Morgunblaðið - 21.05.1999, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999 63 -$-■
ELTON John söng við útför
Díönu prinsessu enda voru þau
mestu niátar.
Nótnablöð og
verðlaunagrip-
ur á uppboð
HANDSKRIFUÐ nótnablöð út-
setjarans George Martins og
verðlaunagripur hans, Eltons
Johns og Bernies Taupin fyrir
metsölu geislaplötunnar Candle
in the Wind ‘97 verða boðin upp
í dag, föstudaginn 21. maí. Lag
Eltons var flutt við jarðarför
prinsessunnar af Wales og seld-
ist geislaplatan sem gefín var út
í kjölfarið í 33 milljónum ein-
taka, meira en nokkur önnur
plata hingað tU. Lagið var upp-
haflega samið sem óður til
Hollywood-leikkonunnar Mari-
lyn Monroe árið 1974. Eftir lát
Díönu endurskrifaði Bemie
Taupin lagið og endurspeglar
textinn þann harmleik sem frá-
fall prinsessunnar var fyrir
heimsbyggðina. Elton bauð
framleiðandanum George Mart-
in að útsetja lagið fyrir plötuna
og var sú útgáfa án söngs. Verð-
launagripurinn sem þeir félagar
hlutu var sérsmíðaður af gull-
smiðnum Theo Fennell og er að
hluta til úr silfri og búist er við
að hátt verði boðið í hann.
Ágóði af uppboði nótnablað-
anna og verðlaunagripsins renn-
ur beint til tónlistartengdra góð-
gerðarmála.
Mista Sinista
á Thomsen
i kvöld mun plötusnúðurinn
Mista Sinista úr X-ecutioners spila
á Kaffi Thomsen. Hljómsveitin X-
ecutioners er leiðandi á sviði plötu-
snúðamennsku í „skratsi“ en hún
spilar á plötuspilara eins og aðrir
leika á hljóðfæri.
Mista Sinista var síður en svo
ógnandi þegar blaðamaður Morg-
unblaðsins ræddi við hann þrátt
fyrir að bera nafn þess efnis. Sagð-
ist vera hinn ljúfasti náungi, sætur,
en illilegur þegar Hann er kominn á
svið. Mista Sinista segist ekki bara
hljóðblanda heldur semja eigin
tónlist með skratsi. Hann ætlar að
spila nokkuð af nýju efni af vænt-
anlegri sólóskífu í kvöld.
Ásamt Mista Sinista koma fram
á Thomsen íslensku plötusnúðarnir
ÖJ Rampage ogjtaw Promotions.
FÓLK f FRETTUM
KVIKMYNDIR/Stjörnubíó hefur tekið til sýninga nýjustu mynd Jackies
Chans. Hún heitir Ngo hai sui, öðru nafni Who Am I? eða Hver er ég?
Jackie Chan snýr aftur
PETTA byrjaði með því að hópur
sérsveitarmanna rændi þremur vís-
indamönnum, sem voru að rannsaka
brot úr loftsteini. Allt gekk vel þang-
að til einn yfirmannanna sveik lit og
sérsveitarmennirnir dóu í þyrluslysi,
nema einn (Jackie Chan) sem rankar
við sér hjá afskekktum frumbyggj-
um í Suðui'-Afríku og veit ekki hver
hann er. Þeir spyrja hann að nafni,
hann hrópar í örvæntingu: Hver er
ég? og þeir halda að hann sé að segja
til nafns.
Jackie tileinkar sér siði þeirra og
venjur og smám saman fer ýmislegt
úr fortíðinni að rifjast upp fyrir hon-
um. Hann ákveður að snúa til baka
og komast að því hver hann er og
hvers vegna það gerðist sem gerst
hefur.
Jackie Chan er sagður 45 ára og
heitir réttu nafni Kong-sang Chan.
Hann er leikstjóri myndarinnar
ásamt Benny Chan og höfundur
handritsins ásamt Susan Chan.
Tengsl þeirra Bennys og Susan við
Jackie og skýringar á sameiginlegu
ættamafni þessara þremenninga
verða ekki gefnar hér.
Jackie Chan er eins mann kvik-
myndaiðnaður í raun og veru. Hann
er stórveldi í Hong Kong, á eigin fyr-
irtæki og er í stjórnum helstu fag-
greinafélaga í borginni þar sem kvik-
myndaframleiðsla er stóratvinnu-
grein.
Afskipti Jackies Chans af kvik-
myndum hófust þegar hann var sjö
ára og foreldrar hans fluttust til
Ástralíu en skildu hann eftir í kín-
verskum óperuskóla í Hong Kong.
Kínversk ópera byggist mikið á lík-
amlegum leik, leikfimisjálfsvarnar-
listum og melódramatiskum leik.
Nemendur skólans fengu oft auka-
hlutverk sem áhættuleikai'ar við
kung-fu myndir í Hong Kong og
Jackie var einn þeirra sem reglulega
fengu slík tækifæri.
„Eg naut þess að vera þar sem ver-
ið var að gera kvikmyndir,“ segir
hann. „Ég fékk að fylgjast með öllu
og læra allt. Svo fengu þeir sem léku í
myndunum meira að borða en hinir
krakkamir.“ Jackie hefur leikið í 70
myndum, hinni elstu frá árinu 1962,
þegar hann var átta ára. Brátt vakti
þessi náttúrutalent á sviði bardaga-
lista athygli leikstjóra og smám sam-
an fékk hann mikilvæg áhættuhlut-
verk.
Smátt saman varð hann
stjórnandi áhættuleikara.
Fyrsta tækifærið sem leikari
fékk hann 1976 og síðan rúll-
uðu hlutimir af stað. Hann
leikstýrði sinni fyrstu mynd
1980 og hefur síðan leikið í 23
myndum ýmist sem aðalleik-
stjóri og íeikstjóri, framleið-
andi og handritshöfundur.
I dag er Jackie Chan ekki
aðeins stærsta nafnið í kvik-
myndaheimi Hong Kong
heldur stórstjarna í vestræn-
um kvikmyndaheimi, sem
hefur endurskapað kung-fu
myndir Austurlanda.
■ it
Jackie Chan’s
FYRST ER BARIST
SÍÐAN ER SPURT
KRAYMOND CHOWn ^.m:: AGULDHN' HARVtST PnODlJCWON :.\)ACK3fcChtóNkur ".JACKjfc UHÁN'S WHU AN1 IV
JACKIC CHAN MICHELLE FEPRC MIRAI YAMAMOTO . ..■• .. tANATHAN WANG wscter r,t p,. .rorkty POON NANO fiANG’.
eiitéQ í.v PETER CHEUNG íh k.s.e : YAU CH! WAI ■ . ’ c. . i, o-'.i OLIVLR WQNG .ve;,.i. ... LEuNARD HQ
p t, ucgc by BARBIE TUNB wrewtte; b« LEE REYNULDS SUSAN CHAN JACklE CHAN ovccfed JACKIEl«g| 8ENNY UHAN\
JACKIE CHAN MICHELLE FEPRE MIRAI YAMAMOTO . ..■■ ■:. ty’
■mhH y.jitrQ t.v PETER CHEUNG íh ■ 11: YAU CHi WAI i ’ c i .. t
'■M pT.íucád by BARBJE TUNBkreanplay by LEE REYNOLDS SUSAN C1