Morgunblaðið - 21.04.1999, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999 65
BRIDS
Uiiis.jón GuAmuiidiir
l'áll Arnarson
VESTUR trompar út gegn
fjórum spöðum suðurs og
spurningin er: Hvort vill
lesandinn heldur veðja á
vörnina eða sóknina?
Suður gefur; allir
hættu.
Norður * 87
V 63 ♦ ÁKDG + Á6542
Vestur Austur
♦ 62 A Á43
VÁD842 ¥ KG1095
♦ 9853 ♦ 4
*K9 * DG107
Suðui' A KDG1095 ¥7 ♦ 10762 *83
Vestui- Nordur Austur Suður
— — — 3 spaðar
Pass 4 spaðar Pass
Pass Pass
Lítum fyrst á spilið frá
sjónarhóli varnarinnar. Þrír
slagir eru fyrirsjáanlegir -
einn á trompás, annar á
hjarta og sá þriðji á lauf. Ef
hnekkja á spilinu verður
austur að fá tígulstungu. Til
að undirbúa stunguna,
gefui' austur fyrsta slaginn.
Tilgangurinn er sá að rjúfa
samband sagnhafa heim í
trompinu. Ef suður trompar
nú aftur út, drepur austur
og spilar tígli, en þá kemst
vestur inn á hjarta og gefur
makker sínum stungu.
Spilið tapast því
greinilega ef sagnhafi
trompar strax aftur út. En
hann er ekki skyldugur til
þess og mun sterkari leikur
er að beita skærabragðinu
og spila hjarta til að klippa
þar á samband varnarinnar.
Dugir það til vinnings?
Já, ef vörnin spilar tígli,
því þá getur sagnhafi
trompað hjarta síðar til að
taka síðasta spaðann af
austri. En segjum að vörnin
spili bara hjarta um hæl. Ef
suður trompar og trompar
út, drepur austur og spilar
tígli. Þá er blindur læstur
inni og sagnhafi neyðist til
að gefa slag á lauf, sem
þýðir að vörnin nær
tígulstungunni.
En það er sagnhafi sem
hefur síðasta orðið. Hann
tekur aftur upp skærin og
hendir laufi í síðara hjartað!
Þannig kemur hann
endanlega í veg fyrir að
vestur komist inn til að spila
tígli á viðkvæmu augnabliki.
Ást er...
11-28
AÐ geva áætlanir
fvam í tímann
TM Roq U.8. Pat. Otf. — all riQhta roaervod
(c) 1995 Los AnQelea Timea Syndicate
GULLBRÚÐKAUP. í dag, miðvikudaginn 21. apríl, eiga 50
ára hjúskaparafrnæli hjónin Diljá E. Þorvaldsdóttir og
Bjarni Guðjónsson, Ægisíðu 64, Reykjavík. Þau eru að
heiman í dag.
SKÁK
ilm.sjon Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á
danska meistaramótinu í
Arósum í ár. Nikolaj Borge
(2.465) var með hvítt, en Er-
ling Mortensen (2.420) hafði
svart og átti leik. Hvítur lék
síðast 62.
Hc2-c3+??,
en nauðsyn-
legt var 62.
Hcl - Rd3
63. Hhl! og
hvítm- ætti
að halda
jafntefli. Nú
vinnur svart-
ur:
62. - Rd3! og
Borge gafst
upp, því eftii'
63. Hxd3+ —
Ke2 getur
hann ekki
hindrað svart
í að vekja
upp nýja drottningu. Úrslit
mótsins: 1.-2. Peter Heine
Nielsen og Sune Berg Han-
sen 6‘A v. af 9 mögulegum,
3.-4. Curt Hansen og Lars
Bo Hansen 6 v., 5. Erling
Mortensen 5 v., 6. Lars
Schandorff 414 v., 7. Bent
Larsen 4 v., 8. Jens Ove
Fries-Nielsen 2'k v., 9.-10.
Henrik El-Kher og Nikolaj
Borge 2 v.
Með morgunkaffinu
ÉG hef ekki unnið fyiir HVAÐ segirðu, elskan?
nein glæpasamtök og get Fékkstu ekki launahækkun?
sagt þér að engin samtök í
heiminum fengju mig til að
vinna handtak.
HÖGNI HREKKVÍSI
STJ ÖRJVUSP A
eftir Frances llrakc
NAUTIÐ
Afmælisbarn dagsins: Þú ert
traustur og þrautseigur og
átt því gott með að fylgja
málum eftír allt til loka.
Hrútur _
(21. mars -19. apríl)
Þú þarft að venja þig af þvi
að vera alltaf á síðustu
stundu með alla hiuti. Þetta
er þér ertitt og óþægilegt
fjrir aðra sem treysta á þig.
NdUt
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að gæta þess vel að
fá nægan svefn því of miklar
vökur fara illa með sál og lík-
ama. Láttu því áhyggjumar
ekki hrannast upp heldur
gakktu strax í málið.
Tvíburar _
(21. maí - 20. júní) “rtA
Þú þai-ft að hnýta ýmsa lausa
enda áður en þú getur tilkynnt
að þú hafir náð settu marki.
Það hinsvegar er rétt verk og
löðurmannlegt svo þér verður
ekki skotaskuld úr því.
Krabbi
(21. júní - 22. júlO
Þótt þér finnist á þér standa
öll spjót skaltu hvergi hvika
heldur halda þínu striki.
Þannig sigrast þú best á erf-
iðleikunum.
Ljón
(23. júh' - 22. ágúst) iW
Haltu sambandi við þá vini
þína sem þú telur að séu þess
virði að þú gefir þeim eitthvað
af þér og þínum tíma. Þiggðu
svo vináttu þeirra á móti.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Það skiptir öllu máli að hafa
þannig áhrif á fólk að það
taki þig trúanlegan og fáist
til þess að fela þér ábyrgð.
Mundu líka að kurteisi kost-
ar ekki neitt.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú hefm- verið að velta fyrir
þér vandasömu máli og nú
allt í einu rennur upp íyrir
þér ljós þegar lausnin liggur
fyrir og þá er bara að ganga í
hlutina.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú þarft á öllu þínu að halda
fyrir þýðingarmikinn fund
seinnipartinn svo þú skalt
reyna að undirbúa þig eins
og þú frekast getur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) ACr
Það getur verið erfitt að
opna augu samferðamanna
sinna og svo sannarlega að
hafa það á tilfinningunni að
maður sé einn í heiminum.
En sýndu þolinmæði.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Þótt þú viljir ekki leiðast út í
umfangsmiklar umræður er
ekki um annað að ræða ef þú
á annað borð vilt vinna mál-
stað þínum fylgi.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar)
Gættu þess að skapa ekki
stærri vandamál með fram-
komu þinni heldur en þau
sem þú ætlar að leysa.
Mundu að allir eiga sinn rétt.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Nú verður þú að hrökkva eða
stökkva þvi ekkert annað
getur þokað málum þínum
áfram. Ef þú vilt ekki staðna
verðurðu að sýna dirfsku.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
UTANHUSS
KLÆÐNINGAR
ÁRVÍK
ÁRMÚLA1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
UTANHUSS
KLÆÐNINGAR
ARVIK
ÁRMÚLA1 • SlMI 568 7222 • FAX 568 7295
Altt í skotveiðina
Svartfuglsskot, 25 stk. í pakka frá 481-
PENN-SJÓSTÖNG MEÐ HJÓLI Á AÐEINS 9.900-
Grandagarði 2, Rvík, sími 552-8855. Opið virka daga 8-18 og laugardaga 10-14