Morgunblaðið - 21.04.1999, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999 59
Safnaðarstarf
Skátamessa í
Hallgrímskirkj u
SKÁTAMESSA verður í Hallgríms-
kirkju á sumardaginn fyrsta og hefst
hún kl. 11 f.h. Séra Jón Dalbú Hró-
bjartsson mun þjóna til altaris.
Ræðumaður verður Olafur Asgeirs-
son, skátahöfðingi. Organisti verður
Douglas A. Brotcie. Skátakórinn
undir stjórn Arnar Arnarsonar mun
leiða sönginn.
Að aflokinni messu verður selt
kaffi í sal Skátasambands Reykja-
víkur á 3. hæð Skátahússins við
SnoiTabraut 60.
Skátar munu ganga í skrúðgöngu
frá Skátahúsinu eftir Snorrabraut,
niður Laugaveg og síðan upp Skóla-
vörðustíg að Hallgi’ímskirkju.
Ski-úðgangan leggur af stað kl. 10
frá Skátahúsinu.
Skátamessa
á Akranesi
SKÁTAMESSA verður haldin í
Akraneskirkju á morgun, sumardag-
inn fyrsta, kl. 11. Hálftíma áður
verður lagt af stað í skrúðgöngu til
kirkjunnar frá Skátahúsinu við Há-
holt. Löng hefð er fyrir skátamessu
á þessum degi á Akranesi. Skátar
aðstoða við helgihaldið og Svanna-
kórinn syngur. Avarp eldri skáta
flytur Gísli S. Sigurðsson. Börn
verða borin til skirnar. Akumesing-
ar eru hvattir til þess að fjölmenna
bæði í skrúðgöngu og kirkju.
Sóknarprestur.
Skemmtikvöld
í Krossinum
að kveldi
vetrardags
KROSSINN efnir til skemmtikvölds
síðasta vetrardag að Hlíðasmára 5 í
Kópavogi. Ovenjuleg söngatriði
verða á dagskrá sem og mögnuð
skemmtiatriði. Skemmtikvöldið
hefst kl. 20.30 og allir velkomnir.
Vígsluafmæli
Ytri-Njarð-
víkurkirkju
HÁTÍÐARMESSA verður í Ytri-
Njarðvíkurkirkju sumardaginn
fyrsta, 22. apríl, kl. 14 í tilefni 20 ára
vígsluafmælis Ytri-Njarðvíkur-
kirkju. Herra Sigurbjörn Einarsson
biskup mun prédika og þjóna fyrir
altari ásamt núverandi og fyrrver-
andi sóknarprestum Njarðvíkur-
prestakalls og sóknarpresti Kefla-
víkursafnaðar. Pað er tilhlökkun fyr-
ir Ytri-Njarðvíkursöfnuð að fá í
heimsókn Sigurbjörn Einarsson
biskup við afmæli kh'kjunnar, en
hann vígði hana á sumardaginn
fyrsta þann 19. apríl 1979.
Vígsluvottar við þá athöfn voru
þau sr. Björn Jónsson, sr. Bragi
Friðriksson, Friðrik Valdimai-sson
og frú Guðrún Gísladóttir ekkja sr.
Páls Þórðarsonar, fyrsta sóknar-
prests Njarðvíkurprestakalls. Vegna
afmælisins hafa miklar framkvæn-
mdir átt sér stað innan dyra. Kirkjan
öll máluð, gólf endurbætt, nýjar
gardínur, sem Systrafélag kirkjunn-
ar gaf, ásamt blómum í anddyri.
Vonandi sjá sem flestir Njai-ðvík-
ingar og aðrh- velunnarar kirkjunnar
sér fært að koma og fagna 20 ára af-
mælinu og þiggja svo veislukaffi í
Stapa að hátíðai-messu lokinni.
Leifur A. Isaksson, formaður
Ytri-Njarðvíkursafnaðar.
Blómamessa í
Víðistaðakirkju
BLÓMAMESSA verður að venju
sumardaginn fyrsta og hefst kl. 14.
Sú venja hefur skapast að halda sér-
staka blómamessu við mót sumars
og vetrar og er kirkjan þá öll blóm-
um skreytt.
Blómamiðstöðin og Ásmundur
Jónasson hafa hjálpað til að gera
þetta eins veglegt og hugsast getur
og hafa lagt mikið í að svo mætti
verða og kunnum við þeim bestu
þakkir fyrir. Að þessu sinni mun
Einar S.M. Sveinsson prédika og
barnakórinn undh' stjórn Kristínar
Helgadóttur og Kór Víðistaðasóknar
undir stjórn organistans Ulriks Óla-
sonar syngja. Fólk er hvatt til að
leggja leið sína í Víðistaðakirkju á
sumardaginn fyrsta og eiga þar góða
stund.
Sigurður Helgi Guðmundsson.
Vakningar-
herferð með
Roger Larsson
RÆÐUMAÐURINN og fyrirbiðj-
andinn Roger Larsson frá Ume& í
Svíþjóð heimsækir Island dagana
20.-25. apríl. Hann verður hér í boði
Hjálpræðishersins og verða sam-
komur á Hjálpræðishernum, Kirkju-
stræti 2, miðvikudag, fimmtudag og
föstudag kl. 20, síðan í Fríkirkjunni
við Tjörnina á laugai'dag kl. 20, þar
sem hann býður öllum söfnuðum sér-
staklega.
Á sunnudag kl. 11 er svo Helgun-
arsamkoma á Hjálpræðishernum og
síðasta samkoman verður sunnu-
dagskvöldið kl. 20 í Fríkirkjunni við
Tjörnina.
Miriam Óskarsdóttir.
Áskirkja. Stai'f fyrir 10-12 ára börn
kl. 17.
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldr-
aða kl. 13-17.
Dömkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
messa kl. 18.05. Sr. Frank M. Hall-
dórsson.
Seltjamarneskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður í safn-
aðarheimilinu.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra, opið hús í dag kl. 13.30-16.
Handavinna og spil. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 16. Bænarefnum er
hægt að koma til presta safnaðarins.
TTT í Ártúnsskóla kl. 16-17.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnaðai'-
heimilinu á eftir. „Kirkjuprakkarar“
starf fyrir 7-9 ára börn kl. 16. TTT
starf fyrir 10-12 ára kl. 17.15. Æsku-
lýðsstarf á vegum KFUM og K og
kirkjunnar kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Grafarvogskirkja. KFUK fyrir
stúlkur 9-12 ára kl. 17.30-18.30.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl.
10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl. 16.30.
Vídalínskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 14-16.30. Helgistund, spil
og kaffi.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund
í hádegi í kirkjunni kl. 12-12.30.
Æskulýðsstarf, eldri deild kl. 20-22 í
minni Hásölum. Kl. 20-21.30 íhugun
og samræður í safnaðarheimilinu í
Hafnarfjarðarkirkju. Leiðbeinendur
Ragnhild Hansen og sr. Gunnþór
Ingason.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl.
12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í
kirkjunni kl. 12.10. Samvera í kirkju-
málsverður á kirkjuloftinu á efth'.
Mæðrafundur kl. 14-15.30 í safnaðar-
heimilinu. Starf fyrir 10-12 ára börn
kl. 17 í safnaðarheimilinu.
Grensáskirkja. Samverustund eldri
borgara kl. 14-16. Biblíulestur, sam-
verustund, kaffiveitingar. TTT-stai-f
(10-12 ára) kl. 16.30.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir for-
eldra ungra barna kl. 10-12. Starf
fyrir 9-10 ára kl. 16.30. Starf fyrir
11-12 ára kl. 18.
Háteigskirkja. Mömmumorgunn kl.
10-12. Kvöldbænir og fyi'irbænir kl.
18.
Langholtskirkja. Starf eldri borgara
í dag kl. 13-17. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja. Fundur
„Kirkjuprakkara" (6-9 ára börn) kl.
14.30. Fundur TTT (10-12 ára) kl. 16.
Fundur æskulýðsfélagsins (13-15
ára) kl. 20.
Neskirkja. Mömmumorgunn kl. 10-
12. Kaffi og spjall. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 15-17. Umsjón
Kristín Bögeskov, djákni. Bæna-
lundi kl. 12.25, djáknasúpa, salat og
brauð á vægu verði - allir aldurshóp-
ar. Umsjón Lilja G. Hallgrímsdóttir,
djákni.
Landakirkja Vestmannaeyjum. For-
eldramorgunn kl. 10. Bænar- og
kyrrðai'stund kl. 12.05. Biblíulestur í
KFUM & K húsinu kl. 20.30.
Kletturinn, kristið samfélag. Bæna-
stund kl. 20. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Kl.
18.30 fjölskyldusamvera sem hefst
með léttri máltíð á vægu verði. Kl.
19.30 er kennsla og þá er skipt niður
í deildh’. Allir hjartanlega velkomnir.
Lágafellskirkja. Kyrrðar- og bæna-
stundh' alla fimmtudaga kl. 18 í vet-
ur.
Safnaðarheimilið í Sandgerði.
Fundur hjá æskulýðsfélaginu Utnes.
Hólaneskirkja, Skagaströnd.
Mömmumorgunn í Fellsborg kl. 10.
Hveragerðiskirkja. Aðalsafnaðar-
fundur Hveragerðissóknar kl. 11
sunnudaginn 25. apríl. Venjuleg að-
alfundarstörf. Sóknarnefnd.
FRÉTTIR
Sumardagurinn fyrsti
Dagskrá fyrir börn
um gamlar venjur
ÞJÓÐMINJASAFN íslands fagnar
sumri með því að bjóða börnum til
stuttrar samkomu í Ráðhúsi
Reykjavíkur.
Þjóðháttadeild Þjóðminjasafnsins
og Möguleikhúsið hafa sett saman
hálftíma dagskrá um gamlar venjur,
náttúrutrú og söngva sem tengjast
sumarkomunni. Hún verður flutt á
sumardaginn fyrsta, 22. apríl, föstu-
daginn 23. apríl og sunnudaginn 25.
apríl kl. 14 alla dagana. Á sumar-
daginn fyrsta fer skrúðganga frá
Ingólfstorgi kl. 13.30 að Ráðhúsinu.
Nokkrar gamlar sumargjafir verða
til sýnis í sal Ráðhússins á sama
tíma.
Hátíðarhöld
í Garðabæ
MIKIÐ verður um að vera í Garða-
bæ á sumardaginn fyrsta og munu
skátar úr Skátafélaginu Vífli sjá um
dagskrána líkt og undanfarin ár.
Dagskráin hefst með skátamessu
í Vídalínskirkju kl. 13. Skátar munu
standa heiðursvörð og vígðir verða
nýliðar inn í félagið. Kl. 14 leggur
skrúðganga af stað frá Vídalíns-
kirkju og mun lúðrasveit Tónlistar-
skóla Garðabæjar sjá um að allir
gangi í takt. Gengið verður að Hofs-
staðaskóla þar sem Lúðrasveitin
leikur nokkur lög og gestir boðnir
velkomnir. Stór og mikil þrauta-
braut verður við skólann, svifbraut
og koddaslagur. Einnig verður boð-
ið upp á andlitsmálun og fleira.
Skátakórinn syngur og skátahljóm-
sveitin leikur létta tónlist.
Hin árlega kaffisala Vífils verður
í hátíðarsal Hofsstaðaskóla.
Sumardagur-
inn fyrsti
í Kópavogi
SKÁTAFÉLAGIÐ Kópur hefur
umsjón með dagskrá dagsins í
Kópavogi á sumardaginn fyrsta.
Dagskráin hefst í Hjallakirkju
með skátaguðsþjónustu. Prestur er
sr. íris Kristjánsdóttir. Að því
loknu verður skrúðganga frá Digra-
neskirkju að Iþróttahúsinu Smáran-
um þar sem fram fer skemmtun.
Meðal dagskráratriða er Skóla-
hljómsveit Kópavogs, Hljómsveitin
Búdrýgindi, Free Style-stúlkur úr
Kópavogi dansa og Hattur og Fatt-
ur koma í heimsókn. Kynnir verður
Sveinn Þór Geirsson. Að lokinni
skemmtun stendur Unglingaráð
Breiðabliks fyrir bingói.
Kl. 15 er kaffisala kvenskáta-
sveitarinnar Urtna í Félagsheimili
Kópavogs að Fannborg 2.
Leikfélag
Sólheima frum-
sýnir leikrit
LEIKFÉLAG Sólheima frumsýnir
leikritið Ut í geim í leikstjóm Gunn-
ars Sigurðssonar á sumardaginn
fyrsta kl. 15. Leikritið verður sýnt í
Iþróttaleikhúsi Sólheima.
I Sólheimahúsi verður einnig
boðið upp á kaffiveitingar eftir leik-
sýningu. Aðgangseyrir er 750 kr. og
eru kaffiveitingar innifaldar.
Verslunin Vala og Listhús Sól-
heima hafa opið milli kl. 12-15.
SBS bjóða upp á sætaferðir frá
Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík
kl. 13 og frá Sólheimum kl. 18. Verð
1.000 kr. báðar leiðir. Allir velkomn-
ir.
Opið hús
í Gjábakka
og Gullsmára
KÓPAVOGSBÆR í samráði við Fé-
lag eldri borgara í Kópavogi ætla að
opna félagsheimilin Gjábakka og
Gullsmára fyrir fólk á öllum aldri
sumardaginn fyrsta.
í báðum félagsheimilum verður
dagskrá frá kl. 13-17. Sömu dag-
skráratriðin verða í báðum félags-
heimilunum, sem mætti raunar
kalla félags- og menningarsetur á
sitt hvorum tíma. Allir eru velkomn-
ir og verður selt kaffi og meðlæti í
báðum félgsheimilunum.
Kaffisala
Vatnaskógar
KAFFISALA Skógarmanna verður
á morgun, sumardaginn fyrsta, og
hefst kl. 14.30 í húsi KFUM og
KFUK við Holtaveg, skammt norð-
an við fjölskyldugarðinn í Laugar-
dal. Á staðnum verða sýndar mynd-
ir og fleiri munir sem voru á 100 ára
afmælishátíð KFUM og KFUK í
Perlunni í mars sl. Kaffisalan er til
styrktar sumarbúðunum í Vatna-
skógi sem Skógarmenn KFUM
hafa starfrækt í yfir 75 ár.
Að þessu sinni mun allur ágóði
renna til framkvæmda við nýjan
svefnskála í Vatnaskógi. Á kaffisöl-
unni á morgun verður einnig hægt
að skrá börn til sumardvalar í
Vatnaskógi.