Morgunblaðið - 11.05.1999, Side 70
70 ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
!
I
Hundalíf
'o, t.UB8i ~hvae> HERJReKLvefete
—A£>-<5£f?4 7----------------
1 rriurrt oJcÍkí
•'ja ÞúTág uar j
'hloupoi íQtcjn-
úm skécj'tnn...
Ferdinand
Sumt
gengur í
ættir...
Árinn!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Sfmbréf 569 1329
Nató á
villigötum
Frá Rúnari Kiistjánssyni:
NÚ HAFA loftárásimar á Júgó-
slavíu staðið yfir það lengi að flestir
sæmilega viti bomir menn eru fam-
ir að skilja að í þeim fannst engin
lausn. Niðurstaðan er þveröfug,
loftárásimar auka vandann og gera
allar úrlausnir erfiðari. Það er öm-
urleg niðurstaða fyrir Nató, að
halda upp á 50 ára afmæli sitt með
því að gera alvarlegustu mistök sem
orðið hafa í sögu bandalagsins. Héð-
an af er Ijóst að Nató hefur glatað
tíltrú, það hefur engar lausnir fram
að færa, eina útspil þess hefur verið
ofbeldi og allir vita að ofbeldi fæðir
af sér meira ofbeldi. Mannkynssag-
an kennir okkur það. Strax í haust
byrjaði Nató að hafa í hótunum við
Serba og loks var staðan sú, að svo
stór orð höfðu verið látin falla. Og
hinn mikli herkostur var settur af
stað, dráp og eyðilegging fylgdi í
kjölfarið. En aldrei verður senni-
lega skemmt og eyðilagt svo mikið í
Serbíu, að það verði talið fréttaefni
á við það sem er að gerast að sögn
af slíku tagi í Kosovo, og vafalaust
verða aldrei drepnir svo margir
óbreyttir borgarar í loftárásum
Nató á Serbíu, að það verði talið
fréttaefni til móts við ætluð dráp á
Albönum í Kosovo. Flestar fréttir af
því tagi era teknar beint frá Albön-
um sjálfum og sjaldnast haft fyrir
því að kanna sannleiksgildið. Það er
ekki sjálfgefið að allt sé rétt sem
þeir segja um atburðarásina.
Fréttaflutningurinn er svo áróðurs-
kenndur, að það er afar erfitt að
treysta því að fjallað sé um málin
með þeirri réttsýni sem ber að við-
hafa í góðri fréttamennsku. Nýlega
var til dæmis greint frá því í flenni-
fyrirsögnum að Serbar hefðu myrt
tiltekna leiðtoga Kosovo-Albana og
var ekki verið að spara ljótu lýsing-
arorðin þar. Síðar kom í ljós að þeir
vora lifandi og enginn fótur fyrir
fréttinni. Kosovo-Albanar era vissu-
lega alls góðs maklegir á við annað
fólk, en þeir lýsa málum út frá sín-
um forsendum og þær þurfa ekki
endilega að vera réttar. Nóg er um
ákærar gegn Serbum en engrar
sönnunarskyldu virðist vera krafist.
Allt er birt ef það aðeins vitnar á
móti Serbum. Aróðurs-síbyljan í
fjölmiðlum gegn serbnesku þjóðinni
er komin of langt, offorsið hefur
verið svo mikið, að margir era farn-
ir að átta sig á því að á bak við tjöld-
in er pólitísk refskák í fullum gangi.
Blekkingarvefurinn dugir ekki
lengur til að fá fólk til að trúa hvaða
lygi sem er, bara ef hún kemur frá
fulltrúum Nató. Sannleikurinn er
ekki vöramerki Atlantshafsbanda-
lagsins. Það er pólitísk ákvörðun að
ráðast á Júgóslavíu og sú ákvörðun
var röng.
Þetta stríð verður Nató til
skammar og Bandaríkin verða fyrir
stóram álitshnekki. Serbneska
þjóðin hefur verið afflutt í fjölmiðl-
um með þeim hætti að það er með
endemum. Ég hef hitt íslendinga
sem hafa sagt það blákalt við mig,
að lausnin á Balkanskaga sé að út-
rýma Serbum, útrýma þeim gjör-
samlega. Hvaðan hafa menn for-
sendur fyrir slíkri afstöðu? Auðvit-
að úr fjölmiðlunum. í hvaða ástand
era menn komnir þegar þeir fara að
tala um það sem lausn á málum að
útrýma heilli þjóð?
Hver hefur orðið alræmdastur á
þessari öld fyrir að hafa ætlað sér
slíkt? Era menn ekki famir að nálg-
ast hættumark hvað dómgreind
snertir þegar hugsunin er leidd út á
slíkar örþrifabrautir? Sannleikur
málanna er sá að Serbar hafa aldrei
fengið að kynna sinn málstað í vest-
rænum fjölmiðlum. Jafnvel á ís-
landi er sagt „það er viðtekin regla
hér, að við tökum ekki við neinu frá
Serbum"! Aðeins önnur hlið mál-
anna nýtur þess að vera kynnt.
Hvað verður um hina hágöfugu yfir-
lýsingu að allir menn séu skapaðir
jafnir, þegar fyrir liggur að fjölmiðl-
ar sem endurvarpa einhliða áróðri
Nató og Bandaríkjanna virðast
ganga út frá því að hver Kosovo-Al-
bani sé jafngildi 50 Kúrda og 100
Nígeríumanna? Og nú þegar þetta
stríð er orðið að veraleika sést að
enginn veit hver niðurstaðan verð-
ur, allra síst þeir sem hófu það! Og
fjölmargir virðast líta á þennan
harmleik eins og einhverja spennu-
mynd! Islenska þjóðin veit og á að
vita að stríð er ekki neitt sem
ástæða er til að fagna. Þegar sá
stærsti í sandkassanum stendur
upp og segir við hina: „Ég skal lú-
berja ykkur alla, ef þið verðið ekki
til friðs“, halda menn þá virkilega
að slík ofbeldisframkoma sé rétta
leiðin til að tryggja friðinn? Ég held
ekki og afleiðingar árása Nató á Jú-
góslavíu verða sennilega þær, að
skapast mun nýtt kulda-tímabil í
samskiptunum við Rússa. Þeir
munu sennilega sjá aukna þörf á því
að efla samskiptin við Kínverja og
Indverja og hunsa Vesturveldin.
Slík framvinda mun trúlega gerast
með tilkomu nýs valdhafa í Rúss-
landi, sem verður að öllum líkindum
herskár maður og ófyrirleitinn.
Vesturveldin hafa nú ratt leiðina að
miklu leyti fyrir slíkan mann upp í
valdastólinn í Moskvu. Og ég vil
minna á að þótt Rússar séu í efna-
hagsvanda, þá era kjamorkuvopn
þeirra jafn ógnvekjandi og áður.
Kjamorkustríð getur orðið með
þeim hætti að stríðsæsingar magni
upp einhverskonar vitfirringar-
ástand.
Illt er að setja menn í þá stöðu að
þeir sjái sig hugsanlega tilneydda til
að gera eitthvað í örvæntingaræði
og steypi með því öllum heiminum í
bál og brand!
Stríð er enginn leikur eða dægra-
stytting, stríð er staða sem kemur
upp þegar skynsemin er lögð til
hliðar, þegar leitað er að lausnum
án hennar. Sá sterki fer að beita
hnefunum!
Nú hefur rækilega verið kveikt í
tundurþræðinum að púðurtunnunni
á Balkanskaga, loginn æðir að henni
og spurningin er, vitkast menn svo
að þeir forði sprengingunni eða er
upphafið að endinum í sjónmáli?
RÚNAR KRISTJÁNSSON,
Bogabraut 21,
545 Skagaströnd.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.