Morgunblaðið - 21.05.1999, Qupperneq 37
36 FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
OFBELDI GAGN-
VART BÖRNUM
FRÁSÖGN Gests Pálssonar, barnalæknis á Barnaspítala
Hringsins, þess efnis að líkamlegt ofbeldi gagnvart
börnum hér á landi, sé að líkindum algengara en opinberar
tölur gefa til kynna, er skelfileg.
Auðvitað óska þess flestir að barnalæknirinn fari ekki
með rétt mál og að börnin okkar búi við öryggi og gott at-
læti, eins og opinberar tölur gætu gefið til kynna. En ekki
þýðir að gera eins og strúturinn og stinga höfðinu í sandinn
og neita að ræða háalvarlegt þjóðfélagslegt mein eins og
barnaofbeldi. Vandamálið hverfur ekki, þótt látið sé eins og
það sé ekki til.
Þær tölulegu upplýsingar sem fram komu í erindi Gests
Pálssonar á ráðstefnu um líkamlegt ofbeldi gegn börnum,
sem haldin var á vegum Barnaiverndarstofu, Barnaspítala
Hringsins og Félags íslenskra barnalækna, eru þess eðlis,
að þær hljóta að kalla á aukna árvekni þeirra, sem með ein-
hverjum hætti eiga möguleika á að koma í veg fyrir. barna-
ofbeldi.
í erindi sínu nefndi Gestur til samanburðar, að Bretar
telja að fjögur börn látist í viku hverri vegna líkamlegs of-
beldis og að í Svíþjóð sé vitað að á milli tíu og tuttugu börn
látist af sömu sökum ár hvert. Miðað við þessar tölur megi
búast við því að á milli tíu og tuttugu börn hér á landi verði
fyrir alvarlegum líkamlegum áverkum vegna ofbeldis ár
hvert. Gestur ályktaði í framhaldi af þessum samanburði,
að eitt barn gæti látist af völdum líkamlegs ofbeldis, ár
hvert, að meðaltali.
Það er átakanlegt að börn skuli láta lífið vegna áverka
sem rekja má til líkamlegs ofbeldis. Þeir sem misþyrma
litlum og jafnvel ómálga börnum, ganga ekki heilir til skóg-
ar. Þeir þurfa á aðstoð að halda og hver sá sem hefur hinn
minnsta grun um að barn sé beitt ofbeldi, hefur þá höfuð-
skyldu, að tilkynna um grunsemdir sínar til barnaverndar-
yfii’valda.
EPLASTRIÐ
ÞAÐ verðstríð er ríkt hefur í stórmörkuðum á höfuð-
borgarsvæðinu undanfarna daga hefur vart farið fram
hjá neinum. Verslanir hafa lækkað verð á grænmeti og
ávöxtum á víxl og hægt hefur verið að kaupa vörur á verði
sem er töluvert undir skráðu heildsöluverði. Þetta verð-
stríð hefur hins vegar einnig orðið til að beina athyglinni
að verulegum verðmun í verslunum. í úttekt Morgunblaðs-
ins síðastliðinn miðvikudag kom fram að daginn áður höfðu
appelsínur kostað 75 krónur kílóið þar sem þær voru
ódýrastar en 198 krónur þar sem þær voru dýrastar. Þetta
samsvarar 164% verðmun. Svipaða sögu var að segja af
banönum og eplum.
Þetta verðstríð er hins vegar ekki einsdæmi. Á undan-
förnum mánuðum hafa verslanir einnig reglulega verið
með tilboð á kjúklingum, svo dæmi sé nefnt, þar sem hægt
hefur verið að fá þá vöru á umtalsvert lækkuðu verði. Yfír-
leitt standa þessi tilboð stutt og fyrr en varir hefur verð til
neytenda hækkað að nýju.
Verðstríð af þessu tagi vekja upp margar spurningar.
Spyrja má hver sé eiginlegur tilgangur þess að lækka verð
á ákveðnum vöruflokki í skamman tíma. Hagsmunir neyt-
enda af því eru takmarkaðir þar sem tilboðin eru oft bund-
in við takmarkað magn og standa stutt. Getur verið að svo
mikið hafí dregið úr almennri samkeppni á matvörumark-
aði, meðal annars með aukinni samþjöppun, að nauðsynlegt
sé fyrir verslanir að auglýsa sig upp með þessum hætti til
að vekja á sér athygli?
Einnig má velta fyrir sér hvernig á því stendur að
skyndilega sé hægt að lækka verð með þessum hætti. Varla
eru þessar verslanir að tapa á sölunni? Er hugsanlegt að
svigrúm sé til að lækka þessar vörur, t.d. ávexti og
kjúklinga, með varanlegum hætti í stað þess að lækka verð
niður úr öllu valdi tímabundið?
Þá vekur vörn þeirra verslana, er hæst hafa verðið, ekki
síður upp spurningar. Eru færð rök fyrir því að þar sem
mikill munur sé á gæðum vörunnar og þeirrar þjónustu
sem er veitt, sé þessi munur eðlilegur. En hvað eiga neyt-
endur þá að halda þegar verðstríðinu linnir og verðmunur-
inn er ekki.164% heldur kannski nær enginn?
Nýsköpun ‘99, samkeppni um viðskiptaáætlanir
VERÐLAUNAHAFAR í sanikeppninni Nýsköpun ‘99 á sviðinu í Iðnó.
Lux Inflecta hlaut
fyrstu verðlaun
DAVÍÐ Oddsson afhendir sigurvegurunum verðlaunin.
Úrslit í samkeppninni
Nýsköpun ‘99 voru
kynnt í Iðnó í gær. Alls
bárust 82 áætlanir í
samkeppnina og fór
þátttaka fram úr björt-
ustu vonum.
VIÐSKIPTAÁÆTLUN fyr-
ir fyrirtækið „Lux In-
flecta“, sem ætlunin er að
þrói og markaðssetji not-
endaviðmótið Giza sem á að einfalda
verklag við Java-tölvuforritun, eink-
anlega Java-forritun í dreifðri
vinnslu, hlaut fyrstu verðlaun,
1.000.000 krónur, auk leiðsagnar sér-
fræðinga KPMG og Viðskiptaháskól-
ans í eitt ár, í samkeppninni Nýsköp-
un ‘99, samkeppni um viðskiptaáætl-
anir. Að verkefninu stóðu þrír ungir
menn, þeir Alfreð Pórðarson, Birgir
Finnsson og Þorbjörn Njálsson.
Önnur verðlaun, 500.000 krónur,
hlaut viðskiptaáætlunin „Spaks-
mannsspjarir", en hún fjallar um
stofnun fyrirtækis sem ætlunin er að
markaðssetji íslenska hönnun fata-
fyrirtækisins Spaksmannsspjara á
erlendum mörkuðum, en það er rek-
ið af hönnuðunum Björgu Ingadótt-
ur og Valgerði Torfadóttur. Við-
skiptaáætlunina unnu fjórar ungar
konur, þær Edda Björk Guðmunds-
dóttir, Sara Lind Þorsteinsdóttir,
Auður Björk Guðmundsdóttir og
Halla Tómasdóttir.
Fimm viðskiptaáætlanir lentu jafn-
ar í þriðja sæti og hlaut hver þeirra
100.000 króna verðlaun, en þær eru
„Hraðbraut", „Hlíðarfjall“, „Flug-
taskan“, „Kine ehf.“ og ,Albúm“.
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins,
Viðskiptaháskóhnn í Reykjavík,
KPMG Endurskoðun hf. og Morg-
unblaðið stóðu í sameiningu að sam-
keppninni Nýsköpun ‘99 og var til-
gangurinn að hvetja fólk með ófull-
gerða hugmynd að atvinnurekstri til
að setja saman viðskiptaáætlun utan
um hugmynd sína með skipulegum
hætti, til að efla hjá fólki hæfni og
þor til að stofna til nýrrar atvinnu-
starfsemi, og örva með því nýsköpun
í íslensku atvinnulífi.
Jafnræði kynjanna timanna tákn
Davíð Oddsson forsætisráðherra
afhenti verðlaunin og sagði við það
tækifæri að það væri sérstaklega
gaman að því að fólk alls staðar að af
landinu hefði fundið sig knúið til að
taka þátt í þessu verkefni, og einnig
athyglisvert og vonandi tímanna tákn
að það væri sáralítill munur á þátt-
töku karla og kvenna í samkeppninni.
„Það kæmi mér ekki á óvart, eftir að
hafa heyrt lýsingar hjá tveimur for-
sprökkum verkefnisins, að mörg fyr-
irtæki ættu eftir að spretta upp úr
þessari keppni hér í dag. Það var
nefnt að framhald yrði á og ég vona
að jafnvel strax í næstu samkeppni
verði hægt að líta til fyrirmyndanna
sem sáu dagsins ljós í dag, fyrir-
mynda sem þá verði orðnar að fyrir-
tækjum sem þessi keppni hafi gefið af
sér,“ sagði Davíð Oddsson.
Guðfinna S. Bjamadóttir, rektor
Viðskiptaháskólans í Reykjavík,
stjómaði athöfninni. I ávarpsorðum
sínum í upphafi verðlaunaafhending-
arinnar sagði Guðfinna m.a. að þijú
orð væm henni ofarlega í huga að lok-
inni þeirri vinnu sem að baki lægi við
mat á innsendum viðskiptaáætlunum.
„Við vomm í meiriháttar virkjana-
framkvæmdum í fimm mánuði við
virkjun hugvits. Það em þrjú hugtök
sem standa upp úr eftir að við erum
búin að fara gegnum allar þessar hug-
myndir. Eitt þeirra er „hugvit“.
Næsta hugtak er „alþjóðavæðing“ en
í þessum viðskiptaáætlunum var ekki
horft til eyþjóðarinnar íslands þar
sem við væmm að markaðssetja fyrir
hvert annað, heldur var þetta alþjóð-
legt. Og þriðja hugtakið er „tækni“,“
sagði Guðfinna S. Bjamadóttir.
Páll Kr. Pálsson, formaður verkefn-
isstjómar samkeppninnar, sagði í
ávarpi sínu m.a. að fyrirtæki á borð
við Nýsköpunarsjóð lifði á stöðugu
innstreymi viðskiptaáætlana, til að
skapa eftirspum eftir þjónustu sjóðs-
ins, og kom fram í máli hans að það
hefði verið meðal ástæðna þess að
ráðist var í samkeppnina Nýsköpun
‘99.
I máli Páls Kr. og Guðfinnu kom
fram að 650 manns hefðu skráð sig til
leiks og fengið í hendur leiðbeiningar-
gögn, 400 manns hefðu setið nám-
skeiðin rnn gerð viðskiptaáætlana
sem var langt umfram það sem von-
ast hafði verið eftir. 82 viðskiptaáætl-
anir bámst, 40 frá körlum, 30 frá kon-
um og 12 frá fyrirtækjum.
„Gerir forritun dreifðrar
vinnslu einfaldari“
Að viðskiptaáætluninni sem lenti í
fyrsta sæti standa Alfreð Þórðarson
verkfræðingur, Birgir Finnsson
tölvunarfræðingur og Þorbjörn
Njálsson kerfisfræðingur.
„Við emm að fara að skrifa Java-
umhverfi sem einfaldar netforritun
til muna. Þetta kerfí köllum við Giza
og það gerir sérstaklega dreifða
vinnslu einfaldari en það er oft mjög
flókið þegar maður er að skrifa slík
kerfi. I kerfinu er álagsdreifing, það
er ýmislegt sem kemur þar að eins
og gagnagmnnar og slíkt sem við
hjúpum algerlega svo að notandinn
þarf ekki að kunna á það skrifa kerfi
í Giza,“ segir Alfreð Þórðarson í
Ramt.ali.við Mnrgnnhlaðið— ------
Varðandi framtíðarsýn næstu tólf
mánuði segir Birgir Finnsson að fyr-
ir þeim liggi að þeir stefni að því að
framkvæma verkefnið. „Við reiknum
með því að þróun á kerfinu taki okk-
ur allt að einu ári. Samhliða henni
mun markaðsstarf hefjast. Okkar
sýn er því sú að þegar kerfið er til-
búið verðum við tilbúnir að fara með
það á markað.
Þorbjörn Njálsson segir að verk-
efnið sé í þróun. „Við emm ekki
byrjaðir að forrita kerfið en hönnun-
arvinnan er í fullum gangi.“
„Höfum mikla trú á
þessum fatnaði“
Að viðskiptaáætluninni um Spaks-
mannsspjarir standa fjórar konur
sem kynntust þegar þær voru við
-nám í Bandaríkjunum, og allt frá
þeim tíma hafa þær haft í huga að
stofna fyrirtæki saman. Edda Björk
Guðmundsdóttir er viðskiptafræð-
ingur, Sara Lind Þorsteinsdóttir er
fjölmiðlafræðingur, Auður Björk
Guðmundsdóttir er fjölmiðlaft’æð-
ingur og Halla Tómasdóttir er al-
þjóðaviðskiptafræðingur.
„Verkefnið gengur út á að selja og
markaðssetja íslenska hönnun
Spaksmannsspjara á alþjóðlegum
mörkuðum, en Björg og Vala hafa
unnið í hönnun í einhverju formi í tíu
ár. Við komum að þessu með við-
skiptalegu hliðina í huga og tókum
að okkur þetta verkefni að búa til
áætlun um að selja þessa hönnun.
Við áætlum að byrja í Kaupmanna-
höfn með eigin verslun og stækka
svo út í helstu stórborgir heimsins,"
segir Halla Tómasdóttir í samtali við
Morgunblaðið.
Varðandi framtíðarsýn verkefnis-
ins til næstu 12 mánaða segir Sara
Lind að núna vanti þær fjármagnið
til að framkvæma verkefnið.
Að sögn fjórmenninganna voiu
þær farnar af stað með eigin hug-
mynd í samkeppnina þegar þær
ákváðu að vinna viðskiptaáætlun
fyrir Björgu og Valgerði í Spaks-
mannsspjörum. „Þær era góðar
kunningjakonur okkar og við erum
líka góðir viðskiptavinir hjá þeim.
Við höfum mjög mikla trú á þessum
fatnaði sem hefur einnig vakið at-
hygli erlendis og fengið fjölda fyrir-
spuma erlendis frá.“
Fimm viðskiptaáætlanir
saman í þriðja sæti
Þær fimm viðskiptaáætlanir sem
lentu jafnar í þriðja sæti fjölluðu um
viðskiptahugmyndir á gerólíkum
sviðum, en þær eru:
„Hraðbraut", unnin af hjónunum
Ólafi Hauki Johnson viðskiptafræð-
ingi og Borghildi Pétursdóttur fram-
kvæmdastjóra. Verkefnið gengur út
á stofnun nýs framhaldsskóla, Hrað-
brautar, sem myndi bjóða úrvals
nemendum að ljúka stúdentsprófi á
tveimur árum í stað fjögurra.
„Hlíðarfjall", unnið af Sigrúnu B.
Jakobsdóttur. Hh'ðarfjall hf. er fyrir-
tæki sem hugmyndin er að muni
byggja og reka svifbraut og veitinga-
stað á brún Hhðarfjalls ofan Akureyr-
ar, en þaðan er m.a. hægt að njóta
einstaks útsýnis yfir Eyjafjörð og
næsta nágrenni, ganga á skíðum eða á
tveimur jafiifljótum og njóta annarrar
afþreyingar.
„Flugtaskan", unnin af Jóni Sig-
fússyni en flugtaskan er hugsuð sem
lítil pappaaskja í formi ferðatösku
sem hafi að geyma konfektmola af
fínustu gerð ásamt litlum auglýs-
ingamiðum frá aðilum sem þjónusta
ferðamenn, og væri flugtöskunni
dreift með kaffinu til flugfarþega.
„Kine ehf.“ unnið af dr. Þórði
Helgasyni verkfræðingi, Baldri
Þorgilssyni verkfræðingi og Ás-
mundi Eiríkssyni verkfræðingi.
Verkefnið fjallar um fyrirtækið Kine
ehf. sem ætlað er að þróa, framleiða
og markaðssetja hreyfigreini, sem
er tæki ætlað fyrir heilbrigðisgeir-
ann til að skoða hreyfingar fólks.
, Albúm“, unnið af Kolbeini Sigur-
jónssyni, Tryggva Sch. Thorsteins-
syni og Þorvaldi Inga Jónssyni.
„ÁlMm-stafrænt skipulag" er forrit
sem heldur utan um rafrænar
myndir sem fólk geymir í tölvunni
--------------------------------—
FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999 37
Rússneskir kommúnistar vildu ekki hætta á að kosningum yrði flýtt
Niðurstaða atkvæða-
greiðslunnar í dúmunni
um tilnefningu Sergejs
Stepashíns í embætti
forsætisráðherra bendir
til þess að rússneskir
kommúnistar hafi
ekki viljað hætta
á að Jeltsín leysti
þingið upp og boðaði til
kosninga í sumar. Þeir
hafi séð sér akk í því að
bíða og nota hvert
tækifæri til að gagnrýna
stjórn Jeltsíns þar
til í desember, þegar
næstu kosningar eiga
að fara fram.
Reuters
RUSSNESKIR kommúnist-
ar og bandamenn þeirra
sleikja nú sárin eftir að
hafa beðið ósigur fyrir
Borís Jeltsín forseta í tveimur mik-
ilvægum atkvæðagreiðslum í
dúmunni, neðri deild þingsins, á
tæpri viku. I fyrri atkvæðagreiðsl-
unni, sem fór fram á laugardag,
hafnaði dúman tillögu um að höfðað
yrði mál á hendur forsetanum í því
skyni að svipta hann embættinu.
Fjórum dögum síðar samþykkti
dúman Sergej Stepashín í embætti
forsætisráðherra með miklum
meirihluta atkvæða eftir að Jeltsín
hafði storkað andstæðingum sínum
á þinginu með því að víkja Jevgení
Prímakov úr embættinu.
Treystu ekki
kommúnistum
Kommúnistar urðu forviða yfir
ósigrinum í atkvæðagreiðslunni um
málshöfðunina þar sem þeir höfðu
talið víst að dúman myndi sam-
þykkja að minnsta kosti eitt ákæru-
atriðanna, það sem laut að þætti
Jeltsíns í stríðinu örlagaríka í Tsjet-
sjníu 1994-96.
Niðurstaðan var hins vegar sú að
17 atkvæði skorti til að þessi ákæra
fengi tilskilinn meirihluta atkvæða.
Aðeins sex af 211 þingmönnum
kommúnista og bandamanna þeirra
studdu ekki málshöfðunina, en í ljós
kom að málshöfðunartillagan naut
lítils stuðnings meðal annarra þing-
manna.
Um hundrað þingmenn tóku ekki
þátt í atkvæðagreiðslunni. Aðeins
einn þingmaður mið-
flokks Níkolajs
Ryzhkovs, Heimili okkar
er Rússland, og tólf af 30
óháðum þingmönnum
dúmunnar greiddu at- ____________
kvæði með tillögunni.
Þjóðernissinninn Vladímír
Zhírínovskí og flokksbræður hans
gengu af þingfundi þegar tillagan
var rædd til að láta í ljósi stuðning
við Jeltsín.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar
sýnir að þótt margir þingmenn utan
kommúnistaflokksins séu óánægðir
með Jeltsín og gagnrýni hann
óspart treysta þeir kommúnistum
enn síður. Gennadí Zjúganov, leið-
togi kommúnista, varð ókvæða við
jiiðurstöðuna og sakaði þessa þing-
GENNADI Zjúganov, leiðtogi rússneskra kommúnista, ræðir við flokksbræður sína í dúmunni eftir að hún sam-
þykkti Sergej Stepashín í embætti forsætisráðherra á miðvikudag.
þingrofsvaldi sínu ef þeir höfnuðu
Stepashín. Samkvæmt stjórnar-
skránni hefur forsetinn vald til að
leysa dúmuna upp og boða til kosn-
inga innan þriggja mánaða ef hún
hafnar forsætisráðherraefni hans
þrisvar.
Margir töldu að kommúnistar
myndu fagna því ef kosningunum
yrði flýtt þar sem þeir eru með
stærstu og best skipulögðu flokks-
vélina. Greinilegt er hins vegar að
kommúnistar komust að þeirri nið-
urstöðu að þeim væri ekki akkur í
þessu og betra væri að bíða þar til í
desember þegar næstu þingkosn-
ingar eiga að fara fram.
Gennadí Zjúganov varaði við þv*
að kommúnistar litu á sig sem and-
stæðinga stjórnar Stepashíns þótt
margir þeirra hefðu samþykkt hann
í embættið með semingi. Þeir virðast
því hafa ákveðið að beita þeirri bar-
áttuaðferð að bíða og nota hvert
tækifæri sem gefst til að gagnrýna
stjómina, enda telja þeir útséð um
að henni takist að bæta efnahagsá-
standið fyrir kosningarnar í desem-
ber. Úr því þeir styðja ekki lengur
stjómina geta þeir kennt andstæð-
ingum sínum um allt sem miður fer.
Nýir flokkar geta sótt
í sig veðrið
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti ræðir við Sergej Stepashín.
Reuters
Studdu
Stepashín af
ótta við
annan verri
menn um svik við rússnesku þjóð-
ina.
Margir töldu líklegt að kommún-
istar og bandamenn þeirra myndu
reyna að hefna sín á forsetanum eft-
ir þennan ósigur með því að hafna
forsætisráðherraefni hans í at-
kvæðagreiðslunni á miðvikudag. Til
--------- þess þurftu þeir aðeins
hreinan meirihluta at-
kvæðanna, ekki tvo þriðju
eins og í atkvæðagreiðsl-
unni um málshöfðunina.
_________ Raunin var hins vegar
sú að rúmlega 50 komm-
únistar greiddu atkvæði með
Stepashín þótt þeir væru enn reiðir
forsetanum fyrir að reka Prímakov.
Töldu Stepashín skárri kost en
róttækan umbótasinna
Ástæðan var einkum sú að þeir
vissu að ef þeir reyndu að koma í
veg fyrir að Stepashín yrði skipaður
forsætisráðherra gæti Jeltsín til-
nefnt annan mann sem þeir gætu
enn síður sætt sig við.
, Þóti, Stepashín sé dyggur stuðn-
ingsmaður Jeltsíns er hann ýmsum
kostum búinn að mati kommúnista.
Hann er þrátt fyrir allt kerfiskarl
frá sovét-tímanum, hershöfðingi og
fyrrverandi yfirmaður öryggislög-
reglunnar. Þeir töldu hann því
miklu betri kost en „frjálslyndu
mennina ungu“, menn eins og
Sergej Kíríjenko, forvera
Prímakovs í embætti for-
sætisráðherra.
Nokkrir atkvæðamiklir
þingmenn kommúnista
og bandamanna þeirra
gáfu til kynna fyrir at-
kvæðagreiðsluna að þeir myndu
styðja Stepashín af ótta við að ann-
ar verri yrði tilnefndur.
Óttuðust þing-
rofsvald forsetans
Ennfremur er líklegt að Stepas-
hín hafi fengið fleiri kommúnista á
sitt band með loforðum sínum um
að bæta kjör almennings og hafna
róttækum efnahagsumbótum.
Kommúnistarnir vissu einnig að
þeir .áttu á hættu að Jeltsín beitti
Ætla að nota
hvert tækifæri
til að gagn-
rýna stjórnina
Nokkrir sérfræðingar í rússneskv-
um stjórnmálum hafa einnig bent á
að togstreitan endalausa milli forset-
-------- ans og kommúnista í
dúmunni geti orðið til
þess að andstæðingar
kommúnista skjóti sér
upp á milli þeirra og auki
fylgi sitt meðal kjósenda
með því að hamra á því að
þeir einir séu færir um að leysa efna-
hagsvanda Rússlands.
Talið er að kommúnistum stafi
veruleg hætta af nýjum pólitískum
hreyfingum sem hafa komið fram %
sjónarsviðið. Föðurlandsflokkur
Júrís Lúzhkovs, borgarstjóra
Moskvu, og tvær svæðisbundnar
hreyfingar, Allt Rússland og Rödd
Rússlands, gætu til að mynda bund-
ist samtökum fyrir kosningarnar í
desember og yrðu þá mun líklegri til
að ná árangri en í sumar.
Sáu sér akk í því að
bíða fram í desember