Morgunblaðið - 21.04.1999, Page 68
MORGUNBLAÐIÐ
68 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999
"N
ÍA(ctturflaCinn
Smiðjuvegi 14, %ópavo<gi, sími 587 6080
Síðasti vetrardagur
Kveðjum veturinn
og fögnum sumrinu með
Hilmari Sverrissyni
og Önnu Vilhjálms.
Gestasöngvari verður hinn
eini sanni kúreki norðursins
Hallbjörn Hjartarson.
Sumardaginn fyrsta
leika Hilmar Sverrisson og Anna Vilhjálms.
Föstudaginn 23. apríi
leika Hilmar Sverrisson og Anna Vilhjálms.
Laugardaginn 24. april
sjá hinir eldhressu Gammel dansk um fjöriö.
Húsið opnað öll kvöldin kl. 22.00.
y^Borðapantanir í símum 557 9717 og 587 6080 JJ
SUMARVÖRUR
SUMARSKÓRNIR
KOMNIR
Cinde^ella
Laugavegi 83 • Sími 562 3244
ctor
FOLK I FRETTUM
111111 »t i I TTTnTTITTn'l » 8 TTTTTI i T11 B E I i 11 8 Bl 118 I 8 8 11
VINSÆLUSTU KVIKMYNDIR Á ÍSLANDI MSapril
Nr. var vikur Mynd Framl./Dreifing:
1. Ný - 8 MM (8 millimetrar) Columbia Tri-Stor ;
2. 2 6 La Vita e Belle (Lífið er fallegt) Melompo C ;
3. 1 4 Paybock (Gert upp) lcon Ent. 1. :
4. Ný - (orruptor (Spillingarbæli) NewUneCinema 1
5. 7 10 A Bug's Life (Pöddulif) Walt Disney
6. 8 2 Jack Frost (Frosti) Warner Bros |
7. 4 4 Americon History X (Óskráðo sagan) New Line Cinemo ;
8. 10 2 OneTrue Thing (Eitt er satt) UIP
9. 3 2 A Civil Action (Málsókn) UIP
10. 5 3 Blast frorn the past (Fortiðin bnnkar á dyrnar) New Line Cinemo ;
11. 6 3 Ever After (Að eillfu! 20th Century Fox 1
12. 14 7 Babe - Pig in the City (Svin i stórborginni) UlP/Universol 1
13. Ný - Simon Birch Walt Disney
14. 11 5 Mighty Joe Young (Jói sterki) Buena Vista
15. 12 9 Shakespeare in Love (Ástfanglnn Shakespeare) BFC/Miromax ;
16. 9 2 Still Crasy (Elnn geggjaður) Columbia Tri-Star |
17. - ES Saving Private Ryan (Björgun óbreytts Rynns) DreamWorks ;
18. 13 6 Patch Adams (Hlátur er smitandi) UlP/Universal ;
19. 15 5 Lock Stock & Two Smoking Summit :
20. 24 20 Mulan Buena Vista I
Sýninggfstaður
Stjörnubíó, Bíóhöllin
Regnboginn
Bíóhöllin, Kringlubíó
Bíóhöllin, Kringlubíó
Bióhöllin, Kringlubíó
Bíóh., Bíób., Kringlub., Nýjo bíó Ak.
Hóskólabió
Bíóborgin
Hóskólabió
Laugorósbíó
Regnboginn, Nýjo bíó Kef., Isafji
Bíóhöllin, Bíóborgin, Nýja bíó Ak
Bíóhöllin, Nýjo bíó Ak.
Bíóhöllin, Bíóborgin
Hóskólobíó
Stjörnubíó
Hóskólabíó
Bíóhöllin, Nýja bíó Kef.
Kringlubíó
KringlubíóHósl
Spennumynd á toppnum
►ÞRJÁR nýjar myndir eru á ís-
lenska kvikmyndalistanum
þessa vikuna og fer ein þeirra
beint í toppsætið. Nicolas Cage
í Átta millímetrum er í toppsæt-
inu og tekur sætið af Mel Gib-
son í svörtu myndinni Payback
sem fer í þriðja sætið. SpiIIi-
valdurinn kemur ný inn á Iista
vikunnar og fer í fjórða sætið,
en í henni leikur Mark Wa-
hlberg sem gerði garðinn fræg-
an í Boogie Nights aðalhlut-
verkið ásamt Chuw Yun Fat.
Nýjasta kvikmyndin eftir
sögu John Irving, Simon
Birch, kemur einnig ný inn á
listann og fer í 13. sætið, en
í henni fer m.a. Jim Carrey
með lilutverk.
Roberto Benigni með sitt
indæla líf heldur sig við
toppinn og er áfram í
öðru sæti og maurarnir
grænu hækka sig um tvö
sæti og em í því fimmta.
NICOLAS
Cage í Átta
millínietnim
sem er á
toppi íslenska
kvikmynda-
listans.
NOKKRIR leikaranna í Lock, Stock & Two Smoking Barrels með leikstjóranum. Frá vinstri: Jason Statham,
Nick Moran, Jason Flemyng, Dexter Fletcher og Guy Ritchie.
Leikstjórinn Guy Ritchie
Ánæg’ður með fasta vinnu
FYRSTA mynd leikstjórans Guy
Ritchie hefur náð metaðsókn í Bret-
landi og var nýlega frumsýnd vest-
anhafs. Hérlendis hefur myndin
verið sýnd um nokkurt skeið og er
nú í 18. sæti íslenska kvikmynda-
listans. Hinn þrítugi handrítshöf-
undur og leikstjóri myndarinnar,
Guy Ritchie, segist vera ánægðast-
ur með að vera kominn með fasta
atvinnu í fyrsta skipti á ævinni.
„Þar til fyrir stuttu átti ég ekki
aur,“ segir Ritchie sem sér fram á
betri tíð. „Velgengni Lock, Stock &
Two Smoking Barrels hefur gert
það að verkum að ég hef gert samn-
ing um gerð þriggja annarra kvik-
mynda á næstu árum. Þetta þýðir
því fasta atvinnu a.m.k. næstu fímm
árin,“ segir leikstjórinn sem segir
að sú vissa breyti lífi hans meira en
nokkurn grunar.
Guy Ritchie segist hafa gengið í
gegnum marga hluti meðan hann
vann að því að fjármagna hugarfóst-
ur sitt, svarta gamanmynd sem ger-
ist meðal skuggalegra persóna í
austurhluta Lundúna. „Fjármögnun
myndarinnar var mikill höfuðverkur
og reynsla sem ég myndi síður vilja
endurtaka,“ segir Ritchie sem segist
hafa þurft að sofa á gólfinu heima
hjá vinum sínum mestan þann tíma.
„I þau tvö og hálft ár sem ég
vann að handritinu og fjármögnun-
inni hafði ég engar tekjur sem er
gífurlegt vandamál þegar maður
býr í Lundúnum sem er ein dýrasta
borg veraldar. En ég lét mig hafa
það og á endanum borgaði það sig.“
Langt frá Hroka og
hleypidómum
Reyndar snýst myndin að miklu
leyti um það að afla fjár og í mynd-
inni er ljósi varpað á dekkri hliðar
Bretlands en margir Bandaríkja-
menn hafa fengið að sjá í þeim fjöl-
mörgu endurgerðum nítjándu aldar
skáldverka sem frá landinu hafa
komið, eins og Hroka og hleypidóm-
um Jane Austin og fleiri verkum.
Kvikmynd Ritchie segir sögu fjög-
urra Lundúnabúa sem hafa komist í
kast við glæpaklíku og þurfa að aíla
hálfrar milljónar punda til að kom-
ast úr klípunni. Ritchie segist ætíð
hafa haft það í huga í handritsgerð-
inni að sýna aðra mynd af Bretlandi
en menn eru vanir að sjá. „Það lá
eiginlega beint við því Bretar hafa
verið að slá sig til riddara á fortíð
þjóðarinnar sem nýlenduherra sem
ég hef engan áhuga á. Ég vildi sýna
aðra hlið á bresku þjóðlífí og sýna
líf glæpagengja í Lundúnum,“ segir
hann.
Þótt hægt sé að staðsetja kvik-
myndina sem svarta gamanmynd
segir Ritchie að öllu gríni fylgi ein-
hver alvara. Leikaraliðið kemur úr
ýmsum áttum og má benda á tón-
listarmanninn Sting og knatt-
spyrnukappann Vinnie Jones. En
ekki eru allir leikararnir jafn þekkt-
ir og þessir tveir. „Meira en helm-
ingur leikaranna á einhverja fortíð í
glæpum og hefur jafnvel setið inni.
Eg taldi það mjög mikilvægt til að
ljá myndinni ákveðinn raunveru-
leika, enda tel ég að þeir sem
þekkja eitthvað að ráði til undir-
heimanna séu að leika alla daga,
hvort sem það er frammi fyrir dóm-
urum eða annars staðar. Það er að
mínu mati ástæðan fyrir því að
myndin gengur upp,“ segir Ritchie.