Morgunblaðið - 09.06.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999 21
ERLENT
•• >
Oflugur skýstrokkur ríður yfír Islendingabyggðir
í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum
Miklar skemmdir
urðu á híliýlum
V estur-Islendinga
The Grand Forks Herald
SKÝSTROKKURINN geysist áfram, skammt norðaustur af stað sem
kallast þvf norræna nafni Walhalla.
SÍÐDEGIS síðastliðinn sunnudag
reið afar öflugur skýstrokkur yfír
svæðið í og kringum smábæinn
Mountain í Rauðárdal í Norður-Da-
kóta-íylki í Bandaríkjunum og olli
miklu tjóni á heimilum íbúa, þeirra á
meðal Vestur-íslendinga er búsettir
eru á svæðinu. Talið er að skýstrók-
urinn hafi farið með um 210 hnúta
hraða og flokkaðist hann, sam-
kvæmt bandarískum stöðlum, undir
skýstrók af F4 gerð, mjög öflugan
skýstrók sem valdið getur miklu
tjóni á mannvirkjum. Frést hefur
m.a. af því að íbúðar- og útihús
bændabýla hafi gereyðilagst og mik-
il mildi þykir að elliheimilið Borg, í
útjaðri Mountain, þar sem á sjötta
tug eldri borgara býr, hafi sloppið
við tjón. Strokkurinn fór skammt
frá byggingu elliheimilisins.
Morgunblaðið ræddi í gær við Jo-
an Olson, ábúanda á Milton-býlinu í
Norður-Dakóta, sem sagðist hafa
farið á slóðir skýstrokksins á mánu-
dag, skoðað verksummerki og rætt
við fólk. Þess bíði nú mikið uppbygg-
ingarstarf. „Aðkoman var hrikaleg,"
sagði Joan. „Skýstrokkurinn ger-
eyðilagði hjólhýsabyggð í grennd við
bæinn Mountain, byggingar og hí-
býli manna.“ Auk þess sagði hún að
bændabýli í grenndinni hefðu orðið
illa úti. Þök hafi rifnað af húsum í
heilu lagi og innanstokksmunir fóiks
legið eins og hráviði um jarðir. Þá
hefði hún og Ernie, eiginmaður
hennar, farið að Bernhoft-býlinu þar
sem Wayne og Lauretta Bernhoft
búa. „Býlið er horfið í heilu lagi.
Stálþiljabyggingar gerónýtar og tré
rifnuðu upp með rótum.“ Þá hefði
eyðileggingin verið mikil á húsi Pal-
mers og Esther Jonasson í Mountain
og húsi Keiths og Normu Hallgrims-
son í sama bæ. Þök húsanna hefðu
rifnað af og innviðir væru ónýth-.
Palmer sem er 71 árs gamall sagði í
viðtali við héraðsfréttablaðið Grand
Forks Herald, að erfitt hefði verið að
sjá hvað tilheyrði húsi þeirra hjóna
eftir að vindinn lægði, svo mikil hefði
eyðileggingin orðið. „Ég veit ekki
hvar við eigum nú að búa. Trygging-
arnar greiða aldrei allt tjónið og við
erum orðin of gömul til að byggja
nýtt hús.“
Eftir að skýstrokkurinn hafði lagt
Bernhoft-býlið í rúst lá leið hans
upp í fjalllendið í kringum bæinn
Mountain og hann stefndi rakleiðis
að elliheimilinu Borg. Til allrar ham-
ingju hefði strokkurinn farið rétt
norðan við byggingarnar og heimil-
ismenn, 54 að tölu, hefðu því verið
einstaklega heppnir.
Að sögn Joan Olson hafði íbúum
íylkisins ekki verið gert viðvart áður
en skýstrokkurinn reið yfir. Slíkar
hamfarir geri sjaldnast boð á undan
sér. Sagði hún að mjög fátítt væri að
svo öflugir skýstrokkar gengju yfir
á þessum slóðum. Fjölmargir hefðu
séð til ferða strokksins og gert al-
mannavörnum í Norður-Dakóta við-
vart. „Veðrið var afar slæmt þennan
dag, mikið úrhelli og stormur. Þá
var mikill raki í lofti og strokkurinn
afar ógnvekjandi í útliti.“
Hópur Vestur-Islendinga sem
fluttu frá Nýja-Islandi
Að sögn Braga Skúlasonar, sem
gegndi prestsembætti í Mountain
um fjögurra ára skeið á níunda ára-
tugnum, er afar flatlent á svæðinu
umhverfis bæinn. Fremur fámennt
er á þessum slóðum og íbúar
Mountain ekki miklu fleiri-en 150
talsins að íbúum elliheimilisins Borg
meðtöldum. Mikið er um búskap á
þessu svæði, nautgriparækt og kom-
rækt, og því fremur strjálbýlt.
Bragi sagði að elliheimilið Borg,
nefnt eftir Hótel Borg við Austur-
völl, sem væri um fimmtíu ára gam-
alt, stæði í útjaðri bæjarins og þar
byggju margir Vestur-Islendingar.
Fólkið sem þarna býr á ættir sín-
ar að rekja til hóps er kom frá Nýja-
íslandi og bera ættarnöfn og staðar-
heiti þess glögg merki. Þar er t.a.m.
bær er heitir Garðar, þar skammt
frá er Þingvallakirkjan og minnis-
merki um Káin er þar nærri. Þá ber
kirkjan í Mountain nafn Víkurkirkju
og Vídalín-kirkja er ekki fjarri.
aætir
Farið i
bilaleik
í kvöld er dregið í Víkingalottóinu
um tugi milljóna króna!
Fáðu þér miða fyrir kl. 16 í dag.
ems
kr. röðin