi flokkurinn hefur
ekki í hyggju að hækka skatta til
að lagfæra kjör öryrkja og aldr-
aðra, heldur að fá meiri arðsemi
út úr auðlindunum sem okkur er
trúað fyrir. Það fólk, sem valist
hefur í trúnaðarstörf innan
flokksins, jafnt sem hinn almenni
félags- og stuðningsmaður, gerir
sér fulla grein fyrir bágum kjör-
um fjölda fólks og stefnir stað-
fastlega á leiðrétting-
ar. Eins og staðan er í
dag er uppstokkun á
fiskveiðistjómunar-
kerfinu bráðnauðsyn-
leg fyrir þjóðina í
heild sinni. Með því
skapast verulega auk-
in sóknarfæri til sam-
félagshjálpar. Islend-
ingar eiga ekki að
horfa á neyð sam-
landa sinna. Við eig-
um að bregðast við og
það skjótt. Einmitt
það teljum við okkur
vera að gera sem
fylkjum okkur um
Frjálslynda flokkinn.
Talsmenn ríkisstjórnarflokk-
anna tala mikið um hversu mikið
hefur verið greitt niður af erlend-
um skuldum. 35 milljarðar sem
búið er að greiða eða verður
greitt á næstunni, umfram af-
borganir. Það er góðra gjalda vert
að standa skil á skuldum og ríf-
lega það. En allt er best í hófi.
Frá mínum bæjardyrum séð væri
ekki eftirsjá í fimm milljörðum til
aðstoðar því fólki sem hefur ekki
til hnífs og skeiðar. Til eru dæmi
um fólk sem hefur 22.000 krónur
til að lifa af í hverjum mánuði.
Hefur ekkert til saka unnið, en
orðið fyrir slysi eða veikindum
sem leitt hafa til örorku. Eða ein-
faldlega fæðst inn í þennan heim
fatlaðir eða veikir. Sönn dæmi
eins og þegar ungt fólk slasast og
verður óvinnufært. Lífeyrisrétt-
indi lítil sem engin og ekkert ör-
orkumat liggur fyrir. Þessir ein-
staklingar fá um tuttugu og tvö
þúsund krónur til framfærslu á
mánuði. Sama ef viðkomandi er
fjölskyldumaður. Nákominn ætt-
ingi minn í Keflavík er þroska-
heftur. I áranna rás hef ég verið
vitni að þeirri litlu og ósann-
gjörnu aðstoð sem foreldrar hans
hafa fengið hjá samfélaginu. Það
er eitthvað stórkostlegt að hjá
þeim sem ráða.
Alvarleg ógnun sem steðjar að
þjóðfélaginu er fíkniefnaneysla.
Þegar allar viðvörunarbjöllur
glumdu um stóraukinn innflutning
á eiturefnum, skáru ráðamenn
þjóðarinnar niður starfsemi toll-
gæslunnar. Fámenn þjóð má ekki
við að missa tugi eða hundruð ung-
menna á glapstigu. Nú er mál að
linni.
Við í Frjálslynda flokknum ger-
um okkur fyllilega grein fyi-ir
neyðinni og viljum bregðast fljótt
við. Því fleiri sem leggja okkur lið í
réttlætisbaráttunni 8. maí - því
fyrr kemur batinn.
Höfundur situr í miðstjörn Frjáls-
lynda flokksins.
Björgvin Egill
Arngrínisson
DQQlegor skodQnakannQnir
Komdu skoðunum þínum ó
fromfæri í doglegum könnunum
um mólefni dogsins.
Pólitískt sjólfspróf
Hvor stendur þú í hinu pólitíska
litrófi? Toktu prófið og sjððu
hvort þú ert sjolfstædismaður.
Hin hliðin ó frQmbjóðendunum
Hvemig er persónon bok við
frombjóðandonn? Skoðaðu hina
hliðina ó frambjóðendunum.
Fréttir 09 kosningQboróttQn
Hvað er oð gerast í kosninga-
baróttunni, niðurstöður
kannana, lífið ó Regkjonesi
og margt margt fleira.
Verðlauna spurningoleikur
Hvað veist þú um Reyiganeslg'ördæmi? Taktu
þðtt í skemmtilegum spumingaleik sem tekur
ó öllum þóttum tilverunnar. Þeir sem svara
Öllu réttu fó vinning (þó odeins 1 ó mann ð viku).