Morgunblaðið - 21.05.1999, Page 48
48 FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Hvað er tímatal?
„0. janúar 2000“ er ritháttur
'stjarnfræðinnar á komandi mótum
árþúsunda og táknar 1. janúar árið
2000 kl. 12 á hádegi að sólartíma (sól í
hásuðri). Þá eru mót árþúsunda skv.
stjarnfræði. Þar byrjar dagur á há-
degi.
Talan „0“ (núll) er talin eitt mesta
framlag til stærðfræðinnar og því
ástæða til að gefa henni gaum og
rekja sögulega slóð hennar, en þar
virðist ekki vera feitan gölt að flá.
Italski stærðfræðingurinn Fibonacci
(1180-1250 ca) var sem ungur maður
sendur til Alsír til „að læra að reikna
með indverskum tölum“. Hann skrif-
Kaði 22 ára kennslubók í reikningi
1202. Þar er núllið skrifað á sama hátt
og nú og var kallað „zero“ (Alle tiders
tal 1972, bls 109, Politikens Forlag).
Hins vegar er beinlínis
skýrt frá því í sömu bók,
að táknið „0“ fyrir hug-
takið „enjginn“ komi fyrst
fram á Italíu í kennslu-
bók í reikningi frá árinu
1484. Þama er því mót-
sögn. Það er best að við-
urkenna það strax, að
áreiðanlegar heimildir
vantar um þessi mál.
Sagnfræðingar hafa ekki
staðið sig sem skyldi, þar
sem um svona lítið mál
er að ræða. Þessi bók er
samt mín besta heimild.
Á þeim tíma, þegar
táknið „0“ var ekki til og
notaðar rómverskar töl-
ur, leysti Díonysíus
Jón
Brynjólfsson
vandamálið að gera
tímatal, þar sem ártalið
sýnir liðinn tíma frá fæð-
ingu Krists, en það virð-
ist standa í stærðfræð-
ingum í dag. Málfræðin
og rithátturinn skiptir
öllu máli, ef ráða skal
hugsun að baki gerð og
notkun tímatals, hvort
sem það er tímatal Róm-
verja eða okkar. I tím-
ans rás hefúr ritháttur
okkar tekið breytingum,
og því er ekki á grund-
velli hans hægt að kom-
ast að sannleikanum.
Hugtakið „enginn“ er
til jafnvel í hugum dýra.
Við getum hugsað okkur
kött, sem í leit að mús kemur inn í
tómt herbergi og finnur enga. Hug-
takið „engin mús“, „ekkert að éta
hér“, vaknar í huga kattarins og hann
heldur í næsta herbergi. Hugtakið
var því til í huga Díonysíusar. Hins
vegar hafði rómverska talnakerfið,
sem hann notaði, ekkert tákn fyrir
hugtakið „enginn". Díonysíus gat að
sjálfsögðu ekki notað það sem ekki
var til. Það hins vegar þarf ekki að
fela í sér, að tímatalið sé rangt. Ef Dí-
onysíus hefði skrifað „0“ við eitt árið,
hefði enginn skilið það. Eru menn
með skrifum sínum í dag að álasa Dí-
onysíusi fyrir að hafa ekki skrifað
tákn, sem ekki var til?
Tímatalið felur í sér ártöl. Hvert ár-
tal sýnir liðin heil almanaksár frá fæð-
ingu Krists. Það var þess vegna, sem
páfi samþykkti tímatalið og taldi það
sæmandi. Rangt tímatal hefði verið
ævarandi skömm fyrir Díonysíus og
páfa og reyndar allan hinn kristna
Hilla há, \ ;ir kr. 28.JGi).- ini 22.700,-
1-lilla lak, var kr. 2.300.- nú 16.900,-
Skenkur. var kr. 59,o()0,- nú 38.870,
I
Uppgefið tilboðsverð er staðgreiðsluverð.
Opið vifka daga kl. 1000-1800
á morgun lau. frá kl. 11°°-1600
Borö o*i 6 siólar. var kr. 12”. 700,- nú 83.000,-
Carla
Stóllinn
Smiðjuvegi 6D • Rauð gata
200 Kópavogur • Sími 554 4544
Tímatal
✓
I hvert skipti sem þú
ritar ártal, segir Jón
Brynjólfsson, skrifar
þú fjölda heilla alman-
aksára frá fæðingu
Jesú Krists.
menningarheim. í grein Freys Her-
mannssonar (Mbl. 27. apr.) kemur
fram, að Freyr hefði sett „töluna 1“ á
fæðingarárið. Það gefúr mér til kynna,
að skilningur á hugtakinu „tímatal" er
ekki fyrir hendi á þeim bæ.
Tímatal er ekki bara talnaröðin,
sem byrjar bara einhvers staðar.
Yfirlýstur tilgangur tímatalsins var
að tengja það fæðingu Krists. Tíma-
talið sýnir fjölda heilla almanaksára
frá þeim atburði, sem miðað er við.
Og hvað er þá langt síðan Kristur
fæddist? Allt þetta ár (1999) eru 1999
heil almanaksár liðin frá fæðingu
Krists. Nýtt árþúsund hefst að
morgni 1. jan. 2000. Þá eru 2000 heil
almanaksár liðin frá fæðingu Krists.
Tilgangur timatalsins er að sýna
þetta. Þetta hefði nemandi í stærð-
fræði á háskólastigi gjama mátt vita.
Það verður að gera meiri kröfur til
slíkra manna en almennings, sem er á
kafi í kosningum og pólitík. í hinni
ágætu orðabók Áma heitins Böðvars-
sonar stendur: „ártal h. 1 tala til að
sýna árafjölda frá upphafi tímatals
(meðal kristinna manna reiknað frá
Krists fæðingu).“
Menn em í dag svo skyni skroppn-
ir, að þeir taka ekki mark á ártalinu
og tímatalinu og segja: „Við vitum
ekki, hvenær hann var fæddur." En
það er einmitt það, sem ártalið segir
okkur.
Það er líka vitað, hvenær Kristur
fæddist. Menn greinir aðeins á um,
hvort það var 28. eða 29. september
árið 2 B.C. Þessi munur virðist stafa
af því, hvemig farið er frá almanaki
hebrea, þar sem dagur byrjar kl. 18,
til okkar almanaks. Á alþjóðlegu
kirkjuþingi var síðari dagurinn sam-
þykktur sem fæðingardagurinn.
Þetta mega menn þvi vita. Skv. alm-
anaki og tímatali Rómverja var Krist-
ur fæddur „29. september ab urbe
condita 752“ (ekki 753).
Díonysíus er einn af mikilmennum
sögunnar, og það er ósæmandi að
gera hann að einhverjum hálfvita í
augum almennings. Nafn hans mun
lifa með mannkyninu um aldur og
ævi, vegna þess að hann vann sitt
verk samviskusamlega, og jafnvel af
snilld miðað við aðstæður. Hann gaf
okkur tímatal, sem er rétt. í 500 ár
hafði engum dottið þetta í hug. Stór-
hugur Díonysíusar varð til þess, að
tímatali Rómverja var kastað fyrir
róða. Það var, ef ég man rétt árið 529
(1282 a.u.c.) Ef hans hefði ekki notið
við, værum við ennþá að telja árin frá
stofhun Rómaborgar, og ártalið 1999
væri „ab urbe condita MMDCCLII
(2752)“.
I hvert skipti sem þú ritar ártal,
skrifar þú fjölda heilla almanaksára
frá fæðingu Jesú Krists. Þessi teng-
ing tímatalsins við fæðinguna felur í
sér, að við vitum alltaf, hve langt er
síðan Kristur fæddist. Á komandi
mótum árþúsunda 1. janúar árið 2000
fijgnum við 2000 heilum almanaksár-
um liðnum frá fæðingu Jesú Krists.
Vonandi gera menn sér grein fyrir
því á komandi mótum árþúsunda, að
við erum að minnast 2000 ára frá fæð-
ingu Krists, en ekki fallegri tölu með
mörgum núllum eða „mörgum tölum
með gati“. Upphaflega var núllið „0“
einmitt skilgreint sem „punktur með
gati“. Ég skil ekki samlíldngu tíma-
tals við sígarettupakka. Ég hélt að
málið snerist um stærðfræði. Það er
fyrir löngu búið að afgreiða það mál,
að allir kunna að telja, og allir vita,
hvað er tugur. Málið snýst því um
upphaf tímatalsins og hvar á að byrja
að telja „1“. Það hefur beinlínis komið
fram í Mbl. Þegar talin eru liðin ár, er
fyrsta árið 0-1, annað 1-2 og 10. árið
9-10. Talan „0“ þarf ekki að koma við
sögu. Upphaf tímatals er skilgrein-
ingaratriði. Talan 1 kemur inn í ár-
talið í upphafi 2. ársins. Þá er 1 alm-
anaksár liðið frá fæðingu Krists.
30. apríl, 1999 heilum almanaksár-
um eftir fæðingu Krists.
Höfundur er verkfræðingur.